Þjóðviljinn - 17.01.1992, Qupperneq 13
S k á k
Judit Polgar leysir Fischer af hólmi
sem yngsta stórmeistara skóksögunnar
Millisvæðamótið í Portoroz
1958 markaði ekki aðeins tímamót
í skáksögu íslendinga, Friðrik Ól-
afsson var um mitt mót útnefndur
stórmeistari, heldur var þáverandi
skákmeistari Bandaríkjanna, hinn
15 ára og fimm mánaða gamli
Bobby Fischer, var einnig útnefnd-
ur stórmeistari, sá yngsti frá upp-
hafi vega. Enginn hefur komist
verulega nálægt því að ógna þessu
meti fyrr en allt einu, að Judit
Polgar hreppir efsta sæti á geysi-
sterku meistaramóti Ungverja-
lands og nær þriðja og síðasta
áfanga að stórmeistaratitli. Hún er
15 ára og fjögurra mánaða þegar
mótinu lýkur.
Titillinn - hér er átt við stór-
meistaratitill karla sem aðeins skák-
valkyrjur Georgíu Nona Gaprindha-
svili og Maja Chiburdanidse hafa
unnið til - bíður staðfestingar FfDE,
en slíkt er formsatriði. Enn eitt vígi
karlmannsins er fallið, Judit Polgar
er yngsti stórmeistari skáksögunnar;
löngu var fyrirséð hvert leið hennar
lá. Um nokkurt skeið hefúr hún farið
fyrir þrieykinu sem samanstendur af
henni, elstu systur Suszu og miðsyst-
urinni Sofiu. Það er nánast regla að I
systkinahópi nær sá yngsti lengst.
Höfum um það nokkur íslensk dæmi;
ég kenndi þér allt sem ég kunni, gæti
verið hið bitra viðlag þeirra eldri.
Polgar-fjölskyldan er þekkt stærð
i skákheiminum og er nánast jafn
þekkt stærð og Garrij Kasparov. Þeir
sem fyrir nokkru þóttust sjá fyrir
endann á velgengni þeirra systra
höfðu rangt fyrir sér. Að vísu hafa
Susza og Sofia ekki bætt við neinum
sérstökum affekum, en Judit heldur
nafni fjölskyldunnar á lofti með
hverju afrektnu á fætur öðru. Á
meistaramóti Ungveijalands tefldu
tíu skákmenn, þar af margir frægustu
meistarar landsins: Lajos Portisch,
Guyla Sax, Andras Adoijan og síðan
nokkrir minna þekktir Ivan Farago,
Tibor Tolnai, Peter Lukacs, Attila
Groszpeter og Jozsef Horvath. Þær
systur Judit og Susza tefldu báðar í
mótinu, en Sofia sat hjá. Hún hefur
ekki náð að fylgja effir glæsilegum
sigri sínum á opna mótinu í Róm
1990 er hún hlaut 8 1/2 vinning úr 9
skákum í keppni við marga snjalla
stórmeistara.
Fyrir mótið virtist liggja í augum
uppi að Guyla Sax og Lajos Portisch
myndu beijast um efsta sætið. En
þær systur voru ekki á því að hleypa
þeim of langt; Portisch mætti Suszu í
3. umferð og hlaut hann slíka útreið
að menn rak í rogastans.
Judit byijaði hægt, en keyrði upp
hraðann þegar á leið. Hún mætti Sax
í 6. umferð og það var úrslitaskák
mótsins:
Judit Polgar - Guyla Sax
Sikileyjarvörn
7. Dd2 Be7
8. 0-0-0 Rxd4
9. Dxd4 0-0
10. f4 Da5
11. Bc4 Bd7
1. e4 c5
2. Rf3 dó
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 Rc6
6. Bg5 e6
(Algengasta ffamhaldið er 12.
e5 dxe5 13. fxe5 Bc6 14. Bd2 Rd7
15. Rd5 Dc5 16. Rxe7+ Dxe7 og
reynslan hefur kennt mönnum að það
er enginn hægðarleikur að bijóta nið-
ur vamir svarts. Judit heldur öllu
opnu hvað varðar atlögur á miðborð-
inu. Einnig kemur til greina að leika
12. Hhfl.)
12.. . Bc6
13. Bb3 Hfe8
14. f5 exf5
15. e5!
(Skemmtileg ffamrás sem gerir
Sax erfitt fyrir. Hann má þokkalega
við stöðu sína una.)
