Þjóðviljinn - 13.07.1991, Blaðsíða 11
A Utnsión: Sif Gunnarsdóttir
Enn um útlagann
í Skírisskógi
Regnboginn
Hrói hðttur prins þjófanna (Robin
Hood prince of thieves)
Leikstjóri: Kevin Reynolds
Handrit: Pen Densham, John Wat-
son
Framleiðendur: Pen Densham,
John Watson, Richard B. Lewis
Aðalleikarar: Kevin Costner,
Morgan Freeman, Alan Rickman,
Mary Elizabeth Mastrantonio,
Christian Slater, Geraldine McE-
wan
Þá er seinni mynd sumarsins
um þjóðsagnahetjuna Hróa
hött komin og hún er bæði
skrautlegri og skemmtilegri
en sú fyrri. Enda miklu meira í
hana lagt og gulldrengurinn Kevin
Costner leikur útlagann í Skíris-
skógi. Þetta er ein útgáfa í viðbót
af hetjunni sem barðist fyrir rétt-
læti í Englandi á tólftu öld og ekk-
ert meira ósannfærandi en hinar.
Hér hefst myndin í arabísku
fangelsi þar sem Hrói situr í keðj-
tim. Hann haiði rifist við föður
sinn, jarlinn af Lockesley, og ætt af
stað í krossferðir ásamt Ríkharði
konungi vegna þess að faðirinn
hafði tekið saman við almúgakonu
eftir að kona hans dó. Hrói sleppur
úr fangelsinu og bjargar um leið
máranum Azeem (Morgan Free-
man) sem heitir því að skilja ekki
við Hróa fyrr en hann er búinn að
launa honum lífgjöfina. Hrói lofar
líka deyjandi vini sínum að líta eft-
ir systur hans í Englandi, hinni
fðgru lafði Marion. Félagamir
ferðast saman til Englands sem
Hrói heldur að sé himnaríki á jörð,
en ýmislegt hefur breyst i fjarveru
hans.
Fógetinn í Nottingham (Alan
Rickman) átti sökótt við föður
Hróa (jarlinn vildi ekki ganga í lið
með honum), svo að hann drap
jarlinn, brenndi heimili hans og
eignaði sér landið hans.
Hrói sver að hann skuli hefna
foður síns og eftir að hann ásamt
vini sínum Azeem hefur drepið
nokkra af mönnum fógetans er
hann gerður útlægur og flýr inn í
Skírisskóg. Þar hafast við aðrir út-
lagar sem hafa gert eitthvað til að
ergja fógetann, og eftir að Hrói
hefur sannað getu sína er hann
sjálfskipaður fyrirliði þeirra í bar-
áttunni gegn valdsmönnum.
Fógetinn í Nottingham er ekk-
ert venjulega vondur maður, hann
er galinn djöfladýrkandi með nom
í kjallaranum sem vill steypa kon-
unginum af stóli. Nomin les rúnir
og sér dauða þeirra af völdum
Hróa og manna hans, en vill meina
að þau bjargist ef fógetinn eignast
bam með aðalborinni konu. Fóget-
inn rænir umsvifalaust lafði Mari-
on, en þar fór hann illa að ráði sínu
því að Hrói elskar Marion og er til-
búinn til að heyja stríð til að ná
henni aftur.
Þrátt fyrir fjölmargar slags-
málasenur og þó nokkurt blóð er
létt yfirbragð yfir myndinni. Hún
er rómantísk og herská, skemmti-
leg blanda af ævintýraraunsæi, ein-
lægni, léttu háði og kímni. Sviðs-
myndin er flott, dimmir kastalar,
fomg stræti Nottinghamborgar,
dmngalegar dýflissur og svo bú-
staðir Hróa og hans kátu sveina í
Iaufskrúði skógarins. Búningamir
em líka smart (engar grænar
sokkabuxur).
Costner passar vel í hlutverk
hetjunnar (datt einhveijum annað í
hug?), hann handleikur bogann af
mikilli leikni, situr hest eins og
hver annar kúreki og er í alla staði
afskaplega sjarmerandi. En enska
hreimnum nær hann ekki. í þessum
Hróa hattar myndum tíunda ára-
tugarins er aðallinn í Englandi
greinilega amerískur en almúginn
enskur, en hvað um það.
Morgan Freeman leikur „bar-
barann“ Azeem sem er svo miklu
fágaðri og ftóðari en Englending-
amir. Hann er tilkomumikill leikari
og hlutverk hans setur skemmtileg-
an svip á myndina. Mastrantonio
er bæði falleg og herská Marion og
Christian Slater er reffilegur Willi-
Unglingar
eftir uppskrift
Laugarásbíó
Táningar (Book of love)
Leikstjóri: Robert Shaye
Aöalleikarar: Chris Young,
Keith Coogan
Maður taki fyrst eitt
strákgrey og hræri hon-
um svo út í: nýtt hverfi,
hetjuskap, aulafyndni,
gleraugnaglám, fyrsta fylleriið,
leðurgengi, mótorhjól, fyrstu ást-
ina, bera rassa, stór bijóst, kúk &
piss brandara, heigulshátt, vináttu,
skólaleiða, hrekki, klámblöð,
partý, lokaballið, sjálfsfróun,
skilningssljóa foreldra, lygar, rokk-
músík, bíla, gallabuxur, síða kjóla
og brilljantín - blandi þessu vel
saman og þá er maður kominn
með hina týpísku unglingamynd.
