Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1995, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1995, Blaðsíða 25
FlMMTUUAliUK 21. SEKTTiMBKK 199b 37 * Harald G. Haralds er einn leikara í verkinu. í djúpi daganna, Sýniíig vrrður á uppfærslu Is- lenska leikhússins á í djúpi dag- anna eftir Maxím Gorkí í Lindar- bæ í kvöld. í djúpi daganna segir sögu fólks sem þétt og örugglega hefur siglt niður virðingarstiga samfélagsins. Þetta eru manneskj- ur sem þrá, elska, hata, lifa og deyja. Fólk sem á hinar háleitustu hugsjónir og einnig fólk sem býr yfir skítlegu eðli. Inn í samfélag þess, þar sem svik, prettir og und- irferli er lífsmáti, kemur gestur Leikhús með afgerandi áhrif á líf og við- horf samferðamanna sinna. Næstu sýningar á leikritinu verða svo annað kvöld og laugar- dagskvöld. INRI leikur framsækna tónlist. INRIá Jazzbarnum Hin framsækna hljómsveit INRI hefur verið starfandi í sex ár. Af og til hefur hljómsveitin verið að minna á sig og gerir það einmitt í kvöld á Jazzbarn- um. Ásamt INRI kemur fram hljómsveitin Vindva Mei. Tanja í Ævintýra- Kringlunni Tanja tatarastelpa skemmtir í Ævintýra-Kringlunni, sem er á þriðju hæð í Kringlunni, í dag kl. 17.00. Samkomur Fyrirlestur Magnús J. Kristinsson barnatannlæknir verður með fyrirlestur á vegum Neistans í Seljakirkju í kvöld kl. 20.30. Málbing í Þjóoarbókhlöðunni I dag og á morgun verður haldið málþing í ráðstefnusal Þjóðarbókhlöðunnar undir yfir- skriftinni: Menntun, sjálfbær þróun og velferð komandi kyn- slóða. Hefst fundurinn kl. 13.15. Hagur komandi kynslóða í tengslum við málfundinn heldur Dr. Tae-Chang Kim opin- beran fyrirlestur í stofu 101 í Odda í kvöld kl. 17.15. Kvenfélag Kópavogs heldur fyrsta fund vetrarins í kvöld kl. 20.30. Mörg mál á dag- skrá. Rúntur Fordbílaklúbburinn fer sína síðustu ferð í sumar í kvöld kl. 20.30. Mæting í Geirsgötu. Hjólað niður Fossvogsdal Áhugahópur um hjólreiðar stendur fyrir hjólreiðaferð niður Fossvogsdal og út á Seltjarnar- nes í kvöld. Mæting við Fáks- húsið kl. 20.15. Blome á Tveimur vinum: Efni af nýrri plötu kyrnit Stutt er síðan gefin var út geisla- platan The Third Twin sem er frumraun íslensku hljómsveitar- innar Blome. Af því tilefni heldur sveitin útgáíútónleika í kvöld á Tveimur vinum við Frakkastig. Þar verður efni plötunnar kynnt Skemmtanir auk þess sem nokkur ný lög fljóta með. Ef strákarnir verða heitir er aldrei að vita nema þeir taki nokk- ur þekkt lög að auki. Meölimir Blome eru þeir Grétar Már Ólafs- son, bassi, Hólmsteinn Ingi Hall- dórsson, trommur, ívar Páll Jóns- son, gítar og söngur og Pétur Þór ar verður hljómborðsleikarinn Fríða María Harðardóttir. Tónleik- Sigurðsson, gitar. Þeim til aðstoð- Rafn Jóhannesson og söngkonan arnir hefjast kl. 23.00. Vegavinnuflokk- ar víða við vinnu Þjóðvegir landsins eru í góðu ásigkomulagi um þessar mundir, það eru þó vegavinnuflokkar að vinna að lagfæringu á nokkrum stöðum, má nefna að á Norðaustur- landi gætu orðið umferðartafir af Færð á vegum þessum sökum á leiðinni Keldu- hverfi-Kópasker. og Raufar- höfn-Þórshöfn. Þá eru einnig flokk- ar að störfum á Vopnafjarðarheiði og á leiðinni Hofsós-Siglufjörður. Hálendisvegir eru enn í sumar- búningi og eru allir