Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1995, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1995, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 13 Fjörutíu silfurpeningar Vilmundur Gylfason sagði eitt sinn í ræðu á Alþingi að ungu fólki væri hollt að venjast því strax að greiða skatta af öllum tekjum sínum eins og aðrir. Með þessum orðum sínum var hann í andstöðu við aðra samtíðarmenn sína sem töldu andstætt svar væn- legri söluvarning á markaði kjós- enda. Þessi orð Vilmundar koma upp í hugann nú þegar alþingis- menn hafa sett feluákvæði í lög- gjöf sem ekki eingöngu felur í sér mögulega skattalega mismunun heldur óásættanlegan launamun þeirra umfram íslenskan almenn- ing. Greiðslur fyrir útgjöld án þess að krafist sé löglegra reikninga eru tekjur sem skattskyldar eru og þýðir ekki að vísa til einhverrar heimildar í lögum sem ílestir þess- ir sömu launþegar settu. Það heit- ir á réttri íslensku misnotkun á aðstöðu og stefnir virðingu Al- þingis í meiri voða en munnsöfn- uður stjórnarandstöðu sem reynt hefur verið að hefta með kjöri „rit- skoðunarstjóra“ með ódulbúnum hætti. Nútímajafnaðarstefnan Jafnaðarstefnan felur ekki ein- göngu í sér að stefnt sé að því að allir menn geti séð sér og sínum mannsæmandi farboða heldur og að hinir sem minna mega sín fái aðstoð þjóðfélagsins til sömu hluta. Nútímajafnaðarstefna hafn- ar ekki einhverjum launamun byggðum á málefnalegum grunni þannig að hann megi greina á línuriti sem fer smátt og smátt hækkandi í samræmi við eðli vinnu, nám, hæfni og t.d. vinnu- stundafjölda. Þó verður að gera nokkurn mun á launum hjá ríkinu sem sam- kvæmt eðli máls verða að vera takmörkuð vegna takmarkaðra tekna og svo hjá einkaaðilum sem „heimild" hafa til þess, eins og þanþol skattareglna býður, að skammta sjálfum sér laun og þá sérstaklega í íslenskri einokum og fákeppni stórfyrirtækja eða meðal konunga hins íslenska neðanjarð- arhagkerfis. Á þennan mismun bendir Rannveig Guðmundsdóttir, oddviti Alþýðuflokksins á Reykja- nesi og form. þingflokks hans í grein í Alþýðublaðinu 7. sept. sl., Kjallarinn Halldór E. Sigurbjörnsson þjóðréttarfræðingur og félagi í Al- þýðuflokknum - Jafnaðar manna- flokki íslands er hún segir m.a.: „Víst er að að- hald gagnvart þeim sem er í stöðu til að smokra sér hjá að inna af hendi greiðslu til samfélagsins skiptir máli og þar er vissulega pottur brotinn." Hugsjónamenn eða sér- hyggjumenn? Alþingi er einstök stofnun í ís- lensku samfélagi. Alþingi er ekki ætlað að hygla sérhópum í þjóðfé- laginu né sjálfu sér nema brýnar ástæður séu fyrir hendi. Slík efni eru ekki fyrir hendi í þjóðfélagi sem býður svo mörgum ekkert. Stundum hef ég velt fyrir mér eðli þeirra manna sem sitja þar og eiga að setja okkur hinum almennar reglur. Eru þetta hugsjónamenn sem sjást ekki fjárhagslega fyrir í ákafa sínum og eldhug og kemur síst í hug eigin hagur eða eru þetta grjótharðir sérhyggjumenn sem (mis)nota sér aðstöðu sína sér og sínum til hags? Þegar ég gekk í Alþýðuflokkinn. fyrir tæpum þremur árum gerði ég það af því að ég taldi mig greina þar stjórnmálamenn af fyrri gerðinni - ídealista. Þegar þetta er ritað hefur þingflokkur Alþýðuflokksins eða formaður flokksins ekki gert grein fyrir því hverja afstöðu hann tekur til hinna „fjörutíu silfurpeninga". Þingmenn eins og Ögmundur Jón- asson (óháður), og dr. Ágúst Ein- arsson (velkominn ,,heim“!) hafa lýst því yfir að þeir „dansi ekki