Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1995, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1995, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 9 dv Stuttarfréttir Fiugvélheint íranska flugvélin sem ræningi lét fljúga tíl ísraels er farin heim aftur, ásamt 176 farþegum. Rússar og Tsjetsjenar ætla að halda samningaviðræðum áfram, þrátt fyrir tílraun til að myrða sendimann Jeltsíns forseta. Ekki sammála enn Símon Peres, utanríkisráð- herra ísraels, og Yasser Ara- fat, leiðtogi PLO, höfðu ekki enn náð samkomulagi um auknasjálf- stjórn Palestínumanna þótt þeir hefðu setið lengi á fundi. Tatvanekkimeð Kínverjar og bandamenn þeirra komu enn 1 veg fyrir að allsherj- arþing SÞ tæki fyrir beiðni Tai- vans um aðild. Mótmæli bönnuð Stjórnvöld á Filabeinsströnd- inni hafa bannað öil mótmæli á götum úti í þrjá mánuði þar til eftir kosningar. Símaklefi sprengdiar Sprengja eyðilagði símaklefa nærri framhaldsskóla í borginni Toulouse í Frakklandi í morgun en ekki uröu slys á fólki. Chiracániðurleið Vinsældir Jaeques Chiracs Frakk- landsforseta fara nú dvín- andi og í fyrsta sinn eru hínir óánægðu með störf forsetans fleiri en hinir ánægðu, sam- kvæmt nýrri skoðanakönnun. Lausar úr haldi Sjö útlendar konur, starfsmenn hjálparstofhana, voru leystar úr haldi sómalskra skæruliöa. Skýrslasamþykkt NATO hefur samþkkt skýrslu um stækkun bandalagsins til austurs en í henni eru tilslakanir til að ftiða Rússa sem vilja ekki sjá fyrrum bandamenn sína ganga í bandalagið. Ciller segir af sér Tansu Ciller, forsætisráð- herra Tyrk- lands, sagði af sér i gær en í dag ætlar hún aö reyna að mynda starfs- stjórn þar til hægt verður að mynda nýja ríkis- stjórn landsins. ímáiviðKanada Skipstjóri og eigendur spænska togarans sem Kanadamenn tóku við grálúöuveiðar í vor hafa höfð- að skaðabótamál á hendur kanadískum stjómvöldum. Gróðiíútgáfu Þýski fjölmiðlarisinn Bertels- mann skýrði frá því í gær að gróðinnhefðiaukist. Reuter Útiönd SlteMBBœwm í HÖLUNNR Ferda og útlvlstarsýrtirtg Pskyldiiimar f LaugardBalshiofS 21.-24. sept. 'S5 ðiyifetry Rlfrildi smástúlkna um dúkkur endaði með ósköpum: Stakk vinkonuna með steikarhnrf i Talið er að Byltingarher Kólumbíu hafi staðið á bak við fjöldamorð þar sem 24 verkamenn á bananaekru voru neyddir út úr rútu og skotnir. Samper forseti setti landsvæðið undir herlög í kjölfarið. Á myndinni brotna tvær konur saman eftir að þeim varð Ijóst að skyldmenni þeirra voru meðal hinna myrtu. / Símamynd Reuter Leikur tveggja lítilla vinkvenna með Barbie-dúkkur í bænum Mod- esto í Kaliforníu tók óvænta og ógn- vænlega stefnu þegar sú yngri tók sig til, réðst á vinkonu sína aftan frá og stakk hana í bakið með steikar- hnífi úr eldhúsi fjölskyldunnar. At- burðurinn hefur vakið óhug meðal íbúa Modesto en stúlkumar hafa hingað til verið hjartans vinkonur. Vinkonumar höfðu verið að leik með Barbie-dúkkur á leiksvæði við fjölbýlishús þar sem þær eiga heima. Eftir smástund við leik fóru þær að rífast um hvor ætti að leika með hvaða dúkku. Ekki leið á löngu áður en þær fóru að uppnefna hvor aðra, sparka, lemja og hárreyta. Þessar aðfarir leystu hins vegar ekki deil- una. Til að fá niðurtöðu í málið híjóp