Þjóðviljinn - 11.10.1991, Side 11

Þjóðviljinn - 11.10.1991, Side 11
Sjo a toppnum Klif íslensku bridgesveitarinnar á topp Esjunnar hefur greini- lega hleypt kappi í kinn spilameistaranna. Sigursælir standa þeir nú á toppnum og þjóðin fylgist með af undrun. Margir hafa ekki hugmynd um hvað bridge er, en ótrúlega margir spila það sértil gamans í heimahúsum. En þeir sem til þekkja vita að þegar út í alvöruna er komið á bridge lítið sameigin- legt með því sem spilað er yfir kaffibolla og tári við borstofu- borð víða um land. Hér á eftir fer grein þeirra bridge- bræðra Ólafs og Hermanns Lárussona. Þar greina þeir frá sigrum og ósigrum sveitarinnar á leið hennar til Japan. Þá munu þeir bræður útskýra fyrir lesendum sagnavenjur, kerfi og tækni sem tíðkast í bridge og að lokum segja frá frumlegum viðbót- um íslendinga við kunn bridgekerfi. Sú ákvörðun stjómar Bridgesam- bands Islands að fela landsliðsfyrirliðan- um, Bimi Eysteinssyni, öll völd um skipan og þjálfun landsliðsins var um- deild, en að flestra mati vel veijanleg. Ef litið er til sterkra bridgeþjóða um samanburð blasir nánast við regla; því meiri breidd „stórspilara", því algengara að eitthvert keppnisform sé látið skera úr um skipan landsliðs. Af minni hyggju vantar nokkuð á hérlendis að næg breidd sé fyrir hendi hvað frambærilcg pör í sveitakeppni snertir. Að dómi erlendra stórspilara, sem hingað hafa komið t.d. á Bridgehá- tíð, eigum við þegar ótrúlega öfluga „sveit“ tvímenningspara. En það er nánast önnur íþrótt. A miðjum vetri var tilkynnt um val landsliðs; Jón Baldursson og Aðalsteinn Jörgensen úr sveit Landsbréfa hf., Þor- iákur Jónsson - Guðmundur Páll Amar- son og Öm Arnþórsson - Guölaugur R. Jóhannsson úr svcit Verðbréfamarkaðar íslandsbanka. Valið kom fáum á óvart, Bjöm Eysteinsson tók vcrkefni sitt (bst- um og óvenjulcgum tökum. Þrek- og út- haldsþjálfun bættist við striðar spilaæf- ingar, löng og ströng æfingamót vom haldin til Ijalla, fjarri amstri hcimilislífs- ins. Fundir haldnir um laktík og kerfi grandskoðuð. Hcimilisfcður, rútínu- bundnir áhugamenn, vom nánast hncppt- ir í fjötra atvinnumennskunnar. Stóð eitthvað mikið til??? Vegna mikils þrýstings Evrópuþjóða var rcglum urn fjölda sveita í úrslitum heimsmeistarakeppninnar breytt. Illutur Evrópu aukinn úr tveim sætum í fjögur af sextán alls. Einhvetjar væntingar vöknuðu hér heima, þótt lágt fæm. Eftir hrikalega útreið gegn Bretum (3-25) í fyrsta leik mótsins var aldrei lit- ið um öxl. í lokin var það spurning um bronsið en 4. sætið varð hlutskiptið. Far- seðlamir til Yokohama vom tryggðir. Brotið var blað í sögu bridgeins hér á landi. Af Evrópustórveldunum i bridge (Bretland, Svíþjóð, Pólland, Frakkland) höfðu þrjár þær fyrst töldu einnig heimt sæti í úrslitum heimsmeistarakepninnar. Frakkar, sem vom að þreifa fyrir sér með ungt og endumýjað lið, urðu að láta sér 7. sætið lynda. Islcnska sveitin vann 18 leiki, gerði tvö jafntefli en tapaði aðeins 5 viður- eignum. EM í Killamey á írlandi: 1. Bretland 2. Svíþjóð 3. Pólland 4. ísland Isinn brotinn í Brighton Ef við skyggnumst um öxl og rekj- um feril íslcnska landsliðsins er fyrst að minnast Evrópumótsins í Brighton 1950. Brctar sigmðu efíir