Þjóðviljinn - 02.11.1991, Síða 11
Mwmng
Karl Hans Bjömsson
Fæddur 16. júlí 1929 - Dáinn 28. október 1991
„Þar sem góðir menn fara eru
Guðs vegir"
Bróðir minn elskulegur, hann
Kalli, er látinn eftir langvarandi og
erfíð veikindi. Er ég minnist hans ör-
fáum orðum, kemur mér fyrst í hug sá
sólbjarti sumarmorgunn, er hann kom
í heiminn, yngsta bam foreldra sinna,
Soffíu Lilliendahl og Bjöms Gríms-
sonar á Akureyri. Hann óx og dafnaði
og öll elskuðum við þennan fallega
dreng, með síða ljósa lokkana, og ég
minnist þess líka svo glöggt hvemig
ljúflyndi hans kom strax i ljós á
bemskuárum hans heima.
Karl lauk prófí frá Gagníræða-
skóla Akureyrar á tilskildum tíma en
hvarf frá ffekara bóknámi að sinni og
lagði leið sína hingað til Reykjavíkur,
óráðinn, leitandi. Hann tóíc próf úr
Loftskeytaskólanum og lærði renni-
smíði. Um skeið stundaði hann sjó
sem vélstjóri og lenti þá eitt sinn í
lífsháska er skipið fórst við Reykja-
nes í mars 1955. Meistarapróf fékk
hann í iðn sinni 1958. - En hann var
enn leitandi, fann ekki lífsfyllingu í
starfí sínu.
Um þessar mundir var kennara-
skortur víða og bauðst honum þá
kennarastarf við unglingaskóla úti á
landi. Þar var hann á „réttri hillu“.
Hann varð vinsæll og laginn kennari,
þama nutu sín hæfileikar hans og
hann naut starfsins.
Jalhffamt sótti hann námskeið á
vegum Kennaraskólans og síðar
Kennaraháskólans í tungumálum og
uppeldis- og sálarfræði. Lengstan
tíma kenndi hann við unglingaskól-
ann í Grundarfirði, síðar Gnmnskóla
Eyrarsveitar ffá 1967-'78. A þessum
ámm gegndi hann einnig ýmsum
trúnaðar- og fulltrúastörfum fyrir
Landssamband framhaldsskólakenn-
ara. Eitt ár, 1978-79, las hann við
Kennaraháskóla Kaupmannahaffiar
bókmenntir, þjóðfélagsffæði, uppeld-
is- og sálarffæði. Eftir heimkomuna
tók hann upp kennslu á ný, þá í Kópa-
vogi, en varð að hætta tveim ámm
seinna vegna hjartaáfalls. Þá stofhaði
hann umboðs- og heildverslunina
Karl H. Bjömsson, sem hann rak til
dauðadags. 1 fyrstu var fyrirtækið
smátt í sniðum en óx jafnt og þétt.
Þetta er í stuttu máli starfssaga
bróður míns. En hann á líka aðra
sögu. Hann naut hamingju í einkalífi
sínu. Þann 11. ágúst 1951 kvæntist
hann Huldu Bjamadóttur, ættaðri ffá
ísafirði. Þá eignaðist hann ástríka eig-
inkonu, mannkostakonu, sem hefur
staðið við hlið hans í blíðu og stríðu,
traust og sterk. Böm þeirra em fimm,
öll vel gefin og hafa erft heiðarleik og
góðmennsku foreldra sinna. Þau hafa
öll stofnað eigin heimili. Elst er Ásta
hjúkmnarffæðingur, gift Þórði Emi
Guðmundssyni sölumanni, þá Emil
Bjami, blaðafulltrúi hjá Iðntækni-
stofnun, kvæntur Hallveigu Thordar-
son jarðfræðingi, Harpa hjúkmnar-
fræðingur, maður hennar er Lárus Ró-
bertsson sölumaður, Bjöm setjari í
Prentsmiðjunni Odda, kvæntur Höllu
Óladóttur, nema í Kennaraháskólan-
um, og yngst er Vilborg Soffía stúd-
ent, maður hennar er Gunnar Ámason
heimspekingur. Bamabömin em 11.
