Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1995, Síða 3
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
írírír
Undirleikarinn
L’accompagnatrice er áhrifamikil kvikmynd
meö þrjár aöalpersónur sem skila sér ákaflega
skýrt í vel uppbyggðri sögu frá árum seinni heims-
styrjaldarinnar. Sophie er ungur pianóleikari sem
fær vinnu hjá frægri óperusöngkonu sem undir-
leikari og félagi. Óperusöngkonan gerir miklar
kröfur og er eiginmaðurinn ekki undanskilinn
kröfum hennar, en hann tilbiður hana og Sophie
dýrkar hana til að byrja með. Stríðið gerir það að
verkum að þau flýja til London. Þar kemst Sophie
að því að húsmóðir hennar á sér elskhuga sem hún
hefur haldið við í mörg ár. Sophie, sem þykir ekki
síður vænt um húsbónda sinn, kvelst af vitneskj-
unni og á í tilfinningabaráttu á sama hátt og hús-
bændur hennar. L’accompagnatrice er ákaialega
falleg og ljúf kvikmynd þar sem falleg tónlist um-
lykur hinar áhugaverðu persónur myndarinnar og
er tengiliður við þær tilfinningar sem bærast með þeim. Leikur er allur til fyr-
irmyndar og þar fer fremst hin unga leikkona Romane Bohringer sem nær ein-
staklega vel að lýsa geðhrifum Sophie í fáum orðum.
L'ACCOMPAGNATRICE - Útgefandi: Skífan.
Leikstjórí: Claude Miller.
Aðalhlutverk: Rlchard Bohringer, Elena Safnova og Romane Bohrínger.
Frönsk, 1993. Sýningartíml 111 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -HK
1 aiYompagnatncf
The Scarlett Lettef er nýjasta kvikmynd Demi Moore.
Ólíkir bræður
Michael og Matthew eru ólikir bræður sem búa
saman. Sá eldri, Michael, er metnaðargjarn auglýs-
ingamaður sem allt gengur í haginn fyrir, bæði í
vinnu og i einkalífi, en unnusta hans Natalie er
samt ekki sátt við hann þar sem hann lætur yfir-
leitt vinnuna ganga fyrir. Matthew er af ööru
sauðahúsi, rómantiskur hugsjónamaður, sem hefur
hæfileika sem gætu nýst bróður hans vel i starfi,
en þrátt fyrir kostaboð vill hann frekar vera sund-
laugavörður. Þeir bræður eru tengdir sterkum fjöl-
skylduböndum en stutt er síðan faöir þeirra lést af
slysförum og hvílir sá atburður eins og skuggi yflr
Matthew, sem kennir sér um hvemig fór. Hinn
rómantiski Matthew verður fljótt hrifinn af Natalie
og hún dregst óviljandi að honum og á þetta eftir
að skapa mörg vandamálin. Radio Inside er vel
gerð og leikin kvikmynd. Efhið býður upp á að
myndin verði um of melódramtísk, en leikstjóranum og handritshöfúndinum
Jeffrey Bell tekst að losna við allt slikt og hefur gert áhugaverða mynd um
samband þriggja einstaklinga, þar sem samviska og heiðarleiki er ofar öllu.
RADIO INSIDE - Útgefandl: Myndform.
Leiksfjórí: JeHrey Bell.
Aðalhlutverk: Wllliam McNamara, Elizabeth Shue og Dylan Walsh.
Bandarísk, 1994. Sýnlngartíml 94 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -HK
. ' -
Hættulegur maður
Paul Killgrew virðist í fyrstu vera hinn besti
drengur og er góður við vini sína á raunastund. En
það sem vinafólk hans ekki veit er að hann er or-
sök harma þeirra. í byijun Circumstances
Unknown fylgjumst við með þegar hann drekkir
unnustu besta vinar síns og er sakleysið uppmálað
viö jarðarförina. Tíu árum síðar rekur Paul Kill-
grew skartgripaverslun og Ijóst er að sumir við-
skiptavinimir, eingöngu stúlkur, hafa mætt örlög-
um sínum við kyimi sín af honum. Þegar besti vin-
ur hans, sem átti unnustuna sem Paul kom fyrir
kattamef segir Paul að hann ætli ásamt eiginkonu
sinni að eyða sumarfríinu á heimaslóðum ákveður
Paul að slást í för með þeim. Honum líkar illa sú
hamingja sem skín úr augum þeirra. Circum-
stances Unknown er ein þeirra sakamálamynda
þar sem aldrei er spuming um morðingjann heldur felst spennan í nálægð
hans við fómarlömbin. Judd Nelson nær ágætlega að gera hinn sálsjúka Paul
ógnandi og þessi fyrrum táningastjama hefúr sjálfsagt aldrei leikiö betur og á
stóran þátt í að spenna helst alla myndina.
