Þjóðviljinn - 11.10.1991, Síða 18
Krumminn á skjánum
Morfín
fyrir
fólkið
Karl gamli Marx sagði á öld-
inni sem leið að trúin væri óp-
íum fyrir fólkið. Svo dó guð en
úr ösku hans reis sjónvarps-
fönixinn og fló inn á Ijósvak-
ann. Tilveran varð smámsam-
an flóknari og sársaukafyllri
svo ópíum nægði ekki lengur
til. ( dag veitir lúnum nútíma-
mönnum ekkert af sterkri mor-
fínsprautu að lokinni erfiðri
vinnuviku, til að lina kvalirnar.
Þá sprautu vonast þeir til að
sjónvarpskassinn veiti þeim.
Helgarskammturinn núna er
fjölbreytilegur og er hæfileg
blanda af morfínsprautu og
lakkrísmola enda hafa báðar
sjónvarpsstöðvarnar nýlega
haldið upp á stórafmæli, Sjón-
varpið 25 ára og Stöð 2 ftmm
ára afmæli.
Við skulum renna hratt yfir
framboðið á kvikmyndum um
helgina og byrjum á föstudegi.
Sjónvarpið sýnir mynd sem lýst er
á þennan hátt: ástarflækjur, iðnað-
amjósnir, kapphlaup við tímann og
magnaðar tæknibrellur. Myndin
nefnist Fyrsta flug Stjömunnar og
er bandarísk frá 1983. Þrátt fýrir
þessa glæsilegu lýsingu á mynd-
Asíralir reyna að stöðva flótta japanskra hermanna.
inni segir Maltin hana hugmynda-
snauða og langdregna.
Kvikmyndakvöldið á Stöð 2
hefst á miðlungs gagnfræðaskóla-
mynd, þá tekur við frönsk spennu-
mynd og kvöldið endar með öðmm
hluta Löggunnar í Beverly Hills
sem Maltin gefur tvær stömur.
Fyrirmyndarfaðir mætir aftur í
skrautlegu peysunum og stífpress-
uðu buxunum sínum á laugardags-
kvöldið í Sjónvarpinu. Síðan koma
tvær ólíkar myndir, kanadíska
myndin Lýsihóll sem gerist á
kreppuárunum og fjallar um stúlku
sem reynir að koma foreldrum sín-
um aftur saman. Mjög hjartnæmt.
Kvöldinu lýkur svo með Sandino,
fjölþjóðlegri mynd um Augusto
Sandino, leitoga Sandinista í Nik-
aragva. Það lofar tæpast góðu að
sveitasöngvarinn Kris Kristoffer-
son leikur aðalhlutverk.
James Bond ríður á vaðið á
Stöð 2. Þama fer Timothy Dalton
með hlutverk njósnarans og hjarta-
Patrich Bergin í Morfin og
lakkrismolar Sjónvarpsins
knúsarans í myndinni Leyfið aftur-
kallað. Aðalmynd kvöldsins er
breska myndin Launmál, sem Jos-
eph Losey gerði árið 1968 með
stjömum á borð við Elísabetu Ta-
ylor og Miu Farrow. Myndin er
bam sins tíma og ber keim að
LSD-kúltúr. Maltin gefúr mynd-
inni þrjár og hálfa stjömu. Hins-
vegar var gerð sjónvarpsútgáfa af
myndinni og þykir hún síðri. Því
miður óttast krumminn á skjánum
að sú útgáfa sé á boðstólum hjá
Stöð 2. Talnabandsmorðinginn
með m.a. Donald Sutherland í að-
alhlutverki fjallar um prest sem elt-
ir morðingja geistlegra manna.
Dagskránni lýkur svo með hasar i
háloftum, frekar dauflegri mynd
með Mariel Hemingway og Ben
Cross.
Helginni lýkur svo á Stöð 2
með þremur kvikmyndum. Fyrst er
Banvænn skammtur, átakanleg
saga af hjúkrunarkonu, þá bijótast
japanskir hermenn úr áströlsku
fangelsi og kvöldið endar svo á því
að Richard Dreyfúss gerist óvart
einræðisherra í Suður- Ameríku,
en það er hin sæmilegasta afþrey-
ing.
