Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1995, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1995
23
Messur
Árbæjarkirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Dr. Sigurjón Árni Eyj-
ólfsson héraðsprestur annast guðsþjónust-
una. Prédikunarefni: Heimsendir og himna-
ríki. Organleikari Sigrún Steingrímsdóttir.
Aðventusamkoma kl. 20.30 með fjölbreyttri
dagskrá. Kórar safnaðarins syngja. Veiting-
ar í safnaðarheimilinu eftir aðventusamko-
muna. Prestarnir.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. ,11. Börn
úr 10-12 ára starfi sýna helgileik. Árni Berg-
ur Sigurbjörnsson.
Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Messa kl. 14. Altarisganga. Gerðuberg-
skórinn syngur. Gídeonfélagar kynna starf
sitt. Guðjón St. Garðarsson prédikar. Kaffi-
sala til styrktar orgelsjóði eftir messu. Sam-
koma ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gísli
Jónasson.
Bústaðakirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11.
Foreldrar hvattir til þátttöku með börnunum.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Pálmi Matthiasson.
Digraneskirkja: lyiessa kl. 11. Altarisganga.
Organisti Smári Ólason. Sunnudagaskóli á
sama tíma. Gunnar Sigurjónsson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Prestur sr. Hjalti
Guðmundsson. Kór Tónlistarskólans í
Reykjavik syngur í messunni og nokkra
stund á undan. Barnastarf í safnaðarheimil-
inu á sama tima og i Vesturbæjarskóla kl.
13. Fundur Safnaðarfélagsins eftir messu í
safnaðarheimilinu. Þar mun Árni Björnsson
þjóðháttafræðingur segja frá jólasiðum áður
fyrr. Kl. 14. Aðventusamkoma femiingar-
barna. Prestarnir.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Magnús Guðjónsson, fyrrv. bisk-
upsritari. Organisti Kjartan Ólafsson. Félag
fyrrverandi sóknarpresta.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson.
Organisti Lenka Mátéová. Barnaguðsþjón-
usta á sama tima i umsjá Ragnars Schram.
Tónleikar kirkjukórs og barnakórs Fella- og
Hólakirkju kl. 15. Prestarnir.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík: I dag,
laugardag, Flautuskólinn kl. 11. Sunnudag
guðsþjónusta kl. 14. Samverustund í safn-
aðarheimilinu á eftir. Þriðjudag Kátir krakkar
kl. 16. Organisti Pavel Smid. Cecil Haralds-
son.
Grafarvogskirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Unglingahljóm-
sveitin Kósý flytur jólalög. Aðventuhátíð á
Elli- og hjúkrunarheimilinu Eir kl. 16. Prest-
arnir.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl. 11.
Messa kl. 14. Altarisganga. Prestursr. Kjart-
an Örn Sigurbjömsson. Organisti Árni Arin-
bjarnarson. Börn úr 10-12 ára starfi sýna
helgileik undir stjórn Eirnýjar Ásgeirsdóttur.
Grindavíkurkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11.
Ljósin tendruð á jólatré bæjarins við Lands-
bankann kl. 17. Aðventuhátíð kirkjunnar kl.
20. Blönduð dagskrá í tali og tónum. Bama-
kórinn flytur söngleik um fæðingu frelsarans
og fermingarbörn leika helgileik. Nemendur
tónlistarskólans spila á hljóðfæri. Kórar
kirkjunnar syngja og leiða almennan söng.
Allir hjartanlega velkomnir. Sóknarnefndin.
Hallgrímskirkja: Barnasamkoma og
messa kl. 11. Karlakór Reykjavíkur syngur.
Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson. Jólatónleikar Mótettukórs
Hallgrímskirkju kl. 17.
Háteigskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Messa kl.
14. Organisti Pavel Manasek, Sr. Tómas
Sveinsson.
Hjallakirkja: Messa kl. 11. Altarisganga. Dr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur
þjónar ásamt sóknarpresti. Barnaguðsþjón-
usta kl. 13 i umsjá sr. Bryndísar Möllu og
Dóru Guðrúnar. Aðventukvöld í umsjá
kirkjukórsins kl. 20.30. Fjölbreytt efnisskrá í
tali og tónum. Organisti og kórstjóri Oddný
J. Þorsteinsdóttir. Kristján Einar Þorvarðar-
son.
