Þjóðviljinn - 16.11.1991, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 16.11.1991, Blaðsíða 3
Að gefnu tilefni Ahverjum tíma ríkja í samfélaginu ákveðin bannorð og málefni, tabú, sem ekki þykir við hæfi að ræða um opinberlega. Slík tabú eru mismunandi frá einum tima til annars, það sem er tabú í dag er ekki endilega tabú á morgun og svo framvegis. Eitt af þessum tabúum eru sjálfsvíg, en til skamms tíma var litið fjall- að opinskátt um þau, og oft neita menn að horfast í augu við veruleikann, þannig að að- standendur þeirra sem fremja sjálfsvíg loka sig inni með sorg sína og spurningar. TV"irkuþing, sem haldið var í síðasta mánuði, ISvfallaði nokkuð um sjálfsvíg unglinga.3 Tölur benda til þess að sjálfsvíg ungmenna hafi farið mjög vaxandi, og sé nú algengasta dánar- orsök unglinga á aldrinu 15-24 ára. Um fjórð- ungur allra þeirra sem sviptu sig lífi á áratugn- um 1981-1990 var í þessum aldursílokki, en áratuginn 1961- 1970 voru um 10% undir 25 ára aldri. Hér er um geysilega breytingu að ræða og ekki er óeðlilegt að margar spumingar vakni, þó erfitt geti reynst að finna svör. Kirkj- an telur það brýnt að ftam fari rannsókn á tíðni og orsökum sjálfsvíga og vill leggja sitt af mörkum til þeirrar vinnu. I tillögunni sem lögð var fyrir kirkjuþing segir: „Kirkjuþing 1991 ályktar að fela kirkjuráði að láta fara fram könnun á félagslegum ástæðum sjálfsvíga meðal ungmenna. Jafnframt beinir þingið þeim eindregnu tilmælum til Fjölskylduþjónustu kirkjunnar að veita aðstandendum og félögum þessara ungmenna ráðgjöf og stuðning eftir öllum tiltækum leiðum." Samskonar tillaga hefur komið ffarn á Al- þingi. Svo virðist sem sjálfsvíg séu nú að verða viðurkennt umræðuefiii og hætt að vera tabú með þeim hætti sem áður hefúr verið. ✓ Tríkissjónvarpinu síðastliðið fimmtudagskvöld ivar þáttur um sjálfsvíg unglinga. Þar voru fléttaðir inn minningartónleikar sem haldnir vom í Menntaskólanum við Sund í lok októ- ber, til minningar um tvo unglinga sem stund- uðu nám í skólanum og ákváðu að kveðja þennan heim. I Þjóðviljanum 31. október sl. sagði m.a. um þessa tónleika: ,,Fátt er það sem fólk stendur jafii ráðþrota gagnvart og sjálfsvíg unglinga. Að undanfomu hefúr mikið verið rætt og ritað um háa tíðni sjálfsvíga ungs fólks á Islandi síðastliðna mánuði. Ungir karlmenn em í miklum meirihluta þeirra sem svipta sig lífi...“. Það er einmitt eftirtektarvert hversu stór hluti þeirra sem ffernja sjálfsmorð em karl- menn. Á árunum 1951-1990 vom skráð 923 sjálfsmorð, þar af vom karlar 713, eða 77%. I sjónvarpsþætti Sigrúnar Stefánsdóttur var víða komið við. Rætt var við geðlækna, kenn- ara, unglinga og foreldri sem horft hafa á eftir sínum nánustu falla fyrir eigin hendi, og ýmsa fleiri. Mér þótti þessi þáttur athyglisverður fyr- ir margra hluta sakir og vissulega vakti hann fjölmargar spumingar sem engin svör fást þó við. Þórólfur Þórlindsson prófessor við félags- vísindadeild Háskóla Islands er meðal þeirra sem hvað mest hafa fengist við rannsóknir á sjálfsvígum. Það kom ffam í máli hans í þætt- inum að afar erfitt væri að finna þá einstak- linga sem væm í hvað mestri hættu að fyrirfara sér. Reyndar væri það ógemingur. Hægt væri að draga hringinn utan um ákveðna áhættu- hópa, en lengra kæmust menn ekki. Ennffemur hefur komið ffam að sjálfsvíg ungra karla hér á landi em nú mun algengari en í nágrannalönd- unum, að Finnlandi undanskildu, og að aðeins ein