Þjóðviljinn - 02.11.1991, Qupperneq 6
EES — stutt viðkoma á
leið inn í Evrópubandalagið
amningurinn um Evrópskt Efnahagssvæði (EES), sem gerður var á dögun-
um í Lúxemborg, hefur verið mikið til umfjöllunar í fjölmiðium að undan-
förnu. Utanríkisráðherra fer nú sigurfor um landið til að kynna samninginn
L___/ og sér einungis jákvæðar hliðar á honum. Hjörleifur Guttormsson alþingis-
- Ég er ekkert hissa á því að Jón
Hannibalsson velji þann kost að hafa
stór orð og einlit um þessa samnings-
niðurstöðu. Mér var það ljóst fyrir-
fram að þetta yrði hans aðferð, ekki
síst eftir að hann fór að lýsa yfir
svartsýni í septembermánuði varð-
andi lyktir samningaviðræðnanna. Þá
var það augljóst herbragð til að geta
haft þeim mun hæira þegar samning-
urinn væri í höfn. Ég hef verið þeirr-
ar skoðunar allt þetta ár að þessi
samningur yrði gerður og ástæðumar
fyrir því em sú mikla áhersla sem
ráðandi öfl í EFTA- rikjunum hafa
lagt á það að þessir samningar næð-
ust hvað sem það kostaði. Þetta á al-
veg sérstaklega við um Noreg og Is-
land, þau riki sem ekki era komin á
sömu hraðferð gagnvart EB og hin
EFTA-ríkin og þessi varð síðan nið-
urstaðan. Ég tel hins vegar að fyrir
þessum upphrópunum utanríkisráð-
herra og hans liðsmanna sé engin
raunveruleg innistæða.
Við skulum líta fyrst á það sem
kalla má sérmál íslands og mest hef-
ur verið rætt um, þ.e. sjávarútvegs-
þáttinn. Þar miklast menn yfir árangri
á sviði tollalækkana á íslenskum
sjávarafurðum og ekki ætla ég að
hafa það af mönnum sem jákvætt
hefur náðst í þeim efnum, þótt það
gangi mun skemmra en það sem
keppt var að. Þegar viðræðumar hóf-
ust 1989 hafði ísland knúið það fram
innan EFTA að EFTA-ríkin styddu
kröfú okkar um fh'verslun með fisk. 1
henni fólst ekki aðeins 100% lækkun
á tollum, afnám tollahindrana inn í
Evrópubandalagið, heldur að ná fram
breytingu á sjávarútvegsstefnu EB,
þ.e. að bandalagið legði af styrkja-
pólitík í sjávarútvegi og tæki upp
hliðstæð viðskipti með sjávarafúrðir
og gilda um iðnaðarvörur. Þessu vís-
aði Evrópubandalagið út í hafsauga
fýrir réttu ári. Þar rákust íslendingar
á vegg og Evrópubandalaginu varð
ekki hnikað og samt héldu menn
áffam. Þá var eftir hinn þátturinn; að
lifa við þessa styrkjapólitík, þær við-
skiptahindranir sem henni era sam-
fara, og reyna að fá tollana afnumda.
Þar vora alveg skýlausar yfirlýsingar
á þinginu í vor, t.d. hjá sjávarútvcgs-
ráðherra, að það yrði enginn samn-
ingur gerður nema algert tollfrelsi
með sjávarafúrðir fengist. Niðurstað-
an varð því miður ekki sú. Það era
ennþá afúrðir sem standa þar utan við
og sem við eigum eftir að reka okkur
á í þessum viðskiptum. Þar fyrir utan
er þessi tollalækkun ekki fengin
ókeypis.
Hvað áttu við?
- Tollalækkunin er fengin í skipt-
um fyrir aðgang Evrópubandalagsins
að auðiind okkar, fiskimiðunum.
Stjómvöld hafa reynt að setja þennan
samning í það ljós að hér sé um að
ræða skipti á veiðiheimildum. Islend-
íngar eigi að fá að veiða 30 þúsund
tonn af loðnu í grænlenskri lögsögu í
staðinn fyrir 3 þúsund tonn af karfa.
