Þjóðviljinn - 13.07.1991, Blaðsíða 3
Ab gefnu tiijefni
BJARNI
Eg trúi
ekki
minum eigm eyrum
Fyrír fáeinum dögum fékk Sjónvarpið
tvo kunna menn til að tala saman um
samninga um væntanlegt Evrópskt
efnahagssvæði. Jóni Baldvini Hanni-
balssyni utanríkisráðherra hrutu þá þau
orð af munni, sem hér eru notuð sem fyrír-
sögn greinar, þegar honum þótti nóg um
malflutning viðmælanda síns, Bjarna Ein-
arssonar, aðstoðarforstjóra Byggðastofn-
unar.
Bjarni Einarsson er í hópi þeirra
manna sem sett hafa fram alvarlegar at-
hugasemdir við samningana og vakti strax
máls á þeim. Auk þess var flutt í þættinum
brot úr erindi Hannesar Jónssonar, sem
hann flutti á fundi í Norræna húsinu fyrir
skömmu. Þetta tvennt dugði utanríkisráð-
herra til að setja mælskumaskínuna svo
rækilega af stað að hann tók upp mestan
tíma þattarins. Því miður urðu áhorfendur
sáralitlu nær um EES, þrátt fyrir langar
ræður ráðherrans, en fengu hins vegar enn
eina staðfestingu á því sem þeir vissu lík-
lega flestir fyrir: Að mati utanríkisráð-
herra eru ekkert nema kostir við aðild Is-
lands að EES.
í undirbúningi er stofn-
yn samtaka gegn þátttöku
Islands í hinu Evrópska
efnahagssvæði og segir í
áskorun sem er grundvöll-
ur samtakanna að fram-
ganga stjómvalda hafi „að
undanförnu verið með
þeim hætti, að ástæða er til
að hafa áhyggjur af því að
verið sé að fóma hagsmun-
um íslensku þióðarinnar og rétti hennar til að
ráða málum sinum sjálf.“ Bjami Einarsson er
einn af forgöngumönnum að stofnun samtak-
anna og var kjaminn í athugasemdum hans af
sama toga en auk þess taldi hann að fjárhags-
legur ávinningur af samstarfinu væri þegar
allt kemur til alls sáralítill. Hér er auðvitað
um að ræða það sem öllu máli skiptir í sam-
bandi við þetta mál, hveiju er fómað og hvað
fæst hugsanlega í staðinn, og því ástæða til
að huga nánar að þvi sem utanrikisráðherra
sagði.
Um hugsanlegt framsal löggjafarvalds
sagði Jón Baldvin fyrst:
,J>að er ekki verið að framselja neitt lög-
gjafarvald. Það er misskilningur sem Bjarni
sagði að við þurfum að taka við lögum og
reglum Evropubandalagsins. Hvað emm
við að gera? Við emm að sækjast eftir því að
fá sammningsbundna aðild að tollfrjálsum
viðskiptum með vörur. Hafa einn sameigin-
legan jjármagnsmarkað og vinnumarkað. Um
þetta gilda lög og reglur í Evrópubandalag-
mu. Það er enginn að þröngva þessu upp á
okkur, heldur erum við að óska eftir því að fá
aðild að þessum 380 miljóna markaði."
Síðar sagði hann:
„Samningsniðurstaðan, þegar hún liggur
fyrir, hún er lögð fyrir Alþingi, vegna þess að
Alþingi hefur ekki afsalað sér neinu valdi.
Það verður ekkert gert nema með því að
Alþingi samþykki þennan samning."
Hér er ekki nema sjálfsagt að vera gæt-
inn en því miður læðist að manni grunur um
að ráðherrann tali gegn betri vitund því sjálfur
gaf hann Alþingi skýrslu um stöðu mála í
október sl. Þar segir um grundvöll samnings-
ins: „Samþykktir Evrópubandalagsins,
með fáum og afmörkuðum undantekning-
um, (leturbr. Þjóðv.) sem réttlætast af gruna-
vallarhagsmunum ems eða fleiri EFTA-ríkja
og með aðlögunartíma vegna nokkurra þátta.
