Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1995, Side 11
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995
11
Fréttir
Umræður um viðskiptabann á Nígeríu:
Bann hefði áhrif
á störf hundruð
íslendinga
Það sem af er þessu ári hafa Is-
lendingar flutt út til Nígeríu þurrk-
aða þorskhausa, skreið og saltfisk
fyrir 414 milljónir, samkvæmt upp-
lýsingum Hagstofu íslands. í fyrra
nam útflutningurinn 687 milljónum
króna til Nígeriu en 853 milljónum
árið 1993. Útflytjendur hafa áhyggj-
ur af hugsanlegu viðskiptabanni á
Nígeríu eftir að mannréttindafröm-
uðir voru teknir af lífi þar á föstu-
daginn.
„Ég held að hátt í 400 manns komi
nálægt þessari framleiðslu hér á
landi,“ segir Ásgeir Arngrímsson,
framkvæmdastjóri Fiskmiðlunar
Norðurlands. „Sum fyrirtæki hafa
byggt sig eingöngu upp á þessum út-
flutningi. Önnur hafa þetta sem
hliðarverkun. Ég held að það sé
ekki fjarri lagi að þeir sem eru ein-
göngu í þessu séu alls 150 til 200.“
Að sögn Ásgeirs er til annar
markaður fyrir skreiðina en ekki
fyrir hausana sem eru um 90 pró-
sent af heildarútflutningnum. „Við
höfum flutt skreiðina til Bandaríkj-
anna, Bretlands og víðar tfl þeirra
þjóðarbrota frá Nígeríu sem vilja
kaupa þetta. Júgóslavia hefur verið
skreiðarland líka. Eins og staðan
hefur verið hefur Nígería eiginlega
verið eina landið í heiminum sem
hefur keypt hausa en við erum nú
að skoða markaðinn í löndum í
kringum Nígeríu."
Það er mat Ásgeirs að viðskipta-
bann myndi fyrst og fremst bitna á
óbreyttum borgurum. „Eftir því sem
maður hefur heyrt eru þeir aðilar
sem þarna hafa verið við völd búnir
að viða að sér miklum auði. Þeir eru
ekki á flæðiskeri staddir þó sett
verði á viðskiptabann."
-IBS
í gígnum á Öræfajökli, Hvannadalshnúkur til vinstri. DV-mynd ERIS
Gömul hugmynd vakin upp aö nýju:
Öræfajökull friðlýstur?
Einar R. Sigurðsson, DV, Öræfum:
Þau Aðalheiður Jóhannsdóttir,
framkvæmdastjóri Náttúruvernd-
arráðs, og Stefán Benediktsson,
þjóðgarðsvörður í Skaftafelli,
kynntu hugmyndir um að friðlýsa
Öræfajökul á fundi sem haldinn var
í Hofgarði í Öræfum nýlega.
Friðlýsing fer þannig fram að
nefnd, sem skipuð er annars vegar
heimamönnum og hagsmunaaðilum
og hins vegar hlutlausum aðilum,
ákveður umgengnisreglur og skipu-
lag friðlandsins.
Hugmyndir um friðlýsingu Ör-
æfajökuls eru gamlar en þær hafa
fengið aukinn byr í sumar úr tveim-
ur áttum. Annars vegar er það fólk
innan Náttúruverndarráðs, sem hef-
ur áhuga á að friðlýsa jökulinn
vegna sérstöðu hans í náttúru lands-
ins, og hins vegar hafa aðilar, sem
vinna að markaðssetningu íslands í
ferðaþjónustu, lýst áhuga sínum á
að þetta hæsta fjall íslands og annað
stærsta eldfjall Evrópu verði frið-
lýst. Það væri jákvætt fyrir ímynd
landsins og auglýsingagildi.
Það er nokkuð víst að útivistar-
fólk mundi fagna friðlýsingunni.
Það er óspennandi tflhugsun að hafa
lagt á sig margra tíma göngu á
Hvannadalshnúk, hæsta tind ís-
lands, og rekast þá á flugskýli með
flugvallarstarfsfólki uppi á Ör-
æfajökli eða stóran hóp manna að
hífa jeppa upp á tindinn sjálfan.
Þetta eru hlutir sem þegar hafa
gerst en hver veit hvað framtíðin
ber í skauti sér.
•AMHUGUR
ÍVERKI
Allir tjölmiðlar landsins.
I’óstur og sími,
lljálparstofmm kirkjunnar
og Rauði kross íslands.
LANDSSÖFNUN
VEGNA
NATTÚRUHAMFARA
Á FLATEYRI
Lcggöu þitt al' niörkuin
inn á bankareikning nr.
1183-26-800
í Sparisjóði Önundarfjarðar
á Flateyri.
Hægt er ad leggja inn á rcikiiingimi í ölluin
bönkuin, sparisjóömn oi> pósthiísuin á landinu.
Auglýsing frá
menntamálaráðuneytinu
Rannsóknarstofa Evrópu í sameinda-
líffræði - styrkir til doktorsnáms
Á hverju ári eru veittir um 20 styrkir til doktorsnáms á
ýmsum sviðum sameindalíffræði við EMBL (European
Molecular Biology Laboratory) í Heidelberg. Styrkirnir eru
veittir til 3 1/2 árs. Nánari upplýsingar, umsóknareyðublöð
og kynningarbæklingar fást hjá Dean of Graduate Studi-
es, EMBL, Postfach 10.2209, D-69012 Heidelberg, Þýska-
landi, bréfasími: 00 49 6221 387555, töivupóstfang:
ClayXembl-heidelberg.de, veffang: http://www.embl-
heidelberg.de/Externallnfo/PhdProgramme/-
PhD1 aacontents.html.
Umsóknarfrestur rennur út 15. janúar ár hvert og er styrkj-
um úthlutað þremur mánuðum síðar. Miðað er við að styrk-
þegar hefji nám eigi síðar en 1. október.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRABA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Lágheiði:
Heitt vatn í sum-
arbústaði
Helgi Jónsson, DV| Ólalsfirði:
Unnið var að því nýlega að leggja
plaströr úr gamalli borholu á Reykj-
um á Lágheiði, milli Fljóta og Ólafs-
fjarðar, niður að sumarbústöðum
sem þar eru. Þessar framkvæmdir
voru á vegum hitaveitunnar en það
kemur í hlut hvers eiganda að
tengja úr leiðslunum inn í bústað.
Að sögn Einars Þórarinssonar
hitaveitustjóra er vatnið misheitt,
frá 37 gráðum upp í 50 gráöur. Hann
segir að uppi í fjallinu fyrir ofan
Reyki sé heit æð en sá galli sé á gjöf
Njarðar aö jarövegur virðist vera
ótraustur. Þrjátiu metra þykkur jök-
ulruðningur er þar sem vatnið renn-
ur lárétt.
Selfossblað
//////////////«////////////
Aukablað um SelfoSS
Miðvikudaginn 22. nóvember mun sérstakt Selfossblað fylgja DV. í þessu blaði verður sérstaklega fjallað
um Selfoss sem verslunar-, þjónustu- og ferðabæ.
Þeir sem hafa hug á að auglýsa í þessu aukablaði vinsamlegast hafi samband við Arnar Hauk Ottesen,
auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 550 5723.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga í Selfossblaðið er föstudagurinn 17. nóvember.
ATH. Bréfasími okkar er 550 5727