15.. . dxe5
16. Hxe5 Dc7
17. Hxf5 Had8
18. Dc4 Hxdl+
19. Rxdl
(Hvítur heldur uppi beinum og
óbeinum þrýstingi á f7-peðið. Hins-
vegar stendur svartur nokkuð traust-
um fótum á miðborðinu og eftir e-
línunni.)
19.. . Bd8
20. Re3 Dd7
21. Hf2 h6?
(Eftir þennan slaka leik, sem
e.t.v. hefúr stafað af timaskorti sem
hijáir Sax meira en flesta, á svartur
sér ekki viðreisnar von. Best var 21.
.. He4 og svartur hefur varla mikið
að óttast. Sax hefúr sennilega átt von
á að Judit myndi hörfa með biskup-
inn, en lítill millileikur setur stórt
strik í reikninginn.)
22. Hd2!
((Skyndilega stendur svartur
ffammi fyrir híikalegum vandamál-
um; drottningin er á hrakhólum, t.d.
22. .. Dc7 23. Bf4! De7 24. Rf5!
o.s.ffv. eða 22. .. De7 23. Rf5 með
svipaðri niðurstöðu. Best er senni-
lega 22. .. De6, en Sax hefúr ekki
geðjast að stöðunni
sem kemur upp eftir
23. Dxe6 fxe6 24. Bh4.
Veikleikinn á e6 stingur í augun.
Þess i stað gefúr hann drottningu
sína fyrir hrók og léttan, en virðist
ofmeta möguleika sína.)
22... Dxd2+!?
23. Kxd2 Re4+
24. Kdl Bxg5
(Mun öruggara var 24. .. Rxg5
og svartur hefur þokkaleg
færi.)
25. Dxf7+ Kh8
26. Rd5 Rd6
27. Df2 b5
28. Rf4 Hd8
29. Kel He8+
30. Kdl Hd8
31. Rd3 Rc4
32. Dc5!
(Það hefúr verið allt annað en
auðvelt að halda stöðu hvíts saman,
því kóngurinn er mjög aðþrengdur.
Með þessum leik nær hvítur að létta
verulega á stöðunni og getur teflt til
sigurs í kraffi liðsyfirburða sinna.)
32... Bxg2
33. Bxc4 bxc4
34. Dxc4 He8
35. Df7 He7
36. Df8+ Kh7
37. DÍ5+ Kg8
38. h4! Bf6
(Ekki 38. .. Bxh4 39. Dg4! og
vinnur mann.)
39. Rf4 Be4
40. Dc8+ Kh7
41. Rd5 Bxd5
42. Df5+ Kh8
43. Dxd5 He8
44. Db5 Hd8+
45. Ke2 bxh4
46. c4 Bg3
47. b4 H18
48. Da5 g5
49. Dxa7 Bf4
50. De7 Kg8
51. a4
- og Sax gafst upp. Lipur úr-
vinnsla réð úrslitum.
Fyrir síðustu umferð átti Judit
1/2 vinnings forskot á næstu menn
og tókst að sigra Tolnai með svörtu í
æsispennandi skák. Þar með hafði
hún tryggt sér sigurinn, langyngsti
Ungverjalandsmeistari frá upphafi:
1. Judit Polgar 6 v. (af 9) 2.-3.
Sax og Adorjan
5 1/2 v. 4.-5. Susza Polgar og
Joszef Horvarh 5 v. 6. Poitisch4 1/2
v. 7.-9. Groszpeter, Lukacs og Toln-
ai 3 1/2 v. 10. Farago 3 v.
Það fór ekki fram hjá neinum
sem fylgdust með Judit á Reykjavik-
urskákmótinu 1988, og ekki síst
hraðskákmóti sem Visa Island stóð
fyrir eftir mótið þar sem Judit lagði
marga fræga kappa, að þar fór
óvenjuleg hæfileikamanneskja.
Judit Polgar, yngsti stórmeistari
skáksögunnar.
Framfarir hennar upp frá því voru
ævintýri líkastar og hún hefúr þrá-
faidlega sannað að hún á í fúllu tré
við sterkustu stórmeistara heims. Það
þykir ekki lengur skömm að tapa fyr-
ir konu, þó því verði ekki á móti
mælt, að mörgum svíður illilega.
Judit getur sagt eins og Fischer forð-
um: I am a kingspawn - ég er kóng-
speð, og meðhöndlun hennar með
hvítu gegn sumum byijunum, eink-
um sikileyjarvöm, er sérstaklega
kraftmikil. Næstu ár munu skera úr
um hvort hæfileikar hennar standi til
þess að hrifsa til sín heimsmeistara-
titil karla sem sumir hafa spáð henni.
