Þjóðviljinn - 16.08.1991, Blaðsíða 22
1 z 3 H- 6~ 6 z- 8 9 52 )0 U 11 ¥
IZ /3 3 X s? )S (O ?- 3 V /0 tp
n 3 ie ;9 20 21 s? 12 22 12 l<e 52 /S
n X 22 )Z 21 5? $ 2+ 2S 2/ S2 20 21 12 0
z?- V V )+ r~ 9 22 52 r )o JZ 52 ie 21
5? z Jg ZG V )Z 2! 3 9 32 12 22 ¥ 20 52
ZH V 20 ll S' V 21 á> 20 z/ $ 2
ZH ZO' ZJ V >0 0 SR qG y 21- 9 S 9 )S 0
3 2? r 3/ 3 Ip 3/ 3 9 52 2Ji 21 £ 3?
V S H' 13 zj á> W 9 /H- O 52 31 2o
y- 0 5? JH- 2Q 20 Zl 5? £ /0 e S2 Z2
20 3 X 3 V 21 2o 20 52 20 /0 (> sr
l'y 20 7J~ JH- xcr 3 w 2(p jH' 2S X 5? id
Krossgáta nr. 160
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karlmanns-
nafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóöviljans,
Síðumúla 37,108 Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 160". Skilafrestur
er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
1 /8 3 11 X! (9 3Í 3
Lausnarorö á krossgátu nr. 156 var Spenaheiði. Dregið var úr rétt-
um lausnum og upp kom nafn Vénýjar Viðarsdóttur, til heimilis að
Goðheimum 12, Reykjavík. Hún fær senda bókina Leyndir þræðir,
spennusaga um Morse lögreglufulltrúa, eftir Colin Dexter í þýðingu
Sifjar Gunnarsdóttur, íslenski kiljuklúbburinn gaf út árið 1991.
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 160 er
Það þarf tvo til, hjónabandsslit - ný
sambúð. Hjalti Jón Sveinsson
skráði.Almenna bókafélagið hf, gaf
út árið 1991.
MEÐ FLUGU
í HÖFÐINU
Sigurður
Palsson
Nú eru sælir dagar hjá, þeim
sem komast í sjóbleikju. Ég var
einn af þeim lánsömu í síðustu
viku. Áin liðaðist eftir löngum
dal. Gróðurinn var safaríkur og
rofabörð sá ég engin. Gulstara-
enei og víðiskóga á láglendi,
íjalldrapi og berjalyng upp um
allar hlíðar. Veðrið gott, sjó-
bleikjan dyntótt eða var það
kannske ég sem alltaf var að
skipta um flugur. Bleikjan tók
öðru hvoru þessar þekktu: Teal
Blue and Silver, Peter Ross, Al-
exöndru, Alder, Royal Coalman,
Kónginn, Wooly Warm. Lang-
mest veiddi ég þó á Wooly Bug-
ger sem að mestu var í magenta
fit. Hringskeggið og búkskeggið
var svart og hausinn úr magen-
talitum tvinna. Augu voru hvít
með svörtum punkti í. Þetta
vildi hún og einnig sömu flugu
einlita. Það var lTka magenta.
Hún er sælgæti eins og þið vitið
og ekki eru aðrir fiskar fallegri.
Svo lá einn lax. Hann tók sama
og bleikjan, einlitan Wooly
Bugger. Sennilega hefur greyið
verið orðinn einkennilegur inn-
anum alla þessa bleikju. Vinir
mínir eru stundum að velta fyrir
sér veiðisögum og þá einkum
hvort þær séu réttar. Þeir eru
ekkert kröfuharðir í því efni
enda verða allir að skilja það
meginatriði að auðvitað getur
saga verið alveg „rétt“ einsog
hákallinn, þó atburðimir sem
sagt er frá hafi verið dálítið
öðravísi. Hafi jafnvel aldrei
skeð. Þið ættuð að íhuga þessi
mál.
Flugan í þessari viku heitir
Canadian Killer. Höfundur
hennar er óþekktur og hún er
eins og fleiri góðar úr straum-
flugubókinni hans Bates.
Uppskriftiij er svona:
1. önguil: Ég notaði Vilson
einkr. frá Partridge. Leggurinn
er aðeins lengdur 2xL. Stærð 8.
2. Broddur: Flatt gulllitað
Mylar.
3. Skott: Nokkrar brúnar
fanir.
4. Loðkragi: Bronslituð pá-
fuglsfjöður.
5. Búkur: Skarlatsrauður
með gullvöfum. Hafið þetta
grannt.
6. Annar Ioðkragi úr sama
og sá fyrri.
7. Hringskegg: Brún hænu-
fjöður.
8. Undirvængur: Skarlats-
rauð hár úr íkomaskotti. Einlitt
og nái lítið skemmra en beygjan
á króknum.
9. Yfirvængur: Urtandar-
fjöður sem á að liggja flöt ofaná.
Veljið ekki mjög stóra fjöður.
Hreinsið dúninn af og klippið
miðjuna úr enda fjaðrarinnar.