CIRCUMSTANCES UNKNOWN - Útgefandl: ClC-myndbönd.
Lelkstjórí: Robert Lewis.
Aðalhlutverk: Judd Nelson, Isabel Glasser og Willlam R. Moses.
Bandarísk, 1995. Sýningartími 96 mín. Bönnuð bömum Innan 16 ára. -HK
Krókur á móti bragði
Adam Trent er hugmyndaríkur snillingur meö-
al glæpamanna. Hann nær samt ekki að forðast
lögin þegar tveir félagar hans segja til hans eftir
stórrán þar sem hann hafði sex milljónir dollara
upp úr krafsinu. Er hann dæmdur til fangelsisvist-
ar. Lögreglan veit ekki hvar þýfið er og til að nálg-
ast það er ungri konu platað inn á Trent, konu
sem segist vera fúlltrúi glæpahóps sem geti frelsað
hann fyrir borgun. Trent samþykkir þetta að sjálf-
sögöu og er frelsinu feginn. Enn einu sinni hefur
samt lögreglan vanmetið Trent og kemst hann
undan henni. Lögreglan með svarin óvin Trents,
John Hobart, í fararbroddi, gefst ekki upp og mikið
vatn rennur til sjávar áður en óvæntur endir
myndarinnar kórónar skemmtilega og flókna sögu.
Soft Deceit er hröð og spennandi, tekur óvænta
stefú í hvert skipti sem eitthvað gerist. Helsti galli
myndarinnar er hinn sviplausi Patrick Bergen, sem nær aldrei almennilega
sambandi við persónuna, en Kate Vemon í hlutverki lögreglukonunnar Anne
Fowler er aftur á móti góð og er þar framtiðarleikkona á ferð.
SOFT DECEIT - Útgefandi: Sktfan.
Lelkstjóri: Jorge Montesl.
Aðalhlutverk: Patríck Bergen, Kate Vemon og John Wesley Shipp.
Bandarísk, 1994. Sýnlngartiml 91 mín. Bönnuð bömum Innan 12 ára. -HK
Demi Moore:
Áberandi og
ákveðin leikkona
Demi Moore er hæst launaða léik-
konan í Hollywood og er ein af örfá-
um sem getur farið fram á sömu
upphæð og karlstjörnur af hennar
stærðargráðu fá. Það er ekki erfitt
að skilja þetta þegar litið er á hvað
nokkrar af síðustu kvikmyndum
hennar; Ghost, A Few Good Men,
Indecent Proposal og Disclosure,
hafa halað inn af dollurum en sam-
tals er innkoman 1,2 milljaröar doll-
arar. Þaö eru samt ekki allir leik-
stjórar sem vilja vinna með henni.
Hún hefur orð á sér fyrir að vera
erfið og stjómsöm.
Það mætti ætla að Demi Moore
hefði allt sem hugurinn gimist. Hún
á frægan og myndarlegan eigin-
mann, Bmce Willis, tvö ung böm og
dásamlegt heimili, eins og hún segir
sjálf. En lífið hefur ekki alltaf verið
dans á rósum hjá henni. Þegar hún
var sextán ára að aldri hætti hún í
skóla og fór að heiman. Ástæðan
var að foreldrar hennar vom bæði
drykkjufólk, höfðu tvisvar skilið en
tekið saman aftur, verið í stanslaus-
um flutningum. Hún hélt þó sam-
bandi við foreldra sína þangað til
faðir hennar framdi sjálfsmorð þeg-
ar hún var átján ára gömul. Sam-
bandið við móður hennar var alltaf
stirt og í dag talast þær ekki við.
Þegar Roland Joffe, leikstjóri The
Scarlett Letter, nýjustu kvikmyndar
Demi Moore, var spurður hvort
ekki væri erfitt að vinna með henni,
sagði hann svo ekki vera: „Ég hef
orðið var við það áður með fólk,
sem á að baki lífsreynslu eins og
Demi Moore, þar sem engin ham-
ingja var í æsku og annað foreldrið
framdi sjálfsmorð, að það verður
eins og tvískiptur persónuleiki.
Demi getur verið erfið og þrjósk en
hún er oflar mjög gefandi, skemmti-
leg og opin, manneskja sem dásam-
legt er að vinna með.“
Lék fyrst í sápuóperu
Demi Moore vakti fyrst athygli
þegar hún fékk hlutverk í sápuóper-
unni General Hospital. Framleið-
andinn sem réð hana segir að það
hafi ekki verið nein hrifning með
frammistöðu hennar í byrjun og var
það aðallega röddin sem fór í taug-
amar á sumum. Hún vann þó á og
þegar hún yfirgaf þáttaröðina voru
margir á því að hún myndi gera það
gott. Einn mótleikari hennar segir
að það hafi fljótt komið í ljós að litli
skermurinn rúmaði ekki svona
stóra manneskju.
