Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1995, Síða 4
20
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995
T Ó N L I S I A R
GiRYNJ
Páll Óskar - Palll
Einlægt og persónulegt verk
Páll Óskar hefur sýnt þaö á undanfömum árum að hann er ákaflega flölhæfur
listamaður og tvímælalaust einn besti söngvari landsins. Þessi nýja plata hans
styrkir þá stöðu hans enn frekar og spumingin er hvort sá Páil Öskar sem viö
kynnumst hér sé ekki hinn eini sanni Páll Óskar? Það fer ekkert á milli mála að á
þessari plötu er Páll Óskar að syngja þau lög og þá tónlist sem hann hefur alltaf
langað að synpja og því má kannski líta á plötuna öðrum þræði sem virðingarvott
Páls Óskars við þessi lög sem fylgt hafa honum gegnum árin. Ailt em þetta ballöð-
ur, mismunandi angurværar, og meðal þeirra má nefiia Anyone Who Had a Heart
og The Look of Love eftir Burt Bacharach, Loose Again eftir Körlu Bonhoff og Feel
It eftir Kate Bush. Lögin era semsagt úr ýmsum áttum og frá ýmsum tfmum og
það gerir plötuna vissulega nokkuð sundurleita. Þar við bætist að Páll Óskar syng-
ur á þremur tungumálum, íslensku, ensku og spænsku. Þessir annmarkar verða
hins vegar ósköp lítilfjörlegir viö hliðina á þeimi einlægni og ástúð sem Páll Ósk-
ar leggiu- í túlkun sína og söng. Hann nýtim þess auðheyrilega út í ystu æsar að
syngja og snýatta á þessum lögum. Og þegar frábærir tónlistarmenn á borð við
Szymon Kuran, Jón Ólafsson, Birgi Bragason, Sigurð Flosason, Matthías Hem-
stock og Guðmund Pétursson, svo einhverjir séu nefndir, leggja Páli Óskari lið
verður útkoman ein besta fslenska plata ársins.
Sigurður Þór Salvarsson
Cigarette - Double Talk
★★
Vantar
herslumuninn
Double Talk er fýrsta plata hljómsveitarinnar Cig-
arette sem kom fram á sjónarsviðið hérlendis í sum-
ar sem leið. Hljómsveitina skipa þau Einar Töns-
berg, bassaleikari, Sigtryggur Ari, hljómborösleikari, Heiðrún Anna, söngkona,
Haraldur J., gítarleikari, og Rafn Marteins, trommuleikari. Tónlistin sem Cigar-
ette leikur er melódískt rokk og er öll ffumsamin. Leggja þar allir liðsmenn sveit-
arinnar sitt af mörkum nema trommuleikarinn. Þegar hlustað er á Cigarette er
ekki laust við að hljómsveitin minni á Spoon sálugu sem sló í gegn í fyrra, sér-
staklega þar sem Heiðrún Anna reynir meðvitað eða ómeðvitað að líkja eftir söng
Emelíönu Torrini. Það tekst þó ekki sem skyldi því Heiörún Anna hefur tiltölu-
lega lítið og einlitt raddsvið og þarf því að láta „dubba“ sönginn talsvert til að ná
hæstu tónunum. Og þar sem hún sér nánast um allan söng á plötunni verður plat-
an fyrir vikið mun tflþrifaminni en hún gæti verið. Lögin era nefnUega sum nokk-
uð góð og má þar nefna lögin Strange, My Creation og Three sem er tvímælalaust
besta lag plötunnar. HljóðfæraleUcur er eins og best verður á kosið og sýnir okkur
enn og aftur hvUíkan aragrúa af ffambærilegum tónlistarmönnum við eigum.
Textar era á ensku og afskaplega innUiaidsiýrir. Sömuleiðis er framburður í slak-
ari kantinum. Cigarette er að mörgu leyti efnUeg hljómsveit og gæti komist í
ffemstu röð hér á landi þegar byijendabragurinn, sem sumpart einkennir þessa
fýrstu plötu sveitarinnar, er farinn af. Sigurður Þór Salvarsson
Fjallkonan - Partý
Góð tónlist -
skelfilegir textar
Fjalikonan er ný hljómsveit sem samanstendur af
„gömlum“ reyndum poppurum í bland viö unga og
efnUega menn. Prlmusmótoramir era þeir gamal-
kunnu PossibiUiesbræður, Jón Ólafsson og Stefón Hjörleifsson, sem síðast gerðu
garðinn frægan með hljómsveitinni Ný dönsk, en auk þeirra skipa FjaUkonuna
þeir Jóhann Hjörleifsson trommuleUiari, Róbert ÞórhaUsson bassaleikari og Pétur
Öm „Jesús“ Guðmundsson söngvari.
