Þjóðviljinn - 11.10.1991, Blaðsíða 8
HELGARVAGG
Franskt popp á íslandi
1. hluti poppviðskipta Islands og Frakklands fór fram í
september, þegar sönggyðjan Amina söng sig inn í hjörtu
gesta á Hótel Islandi. A þeim ágæta tónleikastað fara
fram 2. og 3. hluti í næstu viku. Hér á eftir segir af þeim
listamönnum sem boðið verður upp á
Manu Dibango
og Soul Makossa Gang
Eins og eitt mest spennandi
fótboltalandslið siðari ára er Manu
Dibango frá Kamerún. Asamt Fela
Kuti (Nigeríu) og Miriam Makeba
(S-Afríku) hefur Manu verið braut-
ryðjandi í kynningu afrískar tón-
listar fyrir popp og djassheim
Vesturlanda.
Manu er fæddur árið 1933 í
Kamerún. Hann leikur fyrst og
fremst á saxafón, en einnig á
hljómborð og víbrafón auk þess að
syngja. Manu kom fyrst til Frakk-
lands árið 1949 og varð fljótt
þekktur í djassklúbbum Parísar-
borgar fyrir frábært saxafónspil.
Upp úr 1960, með vaxandi þjóð-
emisvakningu í Afríku, sneri Manu
aftur heim til Kamerún. Um skeið
lék hann með stórsveitinni Joseph
Kalle and his African jazz, sem
ferðaðist um Afríku og gaf út efni
sem varð vinsælt í Afríku og
Frakklandi. Síðar fór hann að
starfa sjálfstætt sem eigin hljóm-
sveitarstjóri, og fór að blanda sam-
an áfrískum tónlistarhefðum við
hina vestrænu djasstækni. Þessi
samblöndun hefur verið í sífelldri
þróun. Manu hefúr spilað allt litróf
svartrar dægurtónlistar, og alltaf
fylgt mjög vel tíðarandanum.
Stærsti smellur Manu var lagið
„Soul Makossa“. Uppmnalega var
það gefið út sem B-hlið á smáskífu
sem kom út í Frakklandi. Plötu-
snúður í New York varð hrifinn af
laginu og tók að spila það í klúbb-
um borgarinnar. Þaðan rataði lagið
á útvarpsstöðvar og 150.000 eintök
af smáskífúnni vom flutt inn frá
Frakklandi. Atlantic-hljómplötu-
fyrirtækið gaf loks lagið út og
nokkrar miljónir eintaka seldust
um heim allan.
Árið 1979 ferðaðist Manu til
Jamaica og tók virkan þátt í Reggí-
æðinu sem þá var í uppsveiflu.
tvær plötur komu út úr samstarfi
hans við Jamaica- mennina Sly
Dunbar og Robbie Shakespear,
„Gone Clear“ og „Ambassador“.
Þessar plötur em blanda áhrifa úr
tónlistarmenningu svartra í Afríku,
Ameríku og Jamaica.
Á síðasta áratug hefur Manju
unnið með stjömum á borð við
Herbie Hancock og upptökumann-
inum Bill Laswell, The Rolling
Stones og Sting. Síðasta plata
Manu heitir „Polysonik“ og er ný-
lega komin út. Plötuna vann Manu
með MC Mello og upptökustjóran-
um Simon Booth úr Working We-
ek. Platan hefur fengið mjög já-
kvæða gagnrýni, t.d. segir enska
poppritið „Q“; „Andrúmsloftið er
hlýtt og fúllt af sköpunargleði.
Polisonik sýnir allar bestu hliðar
Manu Dibangos."
Hingað kemur Manu ásamt ell-
efú manna sveit sinni, The Soul
Makossa Gang. Sveitin er skipuð
þremur slagverksleikumm, þremur
söngkonum og hinum hefðbundnu
Manu Dibango og Soul Makossa Gang
hljóðfærum. Einnig kemur ffam
Kvartett Sigurðar Flosasonar og
rímnasmiðurinn góðkunni Svein-
bjöm Beinteinsson allsherjagoði.
Manu Dibango kemur til með
að leika þverskurð af því sem hann
hefúr verið að fást við í gegnum
árin. Þar kennir margra grasa, enda
Manu alltaf í leit að nýjungum.
