Þjóðviljinn - 16.11.1991, Blaðsíða 7
ElLENDAR ifisP FIETHE
AUmsión Ólafur Gíslason
Kjamorkusprengingar til sölu
-L- Sovétríkjunum hefur kapítal-
■ isminn nú haldið innreið sína
I í öllu sinu veldi, og flest er
-M-falboðið á hinum fijálsa mark-
aði sem seljanlegt er.
Þannig hefur nýtt sovéskt
einkafyrirtæki, sem tengt er sov-
éskum hergagnaframleiðendum,
boðið kjamorkusprengingar neð-
anjarðar í hagnýtum tilgangi til
sölu á alþjóðamarkaði fyrir hvem
þann sem á nægilegt fjármagn.
Hinn hagnýti tilgangur gæti til
dæmis falist í því að losa sig við
hættuleg eiturefhi með því að
grafa þau niður á 800 m. dýpi og
umbreyta þeim í gastegundir með
ærlegri kjamorkusprengingu.
Þessi þjónustya er boðin fol bæði
innan Sovétríkjanna og hvar sem
er í heiminum. Fyrirtækið býðst til
að flytja kjamorkusprengjumar á
staðinn eða eiturefnin til Sovét-
ríkjanna, allt eftir óskum neytand-
ans. Kostnaður við slíka eyðingu
eiurefna er sagður vera ftá 300 til
1.200 bandaríkjadalir á kíló-
grammið.
Fyrirtækið, sem heitir „Inter-
national Chetek Corporation",
segir að þótt slík eyðing 'hættu-
legra eiturefna sé það verkefni
sem geti sýnt hvað mesta hag-
kvæmni, þar sem varla sé ódýrari
aðferð til við eyðingu hættuleg-
ustu eiturefna, þá sé einnig hægt
að notfæra sér kjamorkuspreng-
ingar neðanjarðar i ýmsum öðmm
tilgangi, og fyrirtækið sé reiðubú-
ið að uppfylla allar óskir neytand-
ans, svo framarlega sem þær séu
gerðar í friðsömum tilgangi. Þann-
ig hafi Sovétmenn t.d. notfært sér
þessa tækni til þess að skapa gríð-
armikil geymslubirgi neðanjarðar,
til þess að rannsaka jarðlög með
framkölluðum jarðsícjálftabylgj-
um, og til þess að örva myndun
jarðgass og olíu í jarðlögum.
„Við erum reiðubúnir að upp-
fylla allar óskir,“ segir sölufulltrúi
fyrirtækisins í Montreal í Kanada
við blaðamann Intemational Her-
ald Tribune, „sama hver hann er,
hvar á að vinna verkið og hvenær.
Við búum yfir allri tæknikunnáttu
og henni verður beitt.“
Sölumaðurinn sagði jafnframt
að fyrirtæki hans hefði þegar yfir
að ráða sérstaklega gerðum ílát-
um, vöruflutningabílum og skip-
um til þess að flytja hættulegan
eiturúrgang og geislavirk efni.
Svo virðist sem engin alþjóða-
Réttarhalda
krafist yfir
talsmanni
Palestínumanna
-L sraelska lögreglan hefur farið
I fram á að réttarhöld verði
I hafin yfir Hanan Ashrawi,
JLeinum helsta talsmanni Pal-
estínumanna friðarráðstefn-
unni í Madrid. Ákæran er meint
samskipti sem Ashrawi er sögð
hafa átt við PLO. Samkvæmt
ísraelskum lögum er ísraelskum
þegnum sem og íbúum her-
numdu svæðanna bannað að
hafa samskipti við PLO, þar sem
samtökin séu „hryðjuverkasam-
tök er hafi að markmiði eyðingu
ísraels".