stúlka fremdi sjálfsvíg á móti hveijum átta piltum. Er nema von að menn vilji leita skýr- inga? Hvers vegna velur ungt fólk í blóma lífsins að kveðja þennan heim? Hveijir em í mestri hættu? Em til leiðir til forvama í þessu efni? Hvaða tilgang hefúr það að tala opinskátt um sjálfsvíg? Emm við ráðþrota og vamarlaus? Er kannski engin ástæða til að gefa sjálfsvígum gaum? Hjá viðmælendum Sigrúnar Stefánsdóttur í áðumefndum sjónvarpsþætti kom ffam að þunglyndi og aðrir geðrænir sjúkdómar væm einkennandi fyrir þá sem sviptu sig lífi. Stærsti áhættuhópurinn væri tvímælalaust fólk með geðveilur af einu eða öðm tagi. Þá vom einnig nefndir áfengissjúklingar og eiturlyfjasjúkling- ar. I viðtali Þjóðviljans við Guðfinnu Eydal sálffæðing, 20. september sl., um böm og sorg segir hún m.a.: „Það sem hefur langmestar af- leiðingar fyrir böm til lengri tima er dauði for- eldris, það hafa rannsóknir sýnt ffam á. Böm sem missa annað eða báða foreldra em í ákveðnum áhættuhóp síðar á lífsleiðinni. Rannsóknir sýna að þau em liklegri en aðrir til að verða þunglynd og/eða em í ákveðinni sjálfsmorðshættu á fullorðinsárum." Fyrir leik- mann eins og undirritaðan, em þetta allt senni- legir áhættuþættir. Sú spuming hlýtur engu að síður að skjóta upp kollinum: Hvers vegna ungt fólk? Ekki á aldurshópurinn 15-24 ára við meiri geðræn vandamál að stríða en aðrir hópar - eða hvað? Líkleg kenning í þessu efni var sett ffam í sjónvarpsþættinum. Þar var minnt á að unglingsárin væm trúléga eitt viðkvæmasta tímaskeið ævinnar. Unglingar gengju í gegnum mikil breytingaskeið. Líffræðilegar breytingar ættu sér stað, skyldunámi lyki og þá tekur við tími vangaveltna um framtíðina, ákvarðanir um menntun, lífsstarf og jafnvel stofnun fjöl- skyldu, ofl kemur þetta allt á sama tíma og því er eðlilegt að unglingar komist í mikið uppnám og eigi erfitt með að fóta sig á lífsins hálu braut. Og hvað með ytri aðstæður? Getur verið að bágt ástand almennt í samfélaginu, t.d. á sviði efnahags- og atvinnumála sé áhrifavaldur á tiðni sjálfsvíga? Hvaða möguleika á ungt fólk á landsbyggðinni í dag? Raunveruleik- inn sem við þessu fólki blasir er oft val milli tveggja kosta, annars vegar að ganga menntaveginn og geta þá ekki snúið til æskustöðvanna vegna þess að þar er litla vinnu að fá, hins vegar að setjast að í heimabyggðinni og fást við einhæf framleiðslustörf alla ævi. Spurt var hér að ofan hvort einhveijar leiðir væru til forvama í tengslum við sjálfsvíg. Áður en þeirri spumingu verður svarað svo viðunandi sé, verður að svara þvi hveijar or- sakimar til sjálfsvíga em. Og meðan svörin við þeirri spumingu og öðrum hér að ofan em svo torfengin er ef til vill ekki hægt að finna leiðir til forvama. Það breytir hins vegar ekki því, að gefandi sé að ræða um forvamir, og þar koma fyrst í hugann upplýsingar og ffæðsla af ýmsu tagi. Á þetta var meðal annars bent í títtnefnd- um sjónvarpsþætti. Sérstaklega er brýnt að fræða ungt fólk um þá fjölþættu möguleika á ráðgjöf og aðstoð sem samfélagið býður upp á. Geðlæknar, sálfræðingar, félagsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar og fleiri gegna veigamiklu hlutverki í þessu sambandi, en gallinn er ef til vill sá að þetta fólk er meira og minna bundið inni á stoínunum og unglingar veigra sér vafa- lítið við að leita þangað. Hér gildir hin gull- væga kennisetning um Múhameð og fjallið. Sigmundur Sigfússon geðlæknir, einn viðmæl- endanna