Sjónvarpið er höfðinglegra en
Stöð 2 þvi það býður áhorfendum
bæði upp á morfín og lakkrísmola,
en það er nafnið á breskri sjón-
varpsmynd, sem sýnd er á sunnu-
dagskvöldið. Myndin segir frá
raunum ungrar stúlku sem þarf að
annast yngri systkini sin er móðir
hennar deyr, en faðir hennar er
drykkjusjúklingur og beitir hann
dótturina bæði andlegu og líkam-
legu ofbeldi.
Einsog sjá má á þessari upp-
talningu ættu flestir að finna eitt-
hvað við sitt hæfi á sjónvarps-
stöðvunum um helgina þannig að
landinn þarf ekki að óttast að hann
verði án morfínsprautu sjónvarps-
ins nú fremur en endranær.
fjársjóbur
Þriðji þáttur í röðinni Fjár-
sjóður hefur tapast er á dag-
skrá Sjónvarpsins í kvöld. Þar
keppa félagar úr hjálpar- og
björgunarsveitum landsins í
því að hafa uppi á fólgnum
verðmætum sem tengjast sögu
þjóðarinnar. Leiðbeiningar,
eða fjársjóðskortið, er ritað á
fommáli og síðan fá þátttak-
endur 45 mínútur til að finna
fjársjóðinn. Sem sagt æsi-
spennandi leikur.
Umsjónarmaður þáttanna
er Jón Björgvinsson, en Jón
Gústafsson er aðstoðarmaður
hans.
S j ó n v a r p
Föstudagur
18.00 Litli víkingurinn (52) Teikni-
myndaflokkur um vikinginn
Vikka og ævintýri hans. Leik-
raddir Aðalsteinn Bergdal.
18.30 Beykigróf (4) Breskur
myndaflokkkur.
18.55 Táknmálsfréttír
19.00 Hundalíf (4) Kandískur
myndaflokkur.
19.30 Shelley (4) Breskur gaman-
myndaflokkur.
20.00 Fréttir, veður og Kastljós
20.50 Kvikmyndahátiðin
20.55 Fjársjóður hefur tapast, finn-
andi vinsamlegast hafl samband
(3) Flugbjörgunarsveitin í
Reykjavík og Hjálparsveit skáta I
Reykjavík leita verðmæta úr
sögu þjóðarinnar í Engey. Um-
sjón Jón Björgvinsson. Kynnir
ásamt honum Jón Gústafsson.
Upptöku stýrði Hákon Már
Oddsson.
22.00 Samherjar (6) Bandarískur
sakamálaþáttur.
22.50 Fyrsta flug Stjörnunnar
Bandarísk sjónvarpsmynd frá ár-
inu 1983. Háþróaðri farþegaflug-
vél hlekkist á I fyrstu fiugferö
sinni. Hún villist af leið og svifur
um geiminn án þess að flugstjór-
inn fái við nokkuð ráðið, en hann
hefur aðeins eldsneyti til tveggja
sólarhringa flugs. Leikstjóri Jerry
Jameson. Aðalhlutverk Lee Maj-
ors, Hal Linden og Lauren Hut-
ton..
00.40 Útvarpsfréttir í dagskráriok.
Laugardagur
15.00 Iþróttaþátturinn 15.00 Enska
knattspyrnan - markasyrpa
16.00 Evrópumótin i knattspyrnu
Svipmyndir frá leikjum KR og
Tórínó og Fram og Panathinai-
kos. 17.00 Ryderkeppnin I golfi
17.50 Úrslit dagsins.
18.00 Alfreð önd (52) Hollenskur
teiknimyndaflokkur. Leikraddir
Magnús Ólafsson.
18.25 Kasper og vinir hans (25)
Bandariskur teiknimyndaflokkur
um vofukrílið Kasper. Leikraddir
Leikhópurinn Fantasía.