hörkukeppni við Svía, scm hrepptu silfrið, og íslcndinga sem hlutu bronsið. I islcnsku sveitinni spiluðu þá Einar Þorfinnsson og Gunnar Guðmundsson sem báðir em nú látnir. Þeim féll sá hciður í skaut að vera valdir í Evrópuúr- val, ásamt tvcim sænskum pömm, til að ÞjóSviljínn ebé & Sævar Bakki sem spilarnir nota til aö leggja spil sín á borðið, en spjöld með sögnum eru einnig lögð á hann í upphafi spils. Skemurinn kemur í veg fyrir að makkerar nái sambandi sín á milli. Landslið Islendinga í brídge undirbjó forina til Japans af mikilli kostgœfni. Stór hluti afþeim undirbúningi var þrekþjálfun. Hér sjást þeir félagar á toppi Esjunnar. keppa um formlegan heimsmeistaratitil í bridge. Ásamt þeim kepptu úrvalslið Bandaríkjanna og Evrópumeistarar Breta. Þótt Bandarikin ynnu auðveldan sig- ur gátu Einar og Gunnnar sér góðan orð- stír í keppninni. Sögueyjan hafði haslað sér völl á al- þjóðavettvangi í bridge. Næstu tvo ára- tugi bar fátt til tíðinda. Hæst náðu ís- lenskar sveitir 7. sæti (í þrígang að mig minnir) á Evrópumótunum og enduðu oflar en ekki á efri helmingi mótstöfl- unnar. Bærileg frammistaða. Árin 1972- 1987 vom hinsvegar sannkölluð niður- lægingarár. Sagan endurtekur sig í Brighton 1987 er að mínu viti tímamótaár í sögu bridgeins. Ekki einungis vegna góðs árangurs íslensku sveitarinnar á Evrópumótinu, heldur og jafnvel öllu fremur vegna nýrra og sterkari áherslna í þjálfún og undirbúningi landsliðsins. Með ráðningu Hjalta Elíassonar i fyrirliða- og þjálfarastarf má segja að „léttleiki tilvemnnar" hafi verið kvaddur en alvaran kölluð til vcrka. EM 1987: 1. Svíþjóð 2. Bretland 3. Noregur 4-5. ísland Pólland 6. Danmörk Góðum árangri í Brighton árið áður var fylgt eftir með glæsilegum sigri á heimavelli. Og ef við skoðum árangur okkar norrænu grannþjóða á EM '87 er ljóst að slíkur sigur vinnst ekki fýrirhafh- arlítið. Spennan í mótslok var slík að bridgebakterían heltók sjálfan Bjama Fel., sem hótar nú að dusta rykið af „Vínarkerfinú' (og leggja Arsenal á hill- una?) Best er að fara sem fæstum orðum um EM í Turku í Finnlandi 1989. Ósætti heimafýrir og „vængbrotið" lið, sem engar yæntingar vom bundnar við, sent utan. ÚrslitEM 1989: 1. Pólland 2. Frakkland 3. Svíþjóð 16. Island Minnstu varöar hvaða kerfi gott par velur að spila. Mest er um vert að spilar- ar kunni það til hlítar og viti hvemig á að beita því. íslensku pörin þijú spila ólík kerfi. Jón - Aðalsteinn spila „Geirfúglalaufið", þar sem minnsta opnunin, 1-lauf, lofar bestum spilum. Með styrk (góð spil) á báðum höndum fer í gang biðsagnakeðja þar sem annar spilarinn rekur gamimar úr hinum (um skiptingu og háspilastyrk) og velur lokasögnina. Opnanir á 2. sagn- þrepi em margræðar hindrunarsagnir með lengd í einum eða tveimur litum og mjög lítinn háspilastyrk. Þar fer fremst 2ja- laufa „Fjöldjöfúllinn“ úr smiðju Ás- geirs Þ. Ásbjömssonar. Sannkallaður íslenskur skratti á ferð þar (þe. sagnvenjan). Ólafur og Hermann Lárussynir skrifa Guðlaugur-Öm spila einnig kerfi sem er byggt á sterku laufi, blöndu af Bláu laufi og Nákvæmnislaufi sem er eitt útbreiddasta kerfið meðal góðra spil- ara hérlendis. Hjá þeim er 2. sagnþrepið lýsandi fremur en hindrandi (nenna