Þjóðviljinn - 13.07.1991, Síða 7
FRÉTTIR
Æðarungamir horfnir í grútinn
[ Skálanesvlk I Ingólfsfirði eru dauðir fuglar um alla fjöru, flest æðarungar, en einnig fýll og kollur.
Okkur virðist að yfirvöld
fyrir sunnan hafi mestan
áhuga á að vita hvaðan
þessi ófðgnuður kemur, en það
sem við viljum er að eitthvað sé
gert til að hreinsa fjörurnar
hér,“ sagði Eva Sigurbjörnsdótt-
ir hótelstýra á Djúpuvík um
grútarmengunina sem nær allt
frá Furufirði suður til Kolla-
fjarðar. Grúturinn liggur eins og
hvít sUkja í fjörum á þessu
svæði, en magnið er þó ekki mik-
ið á svæðinu frá Norðurfirði til
KoUafjarðar.
Fjöldi fugla hefur drepist, aðal-
lega æðarungar sem liggja eins og
hráviði í fjörunum í Bjamarfirði og
víðar. Bændur á þessu svæði hafa
tínt upp mikið af fugli og reynt að
þrifa nokkra sem hafa verið með
lífsmarki, án mikils árangurs.
Ómögulegt er að meta hversu mik-
ið magn af grút er í sjónum eða
hversu margir fuglar hafa drepist,
en líklega skipta þeir þúsundum.
Blaðamaður og ljósmyndari
Þjóðviljans sáu fjölda af ungalaus-
um kollum á sjónum undan
Ströndum, sem að öllu eðlilegu
ættu að vera með fjóra til sex unga
hver. Á Ströndum eru þijár góðar
æðarvarpsjarð. - sem
hafa orðið fyrir tilfmnanlegu
tjóni af völdum mengunarslyssins.
Ungamir, sem synda inn í grút-
arflekkma, eiga sér engrar undan-
komu auðið og þykkt Iag af leðju
vefst utan um þá þannig að þegar
fjörur em gengnar sést varla nema
goggur eða löpp út úr grútarköggl-
unum. Einnig sást fjöldi dauðra
unga sem höföu hlaupið upp á land
og var bringa þeirra löðrandi í
grút.
Bakpokaferðalangar sem höfðu
gengið fjömr frá Aðalvík til
Djúpuvíkur kváðust fyrst hafa orð-
ið varir við mengunina i Fumfirði,
norðar væri sjórinn hreinn að sjá,
a.m.k. frá landi.
Sævar Guðmundsson í Munað-
amesi gekk með Þjóðviljamönnum
um fjörumar í Ingólfsfirði og þar
blasti við ófogur sjón. Víða,
skammt undan landi, vom grútar-
flekkir og í fjömborðinu var hvít
leðjurák á löngu svæði. Grúturinn
límist utan um allt sem hann kem-
ur nálægt og rekaviðardrumbar,
sem óvenju mikið er af um þessar
mundir, jafnt sem æðarfúglar, em
því umvafðir grútardmllunni. Sæv-
ar kvaðst hafa farið á bát á Hom-
strandir að sækja ferðamenn á
fimmtudagskvöld og þá hefði hann
séð stóra grútarflekki sem eiga eft-
ir að ná landi.
Fólkið í Munaðamesi hefur
tekið nokkra lifiitla fúgla í hús sið-
ustu daga og þrifið þá með volgu
sápuvatni, en aðeins hefúr tekist að
bjaiga einni kollu og tveimur ung-
um, sem nú hafast við í fjárhúsum
bæjarins. Afar erfitt er að þrifa
grútinn af fuglunum þar sem hann
klístrast við allt eins og smjörlíki.
Fólkið á Ströndum veltir fyrir sér
eins og aðrir hvaðan grúturinn
kemur, en viðmælendur blaðsins
sögðust þó hafa meiri áhyggjur af
því hvenær efnið leystist upp.
„Þetta sýnir best hvað við erum
óvarin fyrir mengunarslysum,"
sagði hótelstýran á Djúpuvík. „Það
em allir ráðalausir, og á meðan
drepast fúglamir hundmðum sam-
an.“
-vd.
Fuglamir flýja upp á land en hafi grútur llmst á bringuna viröist þaö duga
til að gera út af við þá.- Myndir: Þorfinnur
Uppruni grútarins óljós
Minna atvinnuleysi
úti á landi
r
Ijúnímánuði minnkaði atvinnuleysi frá því í mánuðinum áður
um 2600 daga og um 16 þúsund daga miðað við júnímánuð í
fyrra. ÖU fækkun skráðra atvinnuleysisdaga átti sér stað á
landsbyggðinni, en atvinnuleysi jókst á höfuðborgarsvæðinu.
Enginn veit hvernig grútar-
mengunin á norðanverðum
VestQörðum er tilkomin.
PáU Hjartarson er nú gegnir
starfi sigUngamálastjóra segir að
stofnunin viti að um lýsi sé að
ræða, en ekki er enn komið í Ijós
hverskonar lýsi er þarna á ferð-
inni.
- Það hafa ýmsar kenningar
verið á lofti um tildrög gnitarins.
Við á Siglingamálastofriun höfúm
ekki verið með neinar sérstakar
kenningar í huga við rannsóknina,
heldur reynum við að athuga alla
þá möguleika sem fyrir hendi eru,
sagði Páll.
