Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1995, Page 8
28
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1995
Iþróttir
Það verður gaman að
fylgjast með Chicago í
vetur með þessa tvo
snillinga, Dennis
Rodman og Michael
Jordan, innanborðs.
Spurningin er hvernig
Jordan gengur að hemja
hinn villta Rodman, en
Jordan byrjaði allavega
sjálfur á því að skora 42
stig, gegn Charlotte.
Fyrstu leikdagarnir í NBA-deildinni í körfuknattleik:
Jordan drjúgur
- skoraði 42 stig gegn Charlotte og Chicago vann líka öruggan sigur á Boston
NBA-úrslit
Aðfaranótt laugardags:
Boston-Milwaukee 100-101
% - Baker 30.
Philadelphia-Washington 105-103
Stackhouse 27, Maxwell 18.
Orlando-Cleveland 99-88
Hardaway 28, Scott 27, Grant 13.
Atlanta-Indiana 106-111
- Miiler 32.
Toronto-New Jersey 94-79
Robertson 30, Earl 16.
Detroit-New York 100-106
Hill 29 - Davis 21, Harper 20
Chicago-Charlotte 105-91
Jordan 42 - Johnson 19, Gill 17.
Houston-Golden State 110-92
Cassell 23, Olajuwon 16,
Í Drexler 16, Elie 16.
San Antonio-Dallas 97-103
- Mashbum 27.
Utah-Seattle 112-94
Malone 26, Stockton 13, Hornacek 13.
LA Clippers-Phoenix 112-106
LA Lakers-Denver 98-96
Ceballos 26, Van Exel 24.
Sacramento-Minnesota 95-86
Williams 20, Richmond 17.
Portland-Vancouver 80-92
- Benjamin 29, Scott 14.
Aðfaranótt sunnudags:
Washington-Detroit 100-89
‘ : Pack 26.
Miami-Cleveland 85-71
Danilovic 16, Mouming 15 - Hill 13.
Charlotte-Philadelphia 119-108
Johnson 22, Curry 22, Rice 21, Zidek 2),
Gill 14 - Maxwell 25.
Atlanta-Orlando 124-91
I Smith 27.
Indiana-Toronto 97-89
Miller 23, Davis 19.
Chicago-Boston 107-85
Pippen 21, Jordan 16, Longley 12.
Milwaukee-New York 71-84
- Ewing 17, Mason .15, Smith 15.
Dallas-Golden State 99-84
Jones 24 - SpreweU 18, Hardaway 18.
Denver-San Antonio 108-116
Abdul-Rauf 30 - Elliott 32, Robinson 31.
Seattle-LA Lakers 103-89
Kemp 23 - Campbell 24.
'
Michael Jordan og félagar í
Chicago Bulls eru þegar famir að
láta að sér kveða. Þeir unnu tvo
sigra um helgina, á tveimur fyrstu
leikdögum NBA-deildarinnar í
körfuknattleik, og Jordan var strax
í fararbroddi. Hann skoraði 42 stig
í öruggum sigri á Charlotte aðfara-
nótt laugardagsins, 105-91, og síðan
skoraði hann 16 stig þegar Chicago
burstaði Boston í fyrrinótt, 107-85.
Scottie Pippen meiddist í fyrri
leiknum og varð að fara af velli í
fyrsta leikhluta, en það reyndist
ekki alvarlegt og hann var í stóm
hlutverki gegn Boston. Pippen og
Jordan sátu reyndar báðir á bekkn-
um í fjórða leikhluta og létu félag-
ana um að ljúka leiknum.
Chicago, Dallas, Indiana og New
York byrjuðu tímabilið best, meö
tveimur sigrum, og lið Miami sýndi
að það verður ekki auðunnið undir
stjórn Pats Riley.
Mourning öflugur
með Miami
Miami var eina liðið sem hvíldi í
fyrstu umferðinni en í fyrrinótt
vann það Cleveland af öryggi, 85-71.
Alonzo Mouming, sem Miami
keypti frá Charlotte á fostudaginn,
var liðinu mikilvægur í sínum
fyrsta leik, varði meðal annars 5
skot og skoraði drjúgt undir lokin.
Annar nýr leikmaður, Júgóslavinn
Predrag Danilovic, var einnig öfl-
ugur í sínum fyrsta leik með Miami
en var þó rekinn af velli í fjórða
leikhluta fyrir slagsmál við Chris
Mills. Miami sýndi vamarleik sem
löngum hefur verið aðalsmerkið
hjá Riley og gaf til kynna að hann
yrði helsta vopn liðsins í vetur.
Varamaður Shaqs
skoraði 4 stig
Orlando verður að leika fyrstu
vikumar án Shaquille O’Neal, sem
er meiddur. Fjarvera hans kom
ekki að sök í fyrsta leiknum þegar
Orlando vann Cleveland, en hans
var sárt saknað í Atlanta í fyrri-
nótt því þar lá Orlando, 124-91. Atl-
anta skoraði 44 stig í þriðja leik-
hluta og stakk þá af. Varamaður
Shaqs, Jon Koncak, skoraði 4 stig.