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Poppkorn Glódis Gunnars-
dóttir kynnir tónlistarmyndbönd
af ýmsu tagi. Dagskrárgerð Þið-
rik Ch. Emilsson.
19.30 Úr ríki náttúrunnar. Fellum
bjór og friðum tré Bresk náttúru-
lífsmynd um Evrópubjórinn i
Noregi. Þýðandi og þulur Óskar
Ingimarsson.
20.00 Fréttir og veður
20.35 Lottó
20.40 Kvikmyndahátlðin
20.45 Manstu gamla daga. Fyrsti
þáttur: Rokkararnir Fyrsti þáttur f
röð sem sýnd veröur í vetur um
sögu íslenskrar dægurtónlistar.
Á meöal þeirra sem koma fram
eru Stefán Jónsson, Berti Möller,
Garðar Guðmundsson, Þor-
steinn Eggertsson, Guðbergur
Auðunsson og Siggi Johnnie.
Umsjónarmenn eru þeir Jónatan
Garöarsson og Helgi Pétursson
sem jafnframt er kynnir. Dag-
skrárgerð Tage Ammendrup.
21.30 Fyrirmyndarfaðir (1) Hér hef-
ur göngu sina ný syrpa um fyrir-
myndarföðurinn Cliff Huxtable
og fjölskyldu hans.
21.55 Lýsihóll Kanadísk sjónvarps-
mynd frá 1990. Myndin gerist á
kreppuárunum og segir frá ungri
stúlku sem neyðist til að flytja til
föður síns þegar móðir hennar
veikist. Hún tekur sér fyrir hend-
ur að sameina foreldra sína á
ný. Aðalhlutverk Sam Water-
ston.
23.50 Sandino Fjölþjóðleg mynd frá
1990 um feril Augusto Sandino
leiðtoga sandinista í Nikaragva.
Leikstjóri Miguel Littin. Aðalhlut-
verk Kris Kristofferson.
02.05 Útvarpsfréttir I dagskrártok
Sunnudagur
14.40 Dóttir kölska Fjölþjóðleg kvik-
mynd byggð á spænskum þjóð-
sögum og ævintýri Grimms-
bræðra. Úngur maður vinnur
kölska í spilum. Undirheimahöfð-
inginn hyggur á hefndir og legg-
ur þrjár þrautir fyrir piltinn, hverja
annarri erfiðari.
16.10 Franskir tónar Þáttur um ný-
bylgjuna í franskri dægurtónlist.
Umsjón Egill Helgason-. Dag-
skrárgerð Þiörik Ch. Emilsson.
Áður á dagskrá 11. september
sl.
16.40 Ritun Annar þáttur: Hnitmið-
un máls Fjallað er um ýmsar
gerðir stuttra texta: greinargerð-
ir, endursagnir og úrdrætti,
skýrslur, fréttir, auglýsingar og
fleira, þar sem markmiðiö er að
segja sem mest í sem fæstum
orðum., Umsjón Ólína Þorvarðar-
dóttir. Áður á dagskrá i Fræðslu-
varpi 9. 11. 1989.
16.50 Nippon - Japan siðan 1945.
Annar þáttur: Tapið unnið upp.
Breskur heimildamyndaflokkur i
átta þáttum um sögu Japans frá
seinna stríði. I þessum þætti er
fjallað um þær breytingar sem
urðu á efnahagsmálum landsins
og baráttu stjórnvalda við verð-
bólgu og verkalýðsfélög á árun-
um eftir stríð. Þulur Ingi Kari Jó-
hannesson.
17.50 Sunnudagshugvekja Séra
Pétur Þórarinsson flytur.
18.00 Sólargeislar (25) Blandað
innient efni fyrir börn og ung-
linga. Umsjón Bryndís Hólm.
Dagskrárgerð Kristin Björg Þor-
steinsdóttir.
18.30 Babar (3) Frönsk/kanadísk
teiknimynd um filakonunginn Ba-
bar. Leikraddir Aðalsteinn Berg-
dal.
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Vistaskipti (6) Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur.
19.30 Fákar (9) Þýskur mynda-
flokkur.