B r i d g e
Landsbréfin á toppnum
Að loknuni 12 umferðum í
Reykjavíkurmótinu í sveita-
keppni er staða sveita orðin
þessi:
1. Landsbréf 252
2. Hjalti Elíqson 223
3. Verðbréf Islandsbanka 222
4. Rauða ljónið 215
5. S. Ármann Magnússon 209
6. Roche 209
7. Tryggingamiðstöðin 205
8. Sjóvá Almennar 202
9. Myndbandalagið 195
10. Gunnlaugur Kristjánsson
177
11. Hreinn Hreinsson 175
12. Helgi Hermannsson 165
13. Keiluhöllin 164
14. Bemódus Kristinsson 164
15. Bjöm Theódórsson 161
16. Guðjón Bragason 161
17. Sigmundur Stefánsson 160
18. L.A. Café 158
19. Erla Sigurjónsdóttir 152
20. Baldur Bjartmarsson 115
21. Frímann 111
22. Ingi Agnarsson 110
11 efstu sveitimar ávinna sér
rétt til þátttöku í íslandsmótinu
(nema sveit Sjóvá Almennar, sent
þegar hefur unnið sér rétt fyrir
vestan). 4 efstu sveitimar spila síð-
an til úrslita um Reykjavíkurmeist-
aratitilinn. Undankeppninni lýkur á
miðvikudag í næstu viku og úrslit
verða síðan spiluð helgina þar á
eflir. Sigurvegarar velja sér and-
stæðing. Nv. Reykjavíkurmeistarar
í sveitakeppni er sveit Verðbréfa
Islandsbanka.
Skipan sveita í Reykjavíkur-
mótinu að þessu sinni (stigahæstu
sveitir) er:
Landsbréf; Magnús Olafsson,
Björn Eysteinsson, Aðalsteinn
Jörgensen, Jón Baldursson, Mattþí-
as Þorvaldsson og Sverrir Ár-
mannsson. Hjalti Elíasson, Páll
Hjaltason, Eiríkur Hjaltason, Odd-
ur Hjaltason, Hrannar Erlingsson
og Jón Þ. Hilmarsson.
V.I.B. Sævar Þorbjömsson,
Karl Sigurhjartarson, Guðlaugur R.
Jóhannsson, Öm Amþórsson, Þor-
lákur Jónsson og Guðmundur P.
Amarson.
Rauða ljónið: Jón Þorvarðar-
son, Friðjón Þórhallsson, Guðni
Sigurbjamason, Ómar Jónsson,
Júlíus Snorraspn og Sigurður Sig-
urjónsson. S. Ármann Magnússon:
Ólafur, Lámsson, Hermann Láms-
son, Ásmundur Pálsson, Hjördís
Eyþórsdóttir, Helgi Jóhannsson og
Guðmundur Sv. Hermannsson.
Roche: Haukur Ingason, Ragn-
ar Hermannsson, Gylfi Baldursson,
Sigurður B. Þorsteinsson, Helgi
Jónsson og Helgi Sigurðsson.
Tiyggingamiðstöðin: Sigtrygg-
ur Sigurðsson, Bragi Hauksson,
Páll Valdimarsson, Ragnar Magn-
ússon, Hrólfur Hjaltason og Sig-
urður Vilhjálmsson.
Sjóvá Almennar Akranesi: Ól-
afur G. Ólafsson, Guðjón Guð-
mundsson, Einar Guðmundsson,
Ingi St. Gunnlaugsson, Alfreð
Viktorsson og Þórður Elíasson.
Myndbandalagið: Valgarð
Blöndal, Sverrir Kjistinsson, Sím-
on Símonarson, Hörður Amþórs-
son, Einar Jónsson og ísak Öm
Sigurðsson. Gunnlaugur Kristjáns-
son, Hróðmar Sigurbjömsson, Ól-
afur Ólafsson, Haukur Sigurðsson,
Karl Logason og Jón lngi Bjöms-
son.
L.A. Café: Júlíus Sigurjónsson,
Jónas P. Erlingsson, Valur Sig-
urðsson, Guðmundur Sveinsson og
Rúnar Magnússon.
