Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1995, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995
21
'HT
■f
§X®
Upphafið
Það er óhætt að fullyrða að fátt hræðist nútíma-
maðurinn meira en alnæmi enda fátt til vamar og
læknavísindin komin stutt á veg i leit að mótefni.
Ekki eru nema fimmtán ár ffá því veiran barst til
Vesturlanda og í And the Band Played on er rifjað
upp á áhrifamikinn hátt útbreiðsla alnæmis á Vest-
urlöndum. Matthew Modine leikur lækni sem gerir
sér fljótt grein fyrir hættunni, enda hafði hann ver-
ið einn þeirra sém batt enda á útbreiðslu Ebola
veirunnar í Áfríku á áttunda áratugnum. Hann
þarf þó ekki aðeins að beijast ásamt yfirmanni sín-
um við skilningssljó yfirvöld heldur einnig að
koma vísindamönnum í skilning um að samkeppni
er ekki besta aðferðin til að ná árangri og þegar
loks veiran hefur verið greind og ffanskir og
bandarískir vísindamenn þakka sér heiðurinn er
hann settur til hliðar meðan aörir baða sig í sviðs-
fiósinu. Að auki er fylgst með nokkrum einstaklingum sem veikjast og á raun-
sæjan hátt tekið á þeirri hræðslu sem grípur um sig. And the Band Played on
er spennandi og vel gerð en um leið og mikill ffóðleikur í henni.
AND THE BAND PLAYED ON - Útgefandi: Skífan.
Leikstjóri: Roger Spottiswoode.
Aðaihlutverk: Matthew Modine, Alan Alda og Richard Gere.
Bandarísk, 1994. Sýningartími 140 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -HK
tBv.v.afj
Utþynntur hryllingur
Gangur Propaganda Films, sem Sigurjón Sig-
hvatsson var eigandi að þar til fyrir stuttu, hefur
verið upp og ofan og fáar myndir náð vinsældum
en það er með kvikmyndimar eins og margt ann-
að, ein mynd getur borgað tap af mörgum og ein
vinsælasta kvikmynd Propaganda er Candyman,
sem leikstýrð var af Bemhard Rose (Immortal
Beloved) og gerð eftir sögu Clives Barkers, eins
ffumlegasta og besta höfundar hryllingssagna. Það
þótti því sjálfsagt að gera ffamhald og er búin til
ný saga sem á litið sammerkt með fyrri myndinni.
Affaksturinn er frekar útþynnt og ómerkileg hryll-
ingsmynd, Candyman, Farewell to the Flesh sem
þrátt fyrir allt náði töluverðum vinsældum vestan-
hafs fyrr á þessu ári. Hinn hávaxni Tony Todd
leikur aftur Candyman, þjóðsagnapersónu sem
birtist þegar nafh hans er sagt þrisvar sinnum fyr-
ir ffaman spegil. Hann leggur fæð á fjölskyldu eina af ástæðum sem skýrast í
lokin. Enn eína ferðin er gengið ffá honum fyrir fullt og allt en þegar
Hollywood á í hlut þá er aldrei að vita nema Candyman 3 líti dagsins ljós í
framtíðinni.
CANDYMAN, FAREWELL TO THE FLESH - Útgefandi: Háskólabíó.
Leikstjóri: Bill Condon.
Aðalhlutverk: Tony Todd, Kelly Rowan og Timothy Carhart.
Bandarísk, 1995. Sýningartími 86 mfn. Bönnuð börnum innan 16 ára. -HK
Dómari í vanda
DONNIC DeOCLIA
Það blæs ekki byrlega fyrir dómaranum Gwen
Warwick þar sem hún situr í sínu hásæti í morð-
máli gegn konu þegar gögn í málinu eru nánast öll
á þann veg að enginn er líklegri tfi að vera morð-
inginn en hún sjálf. Hvað skal gera, Warwick veit
að hún er saklaus en getur hún sannað það? Á hún
aö rifta málsókn og gefa sig fram við lögregluna
eða bíða og sjá hvað setur og reyna að vinna sjálf
að rannsókn málsins. Hún velur síðari kostinn og
sér brátt að hún hefur verið leidd í gildru og ástæð-
una verður hún að finna meðal þeirra manna sem
hún hefur dæmt. Það er nokkur aðdragandi að
þeirri stöðu sem dómarinn hefur sett sig í og það
má kannski segja að Judicial Consent fari nokkuð
rólega af stað en þegar komið er fram yfir miðja
mynd tekur hún vel við sér og er spennandi fram
að lokaatriðinu sem hefði mátt vera betur unnið. En myndin er þegar upp er
staöið sæmileg afþreying, handritið er nokkuð glúrið og áhorfandinn fær nóg
að hugsa um. Bonnie Bedelia er sannfærandi í leik sínum.