Þetta er sérkennileg uppsetning mála
þegar betur er að gáð því EB hefúr
aldrei veitt þessi 30 þúsund tonn. Þau
hafa fallið í hlut íslendinga á undan-
fomum árum, þannig að hér er í
rauninni verið að greiða úr eigin vasa
þegar menn era að tala um skipti á
veiðiheimildum. Það liggur alveg
fyrir að EB hefúr ekki fcngið tonn af
þessum loðnuafla sem þeir keyptu af
Grænlendingum sem heimild. Þeir
hafa ekki verið þess megnugir að ná
því og samkvæmt gildandi samningi
fellur það í hlut Islendinga. A þetta
hefúr m.a. Jakob Jakobsson, forstjóri
Hafrannsóknastofúunar, bent ræki-
maður hefur allt frá upphafi verið efins um ágæti EES, ritað margar greinar um
málið, setið í Evrópustefnunefnd Alþingis og fylgst grannt með þróun mála er-
lendis. Hjörleifur var tekinn á beinið og beðinn að lýsa sínum viðhorfum til her-
ferðar utanríkisráðherra og samningsins um Evrópskt efnahagssvæði almennt.
skýrslu lengur og spár annarra stofn-
ana nefna allt aórar og lægri tölur,
jafúvel innan við 1%. Fyrir utan það
stóraukna atvinnuleysi sem blasir við
eftir þennan samruna. Þessi hagvöxt-
ur, eins og annar hagvöxtur sem á að
ná með því að opna fyrir hömlulaust
markaðskerfi, mun ganga gegn þeim
markmiðum sem menn hafa verið að
setja sér í sambandi við umhverfis-
vemd og þar eiga eftir að verða hörð
og mikil átök á næstunni milli þeirra
sem sjá nauðsyn þess að bregðast við
með allt öðrum hætti í efnahagsmál-
unum með tilliti til umhverfisvemdar
og hinna sem ljá því aðeins stuðning
í orði. Deilan um þungaflutninga um
Alpana er skýrt dæmi um mismun-
andi áherslur landa eins og Austur-
ríkis og Sviss annars vegar og Evr-
ópubandalagsins hins vegar í um-
hverfismálum.
Hvernig vilt þú að staðið verði
að kynningu málsins á næstunni
hér innanlands?
- Þar blasir við stórt og mikið
verkefni, einkum vegna þess að
menn hafa ekki notað tímann meðan
þessar viðræður stóðu yfir til að
kynna málið eins og gera þurfti og
það er úr þeirri stöðu sem utanríkis-
ráðherrann teflir núna, stöðu van-
þekkingar þjóðarinnar á þessu stóra
máli og andstaða stjómvalda til að
gera átak í þessum efnum er mikið
áhyggjuefni. Evrópustefiiunefnd Al-
þingis vann að útgáíú og upplýsinga-
öflun til þess að kynna einstaka þætti
málsins en núverandi ríkisstjóm
hentaði að láta nefndina hætta störf-
um í reynd sl. vor og ekkert hefúr
komið í staðinn. Ef menn meta ein-
hvers lýðræðislegar aðferðir þá getur
kynning á málinu ekki orðið með
þeim hætti sem utanrikisráðherra
ástundar, þar sem um er að ræða
hömlulausan áróður og ekki snefil af
sómatilfmningu til að leggja málið
fyrir með kostum þess og göllum.
Það era aðeins kostimir sem era tí-
undaðir. Því er það einboðið að þing-
ið verður að sjá til þess að þetta mál
komist á framfæri við þjóðina og
verði túlkað í allri sinni breidd með
hlutlægum hætti. Það ætti m.a. að
styðja við þau samtök í landinu sem
líta þetta mál öðram augum en rikis-
stjómin og hennar liðsmenn. Samn-
ingurinn kemur ekki inn á borð
þingsins fyrr en í byijun næsta árs
þannig að það er ekki nema tæpt ár
eftir til að taka afstöðu til hans. Ég á
von á því að það komi svipur á
starfsfélaga mína á Alþingi þegar
þessi pakki vcrður lagður þar fyrir
upp á 12 þúsund síður og menn verða
að fara að lesa sig í gegn um þetta
því það er væntanlega ljóst að það
getur enginn alþingismaður komist
undan því að setja sig inn í þetta mál
með viðhlítandi hætti þannig að hann
geti svarað kjósendum og fólkinu í
landinu um einstaka þætti og skýrt
afstöðu sína til málsins.