Demi More var þó nánast á göt-
unni þegar leikstjórinn kunni, Joel
Schumacher, rakst á hana í orðsins
fyflstu merkingu fyrir framan skrif-
stofu sína í Universal kvikmynda-
verinu. Hann var þá að leita að lei-
kurum í St. Elmo’s Fire. Það var
eitthvað í fari hennar sem heillaði
Schumacher svo að hann sagði að-
Demi Moore í hlutverki Meredith
Johnson í Disclosure.
stoðarmanni sírium að hafa uppi á
henni og athuga hvort hún væri
leikkona. Þá hafði Demi Moore leik-
ið smáhlutverk í nokkrum kvik-
myndum.
Schumacher réö hana en rak
hana næstum eins fljótt aftur. Það
kom í ljós að Moore var uppdópuð í
prufútökum og Schumacher sagði
við hana að hann ætlaði ekkert að
fara að gefa henni fúflt af peningum
svo hún gæti drepið sig. Hún grát-
bað hann um að ráða sig aftur sem
og hann gerði eftir að hún hafði far-
ið í meðferð. En Schumacker réð
hana ekki aftur fyrr en hann hafði
gengið úr skugga um það á hælinu
sem hún var á að alvara hefði verið
i meðferðinni.
í St. Elmos Fire voru margir ung-
ir og efriilegir leikarar sem siðar
gengu undir nafiiinu The Brat Pack,
þar sem þau voru mikið saman að
skemmta sér. Enginn þeirra hefur
samt náð að komast á toppinn nema
Demi Moore. Að vísu lék Andie
MacDowell lítið hlutverk í mynd-
inni en hún var aldrei talin með
hópnum.
Fær metfé fyrir að
leika í Striptease
Um síðustu helgi var ffumsýnd í
Bandaríkjunum nýjasta kvikmynd
Demi Moore, The Scarlett Letter, og
var aðsóknin ekkert til að hrópa
húrra yfir en mynd þessi er gerð eft-
ir klassískri skáldsögu. Leikur Mo-
ore Hester Prynne, konu sem dæmd
er fyrir hórdóm, og er hún dæmd til
að vera alltaf meö stafinn A í rauðu
framan á sér svo að allir sjá sekt
hennar. í byrjun nóvember verður
svo frumsýnd Now and Then en þar
leika þær stöllur Demi Moore, Mel-
anie Griffith, Rosie O’Donnell og
Rita Wilson fjórar vinkonur sem
hittast eftir langan aðskilnað og
rifja upp bemskuminningar. Þetta
er fyrsta kvikmyndin sem nýstofnað
fyrirtæki hennar kostar og er Demi
Moore titluð framleiðandi. Moore er
einnig nýbúin að leika í kvikmynd
sem heitir Juror. Þar leikur hún
dómara í máli yfir mafíuforingja
sem Alec Baldwin leikur. Næsta
mynd hennar er svo Striptease og
ganga þær sögur að hún fái 12 miflj-
ónir dollara fyrir að leika í mynd-
inni sem er það mesta sem nokkur
leikkona hefúr fengiö fyrir eitt hlut-
verk. Hér á eftir fer listi yfir þær
kvikmyndir sem Demi Moore hefur
leikið í:
Parasite, 1982
Young Doctors in Love, 1982
Blame It on Rio, 1984
No Small Affair, 1984
St. Elmo’s Fire, 1985
About Last Night... 1986
One Crazy Summer, 1986
Wisdom, 1986
The Seventh Sign, 1988
We’re No Angels, 1989
Ghost, 1990
Nothing But Trouble, 1991
Mortal Thoughts, 1991
The Butcher’s Wife, 1991
A Few Good Man, 1992
Indecent Proposal, 1993
Disclosure, 1994
The Scarlett Letter, 1995
oJjjaLb
Besta verðið á videóspólum
- og ekki á kostnað gæðanna.
Universum er þýsk gæða-
framleiðsla frá Quelle.
180 mín. á kr. 299
240 min, á kr. 399
Spólurnar eru til i verslun okkar.
/
Landsbyggðarfólk ath.
Pantið nýja
Quelle haust-
og vetrarlistann
á kr. 600
og fáið spólurnar
um leið án
sérstaks
burðargjalds.
S&æfe
Verslun, Dalvegi 2, Kópavogi
Pöntunarsími 564 - 2000