Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1995, Blaðsíða 12
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
3
26
4!ffifomvndir
SAGA-BIO Sími 587 8900
Hlunkarnir ★
Lítt fyndin mynd um nokkra feita stráka í sumarbúðum sem vilja frekar úða í
sig ruslfæði en að hreyfa sig. Reynt að fara milliveginn og gera ekki lítið úr
hlunkum á kostnað líkamsræktar en það virkar ekki. -HK
Umsátriö 2 ★★
Hasarmynd með atriðum þar sem tæknibrellum er beitt til hins ýtrasta, en
myndin er þeim annmörkum háð sem oft einkennir framhaldsmyndir, hún
þjáist af hugmyndaskorti. -HK
BÍÓBORGIN Sími 5511384
Brýrnar í Madisonsýslu ★★
Skynsamlég og vel heppnuð útfærsla Clints Eastwoods á einfaldri en heillandi
sögu um stutt ástarævintýri. Afburða leikur Clints Eastwoods og Meryl Streep.
Fulllöng og því nokkuð langdegin. -HK
Englendingurinn kkk
Bráðskemmtileg mynd um stolta þorpsbúa í Wales sem ætla sko ekki að láta
einhverja enska landmælingamenn breyta fjallinu þeirra ástsæla í hæð, bara
af þvi að nokkra metra vantar upp á að það geti fengið löggildingu. -GB
Dle Hard with a Vengeance ★★
Súperlöggan John McClane berst timbraður gegn skæruliðaflokki í New York
og hefur betur. Mikið sjónarspil en lapþunnt efni. Leikarar hafa greinilega
gaman áf og áhorfendum ætti ekki að leiðast heldur. -HK
BÍÓHÖLLIN Sími 587 8900
Nel er ekkert svar ★★
Hrá, en hressileg mynd sem gerist í undirheimum Reykjavikur, farið í smiðju
bandarískra kvikmynda og of mikið gert úr ofbeldi. Hljóðið er slæmt en kvik-
myndataka lífleg. -HK
Casper ★★★
Gömul saga sem færð er í nýjan búning um góða drauginn Casper sem berst
hetjulegri baráttu við að gerast vinur mannanna. Myndin er vel gerð
tæknilega séð en verður helst til vemmileg í lokin. -ÍS
Ógnir í undirdjúpunum kkk
Denzel Washington og Gene Hackman eru framúrskarandi í vel gerðum og
nokkuð spennandi hanaslag milli tveggja kafbátaforingja af gamla skólanum
og þeim nýja, sem verða að gera upp við sig hvort þeir eigi að senda
kjarnorkusprengjur á Rússland og koma þannig hugsanlega af stað þriðju
heimsstyijöldinni. -GB
Á meöan þú svafst ★★
Ljúf, rómantísk og gamansöm kvikmynd um einmana stúlku í Chicago sem
hefur fundið draumaprinsinn og bjargar honum frá því að verða undir
jámbrautarlest. Sandra Bullock, sem leikur aðalhlutverkið, á stóran þátt í
velgengni myndarinnar. -HK
Bad Boys ★
Formúluafþreying um tvær löggur sem verða að ná miklu magni eiturlyfja úr
höndum bófa sem stálu þeim frá löggunni, annars eiga þeir á hættu að missa
vinnuna. Yfirkeyrð, ófrumleg og þegar allt kemur til alls heldur leiðinleg
bíómynd. -GB
HundalírtHfy^
Klassísk teiknimynd um skemmtilega hunda sem engu hefur tapað í meira en
þrjátíu ár. íslensk talsetnjng hefur heppnast vel og eykur gildi myndarinnar
nér á landi. Mynd fyrir alla fjölskylduna. -HK
HÁSKÓLABÍÓ Sími 552 2140
Jarðarber og súkkulaöi
Framúrskarandi kúbversk mynd um umburðarlyndi þar sem sagt er frá sam-
skiptum tveggja ungra manna. Annar er forstokkaður kommi en hinn frjáls-
lyndur hommi. Þeir eru þó líkari en margan grunaði þegar flautað var til leiks.
