Þjóðviljinn - 06.11.1991, Qupperneq 5
Fkéttir
Neyðar-
ráðstafanir
Þorsteins
orsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra segir að
draga þurfl úr lánsfjár-
þörf ríkisins til að lækka
vexti og skuldbreyta lánum sjáv-
arútvegsfyrirtækja hjá Atvinnu-
tryggingasjóði til að aðstoða fyr-
irtækin vegna yflrvofandi afla-
samdráttar. Hann telur Ijóst að
fiskvinnslufyrirtækjum muni
fækka þótt það sé ekki markmið
í sjálfu sér að þau fari á hausinn.
Þessar ráðstafanir hefur Þor-
steinn kallað neyðarráðstafanir og
kemur umræðan upp í kjölfar yfir-
lýsingar Sverris Hermannssonar,
bankastjóra Landsbankans, um að
bankinn komi ekki til með að geta
lánað fyrirtækjunum annað en af-
urðalán vegna slæmrar stöðu bank-
ans.
„Atvinnugreinin sjálf hefur
gert kröfur um það að greiðslum í
Verðjöfnunarsjóð verði hætt. Við
höfum núna skipað nefhd til þess
að fara yfir stöðu og hlutverk
sjóðsins og hún á að skila áliti fyrir
15. desember," sagði Þorsteinn.
Þetta eru þau þijú atriði sem til
umfjöllunar eru en Þorsteinn sagði
að þótt fjármálaráðherra hefði
gengið vel að draga úr lánsfjár-
þörfinni þyrfti sennilega að gera
enn betur.
Hann sagði að sjálfgefið væri
að almennar aðgerðir myndu ekki
hjálpa öllum fyrirtækjum. Fyrir-
tækin eiga við aflasamdrátt að
glíma ofan á uppsafnaðan vanda.
„Að hluta til verða fyrirtækin sjálf
að takast á við þennan vanda. Það
liggur í augum uppi að allur vand-
inn verður ekki leystur með al-
mennum aðgerðum,“ sagði Þor-
steinn en hann hafnar algerlega
sértækum aðgerðum til hjálpar fyr-
irtækjum. Hann telur slíkar leiðir
aðeins skjóta vandanum á frest.
Hann sagði að undanfarið hefði
átt sér stað hagræðing í útgerðinni
og að ljóst væri að það sama þyrfti
einnig að gerast í fiskvinnslunni,
þótt það væri ekki stefha í sjálfú
sér að láta fyrirtæki fara á hausinn.
Hagræðingin þyrfti að koma frá
fyrirtækjunum sjálfum. -gpm
Máli belgíska
skipsins lokið
með dómssátt
Ríkissaksóknari heimilaði
í gær að máli belgíska
togarans Henri Jeanine,
sem staðinn var að
meintum ólöglegum veiðum á
Síðugrunni á laugardagskvöld,
yrði lokið með dómssátt um
250.000 króna sekt og upptöku
afla og veiðarfæra.
Henri Jeanine er 280 tonna
skip, smíðað 1961, með sjö manna
áhöfh. Skipið var með of smáriðna
möskva, 145 millimetra á svæði
þar sem ber að hafa 155 millimetra
möskva.
Þijú gömul belgísk fiskiskip
hafa heimild til takmarkaðra veiða
á Islandsmiðum samkvæmt samn-
ingi sem gerður var eftir 200 sjó-
mílna útfærsluna 1975. Samið var
um að um tugur belgískra skipa
mætti veiða hér á meðan þau væru
gerð út en nú eru þrjú þeirra eftir.
Varðskipið Oðinn gaf skip-
stjóra Henri Jeanine fyrirmæli um
að sigla til Vestmannaeyjahafnar
og þar var skipið enn í gær.
Að sögn Jóns Magnússonar,
lögfræðings Landhelgisgæslunnar,
hefur komið í ljós að skipstjórinn
gaf upp helmingi minna aflamagn
en raun var á. Belgísku skipin
verða að tilkynna daglega afla og
hafði skiptjórinn gefið upp 2 tonna
veiði af blönduðum afla dag hvem
síðustu þijá sólarhringa áður en
hann var tekinn en í ljós kom að
aflinn var rúm 11 tonn.
-vd.
Hreindýraveiðar
á undanþágu
ar sem illa gekk að veiða
tilskilinn fjölda hreindýra
í sumar hefur umhverfis-
ráðuneytið gripið til þess
ráðs að heimila vetrarveiðar.