Hanan Ashrawi komst á for-
síður heimsblaðanna sem skori-
norður talsmaður palestínsku
sendinefndarinnar í Madrid fyrr í
mánuðinum. Henni var fagnað
sem þjóðhetju þegar hún snéri aft-
ur til A-Jerúsalem um síðustu
helgi. Hanan Ashrawi er prófesor
í bókmenntum og hlaut menntun
sína í Bandaríkjunum. Hún vann
ásamt með Faisal al-Husseini að
undirbúningi Madridar- ráðstefn-
unnar fyrir hönd Palestinumanna,
en fékk ekki að taka þátt í hinni
eiginlegu samninganefnd, þar sem
hún er frá A-Jerúsalem, sem Isra-
elsstjóm viðurkennir ekki lengur
sem,hertekið svæði.
Israelska lögreglan sagði að
rannsókn hefði undanfarið staðið
yfir á máli Ashrawi, og var meg-
insönnunargagnið viðtal sem jórd-
anska sjónvarpið hafði átt við
hana þar sem hún er sögð hafa
viðurkennt að hafa átt fundi með
fulltrúum PLO.
Israelska dómsmálaráðuneytið
sagði í gær að saksóknari hefði
meðtekið skýrslur um Ashrawi og
myndi taka ákvörðun um fram-
hald málsins.
„Þessi hótun um málshöfðun
lýsir bæði lítilmennsku og hefni-
gimi. Hún er tilraun til þess að
hræða og þagga niður í Palestínu-
mönnum,“ sagði Ashrawi við
fréttamenn í gær. Hún sagði að
Shamir virtist nú grípa sérhvert
hálmstrá til þess að grafa undan
friðarsamningunum. „Eg vissi að
friðurinn á sér marga óvini, en
þegar stjómvöld eins ríkis grípa
til ráða sem þessara, þá sýnir það
bara að það em engin takmörk
fyrir því hve djúpt menn geta
sokkið,“ sagði Ashrawi.
Tilkynningin um væntanlega
málshöfðun á hendur Ashrawi var
Hannan Ashrawi
gefin út í gær, á degi þeim sem
Palestínumenn á hemumdu svæð-
unum fagna hinni formlegu sjálf-
stæðisyfirlýsingu Palestínuríkis
frá 1988.
Hátíðahöld í tilefni sjálfstæð-
isyfirlýsingarinnar fóm fram um
öll hemumdu svæðin, og voru
víðast friðsamleg. Þó var ungur
piltur skotinn til bana af ísraelsk-
um hermönnum, þar sem hann var
ásamt félögum sinum að mála
slagorð um frelsi og sjálfstæði
þjóðar sinnar á veggi i þröngum
götum innan múra hinnar gömlu
Jerúsalemsborgar.
lög eða sáttmálar banni sölu á
kjamorkutækni í friðsömum til-
gangi milli landa. Eina skilyrðið
er ákvæði sáttmálans um takmörk-
un á útbreiðslu kjamorkuvopna,
sem segir að útflutningur kjam-
orkutækni frá kjamorkuveldi til
ríkis sem ekki býr yfir slíkri tækni
verði að fara fram undir tilheyr-
andi alþjóðlegu eftirliti og sam-
kvæmt settum reglum.
Þessi nýja markaðssetning
Sovétmanna á kjamorkutækninni
hefur verið gagnrýnd af umhverf-
isvemdarsamtökum og fleirum.