Kópavogskirkja: Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Litli kór Kárnesskóla syngur ásamt
börnum úr barnastarfi. Organisti Örn Falkn-
er. Jólasöngvar og helgistund með eldri
borgumm kl. 14. Nemendur söngdeildar
Tónlistarskóla Kópavogs syngja jólasöngva.
Að söng þeirra loknum verður helgistund.
Boðið upp á veitingar i safnaðarheimilinu
Borgum á eftir. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Bragi
Skúlason.
Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands bisk-
ups: Messa kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristins-
son. Organisti Jón Stefánsson. Kór Lang-
holtskirkju (hópur V) syngur. Barnastarf á
sama tíma i safnaðarheimilinu. Kaffisopi eft-
ir messu.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar, prédikar. Væntanleg
fermingarbörn aðstoða. Barnastarf á sama
tíma. Félagar úr Kór Laugarneskirkju
syngja. Organisti Gunnar Gunnarsson.
Ólafur Jóhannsson.
Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Munið
kirkjubílinn. Messa kl. 14. Sr. Halldór Reyn-
isson.
Innri-Njarðvíkurkirkja: Aðventukvöld
sunnudaginn 10. des. kl. 17. Barn borið til
skírnar. Kirkjukórinn syngur undir stjórn
Steinars Guðmundssonar. Einsöngur Ingólf-
ur Ólafsson og nemendur úr Tónlistarskóla
Njarðvíkur koma fram.
Ytri-Njarðvíkurkirkja: Guðsþjónusta
sunnudaginn 10. des. kl. 11. Kirkjukórinn
syngur undir stjórn Steinars Guðmundsson-
ar. Sunnudagaskóli kl. 11. Baldur Rafn Sig-
urðsson.
Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Barnakórar Seljakirkju syngja undir stjórn
Elisabetar Harðardóttur. Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Guðmundur Þorsteinsson dómpró-
fastur setur sr. Ágúst Einarsson f embætti
aðstoðarprests við Seljakirkju. Altarisganga.
Sóknarprestur,
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11. Prestur
sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Organisti
Vera Gulasciova. Barnastarf á sama tíma í
umsjá Elinborgar Sturludótfur.
Nú er tími jólainnkaupa og sjálfsagt munu margir leggja leið sína í verslanir um þessa helgi. Kringlan er einn þeirra
staða þar sem hægt er að kaupa jólagjafir og þar verður opið á morgun og sunnudaginn. DV-mynd JAK
Víða opið á laugardag og sunnudag:
Jólainnkaupin
Óðum styttist til jóla og því bráð-
nauðsynlegt að fara að huga að því
sem þarf að kaupa inn fyrir hátíð-
irnar. Hjá mörgum er innkaupalist-
inn langur enda að mörgu að
hyggja. Það þarf að kaupa gjafir, fá
sér ný fót, útvega sér hráefni í
baksturinn og ótal margt fleira.
Af þessu tilefni gerði DV lauslega
athugun á afgreiðslutíma á
nokkrum stöðum. Svo virðist sem
opið sé í langflestum verslunum á
bæði laugardag og sunnudag. Þetta
á t.d. við um Kringluna, verslanir á
Laugaveginum og Austurstræti og
næsta nágrenni, Miðbæ í Hafnar-
firði, Garðatorgi í Garðabæ, versl-
anir í Hamraborg i Kópavogi, Aust-
urveri, Miðbæ, Háaleitisbraut,
Mjóddinni, Grímsbæ og Eiðistorgi.
Frá þessu kunna að vera smá-
vægileg frávik og eru lesendur beðn-
ir að hafa það í huga. Afgreiðslutím-
inn á morgun er yfirleitt frá kl.
10-18 og 12-18 á sunnudaginn. Síðar-
talda daginn verða þó sumar versl-
anir opnaðar kl. 13 og lokað kl. 17.
Jólasveinar verða víða á ferðinni
og DV er t.d. kunnugt um að þeir
rauðklæddu verða í Kringlunni á
sunnudaginn kl. 15.30 og 16.30. Jóla-
sveinninn heimsækir líka Hafnfirð-
inga um helgina og ætlar að kíkja
inn í Miðbæ og m.a. snúa þar
svokölluðu þyngdarleysistæki.