20.00 Fréttir og veöur
20.35 Kvikmyndahátíöin
20.40 Gull i greipar Ægis (1) Fyrsti
þáttur af þremur sem gerðir hafa
verið um sokkin skip við strendur
landsins og lífrikið f kringum
þau. Að þessu sinni er kafað
niður að grænlenska togaranum
Sermelik, sem sökk í Patreksfirði
I mars 1981, og liggur tiltölulega
lítið skemmdur suðvestur af
Tálkna i mynni fjarðarins. Um-
sjón Sveinn Sæmundsson. Dag-
skrárgerð Björn Emilsson.
21.15 Astir og alþjóðamál (6)
Franskur myndaflokkur.
22.10 Morfín og lakkrismolar Bresk
sjónvarpsmynd byggð á sjálf-
sævisögulegri skáldsögu eftir
Carol Ann Courtney. I myndinni
segir frá raunum ungrar stúlku I
Cardiff á sjötta áratugnum. Þeg-
ar móðir hennar deyr lendir það
á henni að annast fjögur yngri
systkini sin, en faðir hennar er
drykkjusjúklingur og beitir hana
bæði andlegu og likamlegu of-
beldi. Leikstjóri Karl Francis. Að-
alhlutverk Patrick Bergin, Sue
Jones Davies.
23.45 Úr Listasafni Islands Þorgeir
Ólafsson fjallar um verkið Sól-
vagninn eftir Jón Gunnar Árna-
son. Dagskrárgerð Hildur Bruun.
Mánudagur
18.00 Töfraglugginn (23) Blandað
erlent barnaefni. Umsjón Sigrún
Halldórsdóttir. (Endurs.)
18.25 Drengurinn frá Amrómedu
(5) Fimmti þáttur af sex um þrjá
unglinga sem ganga i liö með
geimveru í örvæntingarfullri til-
raun hennar til að bjarga heimin-
um.
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Á mörkunum (41)
Frönsk/kanadisk þáttaröð.
19.30 Roseanne (9) Bandarískur
gamanmyndafiokkur.
20.00 Fréttir og veður
20.35 Kvikmyndahátíöin
20.40 Fólkið í Forsælu (5) Banda-
rískur framhaldsmyndaflokkur.
21.05 Iþróttahorniö Fjallað um
iþróttaviðburði helgarinnar innan
lands sem utan og sýndar svip-
myndir frá knattspyrnuleikjum
víðs vegar i Evrópu. Umsjón
Logi Bergmann Eiðsson.
21.25 Nöfnin okkar Þáttaröð um is-
lensk mannanöfn, merkingu
þeirra og uppruna. Að þessu
sinni verður fjallað um nafnið
Þór. Umsjón Gísli Jónsson.
21.30 Hugsað heim til íslands Fyrri
þáttur. Þáttur um Vestur- Islend-
inga. Rætt er við Helgu Steph-
enson framkvæmdastjóra kvik-
myndahátiðarinnar í Toronto og
kvikmyndaleikstjórana Sturlu
Gunnarsson og Guy Maddin,
auk þess sem sýnt verður úr
myndum þeirra. Dagskrárgerö
Marteinn St. Þórsson.
22.00 Hjónabandssaga (1) Breskur
myndaflokkur I fjórum þáttum.
Þættirnir gerast í byrjun aldarin-
anr og segja fra stormasömu
hjónabandi Vitu Sackville-West
og Harolds Nicolsons og hliðar-
sporunum sem þau tóku,
23.00 Ellefufréttir
23.10 Þingsjá
23.30 Dagskráriok
Föstudagur
16.45 Nágrannar
17.30 Gosi Teiknimynd.
17.55 Umhverfis jörðina Athyglis-
verð teiknimynd.
18.20 Herra Maggú Teiknimynd.
18.25 Blátt áfram Endurtekinn þátt-
ur frá í gærkvöldi.
18.40 Bylmingur Rokkaður tónlist-
arþáttur.
19.19 19.19 Fréttaþáttur.
20.10 Kænar konur Gamanþáttur.
20.35 Ferðast um timann Einn vin-
sælasti sjónvarpsþátturinn um
heim allan.
