Þjóðviljinn - 06.11.1991, Page 6
HM'timburmenn í kjölfar
sigurvímu og heitstrenginga
A Amar Guðmundsson skrifar
Eftir að fulltrúar bæjarstjómar Kópavogs
og ríkisins undirrituðu samkomulag um að
hætta við byggingu íþrótta- og menningar-
miðstöðvar í Kópavogsdal er spurt hvort
nokkurt hús, sem hýst geti heimsmeistara-
mótið i handbolta 1995, verði tilbúið í tæka
tíð og hver beri ábyrgð á því að það verði
reist. Málinu er fjarri því lokið. Handknatt-
leikssamband Islands sótti það fast að fá
keppnina. Ríkisstjómir Steingríms Her-
mannssonar (1983-1987) og Þorsteins Páls-
sonar (1987-1988) hétu HSÍ fullum stuðn-
ingi við umsóknina og jafnframt að viðeig-
andi hús yrði tilbúið í tæka tíð. Með samn-
ingi við ríkið 1989 tók Kópavogsbær að sér
að vera framkvæmdaaðili að byggingu húss-
ins, ásamt Breiðabliki. Nú renna ýmsir hým
augu til þessara framkvæmda og þeirra
hundmða milljóna sem ríkið hefur heitið.
Enn flciri aðilar á sviði íþrótta, fcrðamála og
menningar þrýsta á að fjölnola íþrótta-, ráð-
stefnu- og menningarmiðstöð vcrði reist.
Island var í A-flokki í handbolta á árun-
um 1984-1988 og íslenska landsliðið virtist
verandi menntamálaráðherra, Birgir ísleifur
Gunnarsson, málið upp aftur. A fundi ríkis-
stjómarinnar 19. apríl 1988 var samþykkt
yfirlýsing þar sem því er lýst yfir að áætlanir
séu um byggingu nýrrar íþrótta-, sýningar-
og ráðstefnuhallar í
Reykjavík. Þessi yf-
irlýsing var meðal
annars send til Al-
þjóða handknatt-
leikssambandsins.
Eftir að ríkis-
stjórn Þorsteins
Pálssonar sprakk á
haustdögum 1988
hóf ný ríkisstjóm að
leita leiða til að
standa, við gefin lof-
orð. Reykjavíkurborg hafði þá alveg misst
áhugann á málinu. Þrátt fyrir
það sýndu ýmsir aðilar áhuga,
einkum sveitarfélög á Suð- vest-
urhominu. Haukar í Hafnarfirði
fóm til viðræðna við nefnd rík-
isins og Akranes sýndi áhuga.
Þó varð að lokum úr að gengið
var til samninga við Kópavogs-
bæ. Þegar árið 1986 hafði bæj-
arstjóm Kópavogs farið að huga
að framkvæmdum við íþrótta-
mannvirki í Kópavogsdal. Árið
1989 var tckin um það ákvörðun
í bæjarstjóm Kópavogs að út-
hluta íþróttafélögunum í bænum
svæðum undir starfsemi sína.
íþróttafélag Kópavogs fékk land
í Fossvogsdal og Breiðablik í
Kópavogsdal. Jafnframt var gcrður samning-
ur um að bærinn skyldi greiða 80 próscnt af
stofnkostnaði cn félögin 20%. Breiðablik
hóf strax undirbúning að byggingu íþrótta-
húss og félagsaðstöðu á svæði sínu. En þcg-
ar viðræður fóru af stað um byggingu fjöl-
nota íþrótta-, sýninga- og ráðslefnuhúss með
Með samningi Kópavogsbæjar og/íkis-
ins um áramótin 1989-1990 átti að -tryggja
að Ioks risi langþráð hús, sem hýst gæti
heimsmeistarmótið, vömsýningar, ráðstefn-
ur, tónleika, íþróttaiðkun almennings, keppni
og æfingar, auk
grunnskóla fyrir
Kópavog, aðstöðu
fyrir æskulýðsstarf
og félagsheimili
Breiðabliks. Um
þetta var breið
samstaða innan
íþróttahreyfingar-
innar og aðila í
ferðamálum og út-
flutningi.