Heimilislíf Karls og Huldu var
með ágætum og er samheldni fjöl-
skyldunnar fágæt. Karl var manna
jaftilyndastur, léttur og hafði fínt
skopskyn, bamgóður og hændust
böm mjög að honum. Þau hjónin
bjuggu eitt ár hjá undirritaðri með tvö
elstu böm sín ung og var unun að sjá
Kalla leika við bömin og hve vel þau
nutu þess.
Þó að sorgin nísti og söknuður sé
óbærilegur þegar ástvinir hverfa okk-
ur sjónum, vakir minning þeirra hlý
og fögur í huga okkar og hjarta með-
an líf endist. Elsku Hulda mágkona,
ég og fjölskylda mín vottum þér og
fjölskyldunni innilega samúð og
þökkum Kalla samfylgdina af heilum
huga. Blessuð veri minning hans. _
Ásta
Elsku Kalli bróðir minn er látinn.
Hann fæddist í Aðalstræti 17 á Akur-
eyri, 16. júlí 1929, sonur hjónanna
Soffíu Lilliendahl og Bjöms Grims-
sonar. Hann var yngstur af okkur átta
systkinum. Hann var yndislegur
drengur og lenti það oft á okkur
Hörpu systur, sem er látin, að passa
hann til skiptis. Þegar hann var spurð-
ur hver ætti hann þá sagði hann alltaf,
Habba og Dedda.
Kalli giftist Huldu Bjamadóttur,
yndislegri konu, og eignuðust þau
fimm böm: Ástu, Emil, Hörpu, Bjöm
og Soffíu, sem öll em gift og farin að
heiman, öll sérstaklega elskuleg böm.
Kalli var einstaklega góður heim-
ilisfaðir, alltaf hress og kátur og hafði
mjög létta lund, enda hændust bama-
bömin að afa sínum. Ég held að ég
hafi aldrei þekkt samheldnari fjöl-
skyldu. Það var gott að koma heim til
þeirra því þau vom ákaflega gestrisin.
Ég votta Huldu mágkonu, sem
hefur misst svo mikið, bömum,
tengdabömum og bamabömum inni-
lega samúð. Ég kveð elsku Kalla
minn með sámm söknuði.
Gerður systir
Mánudaginn 4. nóvember verður
elskulegur frændi okkar, Kalli, jarð-
sunginn. Við systkinin kölluðum hann
alltaf Kalla bæjarstjóra. Enginn veit
nú hvers vegna bæjarstjóratitillinn
festist við hann hjá okkur. Líklegasta
skýringin er sú að Kalla svipaði mjög
til bæjarstjórans í Kardemommubæ.
Hann var alltaf í góðu skapi, réttlátur
og tók létt á yfirsjónum annarra.
Kalli var lengst af kennari. Göml-
um nemanda hans varð að orði er
hann ffétti andlátið: „Er Kalli dáinn?
Það var fínn karl, alltaf léttur og
skilningsríkur.“
Veturinn 1970-71 kom glöggt í
ljós hve mikilli hjartahlýju og þolin-
mæði Hulda og Kalli bjuggu yfir. Þá
opnuðu þau Þóm, nýútskrifuðum
kennara, og dóttur hennar heimili sitt
í Grundarfirði. Þær mæðgur minnast
þess tíma ávallt með þakklæti.
Um leið og við kveðjum góðan
dreng óskum við þess að tíminn fái
linað sorg ykkar elsku Hulda, Ásta,
Emil, Harpa, Bjössi og Soffía.
