Þjóðviljinn - 17.01.1992, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 17.01.1992, Blaðsíða 2
T e y g t t o g a ö o g Með eina allsherjar íþróttadellu Hver ertu? Samkvæmt öllum pappír- um er ég bara númen 280460 - 4759 sem er kennitalan mín. Ihvaða stjömumerld ertu? Nautinu. Hvað er verst ifari karla? Óheiðarleiki og óþriínaður. En best? Heiðar-, hressi- og hrein- leiki. Hvað er best/verst i fari kvenna? Það gildir það sama um konumar og karlana. Ertu myrkfælinn? Nei. Hejurðu séð draug? Ég er ekki viss. Vœrirðu ekki þú hver vild- irðuþá vera? Saxi læknir. Hvað er það versta sem fyrir þiggœti komið? Það er ekki hægt að birta þaðáprenti. Hvað er leiðinlegasta leik- rit sem þú hefur séð? Ég man það ekki. Það var svo leiðinlegt. Áttu bam eða gceludýr? Ég á einn strák sem heitir Sigmar Freyr Jónsson. Ertu með einhverja dellu? Ég er með eina allsheijar íþróttadellu. Ertu með einhverja komp- lexa? Ekki neina afgerandi. Hvað er kynœsandi? Kvenmannskroppar. Áttu þér uppáhaldsflik? Skotapilsið mitt. Ertu dagdreyminn? Nei. Hvað skxptir mestu máli í lifinu? Að vera heilbrigður og hamingjusamur og geta veitt öðru fólki í knng- um sig einhveija ánægju. Hvað er fullkomin ham- ingja? Við erum öll að leita að henni. Hvaða galla áttu auðveld- ast með að umbera? Mikið röfl. Hver er eftirlætis söguhetj- an þin? Tarsan. En eftirlætis persóna sög- unnar? Engin öðrum ffemur sem ég man eftir. Uppáhaldsmálari? Kjarval. En tónskáld? Gamli Mozart í nútímaleg- umbúningi. Hvað finnst þér skemmti- legast að gera? Það er ekki pnenthæft. Hver em persónueinkenni þin? Mér er sagt að ég geti verið nokkuð þijóskur og viljasterkur. Hver er þinn mesti galli? Ég hef líka heyrt að ég sé of aumingjagóður. Hver er uppáhaldsrithöf- undurinn þinn? LeoTolstoj. En Ijóðskáld? Davíð Stefánsson fiá Fagraskógi. Hvaða núlifandi „hetjur" dáir þú mest? Eru einhveijar hetjur á lífi? Áttu þér uppáhaldsnafn? Sigmar. Hvaða hœfileika vildirðu hafa til að bera? Alla sem ég hef ekki. Hvemig viltu helst deyja? Með stæl. Hvemig líður þér núna? Rólegur og yfirvegaður. Áttu þér mottó í lifinu? í öllum stellingum. Hver er sterkasti maður heims? Magnús Ver Magnússon. Ertu trúaður? Erum við það ekki öll inni við beinið? Svo er það auðvitað spumingin hvað menn trúa á. Stirðlegur farsi í fínni umgjörö Leikfélag Reykjavíkur Rugl í ríminu eftir Johann Nestroy Leikstjóm Guðmundur Ólafsson Leikgerð og þýðing Þrándur Thoroddsen Leikmynd Steinþór Sigurðson Búningar Sigrún Úlfarsdóttir Lýsing Ögmundur Þór Jóhann- esson Leikfélag Reykjavíkur frum- sýndi síðastliðinn sunnudag Rugl í riminu, 150 ára gamlan skripaleik eftir austurríska leikskáldið Johann Nestroy, og er það afmælissýning Leikfélagsins, sem varð 95 ára þann 11. janúar síðastliðinn. Rugl í ríminu er að efni til dæmi- gerður farsi, snýst um misskilning, misklíð og mistök, einfoldustu at- hafnir verða flóknar og allt fer öðru- vísi en ætlað er. Leikurinn hefst í verslun góðborgarans Zanglers, sem hyggst halda til Vínarborgar að fastna sér konu, og þangað stefna einnig búðarþjónar hans tveir - fil þess að lenda í ævintýrum - án leyfis ftá húsbóndanum. Eins ætla til Vínar frænka Zanglers og vonbiðill hennar, að gifta sig á laun. Þegar til borgar- innar er komið flækjast í málin til- vonandi brúður kaupmannsins, vin- kona hennar, ftænka Zanglers og stofustúlka hennar, kúskur, þjónar og lögregluþjónn, auk kfnverska sendi- boðans... og allt þetta fólk kemst vitaskuld ekki hjá þvf að vera stöð- ugt að rekast hvert á annað, misskilja hvert annað og elta hvert annað, eins og vera ber. Nú skal það ekki dregið í efa að Nestroy hafi verið snjallt leikskáld og frægur á sinni tíð, eins og stendur í leikskrá. Rugl í ríminu hefbr sjálf- sagt þótt geysilega fyndið leikrit og ísmeygilegt í Austurriki fyrir 150 ár- um, en það væri synd að segja að það bæri aldurinn vel. Það er að vfsu hæpið að kenna Nestroy um þá út- gáfii leiksins sem nú er sýnd í Borg- arleikhúsinu en í leikskrá, þar sem saga verksins er rakin, eru tíndar til einar þijár leikgerðir sem gerðar hafa verið eftir því og er helst á pistlinum að skilja að þær hafi allar verið hafð- ar til hliðsjónar við samningu þeirrar leikgerðar sem nú er sýnd. Hvaða Lilja Gunnarsdóttir skrifar um leikhús áhrif allar þessir endursamningar og endurbætur hafa haft á Rugl í ríminu er