Jafnvægi milTi réttinda og skyldna. Sameigin-
leg landbúnaðarstefha og sjávarútvegsstefna
EB utan sairmines.“ Og á næstu síðu í sömu
skýrslu segir frá því að „þær samþykktir Evr-
ópubandalagsins sem mynda eiga grundvöll
evrópsks efnahagssvæðis hafa nú verið af-
markaðar að mestu leyti,“ og síðan er þess
fetið að samtals sé um að ræða 1120 sam-
ykktir á þremur sviðum samningsins. Þá er
ekki allt talið því þegar
: öll kurl eru komin til
grafar felst í þessu
T 1.000 siðna laga- og
reglugerðartexti, sem
mun vera samanlagt 8
sinnum meira en allt is-
lenska lagasafnið.
Það er sjálfsagt rétt
hjá ráðherranum að það
....... er enginn að þröngva
samnmgunum upp á
okkur en hitt getur ekki farið á milli mala að
um leið og Alþingi samþykkir samninginn
hefúr verið ákveðið að lög sem saipþykkt
hafa verið annarsstaðar skuti gilda á Islandi.
Þessum lögunj getur Alþingi eitt og sér alls
ekki breytt. A ninn bóginn getur EB gert
hvaða breytingar sem það kærir sig um hjá
sér og lagi EFTA- löndin sig ekki að þeim
breytmgum rofnar sjálfúr grundvöllur samn-
ingsins, eða eins og Jón Baldvin sagði í um-
ræddum þætti: „Ef við ætlum að bua til eitt
markaðssvæði, þá er nauðsynlegt að það gildi
sömu lög og sömu reglur á því svæði á þessu
takmarkaða sviði, því ella gætu þessi við-
skipti ekki gengið fyrir sig.Þannig að við
erum reiðubúnir til þess að fallast á að þessar
reglur, sem Evrópubandalagið hefúr þróað á
undanfömum árum, gildi ynr Evrópska efna-
hagssvæðið allt.“
Það sem ráðherrann kallar takmarkað svið
eru, samkvæmt skýrslu hans til Alþingis,
„fijáls vömviðskipti, fjármagnsmarkaður og
þjonustuviðskipti, atvinnu- og búseturéttindi"
en auk þess svokölluð , jaðarmálefni (mennta-
mál, menningarmál, umhverfismál, félagsmál
o.s.frv.) „
... og ekki verður betur
séð en umgengni hans við
sannleikann sé á tæpasta
vaði, að ekki sé nú fastar
að orði kveðið
Eins og áður segir taldi Bjami Einarsson
að fárhagsTegur ávinningur samningsins yrði
harla lítill. Þvi svaraði Jón Baldvin í löngu
máli og sagði m.a.:
„Bjami segir hér upp í opið geðið á þióð-
inni, maður sem ætlar að fara að upplýsa
þjóðina um þetta mál, að þetta sé mjög ovem-
legur ávinningur. Teljum nú upp ávinninginn:
I fyrsta lagi. Þá er það auðvitað stór-
kostlegur ávinningur að fá niðurfellingu á
tollum sem við greiðum fyrír allar okkar
sjávarafurðir á Evrópskum markaði, sem
tekur við 70% af okkar útflutningsafurð-
um. Það er alveg sama hvernig á það er lit-
ið að það er mjög verulegur ávinningur.
Menn meta það misjafnlega hvort þetta er
einn miljarður á árí eða upp í tveir og hálf-
ur miljarður á árí.
Það er ekki stóri þátturinn í þessu, heldur
hitt að ef íslensk fiskvinnsla, sem er lands-
byggðarmál Bjami Einarsson, býr allt í einu
við þau skilyrði að geta fúllunnið sjávaraf-
urðir, fullunnið þær, frá flökuðum fiski, sem
færi fram hjá uppboðsmörkuðunum í Evrópu
á neytendamarkaðina, yfir í það að vera með
sérstaklega sérhannaða fúll-
búna neytendarétti tmdir ís-
lenskum vörumerkjum fram
hjá uppboðsmörkuðunum.
Þetta mundi gefa tilefni til
aukinnar sérhæfmgar í ís-
lenskri fiskvinnslu..."