Bæjarstjórnar-
kosningar í Kópavogi vorið 1990 marka
þáttaskil í málinu. Sjálfstæðismenn leggjast
eindregið gegn samningnum við ríkið og
hart er tekist á um íþróttahöllina. Skyndilega
er húsið orðið bitbein í flokkspólitískum
átökum. Eftir að vinstrimeirihlutinn í Kópa-
vogi féll og við tók meirihluti Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks er boðað að
fram eigi að fara endurskoðun á samningn-
um við ríkið og ekki verði ráðist í
framkvæmdir ef ríkið láti ekki
meira fé af hendi rakna. Bæði
talsmenn Breiðabliks og hins
nýja minnihluta kvarta yftr því að
eíckcrt hafi verið rætt við þá um
málið. Olafur Ragnar Grímsson,
fyrrverandi fjármálaráðherra,
upplýsti í umræðum utandagskrár
á Álþingi í fyrradag, að á því ári
scm leið frá bæjarstjómarskiptum
i Kópavogi og þar til ný ríkis-
stjóm tók við að loknum alþingiskosningum,
hafi meirihlutinn í bæjarstjóminni aldrei rætt
við hann um aukið framlag frá ríkinu.
Hægrimeirihlutinn í Kópavogi lét heldur
aldrei fara fram útboð í verkið.
margir sem renna til hans hýru auga. Guð-
mundur Ámi Stefánsson, bæjarstjóri í Hafn-
arfirði, hefur lýst því yfir að Hafnfirðingar
séu tilbúnir til viðræðna við ríkið um bygg-
ingu hússins þar. í Hafnarfirði liggur fyrir að
byggja þarf upp íþróttasvæði Hauka svo um
væri að ræða svipað fyrirkomulag og hafa
átti í Kópavogi. Breiðabliksmenn eru ákaf-
lega óhressir með riftun Kópavogs á samn-
ingnum og segjast tilbúnir að standa við sinn
hluta hans. Þar sem ríkið er einnig tilbúið að
standa við sinn hluta vaknar sú spuming
hvort aðrir aðilar en sveitarstjómir komi til
sögunnar þegar Kópavogsbær virðist úr leik.
Valþór Hlöðversson hefúr varpað fram þeirri
hugmynd að stofna hlutafélag um byggingu
og rekstur hússins og segir lauslegar viðræð-
ur sínar við aðila í ferðabjónustu, íþróttum
og á fleiri sviðum benda til þess að mikill
áhugi sé á málinu.
Á fúndi Breiðabliks og bæjarstjómar
Kópavogs í gær var ákveðið að stofna nefhd
þessara aðila til að fara yfir alla þætti máls-
ins. Fyrir bæjarstjóm liggur einníg beiðni ffá
Breiðabliki um leyfi til að efna til alútboðs
svo hægt sé að fá raunverulegan kostnað við
framkvæmdir upp á borðið. Breiðablik er
stærsta íþróttafélagið í Reykjaneskjördæmi
og eitt það stærsta á landinu, með 1600 fé-
laga. Þrátt fyrir stærðina verður þó að teljast
ólíklegt að Blikar ráði við að byggja húsið í
félagi við ríkið án þess að fleiri komi inn í.
Þann 9. júní 1987 sendu Sverrir
Hermannsson, menntamálaráð-
herra, og Matthías A. Mathiesen,
utanríkisráðherra, út sameiginlegt
bréf til allra þeirra erlendra aðila
sem málið varðar. Þar segir að um-
sókn HSI um keppnina njóti fulls
stuðnings ríkisstjórnarinnar
Eftir heitstrengingarnar í sigur-
vímunni 1987 virðast pólitískir
timburmenn herja á marga
Birgir Isleifur Gunnarsson
Sverrir Hermannsson
Þorsteinn Pálsson
Matthías Á. Mathiesen
Siguröur Geirdal
á samfelldri sigurbraut. Sjötta sætið á Ol-
ympíuleikunum í Los Angeles 1984 tryggði
Islendingum þátttökurétt í hcimsmcistara-
mótinu í Sviss árið 1986. Þar staðfcsli lands-
liðið að Island var A-þjóð í handbolta mcð
því að lenda aftur í sjötta sæti. Framtíöin
brosti við, HSÍ sótti um að halda hcims-
meistarakeppnina 1994 hér á landi og ríkis-
stjóm landsins strengdi sín heit í sigurvímu.