Getgátur manna hafa verið i þá
áttina að lýsið sé komið úr tönkum
bresks olíuskips er sökkt var í
Húnaflóanum á striðsárunum. Það
sé að ryðga í sundur núna. Aðrir
hafa horft á hafisinn úti fyrir
ströndinni og halda að grúturinn sé
kominn alla leið frá Siberíu og
hafísinn hafi rekið hann á undan
sér. Ymislegt styður þá kenningu,
t.d. segir Páll Hjartarson að skip á
milli Islands og Færeyja hafi rekist
á grútarflekki í ferðum sínum upp
á siðkastið. Enn aðrir líta tankskip
er sást á reki um 2 sjómílur undan
Iandi sem hugsanlegan sökudólg í
málinu. Eins og áður sagði treystir
Páll sér ekki til að meta uppruna-
stað grútsins, en verið er að athuga
möguleikana. Nú hefúr verið óskað
eftir upplýsingum um tankskipið
og vill Siglingamálastofnun fá að
vita hvað það var að gera á reki
fyrir utan Vestfirði. Páll segir að
það sé illt til þess að vita að erlend
skip geti siglt þvers og kruss innan
landhelginnar og lónað skammt
undan landi án þess að nokkur viti
hvaða eða hverskonar skip er um
að ræða.
- Við þurfúm að fara að krefj-
ast þess að erlend skip tilkynni sig
þegar þau koma inn í landhelgi
okkar. Hér væri í raun hægt að losa
í sjóinn allskonar eiturefni, án þess
að nokkur hefði hugmynd um það,
sagði Páll. -sþ
Skráðum atvinnuleysisdögum
fækkaði um 3200 úti á landi, en
fjölgaði um 630 daga í Reykjavík
og nágrannabyggðum. í júni voru
slááðir atvinnuleysisdagar 30 þús-
und á landinu öllu, 17 þúsund hjá
konum og 13 þúsund hjá körlum.
Þetta jafngildir því, að 1400 manns
hafi að meðaltali verið á atvinnu-
leysisskrá í mánuðinum, en það
svarar til 1.0 prósents af áætluðum
mannafia á vinnumarkaði.
Afráðið er að leifar banda-
rísku ratsjárstöðvarinnar
á Straumnesfjalli, sem
lögð var niður 1960, verði
hreinsaðar af fjallinu. Átak var
gert í hreinsunarmálum á fjall-
inu 1969 og aftur 1978 en var
langt í frá fullnægjandi og þvi
verður þráðurinn tekinn upp að
nýju dagana 22. til 26. þessa
mánaðar og það hreinsað sem
eftir var skilið í fyrri hreinsun-
arferðum.
í fréttatilkynningu frá utanrík-
Sem fyrr er minnst atvinnu-
leysi á Vestfjörðum eða 0,1 prósent
af áætluðum mannafla og mest á
Norðurlandi vestra eða 1,7 prósent.
Atvinnuleysi er áfram mest hjá
konum eða 1,3 prósent miðað við
0,7 prósent hjá körlum. Atvinnu-
leysi er 1,3 prósent á landsbyggð-
inni en 0,8 prósent á höfúðborgar-
svæðinu i júnimánuði. Þessar upp-
lýsingar koma frá vinnumálaskrif-
stofú félagsmálaráðuneytisins.
isráðuneytinu segir að notuð verði
þyrla sem fengin verði að láni frá
vamarliðssveit bandaríska hersins,
en sveitin mun vera við æfingar
hér um líkt leyti, til að flytja
hreinsunardeildir og tæki upp á
Straumnesfjall.
Yfirumsjón tiltektarinnar er á
vegum Vamamálaskrifstofú utan-
ríkisráðuneytisins og umhverfis-
ráðuneytisins, en þeir sem verkið
yinna verða björgunarsveitir frá
ísafirði, Bolungarvík og Hnífsdal.
-rk
Fyrstu sex mánuði ársins hafa
257 þúsund atvinnuleysisdagar
verið skráðir á landinu öllu sem
samsvarar þvi að tæplega 2000
manns hafi verið að meðaltali á at-
vinnuleysisskrá eða um 1,5 prósent
af mannafla.
Skráðum atvinnuleysisdögum
fækkar mest á Norðurlandi vestra
eða um 1737 frá fyrra mánuði, en
fjölgar um 631 á höfúðborgar-
svæðinu, um 610 á Suðumesjum
og um 69 á Vestfjörðum. Þeim
fækkaði um 405 á Vesturlandi, um
516 á Norðurlandi eystra, um 515
á Austurlandi og um 687 á Suður-
landi. -gpm
Ný samninga-
nefnd ríkisins
Fjármálaráðherra skipaði í
vikunni nýja samninganefnd
ríkisins í launamálum. I samn-
inganefndina vom skipaðir Ág-
úst Einarsson prófessor sem er
formaður hennar, Birgir Guð-
jónsson skrifstofústjóri, Guðríð-
ur Þorsteinsdóttir lögfræðingur,
Magnús Pétursson ráðuneytis-
stjóri og Steingrímur Ari Ara-
son aðstoðarmaður ráðherra.
Meginverkefni nefndarinnar
verður að undirbúa gerð kjara-
samninga í haust, en kjarasamn-
ingar ríkisins falla úr gildi 31.
ágúst sem og kjarasamningar
hins almenna vinnumarkaðar,
segir i fréttatilkynningu frá fjár-
málaráðuneytinu.
-gpm
Loksins tiltekt á
S traumnesfj alli
Síða 7
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. júlí 1991