ómögulegt að vita. Þó má leiða getum að því að málfar persónanna hafi orðið opinskárra með árunum, en fyndnin í leiknum er auk hlaupa, feluleiks og misskilnings aðallega byggð á ó-tvíræðum bröndurum. Kynlíf var víst feimnismál og flest bannað sem að því laut, þá ekki síst að tala um það nema undir rós í Vín- arborg á 19. öld. Hvað um það, texti Þrándar Thoroddsens er býsna smellinn og ekki annað að heyra en að orðaleik- imir séu vel saman settir þótt „sam- ræðumar" hefðu getað farið fram á klósetti í einhveijum gmnnskólan- um. Hinsvegar er leikritið eins og úr samræmi við sjálft sig, hefst á löng- um og stirðlegum fyrsta þætti, sem aðrir þættir þess geta ekki nema með herkjum vegið upp á móti. Hefði ekki verið hægt að koma þessum ágæta kaupmanni af stað i sina Vín- ar- og bónorðsför með aðeins minni tilfæringum, úr því að verið var að gera leikgerð á annað borð? Það er þó kannski ósanngjamt að kenna höfundi leikgerðar um það að leikurinn er stirðbusalegur, þar er því frekar um að kenna að hlaup og snúningar persónanna, sem hver ær- legur farsi stendur og fellur með, vom fremur haglætisleg, og hlýtur slíkt að skrifast á reikning leikstjór- ans. Sú leið virðist hafa verið valin að gefa áhorfendum nægan tíma til að velta málinu fyrir sér, hlusta vel á textann, spekúlera í persónunum og sjá fyrir hvað næst myndi gerast - og njóta leikmyndarinnar, sem er vissu- lega glæsileg. Það er bara ekki nóg í skrípaleik, sem aðeins getur haldið athygli áhorfenda með því að koma þeim stöðugt á óvart og gefa engan tíma til yfirvegana eða til að telja flöskumar undir búðarborðinu, því þar með em töframir rofnir. Jafnvel þótt allir séu í fínum búningum. Framlag höfunda leikmyndar og búninga er þannig hið ágætasta og minnir á liðna tíð þegar viðamikil leiktjöld vom hverri sýningu alger nauðsyn og búningar áttu að vera flott, og hlýtur það að teljast vel við hæfi á 95 ára afmælinu. Eins er ljósanotkun prýðileg og hæfði vel umgjörð sýningarinnar. Þorsteinn Gunnarsson lék Zan- gler verslunareiganda, Kristján Franklín Magnús Weinberl búðar- þjón og Ellert A. Ingimundarson Kristófer búðarþjón. Allir þrír heldur svifaseinir, svona yfirleitt, rétt eins og búningamir eða virðuleiki versl- unarstéttarinnar bæri þá ofurliði. Sig- rún Edda Bjömsdóttir lék Maríu, ffænku Zanglers og skjólskcðing, og Kjartan Bjargmundsson Saunders, biðil hennar, bæði einum of hjákát- leg til þess að vera beinlínis fyndin, en það má ef til vill rekja til þess að nægur tími gafst til að velta slíku fyr- ir sér á frumsýningu. Gunnar Helgason var sendiboð- inn frá Kína og einn af fáum leikend- um sem ekki virtust þrúgaðir af al- vöm augnabliksins, en hann stóð fyr- ir dijúgum hluta þeiirar skemmtunar sem af leiknum mátti hafa, ásamt Margréti Helgu Jóhannsdóttur sem lék ffú Knorr, verslunareiganda og tilvonandi ffú Zangler. Sömuleiðis tókst Eddu Björgvinsdóttur ágætlega upp í hlutverki ffú Fisher, vinkonu frú Knorr, og Guðrúnu Asmunds- dóttur sem gömlu ffú Blumenblatt sem Zangler ætlar fá til að fela Mar- íu fyrir Saunders. Rósa Guðný Þórs- dóttir var enn fremur skemmtíieg sem Lisette, ffanska stoíustúlkan hjá ffú Blumenblatt, en Magnús Ólafs- son öllu lakari í hlutverki kúsksins graða, sem Lisette fellur fyrir. Margrét Ákadóttir lék Fanneyju, ráðskonu Zanglers, og Eggert Þor- leifsson Melkior, þjón hans, bæði hálfþartínn utanveltu í leiknum. Ami Pétur Guðjónsson var aulalegur klæðskeri en býsna skemmtilegur þjónn, Þröstur Guðbjartsson ágætur lögreglumaður en öllu lakari þjónn. Um leið og Leikfélagi Reykja- víkur er óskað til hamingju með af- mælið er ekki annað hægt en lýsa fúrðu á verkefhavali þess í tilefhi af þessum tímamótum. Vissulega er vel við hæfi að velja farsa, en hvers vegna Rugl í ríminu? Id a g 17. janúar er föstudagur. Antóniusmessa. 17. dagur ársins. Sólarupprás í Reykjavík kl. 10.51-sólarlag kl. 16.25. Viðburðir Þjóðhátíðardaqur Mónakó. Eimskipafélag Islands stofnaö 1914. Starfs- mannafélag Reykjavíkur stofnað 1926. Félag bif- vélavirkja stofnað 1935. 7 menn farast í þyriuslysi á Kjalarnesi 1975. S k ú m u r Vjð í þessari stjórn höfum unnið ! mörg og stór afrek, okkur hefur I tekist að bjarga hag^___ fft--------------- J NÝTT HELGARBLAÐ 2 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1992

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.