Þjóðviljinn - 16.11.1991, Blaðsíða 5
fkéthr
Á kafi við endurskoðun
efnahagsstefnunnar
Langan tíma tekur að endurskoða þjóðhagsáætlun vegna frest-
unar álversframkvæmda. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar, sagði að búið væri að endurskoða fyrri áætlan-
ir útfrá þessu og að nú væri áætlað að landsframleiðslan yrði
1,3 prósentum minni en ella. Það samsvarar 4,8 miljörðum króna.
Hinsvegar benti Þórður á að allar aðrar áætlanir byggðust á því að
álversframkvæmdir hæfust og því þyrftí að taka upp allt dæmið og
sjá hvaða áhrif þetta hefði á efnahagsstefnuna.
Þessi vinna þarf að gerast
samhliða breytingum á fjárlaga-
frumvarpinu því áætlunin og
frumvarpið byggja hvort á öðru.
Þórður sagði að öll atriði efna-
hagsstefnunnar yrðu til athugunar
við gerð nýrrar áætlunar. Þar sem
þessi frestun hefur áhrif á allt
efnahagslífið liggur í augum uppi
að taka þarf tillit til þess. Þannig
er ekki rétt að halda sömu stefnu
áfram, sagði Þórður.
Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra sagði að bein áhrif frest-
unarinnar á Qárlagafrumvarpið
væru 1,1-1,3 miljarða króna
tekjutap rikisins en að jafnframt
væri ljóst að óbeinu áhrifm yrðu
enn meiri. Hann benti til dæmis á
aukið atvinnuleysi sem þýddi
aukin útgjöld fyrir ríkissjóð. Þá
sagði Friðrik að ef gert yrði víð-
tækt samkomulag um aðgerðir
vegna vanda í sjávarútvegi sem
talað hefði verið um þýddi það að
lánsfjárþörf ríkisins ykist að sama
skapi.
Friðrik sagði augljóst að
skoða þyrfti heildardæmi fjár-
lagafrumvarpsins upp á nýtt.
Hann vildi hinsvegar ekki tjá sig
um hvaða leiðir væri verið að at-
huga þar sem verið væri að vinna
að þessu í fjármálaráðuneytinu.
Frestun á afborgunum lána í
Atvinnutryggingasjóði kostar rík-
issjóð 7-800 miljónir króna i
minni tekjur á næsta ári. Frestun
framkvæmda þýðir rúman miljarð
í viðbót. Verði siðan óbein áhrif
frestunar álversframkvæmda
svipuð og beinu áhrifin, auk
tekjutaps komi til víðtækari
skuldbreytinga í sjávarútvegi,
bætist annað eins við. Þannig
eykst halli á fjárlögum um eitt-
hvað nálægt fjórum miljörðum
króna - verði ekkert að gert. Þe-
as. hallinn gæti tvöfaldast.
-gpm
Ekkert annað
en erlend lántaka
Landsbréf hf. seldu húsbréf til erlends verðbréfafyrirtækis fyr-
ir 50 miljónir króna í vikunni. Ávöxtunarkrafa húsbréfa hjá
viðskiptavakanum Iækkaði um 0,1 prósent í gær og er nú 8,4
prósent en fór hæst í níu prósent í sumar. Sigurbjörn Gunn-
arsson, deildarstjóri hjá Landsbréfum, sagði söluna einungis byrj-
unina en í eitt ár hefur fyrirtækið unnið að sölu húsbréfa á erlendri
grund. Þó sagði hann erfitt að spá um hve mikil sala yrði.
Einar Oddur Kristjánsson, for-
maður VSI, sagði söluna jafngilda
því að taka eríend lán. „Við telj-
um þetta skelfilegan hlut,“ sagði
hann. Þórður Friðjónsson, for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, sagði
verulega hættu á þenslu innan-
lands samfara sölu húsbréfa er-
lendis. Hann sagði að vega þyrfti
saman áhrif þenslu innanlands og
þess að vextir nálguðust vaxtastig
erlendis.
Friðrik Sophusson íjármála-
ráðherra sagði að best væri að
sinna Iánsfjárþörfinni innanlands
en þar eð innlendur spamaður
dygði ekki til skipti ekki öllu máli
hvernig erlenda lántakan færi
fram. Aðalatriðið væri reyndar að
ná niður lánsfjárþörf hins opin-
bera, sagði Friðrik og benti á að
Island væri ekki jafn einangrað í
viðskiptaheiminum og áður og
við gætum ekki treyst því lengur
að einungis íslenskir aðilar tækju
lán á innlendum markaði.
„Það er mjög einfalt að lækka
hér vaxtafótinn með því að hauga
hér inn erlendu lánsfé en þá
kveikir þú í þjóðfélaginu," sagði
Einar Oddur aðspurður um hvort
sala húsbréfa erlendis gæti ekki
orðið til þess að raunvextir lækk-
uðu. „Þannig að þú ferð úr ösk-
unni í eldinn. Þetta er ekkert ann-
að en seðlaprentun og við höfum
varað við þessu mjög sterkt og
mjög lengi,“ sagði Einar Oddur.