sú yngri því inn í íbúð foreldra sinna, inn í eldhús og náði þar í steikarhníf með 10 sm löngu blaði. Hljóp hún því næst út með hnífinn á lofti, réðst aft- an að vinkonu sinni og stakk hana í bakið. Þrátt fyrir ofsann og reiðina fór betur en á horfðist. Hnífurinn gekk inn í bakið, skemmdi vöðva en eyðilagði engin mikilvæg líffæri. Hin stungna var flutt á sjúkrahús þar sem hún var undir eftirliti yfir nótt. Vinkonan verður ekki sótt til saka enda ekki nógu gömul. Félags- málayfirvöld munu hins vegar eiga fund með fjölskyldum stúlknanna þar sem þeim verður leiðbeint um lausn ágreiningsmála. Reuter Alexandra, tilvonandi prinsessa. Danski Fram- faraflokkurinn íkóngavanda Væntanlegt brúðkaup Jóakims Danaprins og Alexöndru Manley frá Hong Kong hefur sett Fram- faraflokkinn í hinn mesta vanda. Flokkurinn er ákaflega konung- hollur en hann er á móti innflytj- endum. Þess vegna munu þing- menn hans greiöa atkvæði gegn því að Alexandra fái danskan rík- isborgararétt ef hún verður spyrt saman við alla hina útlendingana sem sækja um ríkisborgararétt og þingið greiðir atkvæði um tvisvar á ári. Framfaraflokks- menn munu hins vegar greiða atkvæði með ríkisborgararétti ef lagt verður fram frumvarp sér- staklega vegna Alexöndru. Ritzau Færeyskir sjómenn óánægöir og vilja kvótakerfið burt: Hóta að leggja fiskiskipa- f lotanum eftir sex vikur Færeyskir sjómenn eru svo óánægðir með kvótakerfið sem Danir þröngvuðu upp á þá að þeir hóta að leggja fiskiskipaflotanum, verði kerf- ið ekki numið úr gildi innan sex vikna. Öll samtök sjómanna í Færeyjum hafa skrifað mótmælabréf til land- stjórnarinnar og Lögþingsins um að flotanum verði lagt og að hann haldi ekki aftur til veiða fyrr en núgild- andi reglur um aflamagn á róðrardag og kvóta hati verið af lagðar og í stað- inn komi tækniiegt fyrirkomulag þar sem m.a. verði gripið til friðunar fiskimiða. Núverandi kvótakerfi hefur verið við lýði í átján mánuði. Það var á sínum tíma svo erfiður biti að kyngja fyrir Lögþingið að dönsk stjómvöld urðu að troða því ofan í þingmenn með því að neita að greiða gjaldfallin erlend lán Færeyinga fyrr en kvóta- kerfið hefði verið samþykkt. Færeyskir sjómenn telja að kvóta- kerfið geri þá alla að glæpamönnum þar sem útilokað sé að fara eftir regl- unum. Árni Dam, talsmaður hinna óánægðu sjómanna, bendir t.d. á að á þessari vertíð sé svo mikið af þorski í sjónum að jafnvel þótt sjómennirn- ir reyni að veiða ufsa fái þeir svo mikinn þorsk í netin að þeir fari fram úr leyfilegum kvóta. „Verði haldið áfram samkvæmt núverandi reglum neyðist allur flot- inn til að leggjast fljótlega aö bryggju," segir Ami Dam sem vill frekar grípa til friðunaraðgerða á veiðislóðinni. Hann bendir í því sambandi á að færeyskt atvinnulíf byggist svo til eingöngu á fiskveiðum. Það sé því ljóst að færeyskir sjómenn hafi ekki áhuga á að ofveiða fiskstofnana og þar með útrýma eigin lifibrauði. Ritzau A N ÚTSALA - AATIK - ÚTSALA T I nú prhafín ftórútralaáantík: hú«?ö?n, málverk. íítikið fkal «elja«t. íTkunÍr O? ITlÍnjar Önnur tendin? á leiðinni. Pe?ar við höfum úttölu er verðió tmátt. Grensásvegi 3 (Skeifumeqin), sími 588-4011

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.