Þóra, Björn, Lísbet, Soffía,
Margrét og Orri - börn
Margrétar og Gríms
Stutt kveðja til afa okkar sem dó
þann 28. október síðastliðinn. Það er
erfitt að hugsa sér að eiga ekki eftir
að sjá hann aftur. Hlusta á sögumar
hans frá því hann var strákur og þegar
hann var kennari. Það var alltaf nota-
legt að vera hjá afa, svo hlýr og kátur,
enda hændust flestir að honum, bæði
böm og fullorðnir. Jafnvel sumir vinir
okkar kölluðu hann Kalla afa. Heiðar-
leiki og umhyggjusemi vom vöm-
merki hans, alltaf tilbúinn að hlusta
og gefa góð ráð. Hældi okkur á hvert
reipi ef við stóðum okkur vel í skól-
anum eða í öðm. Það var honum mik-
ið kappsmál að við stæðum okkur vel
í náminu. Alltaf tilbúinn að kenna
okkur og aðstoða með lærdóminn.
Mikið veikur og máttfarinn þremur
dögum áður en hann dó var hann að
hjálpa einu okkar með stærðfræðina.
Afi var alltaf tilbúinn að grínast
og ekki síst að sjálfum sér. Hann tók
upp á ýmsu, söng og lék ýmsar kúnst-
ir með, sýndi okkur töfrabrögð, sagði
okkur fyndnar skröksögur svo við
veltumst um af hlátri. Já, hjá afa
leiddist okkur ekki, hann var næmur á
ef okkur leið illa, þá var gott að sitja í
hlýja fanginu hans. Þótt afi hafi verið
heilsulítill í mörg ár, vildi hann alltaf
hafa okkur í kringum sig og þá helst
öll. Oft var mikill gauragangur svo
öðmm varð um og ó, en aldrei afa.
Nokkur af okkur bamabömunum
urðu þeirrar ánægju aðnjótandi að
fara í ferðalag með afa og ömmu
norður á Akureyri á æskuslóðir hans
s.l. sumar. Þar naut hann sín og gat
sagt okkur af sjálfum sér ungum og
öðm markverðu. Með þessum orðum
viljum við kveðja elsku hjartans afa
okkar, og munum ávallt búa að því að
hafa átt hann, og við eldri munum
miðla kynnum okkar af honum til
þeirra yngri og ófæddu.
Elsku amma, þið sem vomð sam-
an öllum stundum,. Guð styrki þig á
þessum erfiða tíma, sömuleiðis okkur
og foreldra okkar. Þótt afi hafi verið
tekinn svo fljótt frá okkur, getur eng-
inn tekið minningamar, þær eigum
við og geymum í okkur.
Elsku afi, takk fyrir allt.
Barnabörnin
SÓKNARFÉLAGAR,
SÓKNARFÉLAGAR!
Almennur félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 5. nóv-
ember n.k. kl. 17:00 í Sóknarsalnum, Skipholti 50a.
Fundarefni:
1. Kjaramál
2. Félagsmál
3. Önnur mál
Félagar! Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Starfsmannafélagsins Sóknar
tr
Sjónvarp
14.45 Enska knattspyrnan
Bein útsending frá leik Nor-
wich City og Nottingham
Forest á Carrow Road i
Norvich.
17.00 Iþróttaþátturinn Fjallað
verður um íþróttamenn og
íþróttaviöburði hér heima
og erlendis.
18.00 Múmínálfarnir Finnskur
teiknimyndaflokkur.
18.25 Kasper og vinir hans .
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Poppkorn.
19.25 Úr ríki náttúmnnar.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Lottó
20.40 Manstu gamla daga?
Fjórði þáttur: Trúbadúrar
Gestir þessa þáttar eru þau
Bubbi Morthens, Bergþóra
Árnadóttir, Hörður Torfason
og Bjartmar Guðlaugsson.
Þau taka lagið og ræða um
09.00 Með afa.
10.30 Á skotskónum.
10.55 Af hverju er himinninn
blár?
11.00 Lási lögga.
11.25 Á ferð með New Kids
on the Block.
11.50 Barnadraumar.
12.00 Á framandi slóðum .