Ég tel að þetta mál sé af þeirri
stærð að menn verði að skoða það
óháð því hverniu þeir líta á önnur
efni sem minniháttar verða að teljast
í samanburði við þetta. Menn verða
að reyna að hefja sig upp úr farvegi
þröngra flokkshagsmuna þegar verið
er að fjalla um þetta mál. Ég hef leyft
mér að gera það á undanfömum ár-
um. Mér hefur ekki dottið í hug að
meta þetta út frá stundarhagsmunum
eða afstöðu Alþýðubandalagsins t.d.
gagnvart ríkisstjóm. Til þess er þetta
mál allt of stórt. Ég vona að alþingis-
menn almennt eigi eftir að taka málið
þeim tökum að láta ekki flokksviðj-
amar binda sig í þeim efúum.
lega, um leið og hann varar við að
treysta EB sem samningsaðila. Hér
era menn sem sagt komnir með fisk-
veiðiflota Evrópubandalagsins inn í
íslenska lögsögu án þess að fá fúlla
niðurfellingu tolla á sjávarafúrðum
og án þess að fá npkkra hnikað um
styrkjapólitik EB. Ég held að menn
ættu að taka eftir þessu og finna
hversu holt er undir þessum hrópum
utanríkisráðherrans og hans nánustu
liðsmanna.
Hverjar eru að öðru leyti þínar
alvarlegustu athugasemdir við
þennan samning?
- Þá komum við að samningnum
EB hefur aldrei veitt þessi 30 þúsund
tonn. Þau hafa fallið í hlut Islendinga
á undanförnum árum, þannig að hér er
í rauninni verið að greiða úr eigin vasa
þegar menn eru að tala um skipti á
veiðiheimildum.
sjálfúm því að í rauninni er þetta
sjávarútvegsmál og tollamál lítið at-
riði þegar litið er til meginatriða
þessa samnings. Við eram hér að
taka inn á okku í einu vetfangi lög og
reglur EB á þýðingarmestu sviðum
efnahags- og atvinnumála og á sviði
viðskipta og fjárfestinga. Þetta er
lagasafú upp á 11 þúsund síður sem
EB hefúr verið að móta í 30 ár. Þessu
er íslandi eins og öðrum EFTA- ríkj-
um ætlað að taka upp með einni
handauppréttingu. Við skulum líta á
það sem ég hef talið stærsta atriðið í
þessu og það er sú skerðing á sjálfs-
ákvörðunarrétti sem fylgir þessum
samningi. Eins og ráðgert er að
ganga frá málum varðandi stjómun á
þessu efúahagssvæði þá er það ljóst
að Alþingi Islendinga verður ekki
nema svipur hjá sjón eftir að þessi
samningur hefur verið gerður. Við
skulum líta nánar á málið. Við sam-
þykkjum hér sem íslenska löggjöf
þennan stóra pakka og honum verður
ckki breytt af okkur íslendingum síð-
ar meir. Við verðum að búa við þessi
lög meðan Evrópubandalaginu þókn-
ast að lifa við þau. En það sem alvar-
lcgra er: ný lög og reglur sem ffam-
kvæmdastjóm EB setur verðum við
að taka inn á okkur nánast möglunar-
laust. Við mcgum rétt kvaka utan í þá
meðan þeir era að ráða ráðum sínum
en EFTA kemst með engum hætti að
sjálfúm ákvörðununum. Þá er sá einn
kostur cftir að neita að samþykkja
þessa löggjöf, en það mun leiða til
gagnaðgerða og slíkt endurtaka menn
ckki oft. Aflciðingar þess yrðu þær
sömu og segja sig ffá samningnum
og þá sést hvaða kostir mönnum cru
búnir í þessu samstarfi.
Hvað verður um EFTA þegar
Svíþjóð, Austurríki, Sviss og jafn-
vel Finnland verða gengin í EB um
miðjan þcnnan áratug?
