Þjóðviljinn - 31.07.1991, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 31.07.1991, Blaðsíða 5
BlJLENJMM F1R1KTTT1R A Umsjón: Dagur Þorleifsson Bush heilsar kór sovéska hersins við Hvlta húsið - viðskiptamúrar kalda strlðsins að hrynja. Bush veitir Sovétríkjunum bestu kjör í viðskiptum vio Bandaríkin George Bush Bandaríkjaforseti, sem staddur er í Moskvu á toppfundi þeirra Gorbatsjovs Sovétríkjaforseta, tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið að veita Sovétríkjunum bestu kjör í viðskiptum við Bandaríkin. Er þar með verið að ryðja frá einni af helstu hindrununum sem enn eru eftir frá dögum kalda stríðsins. Þetta þýðir að tollar á sovésk- um vörum innfluttum til Banda- ríkjanna verða stórlækkáðir og er gert ráð fyrir að áhugi sovéskra fyrirtækja á Bandaríkjamarkaði muni aukast við það. En að vísu er talið að þau muni eiga þar und- ir högg að sækja í samkeppni við innflutning á vörum í hærri gæða- flokkum frá Vestur-Evrópu og Austur-Asíu. Bush sagðist einnig ætla að fá Bandaríkjaþing til að afnema aðr- ar hömlur á viðskiptum Banda- ríkjanna við Sovétríkin. Er þar einkum um að ræða lagasetningar frá miðjum áttunda áratugi, sem takmarka veitingar bandarískra lána til að greiða fyrir þeim við- skiptum. Bush kvaðst ennfremur ætla að reka á eftir þinginu um að það staðfesti viðskiptasamning, sem Bandaríkin og Sovétríkin gerðu fyrir ári. Bandaríkjaþing hefur ekki enn staðfest þann samning, þar eð það telur að sovésk stjóm- völd hafi enn ekki gert nóg til að tryggja sovéskum ríkisborgurum rétt til að ferðast utan og að flytja úr landi. Ráðstefna forseta Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna hófst í gær og lýkur henni í dag. Toppfundur þessi er sá fyrsti af slíkum sem Bush situr í Moskvu. Uppstokk' un í Suður- Afríku' stjóm Tveir af valdamestu ráð- herrunum í Suður-Afríkustjórn, þeir Magnus Malan varnar- málaráðherra og Adriaan Vlok, laga- og regluráðherra, hafa lát- ið af þeim embættum og tekið við öðrum ráðherraembættum valdaminni. Með þessu er F. W. de Klerk, Suður-Afríkuforseti, að reyna að bægja frá stjóm sinni harðri gagn- rýni sem að henni beinist eftir að uppvíst varð að lögreglan hafði veitt súlúska flokknum Inkatha íjárstuðning. Flokkur þessi er harður andstæðingur Afríska þjóð- arráðsins (ANC), fylgismestu samtaka suðurafrískra blökku- manna. Er farið að kalla hneyksl- ismál þetta „Inkathagate“. Laga- og reglumálaráðherra hefur lögregluna undir sinni stjóm. Malan er sá að núverandi ráðherrum sem hvað íhaldssamast- ur þykir og hafa þeir Vlok báðir þrásinnis orðið fyrir harðri gagn- rýni af hálfu ANC. Við af Malan sem vamarmála- ráðherra tekur Roelf Meyer, sem undanfama 18 mánuði hefur verið helsti tengiliður de Klerk í óopin- berum viðræðum við ANC. Nýi lögreglumálaráðherrann heitir Hemus Kriel og hefur einnig verið einn af helstu stuðningsmönnum forsetans í því að afnema apart- heidkerfið. Hann er kraftmaður sagður og hörkutól nokkurt, gagn- stætt Vlok, sem sagður er maður velviljaður, en ekki kraftmaður nægur til að tryggja sér virðingu og hlýðni lögreglunnar. Þeir Meyer og Kriel eru báðir á fimmtugsaldri og nokkru yngri en fyrirrennaramir. Tveir mestu áhrifamenn Suöur- Afríku, F. W. de Klerk forseti og Nelson Man- dela, leiötogi ANC. Óttast er aö „Inkathagate" stefni samráöi stjórnarinnar og ANC í voða. Evrópska efnanagssvæðið úr sögunni? Ráðherrar og aðrir embætt- isntenn sem tóku þátt í viðræðum Evrópubanda- lags og EFTA um stofnun Evr- ópsks efnahagssvæðis (EES) voru daufir í dálkinn í gær eftir að mistekist hafði að ná sam- komulagi. Sögðust sumir þeirra meira að segja óttast að fyrirætl- unin um EES væri hér með úr sögunni. Viðræðumar komust í strand í fyrrinótt er ekki náðist samkomu- lag um aðgang EFTA-ríkja fyrir fisk sinn að EB-markaði og fjár- framlög EFTA-ríkja til EB. Full- trúar EB neituðu að verða við kröfum EFTA um fullkomlega . frjálsan aðgang að markaði EB fyrir fisk og fiskafurðir og EFTA neitaði að verða við fjárkröfum EB, sem vildi fá helmingi hærri framlög frá EFTA en aðildarríki síðarnefnda bandalagsins vildu fallast á. Bandalögin höfðu sett sér það mark og mið að koma EES-samn- ingnum í höfn fyrir þessi mánaða- mót, og er þetta í þriðja sinn sem þau falla þannig á tíma í EES-við- ræðunum. Talið er að þetta geti dregið úr áhuga EFTA-ríkja á stofnun EES, sem yrði mesta efnahagsbandalag veraldar ef það yrði að veruleika. Frans Andriessen, sem fer með ut- anbandalagsmál í framkvæmda- stjóm EB, sagði að hætt væri við að nú myndu sum EFTA- ríkin hraða sér að sækja um inngöngu í EB eins og tvö þeirTa, Austurriki og Svíþjóð, hafa þegar gert. Ráða- menn í EB horfa með nokkrum ugg mót þeirri viðbót, þar eð fimm Andriessen - býst við umsóknum fleiri EFTA-rlkja um inngöngu I EB. EFTA-ríkjanna (Austurríki, Finn- land, Svíþjóð, Sviss og Liechten- stein) eru hlutlaus og í EB kvíða menn því að það flæki málin í við- leitni EB-ríkja að samræma utan- ríkis- og öryggismál sín. Það gengur ekki of vel eins og er. Anita Gradin, utanrikisvið- skiptaráðherra Svíþjóðar, sagði eftir að viðræðumar fóm út um þúfur að búast mætti við að EFTA- rikin hvert um sig reyndu að kom- ast að tvíhliða viðskiptasamning- um við EB. Hollendingar, sem nú em í for- sæti í EB, segja að nú fari í hönd í bandalaginu miklar annir við sam- ræmingu efnahags-, gjaldeyris- og stjómmála aðildarríkja þess, auk þess sem GATT-viðræðumar um heimsviðskipti væm aðkallandi. Væri því hætt við að EES-viðræð- ur sætu á hakanum. Opinberlega segjast bandalög- in bæði enn stefna að því að ná samkomulagi um EES fyrir ára- mótin 1992-93. ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 31. júlí 1991 Síða 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.