færir, en flestar leiðir þó aðeins fjallabílum. Vert er að minna bílstjóra á að vera vel búnir til aksturs á fjallvegum. Bróðir Erlu Mjallar og Tómasar Arons Litli drengurinn, sem sefur vært á myndinni, fæddist á fæðingar- deild Landspítalans 8. september kl. 0.58. Hann var 5000 grömm þeg- Barn dagsins ar hann fæddist og 54 sentímetra langur. Foreldrar hans eru Laufey Benediktsdóttir og Tómas S. Tóm- asson. Hann á tvö systkin, tví- burana Erlu Mjöll og Tómas Aron, sem eru fimmtán mánaða gamlir. Steven Seagal kann ýmislegt fyr- ir sér í slagsmálum. Umsátrið 2 Sam-bíóin sýna í Bíóborginni og Saga-bíó nýjustu kvikmynd Steven Seagal, Umsátrið 2. í myndinni leikur Seagal í annað sinn fyrrum sérsveitarmann og núverandi kokk sem búinn er að koma sér vel fyrir í Denver þar sem hann rekur vinsælan veit- ingastað. Hann fréttir að bróðir hans hafi látist og er það hans verk að sjá um unga bróðurdótt- ur sína og gerist hann fylgdar- syeinn hennar í ferð frá Denver til Los Angeles í járnbrautarlest. Um borð í lestinni er hópur manna sem rænir lestinni. Þeir þurfa að vera á ferð ef þeir eiga að geta náð stjórn á hættulegasta vopni himingeimsins. Allt geng- ur samkvæmt áætlun í byrjun, en það er þeirra óheppni að um Kvikmyndir borð er maður sem kann ýmis- legt fleira fyrir sér en að kokka. Steven Seagal hefur orðið tölu- vert ágengt i kvikmyndaheimin- um. Hans besta kvikmynd hing- að til er Under Siege, sem leik- stýrt var af Andrew Stevens (The Fugitive). Leikstjóri Under Siege 2 er Nýsjálendingurinn Geoff Murphy. Nýjar myndir Háskólabíó: Casper Laugarásbíó: Dredd dómari Saga-bíó: Bad Boys Bíóhöllin: Ógnir í undirdjúpun- um Bíóborgin: Umsátrið 2 Regnboginn: Braveheart Stjörnubíó: Tár úr steini Gengið Almenn gengisskráning LÍ nr. 224. 21. september 1995 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 65,160 65,500 65,920 Pund 102,010 102,530 102,230 Kan. dollar 48,030 48,330 49,070 Dönsk kr. 11,6000 11,6620 11,5690 Norsk kr. 10,2800 10,3370 10,2540 Sænsk kr. 9,2510 9,3020 9,0210 Fi. mark 15,0220 15,1110 15,0930 Fra. franki 13,0510 13,1260 13,0010 Belg. franki 2,1894 2,2026 2,1824 Sviss. franki 56,3900 56,7000 54,4900 Holl. gyllini 40,2200 40,4600 40,0800 Þýskt mark 45,1000 45,3300 44,8800 It. líra 0,04025 0,04050 0,04066 Aust. sch. 6,4090 6,4490 6,3830 Port. escudo 0,4309 0,4335 0,4323 Spá. peseti 0,5238 0,5270 0,5246 Jap. yen 0,64350 0,64740 0,68350 Irskt pund 104,240 104,890 104,620 SDR 96,86000 97,44000 98,52000 ECU 83,9800 84,4900 84,0400 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270. Krossgátan 1 n r T~ 8 1 T~ \ó TT1 JT“ /*/• '5 1 Ite 17 ,s\ 14 $ 5/ '12 Lárétt: 1 kák, 5 kraftar, 8 galgopi, 9 sveifla, 10 fugla, 11 riftu, 12 komast, 14 tel, 16 skynjaði, 17 ásaka, 19 ilmefni, 21 angra, 22 rimi. Lóðrétt: 1 hæfur, 2 önug, 3 venjur, 4 boltar, 5 hvatning, 6 þjóð, 7 þreyta, 11 andi, 13 keraldið, 15 dimmviðri, 18 fljót- um, 20 umdæmisstafir. Lausn á siöustu krossgátu. Lárétt: 1 gyltan, 8 ofur, 9 fet, 10 sig, 11 ýttu, 12 druna, 13 et, 14 ætli, 16 nit, 17 sa, 18 Jónsi, 20 kálfar. Lóðrétt: 1 gos, 2 yfirtak, 3 lugu, 4 trýni, 5 aftann, 6 net, 7 stuttir, 12 dæsa, 13 eisa, 15 ljá, 19 ól.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.