Þjóðviljinn - 06.11.1991, Qupperneq 12
ASI og BSRB leggja
áherslu á sérkjaramálin
r g sé ekki neinar forsendur fyrir samfloti fyrr en menn eru bún-
| / ir að sjá með hvaða haetti sérmálin leysast, sagði Ásmundur
rH Stefánsson formaður ASÍ vegna hugmynda atvinnurekenda og
J—^ríkisins um sameiginlegar viðræður milli aðila vinnumarkað-
arins annars vegar og ríkisins hins vegar. Undir þetta tekur Ög-
mundur Jónasson sem sagði að ekki yrði hjá því komist að fjalla um
réttindamálin í þessum samningaviðræðum. Órn Friðriksson, vara-
forseti ASI og formaður Málm- og skipasmiða, sagði að sérkjaravið-
ræðurnar gengju illa og brátt kæmi að þeim tímapunkti að sjóða
færi upp úr.
Forystumenn VSI og samn-
inganefnd ríkisins hafa gefið í
skyn undanfarið, að ekki sé hægt
að semja fyrr en allir aðilar vinnu-
markaðarins taki þátt í viðræðun-
um. Vitnað hefur verið í árangur
þjóðarsáttarinnar svokölluðu og
segja viðsemjendur verkalýðsfé-
Iaganna að enginn grundvöllur sé
til að uppfylla óskir einstakra fé-
laga um sérmál sín. Forystumenn
stóru samtakanna tveggja ASI og
BSRB segja að af samfloti geti
ekki orðið fyrr en búið sé að semja
um sérmálin. Samningsviðræðum-
ar virðast því komnar í hnút, ef
ekki finnst lausn á sérmálum
verkalýðsfélaganna.
Öm Friðriksson sagði að þegar
menn væru ekki tilbúnir að ræða
þau mál sem væm á borðin, í þessu
tilfelli sérkjaramál félaganna,
þýddi lítið að sitja á fundum. „Lít-
um t.d. á verkfallsboðun sjómann-
anna og starfsfólksins í mjólkur-
iðnaðinum fyrir norðan. Þetta sýnir
að fólk er strax farið að láta reyna
á sérmálin sín. Einnig sýnir þetta
að sérmálin verður að leysa áður
en menn geta gert sér vonir um
heildarsamning sem kemur á stöð-
ugleika í efnahagslífinu.“
Ásmundur sagði, að í hinni
þröngu stöðu sem væri í dag, yrði
hætta á að sameiginlegar viðræður
settu sérviðræðumar í strand.
„Það verður einfaldlega að ná
niðurstöðum í sérmálunum fyrst,“
sagði Ásmundur.
Flann sagði að hugmyndir at-
vinnurekenda um samflot væri
skoðun út af fyrir sig sem viðræðu-
aðilamir yrðu að fást við. Hingað
til hefur VSI ekki neitað viðræðum
við félögin. Þeir hafa samt hingað
til, hvort sem þeir em að hugsa um
samflot eða ekki, neitað að gera
nokkum skapaðan hlut, sagði Ás-
mundur.
Um það hvort búast megi við
að einstök félög fari að afla sér
verkfallsheimildar, sagði Ásmund-
ur erfítt að fullyrða nokkuð um það
á þessu stigi málsins.
Ögmundur Jónasson sagði að
ekki yrði komist hjá því, að menn
taki höndum saman um réttinda-
málin. „Við leggjum áherslu á, að
aðildarfélög bandalagsins hafa
samningaréttinn og engin breyting
hefur orðið á ákvörðun þeirra um
að þau nýti hann sjálf. Nokkur fé-
lög hafa ekki einu sinni kynnt
kröfugerð sína fyrir viðsemjendun-
um. Og ég vil undirstrika, að það
em félögin sem ákveða hvemig
staðið er að kjarasmaningum af
okkar hálfu.“
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSI, sagði að verka-
lýðsfélögunum hafí verið gerð
grein fyrir því, að VSI væri ekki til
viðræðna um aukinn launakostnað.