- Það er augljóst að EFTA hverf-
ur af sjónarsviðinu á næstu áram og
spuming hvort þau lifa þennan áratug
af. Ég líkti þeim fyrir tveimur áram
við skakka tuminn í Písa því EFTA
er ætlað að vera ein af meginstoðum
EES en síðan hcfúr hallað heldur bet-
ur á og mcstar líkur á að 3/4 af þcss-
um sjö ríkja hópi verði á brott úr
EFTA um miðjan þcnnan áratug. En
sagan er ekki öll sögð í sambandi við
valdaafsalið sem hér er á ferðinni.
Það verður ennþá grímulausara þcgar
kcmur að dómsvaldinu sem við náð-
um hér inn í landið snemma á öldinni
og hrósuðum happi. Nú era nicnn að
færa það yfir í dómstól sem er æðri
íslenskum dómstólum og er með
endanlegan úrskurð í málum sem
varða þetta efúahagssvæði og verður
í kompu við hliðina á Evrópudóm-
stólnum í Lúxemborg, beinlínis
tengdur honum starfslega og verður
að meirihluta skipaður dómurum ffá
EB. Þama era menn að afsala sér
dómsvaldi á öllu þessa stóra samn-
ingssviði. Þar við bætist nýtt atriði
sem kom inn núna og var búið að
taka út úr samningspakkanum, en
það era svokallaðir forúrskurðir Evr-
ópudómstólsins. Utanríkisráðherra
hafði uppi mörg orð um það fyrr á ár-
inu að horfið heföi verið ffá þessu
_________ ákvæði um forúr-
skurði en nú er það
komið inn aftur. Það
þýðir að dómstólum í
EFTA-ríkjum er
heimilt að leita til
Evrópudómstólsins
um túlkun á löggjöf
áður en mál era tekin
fyrir. Það er reynt að
- .—.... gera lítið úr þessu
með því að segja að þetta sé bara
heimild, en þetta er orðin nánast
regla í flestum EB- löndum.
Þannig að þú lítur á þennan
dómstól allt öðrum augum en
gerðardómstóla í milliríkjamál-
um?
- Því er ekki hægt að líkja sam-
an, hér er byggt inn dómsvald á öllu
þessu samningssviði en forúrskurð-
anna á ekki að leita hjá þeim dómstól
heldur hjá Evrópudómstólnum. Síðan
er því við að bæta, að ffamkvæmda-
valdið er flutt úr landi til yfirþjóð-
legrar stofnunar að því er snertir eft-
irlit með þessum samningi. Þetta eru
verkefni sem hafa eðlilega verið í
Stjómarráði Islands, en nú flytjast
þau úr landi og til að tryggja að ekk-
ert fari úrskeiðis er sérstaklega tekið
fram að eftirlitsmaður frá EB skuli
vera á vakt í þessari stofnun. Síðan
koma menn hér blákalt og segja að
þessi samningur sé ekki yfirþjóðlegur
í eðli sinu, hann feli ekki í sér valda-
afsal eða skerðingu á valdi Islend-
inga á eigin málum og era að líkja
þessu við venjulegan viðskiptasamn-
ing!
Nú hefur þú vcrið á ferðalagi
um Evrópu og hin Norðurlöndin.
Getur þú sagt okkur frá viðbrögð-
um þar við EES-samningnum?
- Já ég var erlendis þegar þessi
síðasta lota gekk yfir og fylgdist
þannig með málunum almennt í frétt-
um. Eg sat m.a. fund "■..
norrænna andstæð-
inga EB-aðildar í
Osló og þar var efnt
til tengsla til að hafa
samráð og skiptast á
upplýsingum. Þarna
era fúlltrúar frá öllum
Norðurlöndunum,
einnig Danmörku ..