sennilega ekki að hafa eins hátt og litlu strákamir) og rómverskt að uppmna. Þið munið eftir Itölum?) Þorlákur - Guðmundur Páll spila út- gáfu af „Standard American" sem er reyndar svo skrýdd sagnvenjum og Fjöl- djöfladýrkun að kerfið fengi tæpast inni í eðlilegri og látlausri „Standard“ fjöl- skyldu vestanhafs. En þótt sagnvenjur paranna, á 2. sagnþrepi sérstaklega, séu beittar og eyðileggjandi fýrir andstæðingana vegna þess að þær þrengja sagnrýmið er passið enn voldugt í bridge og oft sú sögn sem erfiðast er að finna við borðið. Stöðumat er það kallað þegar kerf- inu sleppir og dómgreindin tekur við. Er þá hægt að leggja upp nýtt kerfi, eins og í handboltanum t.d., í miðjum klíðum og fella andstæðinginn á því? Þvi er til að svara að sennilega er engin keppnisgrein eins „vöktuð" eða vemduð af lögum, keppnisreglum og siðareglum. Mánuði fýrir úrslitakeppnina í Yokohama senda allar þátttökuþjóðir ít- arlega útskrift af kerfi hvers pars. í raun em engin leynivopn heimiluð. Hver viðureign er undir árvökúlu auga keppnisstjóra, sem þó hefúr engin bein afskipti, nema hann sé kallaður til. En kveði hann upp úrskurð, sem önnur sveitin t.d. sættir sig ekki við, er áfrýjun möguleg og dómnefnd, sem hefúr nær ótakmarkað vald, tekur við. Hún getur fellt niður spil, breytt úrslitum í spili o.s.frv., standi efni til. Það er ekki hægt að bijóta af sér, óvart eða af ásetningi, eins og í „íþrótt- um“ og hagnast á því. En það er í góðu lagi að slysast í vonda samninga og vinna þá „þegar spil- in liggja eins og hjá Guði“ (takk, Stefán Guðjohnsen). Heppni er ekki refsiverð. Likindafræðin er snar þáttur i bridgespilinu. Öflug tölvuforrit stjóma því hvemig spil þú tínir uppá hendumar úr spilabökkunum. Frá því riðlakeppnin hófst hafa allar þátttökuþjóðimar verið að spila sömu (eins) spilin. í hverri viðureign er sér- hvert spil spilað tvisvar með víxluðum áttum. Spilasalir em tveir og er annar kallaður „lokaður". Imyndum okkur að í opnum sal sitji Jón og Aðalsteinn í norður og suður en í sætum austurs og vesturs gefi að líta þungbúna Pólveija. Pólveijamir em yfir- leitt „með spilin", þe. í þessari lotu em háspilin og litaskiptingin óvenju hagstæð austur/vestur hólfúnum í spilabökkun- um. Þeir salla inn hverri tölunni af ann- arri. Jón og Aðalsteinn nota hvert tæki- færi sem gefst (og örfá að auki) til að blanda sér í sagnir og melda mikið, þrátt fýrir léleg spil. Ef þú gætir gægst inn í hugskot pólsku spilaranna blasir við andstreymi, þótt tölumar séu í austur/vestur á skor- blöðunum sem spilaramir handfæra enn, þótt tölvumar og ótal skjáir séu allt í kring. Ástæðan fýrir vanlíðan Pólveija er sú að þeir „reikna" sig undir í lotunni, þótt þeir geti að sjálfsögu ekki vitað það með vissu, þvi í öðrum sal sitja sveitarfé- lagar þeirra, nú í norður/suður, en Guð- laugur og Om (sem vom í svelti í Svía- Ieiknum) em „hungraðir" og í banastuði. Þeir fara betur með austur/vstur spil- in heldur en mótheijamir í opna salnum, og ef eitthvað er, em Pólveijamir við þeirra borð enn svartleitari. Þeir em ekki af árásargjama „skólanum“, hafa lítið blandað sér í sagnir, einmitt þegar spilin buðu uppá það. Pólveijamir era atvinnu- menn og það hvarflar