Lögin era öU eftir liðsmenn sveitarinnar; Jón er þar afkastamestur en Stefan og
Pétur öm koma þar líka við sögu. Þetta er sérlega melódisk tónlist og aðgengUeg;
smekklega útsett og það á ekki hvað síst við um raddútsetningar sem sumpart
minna mjög á SpUverk þjóðanna.
í raun má segja að tónlistarlega séð ætti plata þessi að hafa alla burði tU að
verða þriggja stjömu plata ef ekki kæmu tU afspymuslakir textar nánast gegnum-
gangandi. Reyndar fylgir ekkert textablað plötunni og er það að sumu leyti skUjan-
legt þegar tekið er mið af innihaldi flestra textanna. BuUið og bamaskapurinn er
svo yflrgengUegur á köflum að ágætislög verða hreint óþolandi. Svo rammt kveður
að þessu að nauðaeinfaldur enskur texti sem dúkkar upp eins og skrattinn úr
sauðarleggnum við eitt lagið, hljómar eins og gjæstasti skáldskapur samanborið
við aUt buUið. Reyndar er ein undantekning ffá buUinu en það er einfaldur tU-
gerðarlaus ástaróður eftir Þorstein Eggertsson við gullfaUegt lag Jóns Ólafssonar.
Ef FjáUkonan hyggur á frekari frama ætti hún að reyna að sýna nafiii sínu þá
virðingu að bjóða ekki upp á þvætting af því tagi sem hér er á borð borinn.
Sigurður Þór Salvarsson
Ýmsir flytjendur - Sundin blá
★★★
Létt lög við Ijóð
Tómasar
Þormar Ingimarsson er ekki sá fyrsti og áreiðan-
lega ekki sá síðasti sem gllmir við, að sefja saman
lög við ljóð Tómasar Guðmundssonar. Engin furða
því að ljóðín eru lýrísk, auðlærð og mörg hver fallin tU söngs. Mann grunar við
lestur þeirra að Tómas hafi sjálfur verið vel músUcalskur.
Þormari tekst yfirleitt vel tU um lagasmíðamar. Lögin faUa vel að ljóðtmum,
hæfilega einfóld og hefðbundin rétt eins og formin sem skáldið beitir. Þá hefur yf-
irleitt tekist vel tU með flutning. Óþarflega hvíslandi söngur Pálma Gunnarssonar
og Ríómanna hér og þar er þó lýti.
Þijú umkvörtunarefhi hef ég einnig varðandi meðferð ljóöanna. Hið fyrsta er að
niðurlag Ljóðs um unga konu frá Súdan vantar. Því kemur „plottið“ ekki fram, tU-
efni þess að ljóðið var ort. NefhUega það hve hjörtum mannanna svipar saman í
Súdan og Grímsnesinu. Annaö er sennUega slys: Eitt erindið í ljóðinu Við höfnina
er gert að viðlagi og er skotið mUli górða og fimmta erindis sem tengjast óijúfan-
lega að efhi tU. Fyrir bragðið verður fimmta erindi nánast merkingarlaust. Hver
er þessi hann sem læðist gegnum umferðarysinn?
Loks er það Japanskt ljóð sem var höfundi svo erfitt að hann orti það fimm
sinnum með jafn mörgum mismunandi bragarháttum. Á endanum hafði sonnettu-
formið vinninginn. Á plötunni er því slátrað með því að taka tvær síðustu línurn-
ar og gera þær að viðlagi. Með því móti er búið að skemma uppbyggingu þess
ljóðs eftir Tómas Guðmundsson sem margir telja hans fegursta og dýrast orta,
þrátt fyrir opnu sérhljóðana tvo í tíundu línu og tálknin alræmdu!
Þrátt fyrir þessa galla má vel sætta sig við plötuna Sundin blá í heild. Þormar
ingimarsson er að koma fram á sjónarsviðið með henni sem lagasmiður og vægt
til orða tekið þá lofar hann góöu. Það sanna lög eins og Stúdgntasöngur,
Haustnótt, Ljóð um unga konu frá Súdan og ekki síst valsinn blái I nótt kom
vorið.