Kristinssonar sigraði á svæða-
móti Norðurlands eystra, sem spil-
að var um síðustu helgi. Jöfn að
stigum, í 2. sæti, varð svo sveit
Amar Einarssonar. I 3. sæti varð
sveit Stefáns Stefánssonar og í 4.
sæti sveit Gylfa Pálssonar. Þessar
Sveitir verða fulltrúar svæðisins á
Islandsmótinu. 9 sveitir tóku þátt í
svæðismótinu.
Ellefta Bridgehátíð Bridgesam-
bands Islands og Flugleiða verður
haldin dagana 14.-17. febrúar nk.
Keppnin verður með sama sniði og
undanfarin ár, tvímenningur fostu-
dagskvöld og Iaugardag með þátt-
töku 44-48 para og sveitakeppni
sunnudag og mánudag 10 umferða
Monrad-keppni. Sveitakeppnin er
öllum opin en Bridgesambands-
stjóm áskilur sér rétt til að velja
pör í tvímenninginn. Skráning er á
skrifstofu Bridgesambands Islands
í síma 689360. Skráningarfrestur í
tvímenninginn er til föstudagsins
31. janúar en í sveitakeppnina til
mánudagsins 10. febrúar. Keppnis-
jtjald í tvímenninginn er 10.000 kr.
a par (án matar í hádeginu á laug-
ardegi) og keppnisgjald í sveita-
keppnina er 16.000 kr. á sveit.
Verðlaun samtals verða $13.500.
Eins og undanfarin ár verður 6 er-
lendum pömm boðið til keppninn-
ar og verður sá gestalisti væntan-
lega tilbúinn fljótlega. Einnig
munu heimsmeistarar okkar allir
verða meðal þálttakenda.
Skagflrðingar f Reykjavík
verða með eins kvölds tvímenn-
ingskeppni næstu þriðjudaga. Spil-
að er í Drangey v/Síðumúla 35, 2.
hæð. Allt spilaáhugafólk velkomið.
Síðasta þnðjudag mættu yfir 20
pör til leiks.
Fullbókað er í aðalsveitakeppni
Bridgefélags Kópavogs. 18 sveitir
eru skráðar til leiks, sem er met-
þátttaka hjá félaginu.
Minnt ef á föstudagsspila-
mennsku BSI. Spilað er öll kvöld
og er hvert þeirra sjálfstæð keppni.
Síðasta fostudag mættu 36 pör.
Gervisagnir í bridge eru al-
gengar. Heilu sagnkerfin em byggð
á slíkum ófögnuði. Blekkisagnir
em einnig nokkuð algcngar. Þær
em heimilar í íþróttinni, svo lengi
sem ekki eLsamkomulag um þær
milli spilafroganna. Félagi verður
því að ráða í „ókennilegar“ sagnir
og vera skátalegur við borðið.
Ávallt reiðubúinn.
Lítum á dæmi um blekkinga-
sagnir:
♦ : G10
♦: AD54
♦ : Á82
♦ : 9842
♦ : KD865 4 : Á42
V : G10 *:K98
♦ :10643 ♦ : D9
♦ : ÁD * : KG1075
4 : 973
♦ :7632
♦ : KG75
♦ : 63
Ofangrein spil kom fyrir í úr-
slitaleik HM 1966 milli ítala og
USA. Sagnir gengu:
Norður Austur Suður Vestur
Mathe Belladonna Hamman
Avarelli
1 hj. Dobl 1 sp. 1 grand
pass 2 lauf pass 2 tígl.
pass 2 grönd pass pass
pass
Blekkisögnin hjá Hamman á 1
spaða tókst fullkomlega. Bellinn
fékk eina 11 slagi í 2 gröndum, en
eins og sjá má, em 4 spaðar
óhnekkjandi í A/V.
Annað dæmi:
4 : 96
♦ : KD1062
♦ : 84
♦ :KD32
4 : G75 4 : 1042
▼ : 53 ♦ : 98
♦ : ÁD952 ♦ : KG106
♦ : G98 * : 7654
4 : ÁKD83
♦ : ÁG74
♦ : 73
♦ : Á10
Hér gengu sagnir:
Suður: Norður:
1 spaði 2 hjörtu
3 tíglar 3 hjörtu
5 hjörtu 6 hjörtu
Það var „refurinn" Richard
Frcy sem sat í Suður i þessu spili.
Ut kom lauf frá Austur (sem hélt á;
1042 98 KG106 7654) og sagnhafi
var ekki ýkja lengi að hala inn alla
slagina 13.
NYTT HELGARBLAÐ
1 3 FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1992