Stuðningur ríkisstjómar íslands var af-
dráttarlaus. Þann 9. júní 1987 scndu Sverrir
Hermannsson, menntamálaráðherra, og
Matthías Á. Mathiesen, utanríkisráðherra, út
sameiginlegt bréf til allra þeirra erlendra að-
ila sem málið varðar. Þar segir að umsókn
HSl um keppnina njóti fulls stuðnings ríkis-
stjómarinnar. Eftir ríkisstjómarskipti tók þá-
þátttöku ríkisins vaknaði áhugi Brciðabliks.
Af sögn Valþórs Hlöðvcrssonar kom
bærinn inn í þetta dæmi af því fyrir lá að
rcisa þyrfti íþróttahús og félagsaðstöðu fyrir
Breiðablik í Kópavogsdal og lcikfimihús og
grunnskóla í nágrcnninu. Valþór sagði að
Kópavogur hafi aldrei boðist (il aö halda
einhvcrja keppni, hcldur hafi aðeins vcrið
gcrður samningur iint byggingu húss scm
allir aðilar hefðu hag af. Bæjarstjóm Kópa:
vogs gekk til samninga við Breiðablik. HSÍ
og ríkið unt byggingu skóla-, iþrólta og
menninganniðstöðvar í Kópavogsdal. Fyrir
lagu teikningar unt að hluta húsnæðisins yrði
breytt í grunnskóla að keppni lokinni, auk
þess sem Breiðablik fengi sína félagsað-
stöðu.
Þcgar Kópavogsbær leggur loks í við-
ræður við ríkið er tíminn orðinn mjög naum-
ur. Sigurður Geirdal bæjarstjóri hefur ítrekað
sagt að ef verkið verði ekki boðið út um ára-
niótin séu framkvæmdimar fallnar á tíma.
Hann hcfur einnig sagt að Kópavogsbær hafi
ckki getað lagt í (ramkvæmdir á meðan hlut-
ur ríkisins í fjánnögnun sé ekki fyrirliggj-
andi á fjárlögum. Ólafur G. Einarsson hefur
kallað þessa röksemd fyrirslátt og segir að
ríkið muni standa við sitt um leið og Kópa-
vogskaupstaður sýni cinhveijar trúverðugar
áætlanir um að þeir ætli að byggja húsið;
þær hafi cinfaldlega aldrei sést. Loks var
undirrilað samkomulag um að hætta við
byggingu hússins í Kópavogsdal.
Eftir riftun Kópavogs á samningnum eru
Hverjir það yrðu er þó ekki Ijóst enn, og því
er staðan nú þannig að ríkið er tilbúið,
Breiðablik er tilbúið, HSÍ er tilbúið og útlit
er fyrir að ýmsir aðilar séu tilbúnir að grípa
tækifærið ef Kópavogur springur á Iimminu.
Eftir heitstrengingamar í sigurvímunni
1987 virðast pólitiskir timburmenn hetja á
marga. Ef ekkert verður úr framkvæmdum
og Islendingar tapa heimsmeistaramótinu úr
landi geta frömuðir í íþrótta- og ferðamálum
dundað sér við að finna sökudólginn: HSÍ
sótti um keppnina, ríkisstjómir áranna 1987-
1988 lofúðu stuðningi og húsi og Kópavogs-
bær, sem samkvæmt samningi átti að vera
framkvæmdaaðili, gengur úr skaftinu á síð-
ustu stundu.
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 6. nóvember 1991
Síða 6