-GB
Vatnaveröld ★★★
Dýrasta mynd allra tíma er að sönnu stórbrotin hvað alla umgjörð varðar en
því miður er efnið ekki jafn rishátt. Hér eru bara staðlaðar týpur og aðstæður í
mynd sem verður aldrei annað en miðlungsskemmtun. -GB
Indíánl í stórborginni ★★
Frakkar skoða enn einu sinni hvað gerist þegar tveir framandi menningarheim-
ar rekast.á. I þetta sinn er það indíánadrengur úr stórborginni sem kemur til
Parísar. Ýmis spaugileg atvik koma fyrir en heildin er fremur daufleg. -GB
Franskur koss ★★★
Einkar aðlaðandi, rómantísk gamanmynd um margnotað efni, þar sem Kevin
Kline og Meg Ryan búa til lifandi persónur í rómantísku andrúmslofti í
Frakklandi. -HK
LAUGARÁSBÍÓ Sími 553 2075
Apollo 13
Vel heppnað drama um eitt alvarlegasta slys í himingeimnum. Á köflum nokk-
uð langdregin, en góður leikur og vel skrifað handrit gerir það að verkum að
heildin er mjög sterk. -HK
Dredd dómarl ★
Hámarksdýrkun á Sylvester Stallone gerir öllum erfitt fyrir og greinilegt er
hver það er sem heldur um stjórnartauminn. Tilkomumiklar sviðsetningar
verða leiðigjamar þegar á líður. -HK
Payne major ★
Damon Wayans er einhver lélegasti leikari í Hollywood um þessar mundir og
stendur fyrir einhverri verstu mynd sem sést hefur í manna minnum um
tilraunir drápsvélar úr hernum til að gera menn úr skóladrengjum. -GB
REGNBOGINN Sími 551 9000
Ofurgengið ★
Tæknibrellur og ofurhraði allsráðandi 1 enn einni unglingamyndinni sem bygg-
ir á tölvuleik eða einhveiju ámóta. Hér eru það sex hressir krakkar sem beij-
ast gegn illum öflum og hafa sigur. Heldur ómerkilegt. -GB
Braveheart ★★★
Mel Gibson hefur svo sannarlega gert stórmynd að öllu umfangi með frásögn
sinni af skosku frelsishetjunni William Wallace sem lifði eitthvað fram á 14.
öldina en sverðaglamur ber mannlega þáttinn ofurliði. Útkoman verður því
veikari en efni stóðu til. -GB
Dolores Clalborne ★★★
Stephen King á jarðbundnum nótum. Vel heppnaður sálfræðiþriller þar sem
leikarar fara á kostum með Kathy Bates fremsta, í hlutverki sem er eins ög
skapað fyrir hana. -GB
STJÖRNUBÍÓ Sími 551 6500
Kvlklr og dauöir ★★★
Sharon Stone leikur byssufima unga konu í hefndarhug í dæmigerðum spaget-
tívestrabæ og etur kappi við margan ljótan kallinn í byssuleik en takmarkið er
óþokkinn Gene Hackman. Þokkalegasta mynd þegar best lætur en á köflum of
einhæf og teygð. GB
Tár úr stelnl ickici.
Sérlega vönduð og vel heppnuð kvikmynd og ein allra besta íslenska
kvikmyndin. Mannlýsingár eru sterkar og kvikmyndataka frábær. Tár úr
steini er kvikmynd sem snertir mann og gefur mikið frá sér -HK
Elnkalíf ★★★
Skondið fjölskyldulíf séð með augum þriggja ungmenna. Bráðfyndin atriði inn
á milli og góður leikur en ofnotkun á táknrænum gömlum myndskeiðum gerir
myndina sundurleita. -HK
í Bandaríkjunum
- helgina 13. til 15. okt. í millj. dollara -
Linda Fiorentino og Chazz Palminteri leika Ssamt
David Caruso í sakamálamyndinni Jade.
Svört helgi í Hollywood
Þessa dagana er mikið stress í gangi hjá kvikmyndarisunum í
Hollywood eftir verstu helgi ársins og sjálfsagt eru margar
afsakanir komnar á yfirborðið. Þrjár stórar og dýrar
kvikmyndir voru frumsýndar um helgina og náði engin þeirra
umtalsverðri aðsókn og enn eina vikuna situr Seven í
toppsætinu og siglir lygnan sjó ef dæma má viðtökur nýju
myndanna. Jade gerði það best en rétt rúmar íjórar milljónir í
kassann er ekki mikið og má segja að mýnd þessi sanni
endanlega að handritshöfundurinn Joe Eszterhas sé
ofmetnasti handritshöfundur sem nú er uppi. Litlu skárri voru
viðtökurnar á The Scarlett Letter, sem er nýjasta kvikmynd
Demi Moore, en sú mynd gæti þó sótt á ef gagnrýnin er
vinsamleg. Strange Days er svo þriðja stóra myndin sem ekki
náði hylli almennings. Eins og áður segir veltir Hollywood nú
vöngum yfír hvað fór úrskeiðis en þeir sem standa utan við
framleiðsluna segja að allt og margar líkar kvikmyndir hafi
litið dagsins ljós á þessu ári.
1 (1) Seven 8,6 57,7
2 (2) Assassins 5,9 18,5
3 (3) Dead Presidents 4,5 15,4
4 (5) How to Make an American Quilt 4,3 12,2
5 (-) Jade 4,2 4,2
6 (-) The Scarlet Letter 4,1 4,1
7 (4) To Die for 4,0 12,8
8 (-) Strange Days 3,6 3,7
9 (6) The Big Green 2,6 13,1
10 (7) Devii in the Blue Dress 2,0 12,9
11 (8) Halloween: The Curse 1,4 13,0
12 (11) Dangerous Minds 1,3 78,4
13 (9) To Wong Foo. . . 1,2 32,9
14 (-) Apollo 0,8 168,7
15 (12) Pocahontas 0,7 139,2
16 (10) Showgirls 0,7 19,3
17 (13) The Usual Suspect 0,6 20,2
18 (14) Unstrung Heroes 0,5 7,1
19 (15) Babe 0,5 52,8
20 (18) The Indian in the Cupboard 0,4 33,7
Jodie Foster
leikstýrir
Holly Hunter
í lok nóvember verður frum-
sýnd Home for the Holidays, sem
er önnur kvikmynd Jodie Foster
sem leikstjóra og með aðalhlut-
verkið fer Holly Hunter. Leikur
hún einstæða móður sem reynir
að flýja tilbreytingarsnautt lif
sitt. Áður hefur Jodie Foster
leikstýrt Little Man Tate þar sem
hún lék einnig aðalhlutverkið.
