Þjóðviljinn - 07.09.1991, Side 9
FlÉTTlR
Flugleiðir frá hernum
Bækistöð viðhaldsdeildar Flugleiða verður byggð á Keflavík-
urflugvelli. Henni fylgja 137 stöðugildi eða þar um bil. Fram
að þessu hafa viðgerðir og skoðun farið fram í flugskýli
bandaríska hersins en aðalstöðvar tæknisviðs verið á Reykja-
víkurflugvelli. Þetta verður allt saman flutt í viðhaldsbækistöð Flug-
leiða á Keflavíkurflugvelli.
Flugleiðir hafa undirritað
samning við kanadíska verktaka-
fyrirtækið Mathews Contracting
Inc. um byggingu viðhaldsstöðvar-
innar. Hún verður 12.500 fermetr-
ar. Aætlað er að kostnaður verði
nálægt einum miljarði. Fyrsta
skóflustungan verður tekin í næsta
mánuði og að því loknu hefst jarð-
vinna vegna byggingarinnar. Aætl-
að er að byggingu ljúki áður en ár-
ið 1992 er á enda runnið.
Flugskýlið sjálft verður 8.500
fermetrar. Það viðrar ýmislega í
Keflavík, sagði Sigurður Helgason,
forstjóri Flugleiða, og töluvert af
salti getur gengið yfir vélamar ef
ekki er hægt að hýsa þær.
Viðgerðaverkstæði og skrif-
stofur verða alls 4.000 fermetrar.
Aðstaða til viðhalds hefur ekki
verið nógu góð en með nýja skýl-
inu á hún að verða framúrskarandi.
Félagið hefur vel menntaða og
reynda flugvirkja í sinni þjónustu
og nú fá þeir vinnuaðstöðu við
hæfi. Jafnffamt skapast möguleikar
á að bjóða viðhaldsþjónustu á al-
þjóðlegum markaði í einn til einn
og hálfan mánuð á hveiju ári.
Sigurður var spurður að því
hvort ekki væri fullt eins hagstætt
að fljúga út með vélamar og láta
gera við þær þar. Hann taldi það
ekki vera svo. Sagðist reikna með
því að viðhaldsstöðin væri góð
fjárfesting. tsland er miðstöðin í
okkar starfi, sagði Sigurður. Við
eigum hæfa flugvirkja á lager og
það er aukið öryggi í að við sjáum
um þetta sjálf.
Sigurður var spurður að því
hvers vegna Flugleiðir hefðu sam-
ið við erlendan verktaka og svaraði
því til að þeir íslensku hefðu ekki
staðist samkeppnina við þann sem
verkið fékk. Þeir buðu þetta ein-
faldlega á miklu betra verði.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, bætti því við að mikil
vinna yrði samt framkvæmd af is-
lenskum aðilum. Kanadíska tilboð-
ið er tilboð um hönnun, grind og
klæðningu. Útboð vegna þeirra
þátta sem Flugleiðir sjá sjálfar mn
verða birt á næstu vikum.
Af fjármögnun er það að segja
að byggingin er að hluta til fjár-
mögnuð með mjög hagstæðu 10
ára láni frá kanadísku útflutnings-
þróunarstofnuninni. í tíð síðustu
ríkisstjómar vom einnig felld niður
aðstöðugjöld til að greiða fyrir
þessu verki. Það munu vera 30
miljónir.
Viðhaldsstöðin í Keflavík verð-
ur að öllum líkindum stærsta hús á
Islandi. - kj
KJÖRDÆMISRÁÐ AB
IREYKJANESKJÖRDÆMI
Haustferð í JÖKULHEIMA
21. september 1991
Laugardaginn 21. september gengst Kjördæmisráð AB
fyrir haustferð i Jökulheima ef þátttaka verður næg.
Brottför úr Keflavík og Grindavík kl. 7.30 og frá Þinghóli
í Kópavogi kl. 8.20 að morgni laugardagsins.
Ekið verður sem leið liggur um Suðurland, upp
Rangarvelli, framhjá Tröllkonuhlaupi f Þjórsá,
Hrauneyjarfoss- og Sigölduvirkjunum að Þórisvatni..
Þaðan verður ekið um Veiðivötn I náttstað f Jökul-
heimum, nágrennið kannað og skoðuð Tungnaá sem
þar kemur af og undan Vatnajökli. Gist verður I húsum
Jöklarannsóknafélagsins i Jökulheimum.