ekki að þeim að breyta um stíl í miðjum kliðum. Þeir tapa 1. lotu og síðan þeirri ann- arri og þriðju og þegar þetta er sett á blað er 4. lota af tíu að hefjast. Skynjun Pólveijanna í báðum sölum reynist rétt, þegar báðar sveitimar standa upp frá borðum, pörin hittast, skorin í spilunum borin saman og lotan gerð upp. Þá loks vita spilaramir hvað raunveru- lega gerðist í hveiju spili. Samanburðurinn er lykilorðið. Tæknihliðin - umgjörðin Eins og fýrr sgir em öll spilin í mót- inu forgefin, eins og tíðkast í miðlungs- Konan á bak vib toppmennina Sú sem hefur verið i eldlínunni hér heima meðan strákarnir spjöruðu sig hinum megin á hnett- inum er Elín Bjarnadóttir fram- kvæmdastjóri Bridgesambands Is- lands. Á henni hefur niikið mætt að undanFórnu, hún hefur svarað endalausum spurningum og fyrir- spurnum, tekið við framlögum og auvitað hamingjuóskum. Nú velta menn því fyrir sér hvort búast inegi víð því að bridge- æði grípi um sig mcðul landsmanna. Reynslan sýnir að um lcið og íslcnd- ingar skara fram úr í einhveiju verð- ur það vinsælt hér heima og allir sem vettlingi geta valdiö vilja vera með. Nýtt Flelgarblað ræddi því við Elinu og spuröi hana fyrst hvert áhugasamir gætu lcitað til að læra listina við spilaborðið. „Það em ýmsir möguleikar fyrir hendi bæði fyrir byrjcndur og fyrir þá scm eitthvað hafa fiktað við spilið heima." sagði Elín. „í fyrsta lagi er hægt að benda fólki á að hér er starf- andi bridgeskóli og er þar bæði byij- enda- og framhaldskcnnsla. Það vill nú svo skemmtilega til að ef fólk fer í þcnnan skóla verður það undir leið- sögn eins þeirra sem nú er að gera garðinn frægan í Yokohama, Guð- mundar Páls Amarsonar. Bridgc er einnig kenndur hjá námsflokkum Reykjavíkur og Kópavogs og virðist fólk sækja dálítið í þau námskeið sem cm þar,“ sagði Elín. Aðspurð um hvað margir spil- uðu bridge á íslandi, sagði hún að virkir félagar, í 40-50 bridgefélögum víða unt land, væm um 3500. „Menn hafa svo verið að gera því skóna að það séu um 20 þúsund aðilar sem spili bridge án þess að vera í ein- hverju bridgefélagi. Við hjá Bridge- sambandinu höfum verið að reyna að fá þctta fólk til að vera með í fé- laginu og höfum af því tilefni verið með mót fýrir byijendur. Þátttakan i þessum mótum hefur vcrið framar öllum vonum og hingað kemur fólk á ölluni aldri. Það er gaman að sjá fólk sem hefur verið að spila við eld- húsborðið heima hjá sér koma hing- að hungrað í að læra mcira,“ sagði Elín. Aðspurð hvort nemendafélög gætu fengið aðstoð ef þau vildu vera með námskeið f bridge, sagði hún að ýmsir aðilar tækju að sér námskeiöa- hald bæði i skólum og fyrirtækjum. „Ef nemendafélög eða starfsmanna- félög leita til okkar um aðstoð, þá bendum við þeim á bridgespilara scm hafa tekið svona námskeið að sér. Eg hef nú grun um að leiðbein- endum þurfi að fjölga frá því sem nú er ef áhugi landsmanna fer að aukast eitthvað að ráði, en það ætti að vera hægt með einhveijum ráðum að sinna þeim sem hingað kunna að leita," sagði Elín. Nú hefúr verið sagt að bridge sé erfitt spil að læra? j;Það fer eftir því hvemig þú lítur á spilið. Menn geta verið að læra bridgc alla sína ævi, en það er mis- skilningur að erfitt sé að læra