Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Blaðsíða 6
22
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
Sýningar
Gallerí Art-Hún
Stangarhyl 7, Rvík
Þar stendur yfir sýning á verkum Erlu Ax-
elsdóttur, Helgu Armannsdóttur, Elínborg-
ar Guðmundsdóttur, Sigrúnar Gunnars-
dóttur og Margrétar Salome. Galleríið er
opið alla virka daga kl. 12-18.
Gallerí Birgir Andrésson
Vesturgötu 20
Gunnar M. Andrésson sýnir ný verk, nokk-
urs konar lýriska hljóðskúlptúra, þar sem
unnið er með upprunatengsl og vitnað er í
þjóðleg minni. Galleríið er opið kl. 14-18 á
fimmtudögum en aðra daga eftir sam-
komulagi.
Gallerí Greip
Hverflsgötu 82 (Vltastígsmegln).
Laugard. 13. jan. kl. 20.00 verður opnuð
samsýning 20 myndlistarmanna, hönnuða,
arkitekta og Ijósmyndara. Sýningin ber yf-
irskriftina GREIPAR SÓPA og eiga verkin
á sýningunni það sameiginlegt að vera
unnin úr hlutum eða hugmyndum (fundn-
um og „stolnum“) sem hafa nú þegar gegnt
hlutverki sinu en öðlast hér nýjan tilgang.
Hún stendur til 28. janúar og er opin alla
daga nema mánudaga frá kl. 14-18.
Félag eldri borgara
Lislakona á tíraeðisaldri. Næstkomandi
laugard., 13. jan. kl. 15.00, verður opnuð
sýning á verkum Maríu M. Ásmundsdóttur
myndlistarkonu frá Krossum í Staðarsveit.
Sýningin verður í húsakynnum Félags
eldri borgara i Reykjavík og nágrenni að
Hverfisgölu 105, 4. hæð.
Gallerí Fold
Laugavegl 118d
Laugard. 13. jan. kl. 15.00 verður opnuð
sýning á akrylverkum Ólafs Más Guð-
mundssonar í Gallerí Fold við Rauðarár-
stíg. Sýninguna nefnir Ólafur Már HVÖRF.
í kynningarhorni gallerísins sýnir Sigrún
Eldjárn grafíkmyndir. Sýningin stendur til
28. janúar. Gallerí Fold er opið daglega frá
kl. 10.00 til 18.00 nema sunnud. frá kl. 14
til 17.
Gallerí Geysir
Aðalstrætl 2
Galleríið er opið alla virka daga kl. 9-23 og
um helgar kl. 12-18.
Gallerí Guðmundar
Ánanaustum 15.
Galleriið er opið virka daga kl. 10-18.
Gallerí List
Skipholti 50b
Galleríið er opið alla daga kl. 11-18 nema
laugardaga kl. 11-14. Sýningar í gluggum
á hverju kvöldi.
Gallerí Ríkey
Hverfisgötu 59
Sýning á verkum Ríkeyjar. Opið kl. 13-18
virka daga en laugardaga og sunnudaga
kl. 13-16.
Stöðlakot
Bókhlöðustíg 6
Nína Gautadóttir. Málverk til 21. janúar.
Opið frá kl. 14-18 daglega.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
„Straumar", sýning Þórs Elís Pálssonar,
stendur yfir í Galleríi Sævars Karls. Opið á
verslunartíma frá kl. 10-18 virka daga.
Hafnarborg
I Hafnarborg var opnuð laugardaginn 6.
janúar kl. 12.00 umfangsmikil sýningu á
verkum Kaffe Fassett en hann er einn
þekktasti textílhönnuður heims um þessar
mundir.
Kaffi Mílanó
Faxafeni 11
Hildur Waltersdóttir sýnir olíumálverk, unn-
in á striga og krossvið og einnig nokkrar
kolateikningar. Sýningin stendur til 26. jan-
úar. Opið mánud. kl. 9-19. þriðjud., mið-
vikud. og fimmtud. kl. 9-23.30, föstud. kl.
9-1 og laugard. kl. 9-18.
Kjarvalsstaðir
v/Mlklatún
Laugard. 13. jan. kl. 16.00 verða opnaðar
4 sýningar. í vestursal yfirlitssýning á verk-
um eftir franska abstraktmálarann Olivler
Debré. Komar og Melamid eru rússneskir
myndlistarmenn, sem störfuðu um árabil
að list sinni undir oki Sovétstjómarinnar
þar sem þeir skipulögðu m.a. hina þekktu
jarðýtusyningu árið 1974. Ingólfur Arnars-
son kom fram á sjónarsviðið í lok 8. ára-
tugarins eftir að hafa verið við nám í Holl-
andi. Sýningum Olivier Debré, Komars og
Melamid og Ingólfs Arnarssonar lýkur 18.
febrúar, en Kjarvalssýningin stendur fram
á vor. Listasafn Reykjavíkur á Kjarvals-
staða og safnverslun eru opnar á sama
tíma.
Listasafn Einars Jónssonar
Njaröargötu.
Safnið er lokað í desember og janúar.
Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga.
Inngangur er frá Freyjugötu.
Listasafn íslands
Frfkirkjuvegl 7
Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18.