Nýju liðin byrjuðu vel
Nýju liðin byrjuðu vel, Toronto
Raptors og Vancouver Grizzlies
unnu bæði sinn fyrsta leik. Toronto
var ekki langt frá öðrum sigri,
komst yfir undir lokin gegn Indi-
ana, 80-84, en heimaliðið skoraði 17
stig gegn 5 á lokakaflanum og vann.
Rik Smits og Derrick McKey eru
báðir meiddir en það virtist ekki há
Indiana mikið um helgina.
Leikmenn Houston fengu afhenta
meistarahringana fyrir opnunar-
leik sinn, gegn Golden State, og
unnu síðan sannfærandi sigur.
Hakeem Olajuwon lék »með
Houston, búinn að jafna sig eftir
aðgerð á olnboga sem kom í veg
fyrir þátttöku hans í McDonalds-
mótinu í London á dögunum.
Heimavellir vígðir
Boston vígði sinn nýja heima-
völl, FleetCenter, en mátti þola tap
þar gegn Milwaukee. Portland tap-
aði líka í fyrsta leiknum í nýju höll-
inni sinni, Rósagarðinum, en
Seattle vígði Key Arena með því að
vinna Lakers tiltölulega létt.
-VS
Anthony Mason og félagar í New
York byrjuðu tímabilið á tveimur
útisigrum.
Fyrsti sigurinn
Michael Campbell, efnilegur
kylfingur frá Nýja-Sjálandi, vann
sitt fyrsta stórmót þegar hann
sigraði á Alfred Dunhill Masters
mótinu sem lauk í Jakarta í
Indónesíu í gær Campbell, sem er
26 ára, fékk 4,7 milljónir króna í
sigurlaun. Hann lék á 267 höggum
en Craig Parry frá Ástralíu og
Mark Mouland frá Bretlandi léku
á 272. Ian Woosnam þótti sigur-
stranglegastur en allt gekk á aft-
urfótunum hjá honum og hann
endaði i 27. sæti með 284 högg.
Arbi vann aftur
Heimsmeistarinn í badminton,
Heryanto Arbi frá Indónesíu, sigr-
aði á opna Hong Kong mótinu
annað árið í röð þegar hann vann
landa sinn, Allan Budi Kusuma, í
úrslitaleik í gær. Leikurinn end-
aði 13-18,15-13 og 15-4.
Tennis:
Pete Sampras
efstur á ný
Pete Sampras varð 22 milljónum
króna rfkari í gær.
Bandaríkjamaðurinn Pete
Sampras komst aftur í toppsætið á
styrkleikalista Alþjóða tennissam-
bandsins í gær þegar hann vann
sigur á Þjóðverjanum Boris
Becker í úrslitaleik á opna franska
meistaramótinu.
Sampras, sem tapaði toppsæt-
inu í apríl til landa síns, Andre
Agassi, átti ekki í teljandi erfið-
leikum með að leggja Becker að
velli og sigraði i þremur settum,
7-6, 6-4 og 6-4.
Fyrir sigurinn fékk Sampras
rúmar 22 milljónir króna í sinn
hlut og eftir leikinn sagði hann:
„Ég er mjög sáttur við spila-
mennsku mína og ég efast um að
ég geti leikið betur en þetta,“.
Tomba bara með
i fyrri ferð?
Skíðakóngurinn Alberto
Tomba segir að vel komi til
greina að hann taki aðeins þátt i
fyrri ferðum heimsbikarmótanna
í vetur. Hann er mjög óhress með
nýja reglu, sem samþykkt var af
Alþjóða skíðasambandinu, FIS,
um helgina, en samkvæmt henni
verður röð 30 efstu manna snúið
við að lokinni fyrri ferð. Til þessa
hafa 15 efstu byrjað seinni ferð-
ina, í öfúgri röð.
Tomba og fleiri af bestu skíða-
mönnum heims segja að þetta
þýði að brautimar verði oft orðn-
ar mjög lélegar þegar röðin kem-
ur að þeim sem em efstir eftir
fyrri ferðina. Tomba ætlar ekki
að mæta í fyrsta mót vetrarins, í
Frakklandi um næstu helgi, í
mótmælaskyni.
UEFA-bikarinn:
Sgænsku liðin
drógust saman
Tvö af þremur spænskum lið-
um sem eftir em í UEFA-bikam-
um í knattspymu mætast í 16-liða
úrslitum keppninnar, en dregið
var til þeirra á fostudag. Sevilla
mætir Barcelona en þriðja liðið,
Real Betis, leikur við Bordeaux.
Nottingham Forest, eina eftirlif-
andi lið Englendinga í Evrópu-
mótunum, fer aftur til Frakklands
og mætir nú Lyon.
Drátturinn fór þannig:
Bayem M”nchen-Benfica
PSV Eindhoven-Werder Bremen
Nottingham Forest-Lyon
Bröndby-Roma
AC Milan-Sparta Prag
Bordeaux-Real Betis
Sevilla-Barcelona
Slavia Prag-Lens