21.25 f gaggó Stórskemmtileg
menntaskólamynd með Michael
J. Fox i aöalhlutverki. Leikstjóri
Rod Amateau. (1985)
23.00 Saga skugganna Þegar
Antoine fer til að vera einn á
gistihúsi til að gleyma að gjald-
kerinn hans hafði nýlega haft af
honum 600 þúsund franka átti
hann ekki von á að hitta Alex,
auðugan veiðimann. Aðalhlut-
verk: Pierre-Loup Rajot, Claude
Rich og Auréle Doazan. Leik-
stjóri Denys Graner-Deferre.
Bönnuð börnum. 00.25 Löggan i
Beverly Hills II Murphy er hér i
hlutverki Alex Foley og fer á
kostum ásamt Judge Reinhold
sem er hér í hlutverki nokkurs
konar aðstoöarmanns Alex Fol-
ey. Leikstjóri Tony Scott. (1987)
Lokasýning.
02.05 Dagskrárlok
Laugardagur
09.00 Með afa.
10.30 Á skotskónum Teiknimynd.
10.55 Af hverju er himinninn blár?
11.00 Fimm og furðudýrið. (5)
11.25 Á ferð með New Kids on the
Block Skemmtileg teiknimynd
þar sem tónlistin ræður ríkjum.
12.50 Á grænni grund Endurtekinn
þáttur frá sl. miðvikudegi.
12.55 Annar kafli Þessi mynd er
byggö á leikriti Neil Simon og
segir hún frá ekkjumanni sem er
ekki alveg tilbúinn til að lenda í
öðru ástarsambandi. Leikstjóri
Robert Moor. (1980)
15.00 Þrjú-bíó Lisa í Undralandi
Lisa er úti i garði þegar hún sér
hvíta kaninu á haröahlaupum.
Hún stekkur á fætur og hleypur
á eftir kanínunni sem fer ofan I
holu. Það skiptir engum togum,
Lísa fer á eftir kaninunni ofan I
holuna. Hún hrapar lengi, lengi,
en lendir að endingu mjúklega (
hrúgu af laufblöðum...og þá hetj-
ast ævintýri Lisu i Undralandi.
16.30 Sjónaukinn Endurtekinn þátt-
ur þar sem félagsmenn i Sport-
kafarafélagi Islands eru heim-
sóttir og farið með þeim I leið-
angur um undirdjúpin.
17.00 Falcon Crest
18.00 Popp og kók.
18.30 Bilasport (Endurt.)
19.19 19.19 Fréttirog veður.
20.00 Morðgáta.
20.50 Heimsbikarmót Flugleiða '91
22.05 Leyfið afturkallað Fáar mynd-
ir njóta eins mikilla vinsælda og
James Bond myndirnar. Þessi er
engin undantekning. Aöalhlut-
verk: Timoty Dalton, Carey Lo-
well. Leikstjóri John Glen. (1989)
Bönnuð börnum.
00.15 Launmál Vönduð bresk
mynd frá árinu 1968. Fjöldi
þekktra leikara koma fram I
myndinni og þykir leikur Miu
Farrow og Elizabeth Taylor frá-
bær. Bönnuð börnum.
01.55 Talnabandsmorðinginn
Hörkuspennandi mynd með úr-
valsleikurum. Myndin greinir frá
kaþólskum presti sem reynir að
finna morðingja sem drepur kaþ-
ólska presta og nunnur og skilur
ávallt eftir sig svart talnaband.
Aðalhlutverk Donald Sutheriand,
Belinda Bauer. Leikstjóri Fred
Walton (1988) Stranglega bönn-
uð börnum.
03.35 Hasar i háloftunum Banda-
riskur njósnari er ráðinn til þess
að fá iraskan flugmann til að
svíkjast undan merkjum og
fljúga MIG orrustuþotu til Israels.
Aðalhlutverk Mariel Hemming-
way og Ben Cross. Leikstjóri
John Hancock. (1988) Bönnuð
börnum. Lokasýning.