Til frekari aðstoðar þeim sem eru
að huga að jólagjöfum er svo sjálf-
sagt að minna á jólagjafahandbók
DV sem kom út sl. miðvikudag. í
henni eru upplýsingar sem nýtast
öllum.
Sigrún Hjálmtýsdóttir er einn þeirra
listamanna sem koma fram í Mos-
fellsbænum um helgina.
Desemberdagar
í Mosfellsbæ
Á vegum menningarmálanefndar
Mosfellsbæjar fer fram viðamikil
dagskrá um helgina. Á morgun
verður opnuð sýning á ljósmyndum
í eip Frank Ponzi listfræðings en
sýningin er í svokölluðum Kjama
sem liggur miðsvæðis í Mosfellsbæ
og hýsir einnig Héraðsbókasafn
Kjósarsýslu. Þá verður menningar-
dagskrá í Gallerí Álafossi kl. 14
bæði laugardag og sunnudag. Meðal
þeirra sem fram koma eru Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Friðrik Erlingsson
og Einar Már Guðmundsson.
Enn fremur verður starfræktur
um helgina listmuna- og handverks-
markaður í gömlu sundlauginni að
Álafossi. Þá verður kveikt á bæjar-
jólatrénu en frá því er sagt annars
staðar í DV í dag. Ekki má heldur
gleyma dagskrá Leikfélags Mosfells-
sveitar í Bæjarleikhúsinu á sunnu-
dagskvöld kl. 20.30.
Jólasýning Þjóð-
minjasafnsins
Jólasýning Þjóðminjasafnsins er í
Bogasalnum og er hún að þessu
sinni helguð jólaljósum. Sýndar eru
lýsiskolur og kerti af ýmsum gerð-
um, olíulampar, gaslukt og tírur.
Einnig sjást ýmsar gerðir af raf-
ljósaseríum fyrir jólatré, glugga og
kaffiborð og eru hinar elstu frá því
um 1930. Þá eru til sýnis nokkrar
gerðir af jólatrjám, aðventukrans og
aðventuljós. Loks sést inn í vel búna
jólastofu frá því um 1930. Innan um
eru ljósmyndir úr húsum inni og
götum úti sem sýna ýmsar jóla-
skreytingar frá árabilinu 1915-63.
Sýningin stendur til 6. janúar
1996.
Ferðafélagið:
Gullkistugjá
Ferðafélag íslands gengst fyrir
ferð á sunnudaginn kl. 13 sem hefur
yfirskriftina Gullkistugjá - Helgafell
- Kaldársel.
Fataúthlutun
mormóna
Kirkja Jesú Krists hinna síðari
daga heilögu (mormónar) verður
með fataúthlutun að Skólavörðustíg
46 á morgun kl. 14-18. Allt ókeypis.
Tónleikar
í Húsinu
Haukur Guðlaugsson orgelleikari
og Gunnar Kvaran sellóleikari, í
samvinnu við Byggðasafn Árnes-
inga, halda tónleika í Húsinu á Eyr-
arbakka kl. 14 á morgun.
Jólatónleikar
Söngsmiðjunnar
Jólatónleikar Söngsmiðjunnar
verða haldnir í Perlunni kl. 15 á
sunnudaginn. Fram koma um 200
nemendur Söngsmiðjunnar.
Jólatónleikar
Mótettukórsins
Mótettukór Hallgrímskirkju held-
ur jólatónleika í Hallgrímskirkju á
morgun og á sunnudaginn. Dagskrá-
in hefst kl. 17 báða dagana.
Svanur Valgeirsson er annar ein-
söngvaranna á tónleikunum.
Kór Átthagafélags
Strandamanna:
Aðventu-
tónleikar
í Bústaðakirkju
Aðventutónleikar Kórs Átthagafé-
lags Strandamanna verða í Bústaða-
kirkju á sunnudaginn kl. 16.30. Þar
mun kórinn ásamt barnakór flytja
jólalög undir stjórn Erlu Þórólfs-
dóttur. Einsöngvarar á tónleikunum
eru Hrafnhildur Björnsdóttir og
Svanur Valgeirsson. Pianóleikari er
Laufey Kristinsdóttir.