Rætumar em þó alltaf í Kamerún,
þannig að fólk fær afríska tónlist
miðvikudaginn 16. okt.
Les Satellites - Babylon Fighte
- Risaeölan
rs
Daginn eftir, fimmtudaginn
17., fá landsmenn rokkuðustu
Frakka- sendinguna í pakkanum.
Þær tvær sveitir sem spila em
vissulega með því besta og vinsæl-
asta í franskri dægurtónlist í dag.
Les Satellites er fjölmenn gleði-
sveit sem svipar til Mano Negra og
Les Negres Vertes, sem menn
muna eflaust eflir frá síðustu lista-
hátíð. Sveitin spilar undir áhrifum
víðsvegar frá. Þannig fléttast sam-
an ryþma blús, soul, pönk og reggí
í tónlist sveitarinnar, en samt
hljómar tónlistin alltaf franskt,
enda meðlimirnir ákaflega hreyknir
af því að vera franskir og allir
mjög meðvitaðir og opinskáir um
það sem er að gerast í Frönsku
samfélagi. Nýjasta plata sveitarinn-
ar „Appelsínugulir fætur" hefur
fengið rifandi góða dóma.
Babylon Fighters eru frá Saint
Etienne í S-Frakklandi, nema
söngvarinn, sem er frá Guyana,
franskri nýlendu norður af Brasilíu.
Hljómsveitin er mjög kraftmikil og
tónlistin afar danshæf en um leið
aggressíf, einhverskonar pönkfönk
með reggí og hip-hop ívafi. Mér
dettur helst í hug bandaríska sveit-
in Red hot chili peppers til samlík-
ingar. Nýjasta plata Babylon Fight-
ers „Shut up, don't shut down“ er
hrá og kraflmikii, og kannski ekki
mjög frönsk, nema hvað textamir
eru flestir sungnir á frönsku.
Hljómsveitin þykir mjög góð á
sviði, þannig að spennandi verður
að sjá hvemig til tekst hjá þeim
hér. Risaeðlan spilar með Frökkun-
um.
Mannabreytingar hafa.orðið hjá
sveitinni eins og flestir vita; Dóra
er hætt og Hreinn harmóniku- og
gítarleikari kominn í staðinn. Risa-
eðlan fór í vel heppnaða tónleika-
för til Danmerkur nýlega, en þetta
eru fyrstu „stóru“ tónlcikar þeirra á
Islandi með nýrri skipan.
Það borgar sig að mæta
snemma og ekki fýsilegt að missa
af neinu.
Babylon Fighters
Tonleikatékk á fimmtudegi
Það var óþverraveður í Reykja-
vík á fimmtudagskvöld fyrir
rúmri viku en þó tvær uppákom-
ur f boði fyrir rokkglaða. I Neð-
anhoppi Moulin Rouge spiluðu
Saktmóðígur fyrir vel fullu húsi.
Hljómsveitin er ættuð frá
Laugavatnsskóla og kom eftir-
minnilega á óvart á Músiktil-
raunum Tónabæjar í vor. Þetta
voru fyrstu tónleikar sveitarinnar
í langan tíma og greinilegt frá
fyrstu tónum að mikið magn
upphlaðinnar spennu þurfti að
fá útrás.
Saktmóðígur er líklega hráasta
hljómsveitin á íslandi í dag. Þeir
spila ekki uppi á sviði heldur úti í
sal. Þeir stilla ekki hljóðfærin sín.
Þeir hafa aldrei verið í tónfræði.
Þeir eru ekki bundnir tískustraum-
um heldur hrista útúr sér kraftmik-
ið kraðak á ótrúlega frjóan og
skemmtilegan hátt. Söngvarinn
leggur sig allan fram líkamlega og
stímir um sviðið eins og sturlaður
hringjari frá Notre Dame. Áhorf-
endur tóku vel við sér og nokkrir
larfar hoppuðu út á gólf og tóku
þátt í útrás hljómsveitarinnar. Er-
óbikk og jóga falla í skuggann af
Saktmóðígi; að hlusta á þá er eins
og að fara upp á fjall og öskra.