Festið hana ofaná og togið í svo
vaffið sem fjöðrin myndaði
Ieggist saman.
Hafið hausinn rauðan og
veiðið vel á þessa fallegu flugu.
SVEIFLANIHUGA MER
Tómas R.
Einarsson
Jazzur í útnorðri
Þó kvæðasöngur sé
kannski kunnasta dæmið
um tóniistariðkun Færey-
inga, hefur hin óþjóðlega
djasssveifla þrifist þar með
ágætum um árabil.
í dag lýkur áttundu Jazz,
fólka og blues hátíð Þórshafn-
arbúa, en hún hefur verið ár-
legur viðburður síðan 1984.
Vel er vandað til hátíðarinnar
og þangað koma tónlistar-
menn viða að, þótt stærstur
hluti flytjendanna sé af nor-
rænu bergi brotinn.
Á hátíðina í ár komu m.a.
brasilíski harmóníkuleikarinn
og söngvarinn Sivuca með
sex manna hljómsveit, kvart-
ett fjögurra þekktra norskra
vísnasöngvara, bandarísku
blúsmennirnir The Holmes
brothers, sænski trúbadorinn
Sven Bertil Taube, dönsku
Doky djassbræðumir og full-
trúar Islands voru auk undir-
ritaðs Sigurður Flosason, sax-
ófónleikari, píanistinn Éyþór
Gunnarsson og Pétur Östlund
trommuleikari. Fjölmennastir
voru að sjálfsögðu Færeying-
ar sjálfir, en 10 þarlendar
hljómsveitir komu fram á há-
tíðinni, þ.á m. djassrokksveit-
imar Plúmm og Hóvasták, en
Sámal Ravnsfjall Blues,Band
og hljómsveit James Ólsens
sáu um föroyskur bluesur, og
tríó trompetleikarans Búa
Petersen, Tuba Mimm, lék
nútímadjass. Tveir meðlimir í
Plúmm, trommuleikarinn
Rógvi á Rógvu og bassaleik-
arinn Arnold Ludvig, ásamt
trompetleikaranum Búa og
söngvaranum og, trymblinum
lífsglaða, James Ólsen, eru ís-
lendingum ekki alveg ókunn-
ir, því þeir stunduðu nám í
Tónlistarskóla FIH á liðnum
vetri. Gítarleikari þeirra
Plúmmpilta, Leivur Thom-
sen, hefur ekki sist vakið at-
hygli aðkomumanna; þar er á
ferð sérdeilis efnilegur tón-
listarmaður.
Djassinn, þjóðlagatónlist-
in og blúsinn eru ekki aðskil-
in á hátíðinni, heldur sam-
viskusamlega hrært saman.
Þessar þrjár tónlistarstefnur
búa þannig í sætu faðmlagi á
degi hverjum í Norræna hús-
inu, en þar fer hátíðin fram í
þremur sölum.
Á opnunarkvöldinu s.l.
þriðjudag söng þannig Gentu-
kórið Suð um miðjan dag,
klukkan sjö lék danska stór-
sveitin Workshop DK-5000
ásamt finnsku söngkonunni
Ira Kaspi og Árósasaxistanum
Christian Vuust, klukkan hálf
níu spilaði kvartett undirrit-
aðs ásamt gestinum James Ól-
sen sem söng íslandskvæði
Wystans Hugh Auden og síð-
astur á svið var svo sænski
vísnasöngvarinn Sven Bertil
Taube.
Áheyrendur voru töluvert
á fjórða hundrað og fór vel
um þann fjölda í Norræna
húsinu, sem er einstaklega
fögur bygging og vel heppnuð
og í fullkominni sátt við um-
hverfið og færeyska hefð,
svartmálað timbur og grasi
hulið þak. Að tónleikunum
loknum fóru svo sveifluglaðir
áheyrendur í klúbb niðri í bæ,
þar sem djassinn dunaði á
djammsessjón langt fram á
nótt.
Potturinn og pannan í
þessu mikla fyrirtæki er sax-
ófónleikarinn, kennarinn og
fyrrum kaupsýslumaðurinn,
Brandur Össursson. Hann
lætur sér ekki nægja að halda
þessa hátíð, heldur hélt hann
líka námskeið vikuna á und-
an, þar sem yfir 30 nemendur
stunduðu nám í djasshljóm-
fræði, tóku þátt í samspili og
fengu einkatíma á sín hljóð-
færi.
Ghanamaðurinn Benjamin
Afadi lét einn tug manna slá
bumbur og söngla, Daninn
Karsten Hovmark sá um
djassgítarinn, Sigurður Flosa-
son og Eyþór Gunnarsson
kenndu þarna annað árið í röð
og nú bættist Pétur Östlund í
hópinn og undirritaður sagði
Brandur 0ssursson
til eina kontrabassanemand-
anum á námskeiðinu. Því lauk
s.l. mánudagskvöld með vel
heppnuðum tónleikum í
Listaskálanum í Þórshöfn
undir stemmningarríkum og
sterkum verkum málarans frá
Mikinesi, Sámals Joensen.
22 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 16. ágúst 1991