Á sunnudag verður komið við f Landmannalaugum,
farið í heitt Laugabað, en sumir ganga á Bláhnúk. Um
kl. 15 verður ekið heimleiðis vestur Dómadalsleið,
framhjá Löðmundi og Hellisfjalli, með Sauðleysum og
fram hjá Hekluhrauni f Skjóikvíum (1970). Farið verður
niður að Gjánni i Þjórsárdal og að Stöng. Litiö verður til
Þjóðveldisbæjarins og dokað við hjá Hjálparfossi.
Heimkoma er áætluð um kl. 20 f Kópavog og klukku-
tíma síðar í Keflavík og Grindavík.
Gistigjald f skála er kr. 800 og fargjald er kr. 3.900. Eft-
irlaunaþegar og þeir sem eru 15 ára og yngri greiöa
1.900. Átta ára og yngri greiða kr. 900.
Skráið ykkur sem allra fyrst hjá fararstjóranum Gísla
Ólafi Péturssyni í síma 42462.
Athugið að þátttaka er öllum velkominl!
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn í risinu Hverfisgötu 105
miðvikudaginn 11. sept. n.k. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kosning kjörnefndar vegna landsfundar AB
2. Stjórnmálaástandið: Fjárlagafrumvarpiö og velferð-
arkerfið.
3. Önnur mál.
Félagar fjölmennið!
Stjórn ABR
AB Akureyrí
Félagsfundur
Félagsfundur í Lárusarhúsi miðvikudaginn 11. septem-
ber kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Rætt um vetrarstarfið.
2. Önnur mál.
Heitt á könnunni.
Mætum öll.
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Fundur í bæjarmálaráði verður mánudaginn 9.
september kl. 20.30 í Þinghól.
Dagskrá:
1. Yetrarstarfið
2. Önnur mál
Bæjarmálaráð ABK
Alþýðubandalagið á Vestfjörðum
Kjördæmisráð-
stefnan verður
að þessu sinni
haldin dagana
7. og 8. septem-
ber, í félags-
heimilinu á
Tálknafirði, og
er um leið hugs-
uð sem fjöl-
skylduskemmt-
un.
Hægt verður að
fá gistingu í
Grunnskólan-
um og fæði á
vægu verði.
Áætlað er að
ráðstefnan helj-
ist klukkan
11.00 á laugar-
dagsmorgun og Ijúki klukkan 16.00 á sunnudag.
Dagskráin verður með hefðbundnum hætti, þ.e.
venjuleg aðalfundarstörf.
Framsögumenn verða Kristinn H. Gunnarsson,
nýkjörinn þingmaður Vestfjarða, Steingrímur J.
Sigfússon og Ólafur Ragnar Grímsson. Einnig
mun Hallur Páll Jónsson, framkvæmdastjóri
Þjóðviljans, mæta á fundinn.
Allir félagsmenn eru hvattir til þess að mæta,
taka þátt í stjórnmálaumræðum og fjölskyldu-
skemmtun.
Takið með ykkur sundföt, strigaskó og söngbók.
Nánari upplýsingar hjá Bryndísi Friðgeirsdóttur
(safirði, sími 4186.
Stjórn Kjördæmisráðs
Kristinn
Hallur Páll
-xSf
Lögreglustöö á Akranesi
Innrétting 1. áfangi
Tilboð óskast í innanhússfrágang lögreglu-
stöðvar á Akranesi.
Verkið nær til rifs og múrbrots innanhúss,
lagnakerfa, glugga- og útihurðasmíði, nýrra
útveggja, frágangs innanhúss svo og ýmiss
búnaðar.
Grunnflötur stöðvarinnar er 410mj.
Verktími ertil 1. april 1992.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri
Borgartúni 7, Reykjavík til og með fimmtu-
deginum 19. september gegn 10.000,- kr.
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R. Borgar-
túni 7, þriðjudaginn 24. september 1991 kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTUNI 7. POSTHOLF 1450. 125 REYKJAVIK.
■■iokh^ d'
FPÆDSLA
Neytendur eiga rétt á fræöslu sem gerir
þeim kleift að gæta hagsmuna sinna.
RAFRUN H.F.
Smiðjuvegi 11 E
Alhliða rafverktakaþjónusta
Allt efni til raflagna
Sími641012
GLÓFAXI HF.
ÁRMÚLA42 108 REYKJAVlK SlMI: 3 42 36
#//
Orkumælar
fri
KAMHTRtnP WBrrRO AJH
S'L.
Sími652633
■ U R I—I F.
Inntlutnlngur — r.T-knlpJOnutta
Rennslismælar
fri
HYDROMETER
Sfða 9
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. september 1991