Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1995, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1995, Page 2
22 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1995 fþróttir DV í heimsókn hjá Guðna Bergssyni, atvinnuknattspyrnumanni hjá Bolton: Átti það inni hjá sjálf um mér að gefa þessu annað tækifæri Guðni Bergsson, landsliðsfyrirliði íslendinga í knattspyrnu, hefur verið að gera góða hluti með enska úrvals- deildarliðinu Bolton Wanderers. Hann skrifaði undir eins árs at- vinnumannssamning við félagið í fyrra og á eftirminnilegan hátt tókst Bolton-liðinu að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir að liðinu hafl ekki vegnað vel á nýbyrjaðri leiktíð hefur Guðni verið að leika vel. DV heimsótti Guðna og fjöl- skyldu hans þar sem þau búa í Bol- ton eftir heimaleik hðsins gegn QPR um síðustu helgi. Bolton tapaði leiknum, 0-1, en Guðni stóð fyrir sínu og var eiim besti maður liðsins. Er mjög dús við laun mín „Ég kann mjög vel við klúbbinn en það á eftir að koma í Ijós síðar á tíma- bihnu hvort ég verð hér áfram. Ef ég verð í boltanum hér í Englandi áfram þá vil ég bara leika í úrvals- deildinni. Ég vona að viö förum að ná í fleiri stig og náum að vera áfram í úrvalsdeildinni því ég gæti vel hugsað mér að vera hér áfram nema eitthvað spennandi komi upp. Þó svo að ég hafi minna upp úr krafsinu hjá Bolton en Tottenham er ég mjög dús við laun mín.“ Guðni datt óvænt inn í atvinnu- mennskuna árið 1989. Honum var boðið að æfa með stórliði Tottenham og í kjölfarið var honum boðinn samningur. Guðni var hjá Totten- ham í rúm fjögur ár og þar kynnist hann öllum hliðum atvinnumennsk- unnar, bæði góðum og slæmum. Erf- ið meiðsli í baki urðu til þess að hann ákvað að koma heim og á tímabih óttaðist hann að geta ekki leikið knattspymu framar. Eftir tíðar heimsóknir til lækna og sjúkraþjálf- ara kom spranga í ljós í einum hryggjarhðnum en með þrotlausum styrktaræfingum tókst honum að komast á fætur á ný. Hann lék með Valsmönnum í 1. deildinni í fyrra og um haustið fór hugur hans að stefna að nýju í atvinnumennskuna. „Tíminn hjá Tottenham var blend- inn. Maður náði aldrei að verða fastamaður í hðinu og auðvitað fór það í taugarnar á mér. Mér fannst ég hafa getu og burði til að vera í lið- inu og eftir að ég lenti í þessum bak- meiðslum var ég látinn fara í kjölfar- ið. Mér fannst ég því eiga það inni hjá sjálfum mér að gefa þessu annað tækifæri. Ég hafði þá trú að ef ég fengi að spila þá stöðu sem ég vhdi spila gæti ég sýnt hvað í mér býr;“ Oft álag og mikil pressa - Er atvinnumennskan púlvinna? „Nei, ég myndi ekki segja það. Ég held að maður geti sagt það með góðri samvisku miðað við það sem fólk þarf að leggja á sig svona al- mennt eins og heima á íslandi. Fólk heima þarf að hafa mikið fyrir því að lifa, vinna jafnvel í 12-14 tíma á sólarhring. Það er samt ákveðið álag í atvinnumennskunni. Það er pressa á manni, bæði líkamleg og andleg. Maður þarf að halda stöðu sinni og standa sína plikt. Miðað við hvað kemur inn í þetta, launin, frítíminn og tíminn með fjöldskyldunni verður maður að teljast nokkuð lukkulegur að fá að prófa þetta starf." Aðspurður hvort hann hafi í hyggju að snúa sér að þjálfun eftir aö ferhnum lýkur segir Guðni: „Nei, ég verð nú að segja að það hef- ur ekkert verið að trufla mig. Ég hef haft augastað á lögfræðinni í nokkuð langan tima en þjálfun og lögfræði fara ekki vel saman. Menn sem þjálfa í dag þurfa að gefa sig það mikið í það. Ég gæti eflaust þjálfað ágætlega en ég sé það samt ekki eiga við mig og það heillar mig ekkert.