JUDICIAL
CONSENT
JUDICIAL CONSENT - Útgefandi: Sam myndbönd.
Leikstjóri: William Bindley
Aðalhlutverk: Bonnie Bedelia, Will Patton og Lisa Blount.
Bandarfsk, 1994. Sýningartími 90 mín. Bönnuð bömum innan 16 ára.-HK
Orlagarík hjálpsemi
Susan er ósköp venjuleg skrifstofustúlka sem
öðlast nýja líísýn þegar hún kynnist hinni glæsi-
legu Nicole sem er í uppáhaldi hjá öllum. Þegar
Nicole veikist hastarlega af magasári og veröur að
fara á spítala vill spítalinn ekki taka við henni þar
sem hún hefur enga tryggingu fyrir greiðslu. Öll
slík mál eru hins vegar í góðu lagi hjá Susan og til
að hjálpa vinkonu sinni skiptir hún á persónukort-
um við hana og Nicole fer á sjúkrahúsið sem Sus-
an. Viku síðar fréttir Susan að hún sé látin, hafi
látist á sjúkrahúsinu vegna mistaka í skurðaðgerð.
Susan, sem ekki þorir að láta uppi sannleikann,
hefur sjálf rannsókn á málinu en lendir fljótt á
blindgötu. The Good as Dead er hin sæmilegasta
aíþreying, spennandi og hröð en eins og oft þegar
ekki er mikið vandað til þá eru brotalamirnar
nokkrar og þótt grunnur sögunnar sé góður er
handritið sjálft ekki vel skrifað og mikið um að reynt sé að bjarga fyrir hom
með óvæntum uppákomum. Þá eru leikhæfileikar Crystal Bemard frekar tak-
markaöir.
AS GOOD AS DEAD - Útgefandi: CiC-myndbönd.
Lelkstjóri: Larry Cohen.
Aöalhlutverk: Judge Reinhold, Crystal Bernhard og Traci Lords.
Bandarfsk, 1995. Sýnlngartími 86 mín. Bönnuð börnum innan 12 ára. -HK
Laurence Fishburne í hlutverk Othellos og Kenneth Brannagh í hlutverki lagos.
Laurence Fishburne:
Fyrsti svarti leikar-
inn til að leika
Othello í kvikmynd
Laurence Fishburne er vaxandi
leikari og hefur vegur hans verið að
aukast frá þvi hann lék Ike Tumer í
What’s Love Got to Do with It. Nú
er fram undan frumsýning á
Othello, þar sem hann hlýtur að
leika draumahlutverk allra hör-
undsdökkra leikara, Márann
Othello, í kvikmyndagerð eftir
þessu þekkta leikriti Williams
Shakespeares.
Það er staðreynd að hann er
fyrsti svarti leikarinn sem leikur
þetta hlutverki í kvikmynd, en
Othello hefur áður verið tvisvar
kvikmyndað og fetar Fishbume í
spor ekki ómerkari leikara en Or-
son WeUes og Laurence Olivier, auk
þess hefur óperan OtheUo eftir
Verdi, sem byggð er á leikritinu,
einu sinni verið kvikmynduð og þá
fór Placido Domingo með hlutverk
Marans. Leikstjóri OtheUo er bresk-
ur og heitir Oliver Parker. Valdi
hann Fishbume, þrátt fyrir að hann
hefði enga reynslu í að leika
Shakespeare og það sem meira er,
Fishbume hefur engan leikskólafer-
U að baki. Oliver segist fyrst hafa
haft áhuga á að fá Fishbume í hlut-
verkið eftir að hann sá Deep Cover
og sannfærðist þegar hann hafði séð
What’s Love Got to Do with It.
Laurence Fisbume viðurkennir
að hann hafi oröið undrandi þegar
umboösmaður hans hringdi í hann:
„Það á að fara að gera OtheUo, Ken-
neth Brannagh á að leika Iago, vUt
þú leika OtheUo.” Fishburne segir
að þetta hafi verið boð sem ekki var
hægt að hafha. Hann segir að þrátt
fyrir mikla reynslu Brannagh af
Shakespeare hafi hann fljótt komist
að því að þeir áttu ýmislegt sameig-
inlegt og fór vel með á þeim og Fis-
hbume er ekki í vafa um að þeir
hafi verið að gera góða kvikmynd.