Ásgeir Tómasson
DV
Bogomil Font túlkar tónlist Kurts Weills á sinn hátt:
Kunn lög í sirkus-
hlj óms veitar stíl
Ertt af hlutverkum Sigtryggs Baldurssonar er að velja söng varanum Bogomil Font
verkefni við haefi, til dæmis að túlka tónlist Kurts Weills. DV-mynd BG
Eitt af grundvallaratriðunum sem
Sigtryggur Baldursson verður að hafa
í huga I samskiptum sínum við
Bogomil Font er að velja honum verk-
efiii við hæfi. Og þar af leiðandi getur
Sigtryggur notað „croonerinn" sem
ventil fyrir eitt og annað sem hann hef-
ur langað til að gera en trauðla haft
tækifæri til.
„Ég hef lengi haft gaman af tónlist-
inni eftir Kurt Weill og fannst því til-
valið að fá Bogomil það verkefni að
túlka hana,“ segir Sigtryggur. „Ég not-
aði hins vegar tækifærið til að breyta
því yfirbragði sem þessi tónlist er svo
oft vafin, flottum sinfónískum og stór-
brotnum útgáfum. Þess í stað lagði ég
upp með að gera tónlistina hráa og
stillti dæminu upp eins og sirkus-
hljómsveit spilaði hana, misölvuð,
eitthvað sem minnti kannski í aðra
röndina á New Orleans lúðrasveit."
Sigtryggur segist hafa fengið ýmiss
konar gagnrýni fyrir þetta tiltæki sitt.
Sumir hafi greinilega átt von á mam-
bómúsík en ekki leikhústónlist.
„Reyndar útsetti ég tvö lög í mam-
bóstíinum til að ögra forminu. Við tók-
um okkur ýmiss konar bessaleyfi hér
og þar en héldum þó hljómagöngum
og melódíu til streitu. Það var bráð-
gaman að móta þessa tónlist eftir sínu
höfði.“
Plata Bogomils heitir Út og suður
og var hljóðrituð í Chicago. Ætlunin
er að gefa hana út í Bandaríkjunum
eftir áramót með enskum og þýskum
textum og sömuleiðis vonast Sigtrygg-
ur til að geta fengið útgefanda í Þýska-
landi til að taka hana upp á arma sina.
„Nú, og síðan er ég staddur hér á
landi í nokkra daga til að kynna plöt-
una hér á landi,” bætir hann við. „Út-
gáfutónleikamir verða afstaðnir þeg-
ar þetta birtist á prenti en núna um
helgina kem ég fram á Ömmu Lú og
síðan liggur leiðin til Akureyrar á
laugardag. Það er úrvalshópur sem
spilar með mér. Dave Adler, sem leik-
ur á fjölda hljóðfæra á plötunni, kom
hingað til að taka þátt í flutningnum
og sömuleiðis bandarískur fiðluleik-
ari. Allt í allt er þetta tíu manna hljóm-
sveit, sannkallað big band.“
Sigtryggui*er búsettur í Bandaríkj-
unum um þessar mundir. Þar fæst
hann jöfnum höndum við tónlist og út-
gáfumál, rekur við annan mann útgáf-
una Bad Taste. Hún sendi í haust frá
sér tvær plötur, með Unun og Bellat-
rix, og Sigtryggur segir að markaðs-
starfið við þær sé að byija að skila ár-
angri. „Ég lagði hins vegar ekki í að
koma með Bogomil á jólamarkaðinn
þar vestra," bætir hann við. „Mönn-
um finnst nóg um djöfulganginn á
plötumarkaðinum hér heima síðustu
vikurnar fyrir jól en hann er smámun-
ir miðað við það sem gengur á vestur
í Bandaríkjunum." -ÁT-
Mjöll Hólm með sína fyrstu stóru plötu:
Eins konar fjölskylduframtak
V íð ætluðum reyndar að gefa þessa
plötu út fyrir síðustu jól en lentum i
tímahraki og ákváðum að fr esta henni
um eitt ár. Það eru svo margir búnir
að reyna að gefa út plötu á Þorláks-
messu að við vildum ekki brenna okk-
ur á því líka,“ segir Mjöll Hólm söng-
kona. Hún sendi fyrir nokkrum dög-
um frá sér plötu sem nefnist stutt og
laggott Mjöll. Hún er það fyrsta sem
út kemur með Mjöll síðan hún sendi
frá sér tvær litlar plötur í upphafi átt-
unda áratugarins.