Hreindýraveiði á þessum árs-
tíma er undantekning sem ekki á
að þurfa að grípa til þegar stofn-
inn er kominn í æskilega stærð.
Af 1097 hreindýmm sem
heimilað var að veiða í sumar
veiddust aðeins 729. Þar sem mik-
ilvægt er talið að fækka hreinkúm
til að halda aftur af viðkomu í
stofninum hefur verið ákveðið að
leyfa veiði á 166 kúm í 17 sveitar-
félögum sem ekki náðu að veiða
allar þær kýr sem heimildin náði til
í sumar. Flest leyfin til vetrarveið-
anna fá Breiðdalshreppur með 44
dýr og Mýrahreppur með 30 dýr.
1 reglum sem umhverfisráðu-
neytið hefur sent frá sér segir að í
venjulegu árferði séu kýmar í góðu
Iíkamlegu ástandi á þessum árs-
tíma. Hið sama verði ekki sagt um
tarfana sem horast mjög á fengi-
tíma sem nú sé liðinn.
I reglugerðinni er fjöldi hrein-
kálfa sem má veiða ekki tiltekinn,
en hins vegar er gert ráð fyrir því
að þeir kálfar sem snúi aftur til
felldra dýra, verði veiddir, þar sem
ekki sé ljóst hveijar lífslíkur þeirra
eru án mæðra sinna.
-sþ
Grandi hf skilaöi 80 milljón króna hagnaöi fyrstu sex mánuði ársins og Útgerðarfélag Akureyringa 100 milljón króna
hagnaði fyrstu 9 mánuði ársins. Flestir aðrir I fiskvinnslu kvarta undan erfiðum rekstrarskilyrðum. - Mynd: Jim Smart.
Tugmilljóna hagnaður
hjá Granda og UA
^ ttatíu milljón króna hagnaður var á rekstri Granda hf í
A Reykjavík fyrstu sex mánuði ársins. Tugmilljón króna hagn-
f—V aður er einnig á rekstri Útgerðarfélags Akureyringa, en á
•X X.flestum öðrum stöðum er kvartað yfir slæmri rekstrarstöðu í
fiskvinnslunni og segja menn fjármagnskostnaðinn þeim æ þyngri í
skauti.
Jón Rúnar Kristjánsson Qár-
málastjóri Granda segir allt útlit
fyrir minni hagnað síðari hluta árs-
ins og segir ástæðuna kvótaskerð-
ingu, lækkandi afurðaverð á er-
lendum mörkuðum og gríðarlega
háan fjármagnskostnað. Hagnaður
fyrstu sex mánaðana var 8% af
veltu. „En nú er bióminn búin. Erf-
iðasti tíminn af árinu er eftir og
reynslan sýnir okkur að yfirleitt er
seinni parturinn frekar slakur,“
sagði hann. Gunnar Ragnarsson
framkvæmdastjóri Útgerðarfélags
Akureyringa segir von á niðurstöð-
um úr 9 mánaða uppgjöri innan
skamms og vildi ekki gefa upp
hagnaðartölur úr því, en í fréttum
Sjónvarps á mánudagskvöld yar
greint frá því að hagnaður ÚA
fyrstu 9 mánuði ársins hefði verið
100 milljónir. Hagnaður ÚA fyrstu
sex mánuðina var 50 milljónir
samkvæmt uppgjöri. Gunnar segir
að skoða verði hagnaðartölumar
með tilliti til þess að fyrirtækið á
allmikið eigið fé og jók hlutafé sitt
um 300 milljónir í fyrra. „Það er
enginn vaxtakostnaður af þeim
peningum inni í þessum tölum,"
segir hann. Aðspurður um hvort
menn treystu sér í ljósi þessa ekki
til að auka kaupmátt launafólks
svaraði hann því til að hagræðing
innan fyrirtækisins, sem m.a. felst í
nýrri flæðilínu, hafi þegar skilað
fólki kjarabótum undanfama mán-
uði, t.d. í bónusgreiðslum.
Finnbogi Jónsson fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar á
Neskaupstað segir hagnað þar af
bolfiskvinnslu og bolfiskútgerð, en
tap á loðnunni sem geri meira en
að vega upp hagnaðinn af bolfiskn-
um. „Fjármagnskostnaðurinn er
mjög hár, vextir hafa hækkað mjög
rnikið," segir hann og bætti við að
þungt hljóð væri í flestum fisk-
verkendum á svæðinu yfirleitt.