William C. Potter, starfsmaður
bandarískrar rannsóknastofnunar í
alþjóðasamskiptum frá Kalifomíu,
heimsótti skrifstofur fyrirtækisins
í Moskvu nýverið. Hann sagði eft-
ir heimsóknina að Chetek-fyrir-
tækið væri dæmi 'um víðtækari
hættu: „Sovéskir vísindamenn á
sviði vígbúnaðartækni standa nú
andspænis gífurlegum samdrætti
og efnahagsvanda og sú freisting
verður því stór, að selja þekkingu
þeirra til hæstbjóðanda, hverju
nafni sem hann nefnist.“
Annar sérfræðingur kanadískr-
ar stofnunar uin takmörkun og' eft-
irlit með vígbúnaði frá Ottawa
hefur einnig kannað mál Chetek
og hliðstæða sovéska markaðs-
setningu, sem nú er í undirbún-
ingi. Hann segir: „Allir í Moskvu
vilja komast í viðskipti. Þetta fólk
hugsar ekki um afleiðingar sölu-
mennskunnar. Það vill bara fá
dollara.“
Bandarískur vopnasérfræðing-
ur við Lawrence Livermore Na-
tional Laboratory í Kalifomíu hef-
ur hins vegar sagt, að hugmyndin
um að nota kjamorkusprengingar
til þess að eyða hættulegum efna-
úrgangi og jafnvel kjamasprengju-
oddum hafi tæknilega kosti. „Það
væri langódýrasta aðferðin til að
losna við þetta. En þá þyrfli líka
að huga að mörgum spumingum
er vakna varðandi umhverfis-
spjöll. Einnig þyrfti að tryggja að
slíkar sprengingar yrðu ekki not-
aðar sem yfirskin til að hylma yfir
frekari útbreiðslu kjamorku-
vopna.“
William C. Potter, bandaríski
sérfræðingurinn sem heimsótti
Chetek í síðasta mánuði, segir í
grein í Intemational Herald Tri-
bune að fyrirtækið hafi verið
stofnað í desember á síðasta ári af
kjamorkumálaráðuneyti Sovétríkj-
anna og af Sovésku alrikisrann-
sóknastofunni í fræðilegri eðlis-
fræði, sem hefur annast gerð sov-
éskra kjamorkuvopna. Segir hann
að Chetek hafi fengið einkaleyfi á
notkun kjamorkusprengjunnar í
friðsamlegum tilgangi og að yfir-
menn fyrirtækisins komi frá rann-
sóknastofunni. Hann segir fyrir-
tækið augljóslega búa yfir miklu
fjármagni. Það hafi yfir að ráða
flota af límósínum og einkaþotum,
hafi skrifstofur í 8 borgum og lúx-
us-sumarhús utan Moskvu, sem
áður hafi tilheyrt flokkselítunni.
Talsmenn fyrirtækisins sögðu
Potter að fyrirtækið ætti 200 milj-
ónir rúblna í rekstrarfé, og að það
myndi sviðsetja eiturefnaeyðingu
með neðanjarðarsprengingu á
heimskautasvæðinu í Novaya
Zemlya næsta sumar til þess að
auglýsa þjónustu sína.
Sú framkvæmd gæti reyndar
strandað á óskum Mikaíl Gorbat-
sjovs um bann í eitt ár við kjam-
orkusprengingum neðanjarðar, en
slíkar sprengingar hafa hingað til
nær eingöngu verið stundaðar í
því skyni að prófa ný kjamorku-
vopn.
10. landsfundur Alþýðubandalagsins
verður haldinn í
Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6,
dagana 21.-24. nóvember.
Dagskrá:
Fimmtudagur 21. nóvember
18.00 Setning. Ræða formanns Alþýðubandalagsins.
19.00 Skráning fulltrúa og afhending fiindargagna.
21.00 Kosning starfsmanna fimdarins, nefndanefndar og
kjörbréfanefndar. Lagabreytingar lagðar fram og kynntar.
Fyrri umræða um lagabreytingar.
23.00 Fundi frestað.
Föstudagur 22. nóvember
9.00 Ný stefnuskrá Alþýðubandalagsins. Framsögu hefur
varaformaður Alþýðubandalagsins.
11.00 Almennar stjómmálaumræður - drög að stjómmálaályktun.
17.30 Framlagning og kynning sérályktana.
20.00 Starfshópar og nefndir starfa.
Laugardagur 23. nóvember
9.00 Starfshópar og nefndir starfa.
12.00 Matarhlé.
13.00 Síðari umræða um lagabreytingar.
Afgreiðsla lagabreytingartillagna
15.00 Afgreiðsla stefnuskxár.
16.30 Kosning stjómar Alþýðubandalagsins.
17.00 Kosning framkvæmdastjómar og miðstjómar.
20.00 Landsfundarfagnaður.
Sunnudagur 24. nóvember
9.30 Afgreiðsla stjómmálaályktunar og sérályktana.
14.00 Fundarslit.
Síða 7
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. nóvember 1991