12.50 Sumarsaga.
14.25 Liberace.
16.00 James Dean James
Dean er liklega einn ást-
sælasti leikari allra tíma, en
I þessum þætti er rætt við
fjölskyldu hans og sam-
starfsfólk.
17.00 Falcon Crest
18.00 Popp og kók.
18.30 Gillette-sportpakkinn .
19.19 19.19 Fréttir.
20.00 Morðgáta.
líf farandsöngvarans. Um-
sjónarmenn eru Jónatan
Garðarsson og Helgi Pét-
ursson sem jafnframt er
kynnir. Hljómsveitarstjóri er
Jón Ólafsson. Dagskrár-
gerð Tage Ammendrup.
21.25 Fyrirmyndarfaðir
21.50 Vogun vinnur Kanadísk
sjónvarpsmynd frá 1990. I
myndinni segir frá sam-
skiptum tveggja bræðra í
sumarbúðum á kreppuár-
unum. Leikstjóri Kevin Sulli-
van.
23.35 Járngeirinn Bandarísk
bíómynd frá 1989. Myndin
gerist í Víetnamstríðinu og
segir frá sérkennilegu sam-
bandi bandarísks her-
manns og Víetnama sem
tekur hann til fanga.
01.05 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok
20.50 Á norðurslóðum .
21.40 Af brotastaö Nýr saka-
málaflokkur frá höfundi
Hunter, Stephen J. Canneil.
22.30 Helber lygi Ástarsam-
band saksóknara og dóm-
ara. Bönnuö börnum.
00.05 Stórborgin Fjárhættu-
spilari frá smábæ flytur til
Chicago á sjötta áratugn-
um. Hann heldur að heppn-
in sé með sér og hann geti
att kappi við stóru kallana.
Stranglega bönnuö börn-
um.
01.50 Bandóði bíllinn Aðal-
hlutverk: James Brolin, Kat-
hleen Lloyd og John Marl-
ey. Leikstjóri Elliot Silver-
stein. (1977) Bönnuð börn-
um.
03.25 Dagskrárlok.
Rás 1
FM 92.4/93.5
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra
Sighvatur Karlsson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 Músík að morgni dags
Umsjón Svanhildur Jakobs-
dóttir.
8.00 Fréttir.
8.15 Veöurfregnir.
8.20 Söngvaþing Þorvaldur
Halldórsson, Lögreglukór
Reykjavíkur, Guðmundur
Benediktsson, Elsa Sigfúss,
Stefán (slandi, Einar Krist-
jánsson, Pálmi Gunnarsson,
Magnús Þór Sigmundsson,
Söngfélag Skaftfellinga í
Reykjavik, Sif Ragnhildar-
dóttir o.fl. leika og syngja.
9.00 Fréttir.
9.03 Frost og funi Vetrarþáttur
barna. Umsjón Elísabet
Brekkan. (Einnig útvarpaö
kl. 19.32 á sunnudags-
kvöldi).
10.00 Fréttir,
10.03 Umferðarpunktar.
10.10 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Þingmál Umsjón Arnar
Páll Hauksson.
10.40 Fágæti Þriðji þáttur úr
„Linz" sinfóníunni eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart. Col-
umbiasinfóníuhljómsveitin
leikur; Bruno Walter stjórnar.
(Þátturinn er leikinn tvisvar, í
fyrra skiptið er upptakan frá
æfingu en í það siðara er
þátturinn fullmótaður).
11.00 I vikulokin Umsjón Páll
Heiðar Jónsson.
12.00 Útvarpsdagbókin og
dagskrá laugardagsins.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veöurfregnir. Auglýsing-
ar.
13.00 Yfir Esjuna Menningar-
sveipur á laugardegi. Um-
sjón: Jón Karl Helgason,
Stöð 2
Viðar Eggertsson leikari les söguna „Svarti
kötturinn" eftir Edgar Allan Poe í þýðingu
Þórbergs Þórðarsonar kl. 22.30 i kvöld.
Jórunn Sigurðardóttir og
Ævar Kjartansson.