Myndin Táningar hefst á því
að vel stæður rithöfundur skoðar
árbók gamla menntaskólans síns
og myndin af honum sjálfum talar
til hans og minnir hann á gömlu,
góðu dagana þegar strákar vom
strákar og stelpur vom stereótýpur.
Rithöfundurinn sekkur sér ofan
I minningamar, nánar tiltekið síð-
asta skólaárið þegar lokaballið
nálgast og aðaláhyggjumar ganga
út það að ná sér í stelpu til að fara
með á það. Aðalpersónan, Jack
am Scarlett. En það er Alan Rick-
man i hlutverki fógetans sem prýð-
ir myndina mest. Hann sýndi í Die
hard að hann er glettilega góður í
glæponahlutverk, en hér er hann
ffábær. Hann geysist um svart-
klæddur og galinn og á öll bestu
tilsvörin í myndinni, ég vona bara
að ég sjái hann næst í aðalhlut-
verki.
Reynolds tekst prýðilega að
láta Hróa höfða til manns, enda
ansi nútímalegur. Myndin er oft
spennandi og fyndin, og eins og
örvamar hans Hróa hittir hún í
mark á þessu spennumyndasumri.
Kevin Costner passar
vel f hlutverk hetjunnar.
(Chris Young), er náttúrlega ekki
töffari, en er samt vonleysislega
ástfanginn af sætustu stelpunni.
Hún er auðvitað með brilljantín-
töffaranum Angelo sem geysist
leðurklæddur um á mótorhjóli. En
hver ætli vinni hana i endann?
Engin verðlaun fyrir rétt svar.
Það er afskaplega algengt i
svona myndum að stelpur séu full-
komlega persónulausar stereótýp-
ur. Ljóshærða fallega stelpan sem
er svo góð og dökkhærða sexý
stelpan sem er svolítið villt. Tán-
ingar er engin undantekning. Svo
em nokkrar sem em bara bijósta-
stórar til að fylla upp í. Strákamir
em staðlaðir líka, en þeir em að-
eins meiri persónur og koma jafn-
vel líka á óvart, eins og til dæmis
gleraugnaglámurinn (algjör auli)
sem kemur á óvart á ballinu með
glæsilegum danssporum.
í myndinni er ekkert nýtt, þó
að það læðist inn glettin atriði
endmm og eins. En hún er ekkert
illa leikin og viðtökur ungra áhorf-
enda í bíó bentu til þess að hún
höfðaði sérlega vel til þeirra.
Táningar er mynd fyrir þá sem
hafa aldrei séð unglingamynd áður,
ekki aðra.
VIRÐISAUKASKATTUR
Endurgreiðsla
virðisaukaskatts
til íbúðarbyggjenda
Hvað er endurgreitt?
Virðisaukaskattur af vinnu manna við
íbúðarhúsnæði er endurgreiddur:
• Byggjendur íbúðarhúsnæðis geta fengið
endurgreiddan þann virðisaukaskatt
sem þeir greiða vegna vinnu manna á
byggingarstað hússins.
•Eigendur íbúðarhúsnæðis geta fengið
endurgreiddan þann virðisaukaskatt
sem þeir greiða vegna vinnu manna við
viðhald og endurbætur ibúðarhúsnæðis
síns.
• Þeir sem framleiða íbúðarhús í verk-
smiðju hér á landi geta fengið endur-
greiddan hluta virðisaukaskatts af
söluverði húsanna.
Sérstaklega skal tekið fram að hvorki er
endurgreiddur virðisaukaskattur vegna
tækjavinnu né af efni sem notað er til
byggingarframkvæmda.
Endurgreiðslubeiðni
Sækja skal um endurgreiðslu á sér-
stökum eyðublöðum til skattstjóra í því
umdæmi sem umsækjandi á lögheimili.
Eyðublöðin eru:
•RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis til
sölu eða leigu.
•RSK 10.18: Bygging, endurbætur og
viðhald íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Athygli skal vakin á því að frumrit
sölureiknings skal fylgja umsókn um
endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna
endurbóta og viðhalds. Vegna ný-
byggingar verður umsækjandi að geta
lagt fram umbeðin gögn, t.d. sölu-
reikninga þar sem skýrt kemur fram
hver vinnuþátturinn er og að vinnan sé
unnin á byggingarstað.
Uppgjörstímabil
Hvert uppgjörstímabil ertveir mánuðir:
janúar og febrúar, mars og apríl, maí og
júní, júli og ágúst, september og október,
nóvember og desember.
Skiladagur
Endurgreiðslubeiðni skal berast skatt-
stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir
að uppgjörstímabili lýkur.
Hvenær er
endurgreitt?
Hafi beiðni um endurgreiðslu verið
skilað á tilskildum tíma skal endur-
greiðslan fara fram eigi síðar en 5. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
nýbygginga og eigi síðar en 20. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
endurbóta og viðhalds.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Síða 11
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. júlí 1991