sem er í EB en hefur sína andspymu
sem nú beinist sérstaklega að breyt-
ingu EB í pólitískt bandalag og
myntbandalag. Ennfremur vora
þama fúlltrúar frá Færeyjum sem era
famir að fylgjast í vaxandi mæli með
því scm þama er að gcrast. Mestur
veigurinn í andstöðunni hefúr verið í
Noregi. Þar standa mál þannig að það
stendur mjög glöggt hvort þessi EES-
samningur kemst í gegnum norska
þingið. Til þess þarf 3/4 atkvæða á
þinginu vegna þcss að það er óum-
deilt í Noregi að í þessum samningi
felist slíkt valdaafsal að hann verði
að falla undir ákvæði stjómarskrár-
innar um aukinn meirihluta í þinginu
til að öðlast gildi. Samtökin Nei við
EB hafa náð mjög góðri viðspymu
og eru stöðugt að eflast og hvað sem
verður um EES-samninginn þá er
það trú margra að sagan frá 1972 geti
endurtekið sig í Noregi en þá reynd-
ist ekki meirihluti fyrir inngöngu í
EB í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er
þó alveg ljóst að forystumenn stóra
flokkanna í Noregi, Verkamanna-
flokksins og Hægri flokksins, ætla
sér að keyra Noreg inn í Evrópu-
bandalagið, eftir að búið er að ná
EES-samningnum í höfn. í Svíþjóð
og Finnlandi hefúr málið legið öðra-
vísi. Þar hefúr ekki farið mikið fyrir
andspymu fram að þessu en þar era
nýlega komin til samtök og ég spái
því að í þeim löndum eigi eftir að
verða hörð umræða og það sé engan
veginn víst að gatan inn í EB sé eins
greið og menn nú halda.
Hér á landi vænti ég þess að
Samstaða um óháð ísland eigi eftir
að opna augu margra fyrir því hvað
hér er á ferðinni og veita það viðnám
sem þarf, líka varðandi eftirleikinn,
þ.e. beina aðild að Evrópubandalag-
inu. _
í umræðunni um Evrópumálin
hér á landi hefur mikið borið á við-
kvæðinu „við eigum ekki um neitt
annað að velja“. Eigum við um
eitthvað annað að velja en tengjast
EES?
- Já við eigum það og höfúm
alltaf átt annarra kosta völ. Eg hef frá
því þessar samningaviðræður fóra af
stað lýst mig andvígan þessum
grundvelli og talið hann með öllu
óaðgengilegan. Menn áttu að skoða
sinn gang mun betur áður en upp var
lagt, vegna þess sem þá þegar blasti
við. Jaftiffamt hef ég ásamt öðrum
sett ffarn aðra kosti sem ég tel að við
eigum enn algerlega opna, þ.e. að
halda okkur utan við þessar efha-
hagsblokkir. Það er ekkert sem rekur
Islendinga inn á þessa braut, engin
efnahagsleg nauðsyn til að gera
þcnnan samning, og hann er beinlínis
hættulegur fyrir sjálfstæði þjóðarinn-
ar. Við búum hér þannig, bæði land-
ffæðilega og hvað snertir náttúraauð-
lindir, að með því að halda utan um
eigin stjómtæki eram við ekki í nein-
um vandræðum með að tryggja góð
viðskipti jafnt við Evrópu sem aðra
heimshluta og í raun miklu betri
möguleika með því að halda okkur
utan við þessar blokkir allar. Okkar
stóra kostir liggja einmitt í því að
vera óháðir. Landfræðileg staða okk-
ar býður upp á það að við ræktum
...það er óumdeilt í Noregi að í þessum
samningi felist slíkt valdaafsal að hann
verði að falla undir ákvæði
stjórnarskrárinnar um aukinn
meirihluta í þinginu til að öðlast gildi.
samskipti til allra átta og eigum í því
sambandi allt annarra kosta völ og
þar er staða okkar íslendinga mun
betri en annarra Norðurlanda.
Þar að auki getum við lagað okk-
ur að breyttum aðstæðum og opnað
fyrir frjálsari samskipti á þeim svið-
um sem við kjósum með einhliða
ákvörðunum.
Hvað með hagvaxtarsönginn?
- Hagvaxtarsöngurinn er kyijað-
ur hátt og mikið en það era famar að
heyrast margar falskar nótur í því
viðlagi sem þar er haft uppi. Checc-
ini-skýrslan, sem menn miðuðu við í
upphafi, gerði ráð fyrir miklum hag-
vexti í kjölfar innri markaðarins, en
það era ekki margir sem trúa þeirri
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. nóvember 1991 Síða 6