spilið, undirstöðuatriðin em ekki mjög fiókin. Við héldum hér í haust nám- skeið fyrir unglinga og aðsóknin var svo mikil að það þurfti að vísa aðil- um frá. Þessir unglingar vom fijótir að ná undirstöðuatriðunum þannig að þeir gætu farið að spila. Við emm strax farin að sjá árangur þessa nám- skeiðs, þar sem hluti af þessum ung- Sjá frh. á nœstu síðu Mynd: Kristinn Elín Bjarna- dóttir fram- kvœmdastjóri Bridgesam- bands Islands. sín- -sþ linguni er orðinn virkir félagar um klúbbum," sagði Elín. Þeir eru á toppnum Björn Eysteinsson Björn Eysteinsson er fæddur 9. desember 1948 og er þvf tæplega 43 ára. Bjöm er Hafn- firðingur, rétt eins og Aðalsteinn Jörgensen. Björn var fyrirliði fs- lenska karlalandsliðsins á síöasta ári og stjórn- aði liðinu á (rlandi, er það ávann sér rétt til þátttöku f heimsmeist- aramótinu f Japan. Björn hefur sjálfur spilað f fslenska lands- liðinu, þá á móti fyrrum félaga sfnum, Guð- mundi Sv. Hermanns- syni. Björn er útibússtjóri Islandsbanka f Garða- bæ. Bjöm hefur til margra ára verið einn sterkasti spilari landsins. Islands- meistari f sveitakeppni 1983. Bikarmeistari 1991, þá á móti félaga sfnum þessa dagana, Magnúsi Ólafssyni. Þess má geta til gam- ans, að Björn er bróðir hins kunna veitinga- manns, Úlfars Eysteins- sonar (Þremur Frökk- um. Jón Baldursson Jón Baldursson er fæddur 23. desember 1954 og er því tæplega 37 ára. Jón ertalinn af mörgum fremstur bridge- manna.hér á landi þessa stundina. Hann átti sæti I karfalandsliðinu 1988, sem varð Norðurlanda- meistari hér heima. Ann- ar úr því liöi er Þortákur Jónsson. Jón er stigahæsti bridgespilarinn á Islandi og f hópi 160 stigefstu spilara Evrópu, ásamt þeim Guðlaugi og Emi og félaga sínum, Aðalsteini Jörgensen. Jón á að baki 5 sigra ( Islandsmótinu f sveita- keppni, 4 sigra f Islands- mótinu í tvímenning (raunar 4 ár ( röð 1981- 1984) og 5 bikarsigra. Virðist ekkerl lát á sigur- Aöalsteinn Jörgensen Aðalsteinn Jörgen- sen er fæddur 18. nóv- ember 1959 og er þvf tæplega 32 ára. Hann er „litli“ drengurinn í hópnum og félagi Jóns Baidurssonar. Aðal- steinn er Hafnfirðingur, en þaðan hafa komið glettilega margir af fremstu bridgespilurum landsins. Aðalsteinn hóf bridgeiðkun sfna f Flensborg, er bridgefé- lagið á staðnum stóð fyrir kennsluátaki f skólanum. Aðalsteinn er með 4 sigra f Islandsmótinu f sveitakeppni, 1 sigur f Islandsmótinu (tvl- menning og 3 sigra f bikarkeppninni. Aðalsteinn er sjáif- Þorlókur Jónsson Þorlákur Jónsson er fæddur 13. júlf 1956 og er því 35 ára. Þorlákur er eini Kópavogsbúinn í lið- inu. Þorfákur á þaö sam- merkt með Jóni Baldurs- syni, að þeir voru f fs- lenska karlalandsliðinu 1988 er varð Noröur- landameistari, hér á móti f Reykjavík. Aðrir spilarar f þvf liði voru: Siguröur Sverrisson (félagi Þor- láks), Valur Sigurðsson (félagi Jóns) og Karf Sig- urhjartarson og félagi hans, Sævar Þorbjöms- son. Þorlákur hefur tvisvar orðið (slandsmeistari I sveitakeppni, 1 sigur f (s- landsmótinu í tvimenning og 1 sigur f bikarkeppn- inni.