„Það er óumdeilanleg stað-
reynd að þjóðartekjur á næsta ári
verða minni heldur en í ár. Við
þreytumst ekkert á því að segja
þeim að útflutningstekjumar verða
150 þúsund krónum minni á hveija
íjögurra manna fjölskyldu á næsta
ári. Þetta breytist ekkert þó verið
sé að tala um sérmál félaganna.“
„Það verður kjaraskerðing á
næsta ári. Hún getur orðið lítil ef
við stöndum sameiginlega að
verki, og hún getur orðið mikil ef
menn ætla að knýja á um launa-
hækkanir,“ sagði Þórarinn -sþ
Samkeppnisstaða
lagmetis versnar með
EES-samningum
1'^rauninni versnar samkeppnisstaða okkar með EES- samningun-
um, og við erum því heldur óánægðir með okkar hlut, segir
Garðar Sverrisson framkvæmdastjóri Sölusamtaka lagmetisiðn-
aðarins. Tollar á helstu lagmetisvörum íslendinga breytast ekki
árið 1993, en Norðmenn munu fá tollfrclsi fyrir kavíar til Efnahags-
bandalagsins og verða þar með keppinautar Islendinga á þeim
markaði.
Tollfrelsi á saltsíldarflökuin
kemur lagmetinu illa, því flökin
eru flutt út sem hráefni fyrir cr-
Davíð á
NATO-fund
I gær hélt Davíð Oddsson
forsætisráðherra áleiðis til Ítalíu
til að sitja Jeiðtogafund aðildar-
ríkja Atlantshafsbandalagsins
sem haldinn verður í Róm dag-
ana 7--8. nóvember.
1 for mcð forsætisráðherra er
eiginkona hans Ásfríður Thoraren-
sen, Hreinn Loflsson aðstoðar-
maður og Albert Jónsson frani-
kvæmdasfjóri Öryggismálanefnd-
ar. -grh
lcnda lagmctisframleiðendur. „Við
skildum þessa EES-samninga
þannig að fyrst og fremst væri vcr-
ið að færa fullvinnsluna heim, en
okkur finnst það markmið ekki
hafa náðst, a.m.k. ekki hvað þessar
vörur varðar. Við vcrðum áfram
hrácfnisframleiðendur," segir
Garðar Sverrisson.
Aðalframleiðsla lagmetisins
skiptist í þrennt: Síldarvörur, kav-
íar og rækju. Rækja og kavíar voru
tollfrjáls samkvæint bókun 6 og
vcrða það áfram. Hins vcgar voru
Norðmenn með 30% toll á kavíar
og komust ckki inn á Efnahags-
bandalagið. Frá 1. janúar 1993 fá
þeir tollfrclsi fyrir kavíar. „Og þar
meö fáum við nýja kcppinauta,"
segir Garðar.
Hvað varðar rækju verður lítil
breyting á í markaðsmálum og
engin varðandi niðursoðnar síldar-
vörur sem bera 10% toll. „Við
höfðum von um að þar yrði ein-
hver breyting, en hún varð engin,
ncma að því lcyti að samkeppnis-
staða okkar vcrsnar í rauninni.
Ástæðan fyrir því er sú að saltsíld-
arflök verða tollfrjáls og þau eru
hráefni fyrir okkar keppinauta og
þar með er þeim gert hægara með
að kcppa við okkur. Það cr í raun-
inni enga plúsa að sjá nema þá, að
tollur á þorsklifur lækkar úr 10% í
3% í þrepum frant til 1997. Auk
þess er hugsanlcgt að tollar lækki á
einhverjum lilbúnum réttum, en
þctta tvennt er mjög lítið brot á út-
fiutningnum. Við bundum okkar
vonir aðallcga við að tollur myndi
lækka á síldarafurðunum, en svo
varð ekki,“ segir Garðar.
Auk þcssa bcndir hann á að
þegar Svíar ganga í Efnahags-
bandalag Evrópu munu þeir að lík-
indum fá hráefni til lagmetisiðju
ódýrara héðan en til þcssa.
-vd.
