Þjóðviljinn - 07.09.1991, Blaðsíða 2
Er velferðarkerfið
í hættu?
Þannig er spurt í ítarlegri úttekt á velferðarkerfinu í
Nýju Helgarblaði Þjóðviljans í gær. Þar eru átta
einstaklingar úr röðum verkalýðshreyfingar, stjórn-
málaflokka og háskólans teknir tali og þeir leitast við
að svara ofangreindri spurningu.
Velferðarkerfið og ýmsir þættir þess hafa átt undir
högg að sækja undanfarnar vikur og mánuði oa því
er eðlilegt að spurning af þessum toga sé sett fram
og vöngum velt yfir svo brennandi málefni.
í áratugi hafa samtök launafólks og stjórnmálaöfl
sem kenna sig við félaashyggju barist fyrir bættu vel-
ferðarkerfi og auknu félagslegu og efnahagslegu ör-
yggi til handa öllum þjóðfelagsþegnum. í þeirri bar-
áttu hefur áherslan verið lögð a ao gæta sérstaklega
hapsmuna þeirra sem minna mega sín í samfélaginu,
þeirra sem vegna fötlunar á líkama eða sál, bágs
efnahags eða annarra slíkra aðstæðna láta oftast í
minni pokann í baráttunni við vald auðmagnsins. Það
er samfélagslea skylda að standa vörð um haai
bessa fólks og það má aldrei láta deigan síga í þeirri
baráttu.
Þegar talað er um velferðarkerfi í þessu samhengi
er fyrst og fremst átt við gæði þess fjársjóðs sem vel-
ferðarkemð er, en þau fara ekki alltaf saman við
magnið. Með Jpví er átt við að ekki beri eingöngu að
skoða krónufjóldann sem fer í hvem velferðarmála-
flokk, heldur frekar það sem fæst fyrir krónurnar
hverju sinni, hversu til tekst að jafna kjör og aðstöðu
fólksins í landinu.
Umræðan sem að undanförnu hefur spunnist um
velferðarkerfið ber of mikinn keim af þeirri staðhæf-
ingu að meintur hagvöxtur fari minnkandi og því verði
að draga úr ríkisútgjöldum. Niðurskurður ríkisútgjalda
er þannig orðinn goðsögn í stjórnmálaumræðu dags-
ins. Þetta er háskaleg jDróun, því efnahagsmál og rík-
isfjármál snúast ekki sist um skiptingu gæðanna. Þá
er brýnt að gæta vel að högum hinna lakar settu, en
beir sem vel eru aflögufærir verða að sætta sig við að
ieggja meira af mörkum til sameiginlegra þarfa. Um
annað getur aldrei orðið þjóðarsátt, um annað má
aldrei verða þjóðarsátt.
Hingað til hefur fylking hægri aflanna í landinu haft
hægt um sig og sjaldnast árætt að leggja til atlögu við
velferðarkerfið. í peirra röðum má nú greina áherslu-
breytingar, því flest bendir til að högqva eigi vægðar-
laust í knérunn efnaminni þjóðfélagspegna. Það er
því full ástæða til að spyrja eins og gert er í blaðinu í
gær: „Ef þetta er byrjunm, hvar endum við þá?“
Þjóðviljinn
Hér á síðum Þjóðviljans hefur undanfamar tvær vikur
verið fjallað um reKstrarerfiðleika blaðsins og þá
hættu sem að frjálsri og fjölbreyttri Ijölmiðlaumræðu staf-
ar, ef Þjóðviljinn hættir starfsemi. í öðrum fjölmiðlum hef-
ur sömuleiðis verið fjallað um málið og sýnist þar sitt
hverjum eins og vænta má.
í blaðinu í gær er birt auglýsing frá á sjöunda tug
einstaklinga úr ýmsum áttum sem telja nauðsynlegt
að Þjóðviljinn komi út áfram til að stuðla að fjölbreytt-
ari umræðu og lýðræðislegri skoðanamyndun.
Á þetta er minnt hér til að undirstrika að sú hætta
er yfirvofandi að útgáfa blaðsins stöðvist innan ör-
fárra vikna ef ekki tekst að treysta qrundvöll hennar
með um 2000 nýjum áskrifendum. Nú hafa ríflega
500 nýir áskrifendur bæst í hópinn, en betur má ef
duga skal.
ÁÞS
Þtqðyiltinn
Málgagn sósíalisma þjóöfrelsis og verkalýöshreyfingar
Síðumúla 37 — 108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f..
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson
Ritstjórnarfulltruar: Árni Þór Sigurðsson, Sigurður Á. Friðþjófsson.