“ Hvet alla til að prófa atvinnu- mennsku Alla unga knattspyrnumenn dreymir um að verða atvinnumenn en Guðni segist sjálfur ekki hafa hugleitt það þegar hann var strákur. „Það stefndi í raun og veru allt í það aö ég myndi velja handboltann sem Guðni er hér með nýja fjölskyldumeðliminn, hundinn Depil. Guðni er hér i baráttunni með Bolton i leik gegn QPR um síðustu helgi. Með honum á myndinni er Steve McA- nespie sem var að leika sinn fyrsta leik með Bolton en hann lék áður með Raith Rovers, andstæðingum ÍA í Evrópukeppninni. DV-myndir Brynjar Gauti íþrótt númer eitt og það var ekki fyrr en ég fékk óvænt tækifæri árið 1983 með meistaraflokki Vals í knatt- spyrnu að ég valdi fótboltann. Ef ungir strákar eða stelpur fá tækifæri til aö fara út og reyna sig í atvinnu- mennskunni hvet ég þau til að prófa það. Ég held að það geri öllum gott að prófa að búa erlendis. Það víkkar sjóndeildarhringinn og er þroskandi fyrir hvern sem er. Þetta er mjög spennandi og svo getur þetta gefið mjög vel fjárhagslega." Guðni, konan hans, Elín Konráðs- dóttir, og sonur þeirra, Bergur Guðnason, sem er tveggja og hálfs árs, eru mjög ánægð með dvölina í Bolton sem er 300.000 manna bær, stærsta „kauptún" í Bretlandi. Elín er heimavinnandi húsmóðir og Berg- ur er hálfan daginn á leikskóla. Fjöl- skyldan getur verið mikið saman og það segja þau vera mikinn plús. Guðni æfir ahtaf fyrir hádegi og er því heima allan daginn frá hádegi. Elín er félagsráðgjafi og ætlar að mennta sig meira í faginu í vetur þegar hún sækir háskólann í Manc- hester. Guðni á bara eftir að semja lokaritgerðina í lögfræðinni og þá hefur hann lokiö sínu námi. „Bergur er í leikskóla fyrir hádegi en stundum frnnst manni svona í eftirmiðdaginn að hann vanti félags- skap sem við reynum að bæta úr. Ég held samt að barnamenningin sé meiri heima á íslandi en hér úti. Bergur er sáttur og glaður og það er eitt af þessum stórum málum gagn- vart okkur. Ef við finnum að hann er sáttur verðum við frekar hér áfram. Viö myndum aldrei vera með hann hér úti ef viö fyndum að hann væri vansæll," segir Guðni. Guöni segir að það sé mikið atriði að eiga maka til stuðnings í þessu, bæði á góðum og slæmum stundum. „Eha hefur farið í gegnum allar sveiflurnar upp og niður í gegnum tíðina með mér og þar fyrir utan er hún orðin mjög góður „krítiker" og hefur mikiö vit á fótboltanum. Er ekki alltaf dans á rósum Mér hefur fundist þetta gott tæki- færi til að búa erlendis. Þetta er að mörgu leyti sérstakt líf. Það er mikið og gott fjölskyldulíf hjá okkur en þetta hefur sína kosti og galla eins og allt annað. Fjölskyldumar okkar og vinir eru heima á íslandi svo að við erum mikið bara þrjú og það get- ur oft verið svolítið tómlegt. Fólk sem er heima lítur á þetta sem mikinn lúxus en þetta er ekki alltaf dans á rósum,“ segir Elín. Guðni Bergsson, kona hans, Elín Konráðsdóttir, og sonurinn Bergur Guðna- son fyrir utan heimili þeirra í Bolton. Svo skemmtilega vill til að fjölskyldur þeirra heima á íslandi sáu Berg litla fyrst á Ijósmynd í DV sem tekin var skömmu eftir að hann kom í heiminn. Mikil tímamót þegar ég verð leiddur upp á svið í Höllinni „í náinni framtíð vonast ég til að verða leiddur upp á svið í Höhinni til að ná í mína gráðu. Það verða mikil tímamót því þetta nám hefur tekið dágóðan tima, fyrst og fremst vegna fótboltans," segir Guðni. Guðni segir að vegna smæðar klúbbsins og þar sem bærinn er ekki stærri en raun ber vitni sé auðveld- ara fyrir leikmenn og fjöldskyldur að blanda geði og halda hópinn held- ur en hjá Tottenham. Guðni og Elín segja það alveg á- gætt að ala upp barn í Englandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.