En þótt langt hafi liðið á milli platna
hefúr Mjöll eigi að síður stundað tón-
listina afkrafti. „Ferillinn er reyndar
ekki alveg samfelldur," segir hún. „Ég
hef stundum tekið mér góð hlé en alltaf
byrjað aftur. Núna er ég í dúetti með
Gunnari Tryggvasyni og við höfúm
komið talsvert mikið fram að undan-
förnu, farið til Akureyrar, suður með
sjó og víðar auk þess að spila á höfúð-
borgarsvæðinú.“
Á plötunni Mjöll eru tíu lög, fjögur
erlend og sex innlend, öll eftir Agnar
Steinarsson og Júlíus Jónasson. Agn-
ar á einnig flesta texta plötunnar. En
hverjir skyldu
þeir kumpánar
vera? „Því er
fljótsvarað," segir
Mjöll og hlær.
„Agnar er sonur
minn og Júlíus
maðurinn minn.
Það má því segja
aðplatansénokk-
urs konar fjöl-
skylduframtak.
Júlíus leikur einnig á bassa á plötunni,
sér um tölvuforritun ásamt Þóri Úlf-
arssyni, leikur á hljómborð og syngur
bakrödd í einu lagi ásamt Agnari og
Guðrúnu Lóu Jónsdóttur. Nokkrir
aðrir koma við sögu á plötunni, Sig-
urgeir Sigmundsson, Einar Einars-
son, Ari Daníel og Amar Freyr Gunn-
arsson sem syngur bakraddir í einu
lagi með Þóri.“
Lífsseigur Jón
Mjöll Hólm vakti fyrst athygli þeg-
ar hún söng lagið Jón er kominn heim
fyrir tæpum aldarfjórðungi. Hún seg-
ir að lagið hafi fylgt sér alla tíð sína.
„Ég hef stundum íhugað landflótta,"
segir hún alvarleg í bragði. „Mér leist
reyndar ágætlega á lagið þegar ég var
beðin um að syngja það á sínum tíma.
En þegar ég sá textann ætlaði ég að
hætta við. Allt snerist um blóm og frið,
hippa og róttækar skoðanir um þær
mundir. Svo hugsaði ég með mér að
það gerði svo sem ekkert að slá til. Lag-
ið yrði hvort sem er aldrei leikið. Ég
hafði svo sannarlega rangt fyrir mér
í það skiptið! Þama sannaðist að mað-
ur veit aldrei fyrirfram hvað slær í
gegn og hvað ekki.“
Platan Mjöll hefur yfir sér þægilegt
yfírbragð, dálítið af rólegum lögum og
hress inn á milli. „Ég verð að játa að
ég hef meira gaman af að syngja ró-
legu lögin en þau hröðu,“ segir Mjöfl
Hólm. „Ég þarf samt að fást við alla
stíla jöfúum höndum. Þegar maður er
að skemmta fólki þarf að hafa allt á
takteinum sem það vill heyra. En ég
er ánægð með tónlistina á plötunni og
mér heyrist að okkur hafi tekist að ná
þeim blæ sem við vildum ná.“ -ÁT-
MA-kvartettlnn - MA-kvartettinn;
★★★•^
Það ber að fagna því að þau allt of
fáu lög MA-kvartettsins, sem varð-
veist hafa, skuli komin á geisladisk.
Fjórmenningarnir sem skipuðu
kvartettinn vora sannarlega „popp-
stjömur" síns tíma. -ÁT
Islandica - Römm er sú taug:
i i i
XXX
Þetta er áheyrileg plata, svolítið
skrýtin og skondin á köflum en grip-
ur sem maður væri alveg til í að
mæla með við erlenda kunningja.
-ÁT
Halli Reynis - Hring eftir hring:
★★★
Textar plötunnar era í óvenjuhá-
um gæðaflokki miðað við það sem
gengur og gerist á íslenskum mark-
aði og laglínur era léttar og liprar
sem auðvelt er að grípa og ósköp
þægilegar á að hlýða. -SÞS
Blome - The Third Twin:
★★★
Platan kemur rækilega á óvart.
Þetta er dapurleg og stundum þung-
lyndisleg tónlist sem er vönduð og
úthugsuð og maður þarf að hafa fyr-
ir því að hlusta á hana. -ÁT
Litir - Kristín Eysteinsdóttir:
★★★
Tónlistin á plötunni er vissulega
hrá á köflum. Það er bara af hinu
góða því að nóg kemur út af fúllslíp-
uðum og jafnvel ofslipuðum afurð-
um á landi hér. -ÁT
Morrissey - Southpaw Grammar:
★★★
Morrissey-töfrarnir koma í ljós
hver af öðrum og maður hrífst með
af kraftinum og keyrslunni.
-SÞS