Nú er Foster aðeins á bak við
kvikmyndavélina. Auk Holly
Hunter leika í myndinni Robert
Downey jr., Anne Bancroft, Dyl-
an McDermott, Geraldine
Chaplin, Steve Guttenberg og
Charles Durning.
Þrjár óskir
Síðustu kvikmyndir Patrick
Swayze hafa ekki gengið vel og
það var ekki fyrr en hann brá
sér í kvenmannsfót í To Wong
Foo, Thanks For Everything,
Julie Newmar að kvikmynd með
honum gekk vel. í næstu mynd
sinni, Three Wishes, fær hann
öllu karlmannlegra hlutverk þótt
enn sé hann á mjuku nótunum.
Leikur hann mann sem enginn
veit neitt um, mann sem kemur
inn í líf ungrar konu sem ekki
hefur átt mikilli hamingju að
fagna í lífinu. Veitir hann henni
huggun og tilgang með góðsemi
og skilningi. Það er Mary Eliza-
beth Mastrantonio sem leikur
konuna en leikstjóri er Martha
Coolidge (Rambling Rose).
Fjórar vinkonur
í Now and Then leika Demi
Moore, Melanie Griffith, Rosie
O’Donnell og Rita Wilson fjórar
vinkonur sem hittast og rifja upp
þegar þær voru ungar. þessar
frægu leikkonur eru aðeins í
aukahlutverkum í myndinni því
aðalleikarar eru hinar ungu
leikkonur Christina Ricci, Thora
Birch, Gaby Hoffmann og As-
hleigh Aston Moore sem þrátt
fyrir ungan aldur eiga að baki
leiki í mörgum kvikmyndum.
Leikstjóri myndarinnar er nýlið-
inn Lesli Linka Glatter en Demi
Moore er framleiðandi.
Laurence
Fishburne leikur
Othello
Laurence Olivier og Orson
Welles hafa báðir leikið Othello í
kvikmynd, en aldrei hefur svart-
ur leikari leikið márann fyrr en
nú að Laurence Fishburne fær
tækifæri til að leika hann i
fyrstu kvikmynd hins unga leik-
stjóra, Olivers Parker. í hlut-
verki hins slæga Iago er Kenneth
Brannagh sem hefur orðið
reynslu í að leika Shakespeare-
hlutverk í kvikmyndum, og hin
fagra Desdemona er leikin af
frönsku leikkonunni Irene Jacob.
Ný íslensk kvikmynd:
Benjamín dúfa
Það er stutt á milli frumsýninga á íslenskum kvik-
myndum þessa dagana. Þrjár íslenskar kvikmyndir
eru sýndar í kvikmyndahúsum höfuðborgarinnar,
Tár úr steini, Nei er ekkert svar og Einkalíf. Þann 2.
nóvember bætist svo enn ein við, Benjamín dúfa,
sem Gísli Snær Erlingsson leikstýrir.
Benjamín dúfa er gerð eftir samnefndri verðlauna-
bók Friðriks Erlingssonar. Minningar frá bernsku-
dögum rifjast upp þegar Benjamin (35 ára) situr á
garðbekk í hverfmu þar sem hann átti heima í æsku
og fylgist með börnum að leik. Allt er nú breytt frá
því sem áður var þegar hverfið var eins og lítil ver-
öld alveg út af fyrir sig.
Fjórir 10-12 ára drengir stofna riddarareglu, reglu
rauða drekans, til þess að berjast gegn óréttlætinu í
hverfinu sínu. Draumar þeirra og ímyndanir verða
að raunveruleika í áhyggjulausri veröld barnæsk-
unnar. En þegar athafnasemi riddarareglunnar
stendur sem hæst koma brestir í vináttuna og einn
drengjanna er rekinn úr reglunni. Fullur haturs og
hefnd í huga stofnar hann aðra riddarareglu, Svörtu
fjöðrina, til að hefja stríð gegn gömlu vinunum.
í hlutverkum drengjanna eru Sturla Sighvatsson,
Riddarareglan lætur til skarar skríða.
Hjörleifur Björnsson, Sigfús Sturluson og Gunnar
Atli Cauthery. Af öðrum leikurum má nefna Guð-
mund Haraldsson, Elvu Ósk Ólafsdóttur, Guðbjörgu
Thoroddsen, Pálma Gestsson, Ólafíu Hrönn Jónsdótt-
ur og Ragnheiði Steindórsdóttur,