Einnig verður leikið á þverflaut-
ur, kontrabassa og trommur. Þá
mun séra Jón Þorsteinsson flytja
jólahugleiðingu. Að loknum tónleik-
um verður kaffihlaðborð í safnaðar-
heimilinu.
Háteigskirkja
og Seltjarnar-
neskirkja
Kórar Háteigskirkju og Sel-
tjarneskirkju koma fram í Háteigs-
kirkju kl. 17 á morgun og á sama
tíma í Seltjarnameskirkju á sunnu-
daginn.
ými
íþróttir
Körfubolti
Heil umferð er á dagskrá í úrvals-
deildinni í körfuknattleik um helgina.
Leikirnir eru þessir:
Akranes - KR Sd. 20.00
Skallagr. - Grindavík Sd. 20.00
Þór - Valur Sd. 20.00
Njarðvík - Tindastóll Sd. 20.00
ÍR - Keflavík Sd. 20.00
Breiðablik - Haukar Sd. 20.00
1. deild kvenna
Akranes - Valur Ld. 15.30
Grindavfk - Tindastóll Ld. 16.00
KR - Breiðablik Ld. 14.00
Keflavfk - ÍR Ld. 16.00
Njarðvík - ÍS Ld. 16.00
1. deild karla
ÍH - Stjarnan Fd. 20.00
KFÍ - ÍS Ld. 13.30
Snæfell - Selfoss Ld. 16.00
Þór Þorlh. - Leiknir, R. Ld. 16.00
Handbolti
Fimm leikir fara fram í Nissan-
deildinni í handknattleik um helgina
og eru þeir þessir:
ÍBV-KR Fd. 20.00
Stjarnan - ÍR Sd. 20.00
Grótta - FH Sd. 20.00
Haukar - Selfoss Sd. 20.00
Afturelding - Valur Sd. 20.00
Vfkingur-KA Sd. 20.00
1. deild kvenna
Fram - ÍBV Ld. 16.00
Fylkir - Valur Ld. 15.00
ÍBA-KR Ld. 15.30
Víkingur- FH Ld. 16.00
Haukar - Stjarnan Sd. 18.15
2. deild karla
Breiðablik - Fylkir Fd. 20.00
Fjölnir - BÍ Fd. 20.00
Þór, Ak. - ÍH Ld. 13.30
Fram - BÍ Ld. 14.00
Aðventuhátíð
Árbæjarsafnaðar
Aðventusamkoma verður í Ár-
bæjarkirkju kl. 20.30 á sunnudags-
kvöldið.
Fundur um
atvinnumál
Atvinnufulltrúi og atvinnumála-
nefnd Akraness boða til fundar um
atvinnumál á morgun kl. 13 í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands. Aðgangur
er öllum opinn.
Uppákomur
í Norræna
húsinu
í fyrramálið verður í Norræna
húsinu starfrækt listasmiðja fyrir
börn, 7-10 ára. Fjöldi þátttakenda er
takmarkaður og er áhugasömum
bent á að ská sig á skrifstofu húss-
ins fyrir kl. 15 í dag.
Afmælisveisla Línu langsokks
verður haldin í húsinu kl. 16.30 á
morgun en meðal þeirra sem mæta
í gleðskapinn eru leikarar úr Borg-
arleikhúsinu en þar hefur leikritið
um Línu verið sýnt að undanfornu.
Á sunnudaginn kl. 14 verða svo
að vanda kvikmyndasýningar fyrir
böm.
Ljóð og djass í
Hafnarborg
Á sunnudaginn kl. 20.30 verður
flutt dagskrá í kaffistofu Hafnar-
borgar þar sem fléttað er saman
flutningi Ijóða og djasstónlist. Þar
munu skáldin Ari Gísli Bragason,
Didda, Jóhann Hjálmarsson, Jón
Óskar, Matthías Johannessen, Nína
Björk Árnadóttir og Þorri lesa úr
verkum sínum við undirleik tónlist-
armannanna Carls Möllers píanó-
leikara, Guðmundar Steingrímsson-
ar trommuleikara og Róberts Þór-
hallssonar bassaleikara. Höfundur
tónlistárínnar er Carl Möller.