Þjóðviljinn - 11.10.1991, Side 7
Kvikmyndir
Margarethe
von Trotta
og Sturla
Gunnarsson
koma
Barbara Sukowa i hlutverki sínu i nýjustu kvikmynd Margarethe von Trotta sem sýnd verður á morgun
á Kvikmyndahátíðinni i Regnboganum.
í kvöld kemur þýski Margarethe von Trotta til myndahátíðinni á morgun kl.
leikstjórinn landsins og nýjasta mynd 17 og aðeins í það eina skipti.
hennar, Heimkoman, verður Þeir sem gaman hafa af mynd-
sýnd á kvik- um Margarethu ættu því ekki
að láta þá sýningu ffam hjá sér
fara. Leikstjórinn verður
viðstadd-
Úr kvikmynd Vestur-Islendingsins
Sturlu Gunnarssonar Friðhelgi sem
frumsýnd verður á sunnudag.
ur sýninguna. Margir kannast
við fyrri myndir Margarethu,
eins og Die Verlorene Ehre
der Katharina Blum, Schwest-
em og Die bleieme Zeit.
Myndir Margarethu em mjög
pólitískar og feminískar. 1
myndinni Heimkoman (Die
Rueckkehr) er fjallað um til-
fmningalega ringlureið, segir í
kynningu á myndinni. Lækn-
irinn Martha snýr aftur til Par-
ísar eftir áralanga dvöl í Aff-
íku. Þar flækist hún í rótum
lífsleiða síns, gömul sár ýfast
upp og kvölin magnast. Meðal
þeirra brota sem Martha þarf
að tina saman em hin ógæfu-
sama ást sem hún ber til
blaðamannsins Victors, og
hálfkömð vinátta hennar og
Önnu, sem eitt sinn var nán-
asti vinur hennar. Aðalhlut-
verk í myndinni leikur ein
þekktasta leikkona þýska
tjaldsins nú, Barbara Sukowa.
A mprgun kemur síðan
Vestur- íslendingurinn Sturla
Gunnarsson til landsins og
heiðrar gesti kvikmyndahátíð-
ar með því að vera viðstaddur
frumsýningu myndar sinnar
Friðhelgi (Diplomatic Immun-
ity) á sunnudag kl. 17. Sú
mynd verður sýnd oftar.
Sturla flutti _sex ára gamall til
Kanada ffá íslandi og býr nú í
Toronto. Friðhelgi er fýrsta
bíómynd hans i fúllri lengd,
en hann er þekktastur fyrir
harðskeyttar, pólistískar heim-
ildarmyndir sem hafa margar
unnið til verðlauna. Kvik-
myndin Friðhelgi segir frá
Kim Dades, ungri konu á upp-
leið í kanadísku utanríkisþjón-
ustunni. Hún fellst með sem-
ingi á að halda til E1 Salvador
í þeim tilgangi að undirbúa
jarðveginn fýrir montheim-
sókn ráðherra síns, en Kan-
adastjóm tekur þátt í sýndar-
aðstoð við stríðshrjáða íbúa
landsins. En þegar hún kemur
á staðinn er húsnæði það sem
Kanadastjóm hafði látið reisa
fyrir fólkið komið í hendur
hersins. Kim ræðst í að leið-
rétta þessa stöðu.
Sturla og samstarfsmaður
hans, Steve Lucas, fengu
áhuga á þessu viðfangseftii
þegar þeir kynntust ungri
konu frá E1 Salvador sem sætt
hafði pyntingum í heimalandi
sínu og flúið til Kanada. Það
mun hafa tekið þá tíu ár að fá
myndina gerða. BE
Uaajeer
neq og
Tupilak
Silamiut-leikflokkurinn, sem er
eini atvinnuleikflokkur á
Grænlandi, verður með sýn-
ingar í Norræna húsinu á
laugardag og sunnudag. Á
hvorri sýningu verða sýndir
tveir leikþættir sem nefnast
Uaajeerneq og Tupilak.
Uaajeerneq merkir grímusjón-
leikur. Mannfræðingar telja að
slíkir leikir hafi komið fram fyrir
3000 árum, séu upprunnir í
Alaska og hafi verið iðkaðir
meðal Inuita Norður-Kanada
og á Grænlandi. Nú orðið er
grímusjónleikur af þessu tagi
aðeins leikinn á Austur-
Graenlandi.
1 sjónleikjum af þessu tagi eru
þrjú meginatriði. Það em skrípalæti
eða skemmtiatriði, helgisiðir fijó-
seminnar og kennsluleikur fyrir
böm þar sem eðli hræðslunnar er
útskýrt fýrir þeim.
Sá þáttur sýningarinnar sem
kallast Tupilak er nútímalegur dans
án talaðs máls, en hefðbundnar
grímur og trommudans er hluti af
þeirri sýningu.
Annars er Tupilak heiti á
óheillavem sem var sköpuð með
nokkurs konar svartagaldri. Aður
fyrr réðu Grænlendingar yfir öflum
sem gerðu það mögulegt. Tupilak
sköpuðu menn í þeim tilgangi að
drepa. Ætti fómarlambið sér hins
vegar sterkan hjálparanda eða krafl
sneri Tupilak aftur til skapara síns,
drap hann og eyddi þar með sjálf-
um sér.
Sýningamar verða á laugardag
kl.21.00 og sunnudag kl.17.00.
Fyrir sunnudagssýninguna verður
haldinn fýrirlestur um grænlenskt
leikhús.
-kj
NYTT HELGARBLAD
7 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991