„Þetta fer nokkuð eflir því hvort
menn em í blönduðum rekstri eða
ekki,“ sagði hann. „Við gemm
okkur vonir um að það verði leyft
að veiða töluvert af loðnu á þessari
vertíð. Þessi bráðabirgðakvóti er
ekkert magn fyrir heila vertíð.“
Hann sagði fá loðnuskip komin á
miðin, en líklega myndi þeim
fjölga vemlega seinna í vikunni.
Jón Páll Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Norðurtangans á ísa-
firði kveðst ekki vilja ræða rekstr-
arstöðu fyrirtækisins opinberlega
og sagði það eitt að enginn hagn-
aður hefði verið á rekstrinum
fyrstu sex mánuði ársins. j
Félagsvísindastofnun
mótmælir yfirlýsingum
Þórarins V* Þórarinssonar
Þórarinn V. Þórarinsson fór með rangt mál í yfírlýsingum sín-
um um könnun Félagsvísindastofnunar á viðhorfum til kom-
andi kjarasamninga, segir í athugasemd sem stofnunin hefur
sent frá sér. Þar segir einnig að allar líkur séu á því að at-
vinnurekendurnir í könnuninni séu dæmigerðir fulltrúar heildar-
hóps atvinnurekenda í þjóðfélaginu.
I könnun _ Félagsvísindastofn- svarendahópinn í sama hlutfalli og
unar Háskóla íslands kom fram að
um það bil helmingur atvinnurek-
enda telji þjóðarbúið þola samn-
inga sem feli í sér einhverjar
hækkanir á kaupmætti launataxta.
Framkvæmdastjóri Vinnuveitcnda-
sambandsins hefur kallað könnun-
ina grin og dregið í efa að í úrtak-
inu séu fulltrúar atvinnurekenda
sem hafi aðra í vinnu.
Stefán Olafsson, forstöðumað-
ur Félagsvísindastofnunar, segir að
í skýrslu stofnunarinnar um niður-
stöður könnunarinnar komi skýrt
fram að svör hafi fengist frá 178
manns sem flokkaðir eru sem
„sjálfstætt starfandi" og að í þeim
hópi séu annars vegar atvinnurek-
endur scm hafi starfsmenn í vinnu
og hins vegar einyrkjar. Hann segir
að atvinnurekendur komi inn í
þeir eru meðal þjóðarinnar og því
fari Þórarinn með rangt mál.
Stefán segir einnig ánægjuefhi
að niðurstöður könnunar Félags-
vísindastofnunar séu í eðlilegu
samræmi við niðurstöður könnunar
sem Gallup vann fyrir VSÍ en þar
kom fram að minnihluti svarenda
styðji beint gerð kjarasamninga
með litlum eða engum kauphækk-
unum þótt viðfangsefnið sé nálgast
á annan hátt en í könnun Félags-
vísindastofnunar. _ag
Serbar fordæmdir
Vegna átakanna í Júgóslav-
íu fordæma íslensk stjórn-
völd harðlega hernaðarað-
gerðir Serba á hendur Króatíu
og skora á hlutaðeigandi aðila að
stöðva nú þegar beitingu vopna-
valds og forðast frekari blóðsút-
hellingar, segir í fréttatilkynn-
ingu frá utanríkisráðuneytinu.
Lýst er að breytingar á landa-
mærum með vopnavaldi sé í and-
stöðu við skuldbindingar aðildarr-
ríkja ráðstefnunnar um öryggi og
samvinnu í Evrópu. Lýst er yfir
stuðningi við friðarumleitanir Evr-
ópubandalagsins og ffiðaráætlun
þess talin grundvöllur fyrir ffið-
samlegri lausn á deilunni. „Lýð-
veldin Slóvenía og Króatía hafa
með lýðræðislegum hætti lýst yfir
sjálfstæði. Verði hemaðaraðgerðir
ekki stöðvaðar er óhjákvæmilegt
að hið alþjóðlega samfélag gripi til
frekari aðgerða í því skyni að
stuðla að lausn átakanna,“ segir í
tilkynningu ráðuneytisins. -gpm
Síða 5
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 6. nóvember 1991