Hann vildi ekki viðurkenna að
málið snerist um frelsi í viðskipt-
um. „Þetta er spuming um aga.
Það er enginn að fara fram á
stjómleysi í þessum efnum,“ bætti
hann við.
Sigurbjöm sagði að húsbréfm
seldust erlendis vegna þess að þau
væm góður kostur. Ávöxtun bréf-
anna er góð og þau bera ríkis-
ábyrgð. Því hafa þau selst frekar
en önnur bréf. Öll bréf skráð á
Verðbréfaþingi íslands má selja
erlendis. Þá sagði Sigurbjöm að
erfitt hefði verið að skýra út sér-
stæða lánskjaravísitölu Islendinga
fyrir hinum erlendu kaupendum.
-gpm
Við þökkum öllum sem heiðruðu minningu móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu
Valborgar Bentsdóttur
Silja Sjöfn Eiríksdóttir
Edda Völva Eiríksdóttir Friðrik Theodórsson
Vésteinn Rúni Eiríksson Harpa Karlsdóttir
barnaböm og barnabarnabörn
Gleym-
um ekki
okkar
minnsta
bróður
Borgarstjóra Reykjavíkur,
Markúsi Erni Antonssyni, var í
gær afhent yfirlýsing frá 112
íbúum í Seljahverfi þar sem
lýst er yfir stuðningi við við-
leitni Svæðisstjórnar um mál-
efni fatlaðra við að búa geðfötl-
uðu fólki mannsæmandi að-
stæður með búsetu í sambýl-
um.
„Við lýsum yfir einlægri
hryggð okkar yfir viðbrögðum
íbúa í grennd við sambýli fatl-
aðra í Þverárseli og teljum öllu
mikilvægara að okkar minnsta
bróður sé ekki gleymt í allri vel-
ferðinni,“ segir í yfirlýsingu íbúa
í Seljahverfi, en þar eru tvö sam-
býli fyrir geðfatlaða.
-vd.
Blómasalar eru komnir I verðstrlö og verð á jólastjörnum lækkar daglega,
kaupendum til mikillar ánægju. Islendingar kaupa um 50.000 jólastjömur fyrir
hverjól. Mynd: Kristinn.
Indælt jóla-
stjömustríð
Blómasalar eru nú komnir
í verðstríð og keppast við
að undirbjóða hver ann-
an í verðlagningu á jóla-
stjörnum. Fyrir ári kostuðu
þessi vinsælu blóm um 1000
krónur og svipað verð var í
gangi fyrir fáum dögum, en nú
eru jólastjörnurnar komnar allt
niður í 690 krónur. lslendingar
kaupa enn fleiri jólastjörnur en
jólatré fyrir hver jól, eða um
40-50.000 plöntur.
Blómaval auglýsti fyrir stuttu
jólastjömur á um 869 ícrónur, en
hefur snarlækkað verðið síðustu
daga eftir að þrjár verslanir,
Blómastofan við Eiðistorg og í
Kringlunni, Blómaverkstæði
Binna og Blómahöllin í Kópavogi
auglýstu saman jólastjömuna á
795 krónur fyrir nokkrum dögum.
Blómaval brást við með því að
lækka verðið niður í 769 krónur í
fyrradag og þríeykið svaraði í gær
með því að lækka sig í 767 krónur
fýrir plöntur í úrvalsflokki.
Þjóðviljinn sló á þráðinn til
nokkurra annarra verslana, og
kom strax í ljós að flestir eru til í
slaginn og hafa lækkað verðið
síðustu tvo daga. Sem dæmi má
nefna að jólastjaman kostar 690
krónur hjá Blómum bg ávöxtum,
790 í Alaska (helgártilboð) og
750 krónur hjá Blómastofu Frið-
finns. Verðlagt er eftir gæðaflokk-
um og em þessi dæmi tekin af
verði á 1. flokks og úrvalsplönt-
um. Það skal tekið fram að þessar
tölur gætu allar hafa breyst á
morgun.
Sigurður Sigurðsson eigandi
Blómastofanna við Eiðistorg og í
Kringlunni segist búast við að
álíka verðstríð hefjist þegar sala á
hyacyntum fer í fullan gang í des-
ember. „Heildsöluverðið er 545
og 565 fyrir sérvaldar jólastjömur
og ofan á það leggst virðisauka-
skatturinn,“ segir hann. „Þetta er
tóm vitleysa, en bisnessinn er að
verða gífurlega harður og þeir
sem græða á svona stríði em
neytendur."
-vd.
Atvinnumál á Suðurnesjum
-hvað nú?
r
Olafur Ragnar Grímsson
býður til opins fundar á
Flughótelinu í Keflavík
laugardaginn 16.
nóvemberkl. 14.
Allir velkomnir!
Síða 5
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. nóvember 1991