Þorlákur er verk- fræðingur að mennt og var við framhaldsnám f Guómundur Póll Arnarson Guðmundur Páll Arn- arson er fæddur 4. nóv- ember 1954 og er þvf tæplega 37 ára. Guð- mundur hefur vlða kom- ið við f íslenskri bridge- sögu. Almennt talinn mesti „fagurkeri“ íþrótt- arinnar. Á það til að sjá út hluti f leiknum, sem fæstir koma auga á. Guðmundur á að baki 2 sigra f Islandsmótinu f sveitakeppni. 1 sigur f Islandsmótinu I tvi- menning og 1 sigur í bikarkeppninni. Guðmundur er ritstjóri og eigandi Bridgeblaðs- ins, skólastjóri og eig- andi bridgeskótans f Reykjavfk og bridge- dálkahöfundur á Morg- unblaðinu. Fyrrum göngu Jóns þessa dag- ana. Jón er starfsmaður Flugleiöa f Reykjavfk, en er prentari að iðn. Eigin- kona Jóns er Elfn Bjama- dóttir, framkvæmdastjóri Bridgesambands Islands. Bróðir Jóns, Guömundur Baldursson, er einnig mjög virkur keppnisspil- ari. Félagi Jóns erAðal- steinn Jörgensen. sagður atvinnurekandi, með rekstur m.a. á Sel- fossi. Sambýliskona Aðal- steins er Guðlaug Jónsdóttir, kunn spila- kona og í fremstu röð bridgekvenna hér á landi. Félagi Aðalsteins f landsliðinu er Jón Bald- ursson. Bandarfkjunum. Ytra spilaði hann mest ailan tímann, þann tima er gafst frá námi. Eiginkona hans kemur einmitt frá Bandaríkjunum, Jaqui McGreal (Jakobfna Rfk- harðsdóttir). Jaqui er meöal bestu kvenspilara landsins. Félagi Þorláks í lands- liðinu er Guðmundur Páll Amarson. blaðamaður á sama blaöi. Guðmundur er sonur Amar Guðmundssonar (nú látinn), sem hér á árum áður var einn okk- ar albesti bridgespilari. Guðmundur þykir kippa aðeins í kynið. Félagi Guðmundar í landsliðinu er Þorlákur Jónsson. Guðlaugur R. Jóhannsson Guðlaugur Reynir Jó- hannsson er fæddur 25. ágúst 1944 og er þvf 47 ára. Hann er ald- ursforseti liðsins. Guð- laugur og félagi hans frá 1973, Örn Arnþórs- son, eru trúlega jafn- besta par sem spilað hefur fyrir Island hönd á erlendum vettvangi. Sagt hefur verið um þá félaga, að þeirspili aldrei betur en einmitt á erlendum vettvangi. Margt er til í því. Titlar og sigrar Guðlaugs tengjast órjúfanlega þætti Arnar Arnþórson- ar, og er þeirra getið f kynningu af Erni. Guðlaugur er sjálf- stæður endurskoðandi f Hafnarfirði, þar sem hann býr. Má þvf telja hann þriðja Hafnfirðing- • • Orn Arnpórsson Örn Arnþórsson er fæddur 5. febrúar.,1945 og er þvf 46 ára. Örn er Siglfirðingur, en þaðan hafa komiö margir af bestu spilurum lands- ins. Örn og félagi hans i landsliöinu, Guðlaugur R. Jóhannsson, eru lengst spilandi par á Is- inn f hópnum, þvf fyrir- liðinn Björn Eysteins- son og „litli" drengurinn, Aðalsteinn Jörgensen, hafa einnig þann „vafa- sama“ heiður, að teljast Gaflarar. Foreldrar Guðlaugs, þau Sigríður Ingibergs- dóttir og Jóhann Guð- laugsson, hafa um ára- tuga skeið verið keppn- isfólk í bridge. landi í dag (( efsta styrkleikaflokki), en þeir hafa spilað saman óslitið frá 1973. Á þeim tíma hafa þeir margoft átt sæti f íslenska karlalandslið- inu, trúlega oftast allra fslenskra para. Þeir eru margfaldir Islandsmeistarar ( sveitakeppni (5 titlar), tvisvar sigraö f Islands- mótinu f tvfmenning og 3 bikarmeistaratitlar. Örn er starfsmaður Iffeyrissjóðs Iðju. Bróðir Arnar, Hörður Arnþórsson, hefur einnig átt sæti f fs- lenska karlalandsliöinu. NÝTT HELpARBLAÐ |Q, FÖSTUDAGUR^ 11. OKJÓpER 1991 NÝTT HELGARBLAÐ FÖSTUÐAGUR 11. OKTÓBER 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.