Ritstjóm, skrifstofa, afgreiðsla, auglýsingar: Slðumúla 37, Rvik.
Auglýsingar: 681310, 681331.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Verð í lausasölu: 110 kr. Nýtt Helgarblað: 170 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 1200 kr.
Nemar viö Ármúlaskóla fengu rósir þegar þeir mættu I skólann. - Angan þessara rósa var þó betri en ilmurinn af
kratarósunum er f hugum nemenda f dag. - Mynd: Jim Smart.
Þeear hvítt
veröur svart
Umræðan um skólagjöldin í
fiölmiðlum að undanfömu hefur
verið svo út og suður að almenn-
ingur veit ekki lengur hvað snýr
upp og hvað niður í þeim málum.
Er nú svo komið að hvítt er orðið
svart í umræðunni og 250 miljón
króna skattur á nemendur er orð-
inn að þaki og gott ef ekki hið
mesta hagsmunamál fyrir skóla-
fólk.
Þetta er hinsvegar blekkinga-
leikur sem ráðhermm er ekki sam-
boðinn. Þeir eiga að vera menn til
að standa undir gjörðum sínum.
Skólagjöldin eru ekkert annað en
nýr skattur á nemendur og for-
eldra og það ber þeim að viður-
kenna.
Lítum ögn nánar á málið.
Samkvæmt fjárlagarammanum er
framhaldsskólum heimilt að inn-
heimta 8000 krónur á nemanda á
skólaárinu og Háskólanum 17
þúsund krónur á nemanda. Sam-
timis verða fjárveitingar til skól-
anna skertar sem þessu nemur,
þannig að þótt þetta heiti heimild,
þá er skólunum nauðugur einn
kostur að innheimta þessi gjöld.
Fyrir utan þessa innheimtu verða
svo skólagjöld til nemendafélaga
áfram innheimt.
Mjög mismunandi tölur hafa
verið nefndar í sambandi við þau
skólagjöld sem nú þegar eru inn-
heimt. Forsætisráðherra og utan-
ríkisráðherra hafa talað um 350
miijónir, og jafnframt hafa þeir
fullyrt að með því að leggja 250
miljón krónur á nemendur núna
séu þeir að lækka þau gjöld sem
nemendur þurfa að greiða. Þetta
er vitaskuld algjör firra sem lýsir
annað hvort gífurlegri vanþekk-
ingu ráðherranna á þessum málum
eða ósvífni á hæsta stigi, enda
hefur menntamálaráðherra leiðrétt
þcnnan málflutning formanna rík-
isstjómarflokkanna.
í DV í gær kemur fram að þau
skólagjöld sem nú eru innheimt
nemi í hæsta lagi 170 miljónum
króna. Af þessum 170 miljónum
króna rennur meirihlutinn til fé-
lagsstarfsemi í skólunum. Það er
misjafnt eftir skólum, allt frá 60
prósentum í tæp 90 prósent. Ef
við tökum Menntaskólann við
Sund sem dæmi þá þurfa nemend-
ur þar að greiða í dag 6000 krónur
í innritunargjald. Af því renna
4500 krónur til nemendafélagsins.
Á næsta skólaári má því reikna
með að nemandi við MS þurfi að
greiða 12.500 krónur í skólagjöld.
Þar af eru 4.500 krónur til nem-
endafélagsins, en 8.000 krónur
vegna skólaskatts ríkisstjómarinn-
ar. 250 miljónimar em því hrein
og klár skattheimta hvaö sem öll-
um reiknikúnstum blekkinga-
meistara ríkisstjómarinnar líður.
Framhaldsskólalögin
Reyndar lýsir allur málatil-
búningur ríkisstjómarinnar mikilli
vanþekkingu. Formenn ríkis-
stjómarflokkanna snéru reyndar
faðirvorinu upp á andskotann þeg-
ar þeir héldu því fram að skóla-
gjöldin væm Svavari Gestssyni
fymim menntamálaráðherra að
kenna þar sem framhaldsskólalög-
in, sem þeir héldu að hefðu verið
sett í tið Svavars í menntamála-
ráðuneytinu, heimiluðu skóla-
gjöld.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
hefði þurft að lesa örlítið betur
heima, því lögin vom sett í tíð
Birgis Isleifs Gunnarssonar sem
menntamálaráðherra. Þá heimila
þessi lög alls ekki að skólagjöld
séu sett á nemendur til þess að
standa straum af rekstrarkostnaði
skólanna, því í lögunum segir:
„Ríkissjóður greiðir rekstrarkostn-
að samkvæmt lögum þessum.“
Það er því ljóst að ríkisstjómin
þarf að breyta framhaldsskólalög-
unum til þess að hægt verði að
innheimta þennan nýja skatt af
nemendum.