Laug til um aldur
Laurence Fishbume fæddist 30.
júlí 1961 í Augusta í Georgíufylki.
Hann ólst upp hjá móður sinni, sem
var fráskUinn kennari, og fluttu þau
tU New York þegar Fisbume var
bam að aldri. Hann var aðeins tíu
ára þegar hann kom reglulega fram
í sjónvarsseríunni One Life to Live
og þrettán ára lék hann í sinni
fyrstu kvikmynd Cornbread, Earl
and Me. Þegar hann var fjórtán ára
laug hann tU um aldur og fékk að
að leika í hinni frægu kvikmynd
Frances Ford Coppola, Apocalypse
Now. í nokkur ár lék hann nokkuð
stöðugt í kvikmyndum og sjónvarpi,
en ávaUt lítil hlutverk.
AUan þann tíma sem Fishburne
var að leika í kvikmyndum lék
hann jöfnum höndum á sviði og það
er sú reynsla sem hefur verið hon-
um dýrmætust og vó þungt þegar
hann tók að sér að leika OtheUo.
Árið 1992 fékk hann Tony-verðlaun-
in, sem besti leikari á Broadway
fyrir leik sinn í Two Trains Runn-
ing.
Um tima lék hann í sjónvarps-
þáttunum Pee Wee’s Playhouse og
það var þar sem hann kynntist ung-
um, strák, John Singleton, sem síð-
ar fékk Fishbume tU að leika í
sinni fyrstu kvikmynd, Boyz N the
Hood. Kvikmynd þessi vakti mikla
athygli og var stökkpaUur Laurence
Fishbume í stærri hlutverk. Hann
fékk síðan óskarstilnefningu fyrir
leik sinn í What’s Love Got to Do
with It.
Draumahlutverkið
Laurence Fishbume er í rauninni
í sömu aðstöðu nú og Denzel Was-
hington að geta valið sér hlutverk
sem ekki em eingöngu skrifúð fyrir
hömndsdökka leikara, en hann hef-
ur ólíkt Washington ekki notfært
sér þaö, þó má segja að hlutverk
hans í Bad Company sé þess eðlis
að bæði hvítir og þeldökkir leikarar
geti leikið það.
Fishbume hefur ekki yfirgeflð
leiksviðið þótt vel gangi í kvik-
myndum og í síðasta mánuð lék
hann í Circle Repertory leikhúsinu i
New York, í eigin leikriti, Riff Raff
og leikstýrði hann einnig sýning-
unni.
Laurence Fisbume er ekki ófeim-
inn að viðurkenna að hann eigi sér
draumahlutverk, en það er að leika
Jimi Hendrix í kvikmynd og þegar
rætt er við hann um Hendrix lifnar
hann aUur við: „Ég'er mikUl aðdá-
andi Hendrix. Ég veit að hann var
vUltur, en hann lék þannig á gítar
að annað eins hafði aldrei heyrst
áður. Hann náði nánast að kreista
hljóm út úr tómu lofti. Það em ekki
aUir kynbræður mínir sammála
þessari skoðun minni og margir em
að gleyma honum, þess vegna lang-
ar mig tU að endurreisa hann eins
og hann á skUið.“
Hér á eftir fer listi yfír kvikmynd-
ir sem Laurence Fishbume hefrn-
leikið í:
Cornbread, Earl and Me, 1975
Fasl Break, 1979
Apocalypse now, 1979
Willie and Phil, 1980
Death Wish II, 1982
Rumble Fish, 1983
The Cotton Club, 1984
The Color Purple, 1985
Quicksilver, 1986
Band ot the Hand, 1986
The Nightmare on Elm Street, 3
Gardens of Stone, 1987
School Daze, 1988
Red heat, 1988
Cherry 2000,1988
King of New York, 1990
Cadence, 1991
Class Actiopn, 1991
Boyz N the Hood, 1991
Deep Cover, 1992
What’s Love Got to do with It, 1993
Searching for Bobby Fischer, 1993
Higher Learning, 1995
Bad Company, 1995
Just Cause, 1995
Othello, 1995
-HK