Þegar Bjami Einarsson
tók undir það að vissulega
væri um einhvem ávinnig að
ræða og jafnframt að hann
vissi ekki betur en að fúll-
unnar fiskafúrðir væm ekki
háðar tollum, þá hitnaði ráð-
herranum í hamsi:
„Bjami! Tollakerfi EB er um það að hafa
0-3,7% tolla á óunnin fisk og er þess vegna
um það, og það er bara stóra málið í islensk-
um sjávarútvegi og norskum sjávarútvegi.
Það er verið að breyta okkur, og reyndar hag-
kerfi Færeyinga og Grænlendinga, í hráefn-
isútflytjendur. Ef við fáum tollfrelsi þá get-
um við gerbreytt þessu. Við getum skapað
aðstæður fyrir þíjð að búa til hatækniþróaðan
matvælaiðnað a Islandi.
Bjami:
Það hefúr mér hingað til skilist að væri
ekki háð tollum í Evrópubandalaginu, þegar
hann er orðinn iðnaðarvara.
Jón:
Bjami! Eg trúi ekki mínum eigin eyrum!
Veistu ekkert um saltfiskinn?
Bjami:
Að sjálfsögðu veit ég allt um saltfiskinn.
Hér grípur ráðherra til afar sérkenni-
legrar röksemdafærslu og ekki verður
betur séð en umgengni hans við sannleik-
ann sé á taspasta vaði, að ekki sé nú fastar
að o/ði kveðið.
I fyrsta lagi er það beinlínis rangt að
greiddur sé tollur af öllum fiskafúrðum sem
við flytjum til EB (kom reyndar fram hjá
honum í öðru samhengi að tollurinn nái til
40% af f "
svo að honum:
ar, er undanþeginn I
aðri bókun 6, sem er hluti af friverslunar-
samningi okkar við EB. 1 öðru lagi verður
ekki séð hvemig tollur á „óunnum fiski" get-
ur virkað sem vTtamínsprauta á fiskvinnsluna
í landinu. Með lágum eða engum tollum á
óunnum fiski versnar samkeppnisaðstaða
fiskvinnslunnar hér á landi og nefúr raunar
ekki farið á milli mála undanfarin ár. Til að
draga úr útflutningi á óunnum fiski hefúr ver-
ið gripið til ýmissa ráða, s.s. aukinnar skerð-
ingar á kvóta þeirra skipa sem flytja út, auk
stjómunar á útflutningnum. Þá hafa komið til
fiskmarkaðir sem eiga að skapa innlendu fisk-
vinnslunni betri að-
----------------- stöðu til að keppa við
markaðina úti. Allt
hefur
leitt
verðs og betri afkomu
sjómannna og útvegs-
manna en aukið kostn-
að vinnslunnar og
raunar dregið úr mögu-
leikum verkafólks til
að bæta sinn hlut.
----------- Meginhluti þeirra
tolla sem greiddir em
af íslenskum fiski er vegna saltfisksins og
hafa talsmenn saltfiskffamleiðenda vissulega
látið í ljós áhuga á að losna við þennan toll,
en alls engan heraðsbrest talið i vændum þótt
svo verði ekki. Hver á endanum greiðir þenn-
an toll er svo ekki ljóst: „Það getur auðvitað
verið breytilegt eftir markaðsaðstæðum hver
ber tollana, hvort það er neytandinn að hluta
til og seljandinn að hluta til, það fer eftir
ffamboði og eftirspum á markað
Jón Baldvin m.a. í þættinum.
... getur EB gert hvaða
breytingar sem það kærir
sig um hjá sér og lagi
EFTA-löndin sig ekki að
þeim breytingum rofnar
sjálfur grundvöllur samn-
ingsins
ir þetta hins vegar
til hækkaðs fisk-
num,“ sagði
Að þessu sinni gefst ekki færi á að ræða
fleiri atriði í kostulegum málflutningi utan-
ríkisráðherrans, til ao mynda þá ftillyrðingu
hans að samningurinn um EES sé ígildi 30-
35% af aðild að Evrópubandalaginu á meðan
í flestum EFTA-löndum er litið svo á að
sampingurinn jafúgildi 60-80% af fúllri að-
ild. I heild sinni var upplýsingaframlag hans
þess háttar að best á við að víkja til orði í
nans eigin upphrópun, leggja þjj
munn og segja í lokin:
mínum eigin eyrum!“
hágé.
inni orð í
Jón! Ég trúi ekki
Síða 3
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. júlí 1991