með“. Það er ósk mín, og ég vona að ég tali fyrir hönd almennra alþýðu- flokksmanna, að þingmenn Al- þýðuflokksins - Jafnaðarmanna- flokks íslands bregðist ekki jafn- aðarstefnunni og leggi fram reikn- inga fyrir kostnaði sínum í stað þess að þiggja fasta greiðslu, og að þeir reikningar verði, nú á síðustu og verstu tímum fyrir ríkissjóð, til muna lægri en nemur hinum „fjörutíu silfurpeningum“ sem í boði eru. Það sama ættu aðrir „þingmenn" að gera. Halldór E. Sigurbjörnsson Greinarhöfundur vonar að þingmenn Alþýðuflokksins bregðist ekki jafnaðarstefnunni og leggi fram reikninga fyrir kostnaði sínum. „Greiðslur fyrir útgjöld án þess að krafist sé löglegra reikninga eru tekjur sem skattskyldar eru og þýðir ekki að vísa til einhverrar heimildar í lögum sem flestir þessir sömu launþegar settu.“ Lýðræðislegir þjófar Jónas Kristjánsson, rifstjóri DV, et glöggur maður. Honum ratast því oft satt orð á munn. I leiðara 12. september sl. kemst hann að þeirri niðurstöðu að þjófar sitji á þingi. En hvers vegna telur Jónas al- þingismenn vera þjófa? Vegna þess að þeir hafa nú skammtað sér 40 þúsund króna „kostnaðar- greiðslu" mánaðarlega sem er skattfrjáls. Ég er hjartanlega sam- mála ritstjóranum um það að al- þingismenn eru þjófar en þetta er hins vegar ekki beinlínis skýring- in. Skattheimta er rán Með stuðningi laga sem þing- menn setja innheimtir ríkið vel á annað hundrað milljarða í skatta á ári af almenningi í landinu. Þess- um peningum er síðan ráðstafað í samræmi við önnur lög sem sömu þingmenn hafa sett. Nú held ég að flestir séu sammála því að þjófar séu þeir sem stela og að stela sé að: „taka eitthvað ófrjálsri hendi, taka eitthvað sem einhver annar á“. Ég sé ekki betur en skattheimta upp- fylli þessa skilgreiningu mjög vel og að þingmenn séu því þjófar. Þingmenn hafa nú loks skilið að skattar eru allt of háir. Það sem þeir skilja hins vegar ekki er að eðlilegasta leiðin til að taka á vandamálinu er að lækka útgjöld Þorsteinn Arnalds háskólanemi ríkisins svo að svigrúm gefist til að lækka skatta á almenning. En nei. Þingmenn hafa komist að því að slíkar aðgerðir kalla á of mikla umhugsun og fyrirhöfn (þeir gætu jafnvel neyðst til að vinna fyrir kaupinu sínu) og því lækka þeir einungis eigin skatta. Þessar 40 þúsundir sem þing- menn fá skattfrjálsar eru samtals um 30 milljónir króna á ári. Ef 42% tekjuskattur reiknaðist af þeim rynnu um 13 milljónir aftur í ríkissjóð. Það sér því hver maður að þetta eru hreinir smámunir í samanburði við þá rúmu 100 millj- arða sem þingmenn hafa af lands- mönnum árlega (um 0,01%!). Það hefði verið nær lagi hjá ritstjóra DV ef hann hefði gagnrýnt þing- menn fyrir að þiggja yfir höfuð laun fyrir „vinnu“ slna, en ávext- irnir af henni virðast yflrleitt vera að rýra hag fólks. eru þingmenn sem setja leikregl- urnar. Þeir ákveða hvenær skuli kosið, hversu margir skuli kosnir og hver völd þeirra skuli vera. Ég veit til dæmis ekki til þess að boð- ið sé upp á þann kost í kosningum að engir menn veljist á þing. Tískustraumar á Islandi eru skrýtnir. í fyrrasumar var aftur- hvarf til hippatímabilsins áber- „Þingmenn hafa nú loks skilið að skattar eru allt of háir. Það sem þeir skilja hins vegar ekki er að eðlilegasta leiðin til að taka á vandamálinu er að lækka útgjöld ríkisins svo að svigrúm gefist til að lækka skatta á almenning.