05.10 Dagskráriok
Sunnudagur
09.00 Litla hafmeyjan Teiknimynd.
9.25 Hvutti og kisi Teiknimynd.
09.30 Túlli Teiknimynd.
09.35 Fúsi fjörkálfur Mýndaflokkur
fyrir börn á öllum aldri.
09.40 Steini og Olli
9.45 Pétur Pan Ævintýraleg teikni-
mynd.
10.10 Ævintýraheimur NINTENDO
Hvaða ævintýrum ætli Ketill
lendi i i dag?
10.35 Ævintýrin I Eikarstræti Fram-
haldsþáttur fyrir börn og ung-
linga.
10.50 Blaöasnáparnir Teiknimynd
með Islensku tali.
11.20 Trausti hrausti Spennandi
teiknimynd.
11.45 Trýni og Gosi Teiknimynd.
12.00 Popp og kók Endurtekinn
þáttur frá sl. mánudegi.
12.30 Italski boltinn. Mörk vikunnar
Endurt. frá sl. mánudegi.
12.50 Gandhi Myndin lýsir við-
burðariku lifi og starfl Mohandas
K. Gandhi sem hóf sig upp úr
óbreyttu lögfræðistarfi og varð
þjóðarleiðtogi og boðberi friðar
og sátta um allan heim. Aðal-
hlutverk Ben Kingsley, Candice
Bergen. Leikstjóri og framleið-
andT Richard Attenborough.
(1982)
16.00 Leyniskjöl og persónunjósnir
Seinni hluti athyglisverðrar
myndar um J. Edgar Hoover.
16.45 Þrælastríöið Margverðlaun-
aður heimildarmyndafTokkur um
þrælastríðið i Bandaríkjunum.
18.00 60 mlnútur Vandaður frétta-
skýringaþáttur.
18.40 Maja býfluga Teiknimynd.
19.19 19.19
20.00 Elvis rokkari Leikinn fram-
haldsþáttur um goðið Elvis
Presley.
20.25 Hercule Poirot Breskur saka-
málaþáttur.
21.20 Banvænn skammtur Átakan-
leg mynd sem segir frá starfandi
hjúkrunarkonu sem er ákærð fyr-
ir morð þegar einn af sjúklingum
hennar lætur llflð.
22.55 Flóttinn úr fangabúðunum
Vandaður framhaldsþáttur þar
sem rakin er saga japanskra
hermanna sem reyndu að flýja
úr áströlsku fangelsi.
23.50 Óvænt hlutverk Það er ekki
alltaf tekið út með sældinni að
vera leikari. Hvað gerist þegar
misheppnaður leikari frá New
York er fenginn til að fara til
landsins Parador og taka þar við
hlutverki látins einræðisherra?
Aðalhlutverk Richard Dreyfuss,
Sonia Braga og Raul Julia.
01.30 Dagskráriok
Mánudagur
16.45 Nágrannar
17.30 Skjaldbökumar Spennandi
teiknimynd.
17.50 Litli folinn og félagar Falleg
teiknimynd.
18.00 Hetjur himingeimsins Spenn-
andi teiknimynd.
18.30 Kjallarinn tónlistarþáttur.
19.19 19.19
20.10 Dallas
21.00 Ættarsetriö Breskur fram-
haldsþáttur í átta hlutum um
kaupsýslumann sem óvænt erfir
ættarsetur. Þetta er næstsíðasti
þáttur.
21.50 Hestaferð um hálendið I ág-
ústmánuði síðastliðnum fóru
nokkrir hestamenn í ferð um há-
lendið Sigurveig Jónsdóttir slóst
I för með þeim ásamt kvik-
myndatökumanni Stöðvar 2 og
fá áhorfendur að njóta afrakst-
ursins í kvöld.
22.30 Booker Hraöur og spennandi
þáttur.
23.20 Fjalakötturinn. Dauðinn [
garðinum (La Mort en ce Jardin)
Dagskrárlok Stöðvar 2 En við
tekur næturdagskrá Bylgjunnar.
NÝTT HELGARBLAD 18 TÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER I99I