Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1995, Síða 1
MÁNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1995
íslenskt, iá
Guðmundur Jónasson hf. er eitt þeirra
fyrirtækja sem segja „íslenskt, já takk!“
ekki bara í orði heldur og á borði.
Af 28 hópferðabíla flota eru 14 bílar
fyrirtækisins með íslenskar yfirbygging-
ar.
Flestir bílanna eru með yfirbyggingar
frá Bifreiðasmiðju Sigurbjarnar Bjarna-
sonar í Kópavogi. Tveir þeirra eru nýir
að kalla, afhentir á þessu ári. Báðir eru
af gerðinni Mercedes Benz 614, 26
sæta.
Gunnar Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Guðmundar Jónassonar hf.,
sagði reynsluna mjög góða af þessum
íslensku yfirbyggingum. Þær væru
sterkar og endingargóðar og samskipt-
in við framleiðandann afar góð.
Bifreiðasmiðja Sigurbjarnar Bjarnason-
ar er stofnuð 1974 og hefur byggt yfir
34 hópferðabíla á 21 árs ferli sínum.
Þar hefur nú verið fitjað upp á yfirbygg-
ingum yfir bíla númer 35 og 36 og er
önnuryfirbyggingin þegarseld. Auk
bíla Guðmundar Jónassonar hefur Sig-
urbjörn byggt yfir bíla fyrir Sæmund í
Borgarnesi, Sérleyfisbíla Selfoss,
Helga Pétursson og ýmsa fleiri.
Til þess að gera yfirbyggingarnar ódýr-
ari og auðvelda öflun varahluta leitast
Sigurbjörn við að hafa sem mest staðl-
aða hluti í yfirbyggingum sínum. Fram-
rúðurnar í nýju bílana Guðmundar Jón-
assonar lét hann þó móta sérstaklega
fyrir sig og var það gert í Finnlandi.
Það er nú af sem áður var að stólar í
takk!
hópferðabíla séu smíðaðir hérlendis.
Stólarnir í þessa nýju bíla eru þýskir að
uppruna.
Sigurbjörn lærði bílasmíði í Bílasmiðj-
unni hf. og hóf námið árið 1959. Ein
fyrsta yfirbyggingin sem hann fékk að
koma nærri sem lærlingur var á bíl frá
Guðmundi Jónassyni, fyrsta fram-
byggða Bensinn sem Guðmundur
eignaðist - Ft-373. Sá bíll er nú orðinn
35 ára og enn í fullu fjöri og notaður
þegar við á.
Hér á síðunni má líta þessa þrjá gæð-
inga - nýju bensana tvo og jiann 35
ára - alla saman talandi dæmi um „ís-
lenskt, já takk!“ í framkvæmd.
Myndir: Brynjar Gauti - Texti: S.H.H.
LAUGAVEGI 174 -SIMI 569 5660 • FAX 569 5662
Toyota Corolla 4x4 90,
ek. 90 þús. km, 5 d.,
5 g., hvítur.
Verð 900.000.
MMC Galant GLSi ‘91,
ek. 105 þús. km, 4 d.,
ssk., rauður.
Verð 1.090.000.
MMC Lancer HB 4x4
‘93, ek. 72 þús. km,
5 d., 5 g., hvítur.
Verð 1.050.000.
BMW 520i ‘87,
ek. 135 þús. km, 4 d.,
ssk., blár.
Verð 690.000.
OPIÐ: virka daga 9-18, laugardaga 12-16.
E
Lanakjor til allt aö 36 mánaöa
Raðgreiðslur til allt að 36 mánaða
BÍLAÞINGéÉEKLU
N O T A Ð I R B í L A R
Toyota 4Runner ‘93,
ek. 46 þús. km, 5 d.,
5 g., dökkblár.
Verð 2.600.000.
MMC Lancer St. 4x4 MMC Pajero stuttur
‘93, ek. 68 þús. km, 5 d., ‘92, ek. 44 þús. km, 3
5 g., grár. d., 5 g., grænn, super.
Verð 1.350.000. Verð 2.250.000.
Toyota Corolla ‘94,
ek. 39 þús. km, 5 d.,
5 g., grár.
Verð 1.050.000.
Volvo 850 GLT ‘94,
ek. 32 þús. km, 4 d.,
ssk., grænn, með öllu.
Verð 2.650.000.
MMC Pajero SW ‘90,
ek. 118 þús. km, 5 d.,
ssk., blár.
Verð 1.880.000.