Skólaskattur
er ranglæti
Eiríkur Brynjólfsson rithöf-
undur og ritstjóri Fréttablaðs
Bandalags kennarafélaga skrifar
all hvassyrta grein í DV í gær:
„Skólaskattur er ranglátur
vegna þess að hann skerðir jafn-
rétti til náms.
Skólaskattur er ranglátur af
því að hann er viðbót við veruleg-
an kostnað sem nemendur hafa af
skólanámi, hvort sem er í fram-
haldsskóla eða háskóla.
Skólaskattur er ranglátur af
því að með honum er horfið frá
þeirri braut að greiða menntun úr
sameiginlegum sjóðum.
Skólaskattur er ranglátur af
því það er deginum ljósara að
hann verður hækkaður markvisst í
framtíðinni."
í raun og veru er ekki miklu
við þetta að bæta. Eiríkur segir að
kennarar, nemendur og foreldrar
hljóti að berjast gegn þessari
skattheimtu og leggur hann til að
foreldrar neiti að greiða þennan
skatt, enda hafi þeir greitt fyrir
menntun bama sinna með al-
mennum sköttum, og endursendi
reikninginn til menntamálaráð-
herra, og tekur klippari undir það.
Forsenda en ekki
munaður
Rektoraskipti urðu í Háskóla
Islands sl. fímmtudag. Við það
tækifæri flutti Sveinbjöm Bjöms-
son hinn nýi rektor Háskólans
ávarp þar sem hann m.a. varaði
stjómvöld við að fara inn á braut
skólagjalda, sem þau hafa nú kos-
ið.
Hann sagði: „I umræðum
þingflokka um væntanleg fjárlög
hefur komið fram tillaga um
skólagjöld sem lögð yrðu á nem-
endur til að mæta skertum rekstr-
arfjárveitingum til Háskólans. Há-
skólinn telur ekki ráðlegt að fara
inn á þessa braut til að ná endum
saman í rekstri skólans. Reynslan
af slíkum gjök'am er að þau fara
hækkandi með tíma og geta orðið
veruleg hindmn fyrir efhaminni
stúdenta og bammargr fjölskyld-
ur. Ekki er að svo stöddu ljóst
hvort Lánasjóður námsmanna
mundi lána fyrir þessum gjöldum,
þar sem einnig er rætt um vem-
lega skerðingu á ráðstöfunarfé
hans. I þeim Evrópulöndum sem
við skiptum mest við tíðkast yfir-
leitt ekki eiginleg skólagjöld í rík-
isskólum, nema í nokkrum tilvik-
um fyrir erlenda stúdenta. Ef
skólagjöld em reiknuð á heima-
menn kemur jafnan á móti hærri
styrkur eða námslán frá ríki eða
sveitarfélagi. Þessar þjóðir skilja
að háskólanám er ekki munaður
velferðarþjóðfélags heldur ein af
mikilvægustu forsendum þess.
Háskólinn væntir þess að Alþingi
og stjómvöld marki stefnu með
framsýni í huga þrátt fyrir tíma-
bundna erfiðleika í ríkisfjármál-
um.“
Frjálshyggju'
draumsynin
Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra sat á fremsta bekk í
Háskólabíói og hlýddi á tölu rekt-
ors vitandi það að þegar var búið
að taka ákvörðun um skólagjöld-
in, þannig að vamaðarorð yfir-
manns æðstu menntastofnunar
landsins skiptu engu máli.
Reyndar virðast ráðherramir
láta sér í léttu rúmi liggja hver
skoðun allrar þjóðarinnar á þessu
máli er. Þeir hafa ákveðið að nú
verði skipt um kúrs í velferðar-
málum þjóðarinnar og tekið mið
af ftjálshyggjudraumsýn manna á
borð við Hannes Hólmstein, sem
með réttu hefur verið nefhdur
guðfaðir ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar, og þann kúrs skal siglt
þrátt fyrir múður í Jóhönnu og
einstaka þingmönnum Alþýðu-
flokksins, sem reyndist svo bara í
nösunum á þeim einsog Davíð og
fleiri höfðu reiknað út. Og skítt
veri með það þótt almenn mót-
mæli berist frá skólafólki og nem-
endum. Slíkt hrekkur af þessum
mönnum einsog vatn af gæs.
-Sáf
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. september 1991
Síða 2