15.00 Tónmenntir - Mozart,
sögur og sannleikur Seinni
þáttur um goösögnina um
manninn. Umsjón Tryggvi M.
Baldvinsson. (Einnig útvarp-
að þriðjudag nkl. 20.00).
16.00 Fréttir.
16.05 (slenskt mál Umsjón
Guðrún Kvaran. (Einnig út-
varpað mánudag kl. 19.50).
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Útvarpsleikhús barn-
anna: „Þegar fellibylurinn
skall á", framhaldsleikrit eftir
Ivan Southall (4) Þýðandi og
leikstjóri Stefán Baldursson.
Leikendur: Þórður Þórðar-
son, Anna Guðmundsdóttir,
Randver Þorláksson, Þór-
unn Sigurðardóttir, Þórhallur
Sigurðsson, Sigurður Skúla-
son, Sólveig Hauksdóttir og
Helga Jónsdóttir. (Áður á
dagskrá 1974).
17.00 Leslampinn Umsjón
Friðrik Rafnsson.
18.00 Stélfjaðrir Ethel Mer-
man, Sam Cooke, Lena
Horne, The Swingle Sin-
gers, Edward Simoni, Thom-
as Clausen o.fl. leika og
syngja.
18.35 Dánarfregnir. Auglýsing-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Auglýsing-
ar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Djassþáttur Umsjón Jón
Múli Árnason. (Endurt.).
20.10 Laufskálinn Afþreying í
tali og tónum. Umsjón Sig-
rún Björnsdóttir. (Endurt.l.
21.00 Saumastofugleöi Um-
sjón og dansstjórn Hermann
Ragnar Stefánson.
22.00 Fréttir. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Dagskrá morgundags-
ins.
22.30 „Svarti kötturinn", smá-
saga eftir Edgar Allan Poe
Viðar Egg-
ertsson les
þ ý ð i n g u
Þórbergs
Þórðarson-
ar. (Áður
útvarpað
1988).
23.00 Laugar-
dagsflétta
Svanhildur
Jakobsdótt-
ir fær gest í
létt spjall
með Ijúfum
tónum, að
þessu sinni
Ingibjörgu
Marteins-
d ó 11 u r,
söngkonu.
24.00 Fréttir.
00.10 Sveiflur
Létt lög I
dagskrár-
lok.
01.00 Veður-
fregnir.
01.10 Næturútvarp á báðum
rásum til morguns.
Rás 2
FM 90.1
8.05 Sönaur villiandarinnar
Þórður Árnason leikur dæg-
urlög frá fyrri tfð (End-
urtekiö).
9.03 Vinsældalisti götunnar
Maðurinn á götunni kynnir
uppáhaldslagið sitt.
10.00 Helgarútgáfan Helgarút-
varp Rásar 2 fyrir þá sem
vilja vita og vera með. Um-
sjón Lísa Páls og Kristián
Þorvaldsson. - 10.45 Viku-
pistill Jóns Stefánssonar. -
11.45 Hlustendalínan - sími
91- 686090. Upplýsingara
umbíla og hvaðeina sem lít-
ur að heimilinu.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Helg.-rútgáfan - heldur
áfram.
16.05 Rokktíðindi Skúli Helga-
son segir nýjustu fréttir af er-
lendum rokkurum. (Einnig
útvarpað sunnudagskvöld kl.
21.00).
17.00 Meö grátt f vöngum
Gestur Einar Jónassosn sér
um þáttinn. (Einnig útvarpað
í næturútvarpi aöfaranótt
miðvikudags kl. 01.00).
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Mauraþúfan Lísa Páls
segir íslenskar rokkfréttir.
(Endurt.).
20.30 Lög úr ýmsum áttum -
Kvöldtónar.
21.00 Tónlist úr kvikmyndum -
Kvöldtónar
22.07 Stungiö af Umsjón Mar-
grét Hugrún Gústafsdóttir.
02.00 Næturútvarp á báðum
rásum til morguns.
Síða 11
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. nóvember 1991