í áðumefndum sjónvarpsþætti, benti á að trúlega væri allt of lítið gert afþví að starfs- fólk heilbrigðisstéttanna færi út til fólksins og veitti því aðstoð og aðhlynningu eftir þörfum. Það ætti ekki síst að vera brýnt fyrir aðsland- endur og félaga fómarlamba sjálfsvíga að fá hjálp geðlækna, geðhjúkrunarfræðinga, sál- fræðinga o.fl., en ennfremur mættu þessar stéttir gjaman fara í skólana og ræða við ungt fólk og gefa því tækifæri til að tala um vanda- mál sín og erfiðleika, þannig að þau þurfi ekki að fara inn á stofnanir til að nálgast þessar starfsstéttir. Þessar lausnir em vitaskuld engar patentlausnir og víst er að þær geta ekki átt við í öllum tilvikum. Til dæmis að taka em mögu- leikamir á forvömum af þessu tagi miklu minni úti á landsbyggðinni í dreifðum og til- tölulega litlum sveitarfélögum. Þar þarf kann- ski miklu meira til, þar em sjálfsvígin ekkert síður tengd félagslegum þáttum og efiiahags- legum. Hvaða möguleika á ungt fólk á lands- byggðinni í dag, t.d. í sjávarþorpum? Raun- vemleikinn sem við þessu fólki blasir er oft val milli tveggja kosta, ánnars vegar að ganga menntaveginn og eiga þá litla sem enga mögu- leika á að snúa til æskustöðvanna aftur vegna þess að þar er litla vinnu að fá, hins vegar að setjast að i heimabyggðinni og fást við einhæf ffamleiðslustörf alla ævi. Þetta er ekki sagt vegna þess að slík störf séu lítils virði, þvert á móti. Það er hins vegar eitt brýnasta verkefhi okkar í byggða- og atvinnumálum að auka fjöl- breytnina á landsbyggðinni og örva þar vaxtar- brodda atvinnulífsins eins og hvers konar iðn- að og þjónustustarfsemi. Því miður hefúr þess- um greinum verið hrúgað niður á höfðuborgar- svæðinu og haft í for með sér mikla fólksflutn- inga þangað, meðan fjölbreyttir möguleikar landsbyggðarinnar hafa verið ónýttir. I þessu getur vissulega falist liður í forvömum. Svörin við spumingunni um forvamir em engu að síður afar óáþreifanleg. Hinn annars ágæti sjónvarpsþáttur gaf heldur engin svör að þessu leyti, mildu ffernur vakti það athygli mína hversu ráðalausir sérffæðingar okkar standa gagnvart sjálfsvígum. Og þá er kannski ekki að undra þó leikmenn séu örvæntingar- fúllir og vamarlausir. Hvaða tilgangi þjónar opinská umræða? Er ef til vill engin ástæða til að gefa sjálfsvíg- um gaum? Sigrún Stefánsdóttir talaði í þætti sínum við föður ungs pilts sem fyrirfór sér. Það var aðdáunarvert að hlusta á hann tala um jafh erfiðan og sársaukafúllan hlut og sjálfsvíg bamsins síns. Eflaust hefúr það gefið öðrum sem í svipaðri aðstöðu lenda eða hafa lent styrk til að komast í gegnum mestu erfileikana. Hann benti á að ráðleggingar rannsóknarlög- reglunnar og aðstoð prests hefðu verið ómetan- legar. Hjá honum kom ffam nauðsyn þess að menn byrgðu ekki inni tilfinningar sínar, held- ur töluðu opinskátt, því þá væri eins og þungu fargi létt af fólki. Þetta er tvímælalaust rétt og það er einmitt hlutverk samfélagins að lina þjáningar þeirra sem um sárt eiga að binda. Viðurkenning samfélagsins á sjálfsvígum sem eðlilegu umræðuefhi, ekki lengur tabúi, er mikilvægt skref i þá átt að auðvelda syrgjend- um að komast yfir erfiðasta hjallann. Þess vegna verður samfélagið að láta sjálfsvígin sig varða, þess vegna verðum við að gefa þeim gaum, jafhvel þó við stöndum ráðþrota á stundum. ÁÞS Siða3 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. nóvember 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.