“ Ræningjar valdir Nú segir einhver: „Já, en ungi maður, þetta gera þingmenn nú allt í umboði þjóðarinnar. Þjóðar sem kosið hefur þá til þessara starfa og falið þeim það hlutverk að setja okkur lög“ (og ræna okk- ur og rupla). „Jafnvel ungir og ærslafengnir menn eins og þú fá að kjósa til Alþingis og hafa þannig úrslitavald.“ Eitthvað er til í því en vert er að bendá á að það andi. í sumar hefur veri§ móðins aö stela tölvum og innheimta lausnargjald fyrir gögnin sem þær innihalda. Með þeirri rökfræði sem Jónas Kristjánsson beitir er allt í finu að stela tölvum og kúga út fé. Svo fremi sem brottnáms- og innheimtumennirnir skila virðis- auka- og tekjuskatti til ríkisins. Því að þá geta jú allir þegnar þjóð- félagsins notið „ávaxtanna“ af starfi þeirra. Þorsteinn Arnalds Með og á móti Bændasamtökin út á land Eölilega „Auðvitað væri ég hlynntur því að fá Bænda samtökin hingað að Hvanneyri. Það sem mæl ir með því að Magnús B. Jóns Bændasam son, skólastjóri tökin séu að Hvanneyri með sínar höfuð stöðvar út á landi er með- al ann ars það að þau eru að vinna fyrir atvinnuveginn sem er helstur í dreifbýlinu. Nútíma samskipta tækni gerir það ósköp auðvelt fyrir samtök að vera staðsett hvar sem er á landinu. Hér á Havnneyri er staðsett mjög fjöl þætt starfsemi sem tengist land búnaði, ræktun, rannsóknir og endurmenntun. Bændasamtökin væru því hér í góðum félagsskap. Þar að auki yrði það til að lyfta undir þá um- ræðu að hægt sé að vera með heildarsamtök atvinnu veg utan höfuðborgarsvæðisins en jafn- fram staðið vel í stykkinu í þeirra starfsemi sem viðkom andi samtök þurfa að vinna. Ef dreifbýlið á að eiga einhverja möguleika í framtíðinni þá verð ur að flytja þangað öflugri at vinnustaxfsemi heldur en frum framleiösluna. í nútíma samfé lagi hlýtur að fækka í frumfram leiðslunni en fjölga í þjónustu starfsemi og ekki síst opinberri stjórnsýslu. Ef opinber stjóm sýsla og þjónustustarfsemi flyst ekki út á land, þá verður mjög erfitt fyrir dreifbýlið að halda uppi nógu fjölbreyttu atvinnulífi til þess að það sé aðlaðandi fyrir ungt fólk að setjast þar að.“ Vandséð hag ræðing „Undanfar ið hefur verið rætt nokkuð um að flytja hin- ar ólíkleg ustu stjórn sýslunnar út á land. Hag ræöing að slíku virðist mér vand- séð. Hvatir að baki þessu eru kröfur um áð styrkja sveitarfé- lögin út á landi. Þaö er góðra gjalda vert að styrkja sveitarfé- lög á lands byggðinni, en slíkt má alls ekki verða til að gera stjórnsýsluna óskilvirkari, nóg er nú samt. Einn ágætur sveitar- stjórnarmaður ut an af landi sagði mér einu sinni að þegar hann fari suður leysi hann mörg erindi í einu, því hin ar ýmsu stofhanir væru þar. Ekki leist honum á að leita til einnar opin- berrar stofnunar á Austurl andi, annarrar á Norðurlandi og þeirr- ar þriðju eftilvill í Borgar firði. Rómantískir eldhugar fyrri alda vildu að Alþingi yrði á Þing völl- um. Raunsæismenn töldu rétti- lega að þingheimur einangr aðist í óbyggðum, því púls þjóð lifsins væri annarsstaðar. Vit skuld fleygir samskiptatækninni fram og fljótlega kann svo að verða að ekki skipti neinu máli hvar menn búa, fundi geti menn hald- ið þó þeir séu staddir hver í sínu landshorni. Þó tel ég að stofnun- um stjórnsýslunnar hætti til að einangrast ef þær flytja út á land. Starfsmenn setjist í „fila beinstum" þar sem allir mæla upp sömu rökin hver í annan. Hvað Bændasamtökin varðar tel ég aö þeim sé nauðsyn á að halda ,jarðsambandi“ við aðrar stéttir í þessu landi og fara því hvergi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.