Togarana burt úr „kálgörðunuma
Aðalfundur Landsambands smábátaeigenda, sem haldinn var
1. og 2. nóvember sl. samþykkti ályktun þar sem mótmælt er
öllum togveiðum innan 12 mílna marka, „enda eru togskip til
þess byggð að veiða á djúpmiðum, en ekki til að skarka uppi í „kál-
görðum“,“ eins og það er orðað í samþykkt landsambandsins.
Öryggismálanefnd fundarins
samþykkti ályktun þar sem stjórn-
völd eru harðlega átalin fyrir þá
veiðistjómun sem smábátar búa
við. „Hún leiðir til ofurkapps í
svartasta skammdeginu þegar
veðrabrigði eru sem mest,“ segir
þar. „Naumar veiðiheimildir neyða
menn til róðra á þessuin árstíma,
annars vegar vegna alltof lítils
aflamagns, en hins vegar eru allra
smæstu bátamir að afla sér við-
miðunar fyrir ytirvofandi kvóta-
sctningu.“ Lífeyrisrétlindi komu
einnig til umræðu í öryggisinála-
nefnd og er skorað á stjóm LS og
framkvæmdastjóra að herða róður-
inn fyrir þvi að félagið fái mann í
stjóm lifeyrissjóð sjómanna og að
ekki verði slakað á kröfu uin sömu
réttindi fyrir alla sjómenn í sjóðn-
um.
Fundurinn samþykkti einnig að
skora á sjávarútvegsráðherra að
lcyfa hrcfnuveiðar á næsta ári, þó
aðcins til neyslu innanlands, en sá
markaður cr talinn um 100 dýr. Þá
er bent á að rannsóknir hringorma-
nefndar sýni að útsel hafi Ijölgað
óeðlilcga mikið og er skorað á ráð-
herra að hann láti fækka útsel nið-
ur í sömu stofnstærð og var fyrir
offjölgun. Krókaveiðar voru cinnig
nijög til umræðu á fundinum og
var ítrckaður sá vilji landsam-
bandsins að krókakerfinu verði
viðhaldið, þó ljóst sé að til framtíð-
ar verði þaö ckki óbreytt. Aðal-
fundurinn fól stjórn að láta einskis
ófreistað að ná viðunandi sam-
komulagi við stjómvöld um króka-
veiðikerfið. -vd.
Fóstruskortur er oröinn viðvarandi vandamál á leikskólum um allt land
Viðvarandi fóstruskortur
Um 80 fóstrur vantar til
starfa á leikskólum
Reykjavíkurborgar, sé
miðað við að um helmingur
starfsmanna á hverri deild hafi
fóstrumenntun. Fóstruskortur á
öllu landinu hefur verið vanda-
mál til margra ára og engin sjá-
anleg breyting þar á nú að sögn
forstöðumanns Dagvistar barna,
Bergs Felixsonar. Víða á lands-
byggðinni er revnt að miða við
að a.m.k. ein fóstra sé á hverri
deild en það hefur ekki tekist
alls staðar.
Fóstrustöður eru mannaðar af
Sóknarfólki og gctur það sótt nám-
skeið hjá Námsflokkunum sem em
metin til launahækkana. Bergur
segir aðsóknina að námskeiðunum
góða og að sér virðist að heldur
minni hreyfing sé í þessum störf-
um en áður. Þó er alltaf nokkuð
um að starfsmenn stoppi stutt við
og skipti séu tíð. Bergur segir
fóstruskortinn að miklu leyti stafa
af því að ekki hafi nógu margar
fóstrur útskrifast úr námi til að
uppfylla þörfina. -vd.
Mennimir
taldir af
Ungu mennirnir tveir, sem
saknað er eftir bílslvsið á Ós-
hlíðarvegi á milli Hnífsdals og
Bolungarvíkur aðfaranótt laug-
ardags, eru nú taldir af. Leit
mun verða haldið áfram næstu
daga.
Mennimir hétu Bemódus Öm
Finnbogason 16 ára, til heimilis að
Holtabrún 21 í Bolungarvik, fædd-
ur 14. apríl 1975, og Ágúst Helgi
Markússon 19 ára, til heimilis að
Holtabrún 6 í Bolungarvík, fæddur
27. október 1972. -vd.