í hnignunarbælinu 22 á Lauga-
vegi hélt hljómsveitin Út úr Blán-
um sína fyrstu tónleika á efri hæð-
inni. Hljómsveitin er skipuð söng-
konunni Ósk, sem einnig leikur á
hljómborð, íngimar gítarieikara,
Gauk bassaleikara og enskum
trommara sem í fymdinni lék með
frumpönksveitinni The Adverts
(„Gary Gilmore's eyes“ var þeirra
frægasta framlag til rokksögunnar).
Skemmtiatriði kvöldsins kom þó á
óvart því í fyrsta laginu tók eigand-
inn rafmagnið af, kvartaði undan
hávaða og gnísti tönnum. Eftir
endalaust stapp og ítrekaðar raf-
magnstruflanir komust Út úr Blán-
um þó í gang og náðu að klára pró-
grammið. Hljómsveitin leikur
fremur meyrt nýbylgjurokk og
höfðu margir á orði hve hljóm-
sveitin væri lík Siouxie and the
Banshees. Ekkert fúm var á sveit-
inni og ljóst að hún var í flnni
þjálfún. Þessir tónleikar lofa engu
nema góðu. Kannski mætti kjarni
sveitarinnar vera harðari, tónlistin
hrárri, og ég tala nú ekki um;
sviðsframkoman líflegri. Út úr
Blánum geta bara verið ánægð með
þessa fyrstu tónleika, þau stóðu sig
vel og vegna afskipta eigandans
lifa þessir tónleikar lengur í hugum
áhorfenda en ella.
Hljómsveitin Út úr Blánum,
sem fjallað er um hér annars
staöar á síðunni, spilar I Neð-
anhoppi Moulin Rouges n.k.
fimmtudagskvöld. Einnig ætlar
Pétur Þórðarson, gltarleikari úr
Bless, aö koma fram einn og
flytja nokkurlög...
Sem betur fer eru nú uppi
hugmyndir um að dusta rykiö af
helstu perlum (slensks rokks og
endurútgefa á geisladisk. í
sumar kom út meistarastykki
Trúbrots „Lifun“ og í byrjun
nóvember endurútgefur Skífan
hið sögufræga „tvöfalda albúm“
Óðmanna. Það var ætlunin I
byrjun að á diskinum fylgdu
tvær smáskífur hljómsveitarinn-
ar, en þegar til kom reyndist
ekki vera pláss. Steinar er að
undirbúa endurútgáfur á nokkr-
um verkum Stuðmanna og
Þursaflokksins og Rokk-
fræðsluþjónustan hefur í
hyggju að gefa út Fræbbbla-
klassíkina „Viltu nammi væna",
og í þetta skiptið í fullkomnum
hljóm á disk...
Rokksveitin Rosebud hefur
skipt um nafn, kemur eftirleiðis
fram undir nafninu Strangelove.
Breiðskífa sveitarinnar er í
vinnslu en Strangelove mun
eiga lag á safnsnældunni
„Snarl 111“ sem kemur út í nóv-
ember...
Púlsinn heldur um þessar
mundir upp á eins árs starfsaf-
mæli. I kvöld og annað kvöld
stendur yfir blúshátíð með
Tregasveitinni, Blúsmönnum
Andreu og K.K. Band, sem rek-
ur inn nefið ef tími gefst frá
lokavinnslu nýrrar plötu. Hinir
og þessir gestir líta inn og boð-
ið verður upp á glaöning í tilefni
afmælisins. A sunnudagskvöld-
ið halda svo Steinar og P.S.
Músik kynningarkvöld og marg-
ir áf þeim listamönnum sem
gefa út verk hjá fyrirtækjunum
kynna sína vöru...
Ham og Sororicide léku fyrir
fullu húsi á Duus-húsi í gær-
kvöldi. Mikið stendur til hjá báð-
um sveitunum. Sororicide hefja
upptökur á breiðskífu í lok októ-
ber. Platonic gefur skífuna út
fyrir jólin og Sigurjón Kjartans-
son úr HAM sér um upptökum-
ar. Það efni sem HAM tóku upp
í sumar með Roli Mosiman,
hljómmanninum fræga, verður
ekki gefið út fyrr en á næsta
ári, en hljómsveitin hyggst taka
upp og gefa út tónleikaefni á
snældu og myndbandi bráð-
lega...
NYTT HELGARBLAÐ
8
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991