Ingólfur Arnarsson opnar tvær sýningar:
form og
■
Stór hluti af listsköpun Ingólfs felst í því hvernig hann stillir saman myndirn-
ar innbyrðis og vinnur með rýmið í heild sinni. DV-mynd GS
liti
„Verkin á þessum tveimur sýn-
ingum eru svolítið tengd. Það getur
aukið á skilning þess hvað ég er að
fara að sjá báöar sýningamar en
það er ekki nauðsynlegt. Það er hins
vegar ekki verra,“ segir listamaður-
inn Ingólfur Arnarsson sem í gær
opnaði sýningu á verkum sínum í
Ingólfsstræti 8 og ætlar enn fremur
að opna aðra sýningu á verkum sín-
um á Kjarvalsstöðum á morgun.
Ingólfur segist ekki áður hafa ver-
ið með tvær sýningar í einu og seg-
ir það vera tilviljun eina. En hvem-
ig verk sýnir hann nú? „Þetta er
sambland af lágmynd og málverki.
Þetta em steinsteypuplötur sem em
síðan grunnaðcu- og málaðar með
hvítum gmnni og vatnslitamálaðar.
Svoleiðis verk er ég með á báðum
stöðum en á Kjarvalsstöðum er ég
einnig með teikningar sem ég hef
unnið að á síðustu árum.“
Ingólfur kom fram á sjónarsviðið
í lok 8. áratugarins eftir að hafa ver-
ið við nám í Hollandi. Hann vann
fyrst með hugmyndafræðileg verk
en tileinkaði sér síðan óhlutlægt
myndmál, sem hann hefur þróað á
einkar persónulega hátt. í verkum
sínum einfaldar Ingólfúr til hins
ítrasta bæði form og liti og skapar
hljóðlát verk sem krefjast íhygli
áhorfandans. Stór hluti af listsköp-
im hans felst einnig í því hvemig
hann stiUir saman myndimar inn-
• byrðis og vinnur með rýmið í heild
sinni.
Sýningu Ingólfs i Ingólfsstræti 8
lýkur 4. febrúar en hálfúm mánuði
síðar á Kjarvalsstöðum.
Einfaldar bæði
Samsýning í Gallerí Greip:
Greipar sópa
Samsýning myndlistarmanna,
hönnuða, arkitekta og ljósmyndara
verður opnuð í Gallerí Greip annað
kvöld. Sýningin ber yfirskriftina
„Greipar sópa“ og eiga verkin á sýn-
ingunni það sameiginlegt að vera
unnin úr hlutum eða hugmyndum
(fúndnum og „stolnum") sem hafa
nú þegar gegnt hlutverki sínu en
öðlast hér nýjan tilgang.
Þátttakendur í sýningunni em
Ámundi Sigurðsson, Ásmundur
Sturluson, Birgir Snæbjöm Birgis-
son, Börkur Amarson, Daníel
Magnússon, Gulleik, Halldór Bald-
ursson, Helga Kristrún Hjálmars-
dóttir, Húbert Nói Jóhannesson,
Ilmur Stefánsdóttir, Inga Lísa Midd-
leton, Magnús Arason, Nína Magn-
Þorvaldur Þorsteinsson, Inga Lísa Middleton og Þorri Hringsson eru í hópi
þeirra sem eiga verk á sýningunni.
úsdóttir, Sara Bjömsdóttir, Sigríður
Heimisdóttir, Sigríður Ólafsdóttir,
Sigríður Sigurjónsdóttir, Sigurður
Ámi Sigurðsson, Stefán Geir Karls-
son, Svanur Kristbergsson, Tinna
Gunnarsdóttir, Þorri Hringsson og
Þorvaldur Þorsteinsson.
Sýningin stendur til 28. janúar.
Ólafur Már Guðmundsson við eitt
verka sinna.
Gallerí Fold:
Hvörf Olafs Más
Á morgim verður opnuð sýning á
akrýlverkum Ólafs Más Guðmunds-
sonar í Gallerí Fold við Rauðarár-
stíg. Sýninguna nefnir hann Hvörf.
Ólafur Már, sem er fæddur á ísa-
firði, stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands og lauk það-
an prófi 1980. Hann hefur haldið
nokkrar einkasýningar og tekið þátt
í samsýningum. Verkin sem Ólafur
sýnir nú em öll unnin með akrýllit-
um.
Grafíkmyndir
Sigrúnar
í kynningarhomi gallerísins sýn-
ir Sigrún Eldjám grafíkmyndir.
Hún stundaði m.a. nám í MHÍ og við
listaakademíur í Póllandi. Sigrún
hefúr haldið fjölmargar einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýningum.
Nýlistasafnið:
Þrívíö verk og
málverk
Ásta Ólafsdóttir, Guðmundur
Thoroddsen og Jón Sigurpálsson
opna sýningar í Nýlistasafninu,
Vatnsstig 3b, á morgun kl. 16.
Jón Sigurpálsson og Guömundur
Thoroddsen sýna veggmyndir í
neðri sölum safnsins og Ásta Ólafs-
dóttir sýnir þrívíð verk og málverk
í efri sölunum.
Gestur í setustofu Safnsins er
Nina Ivanova frá Rússlandi. Hún
dvelur hér sem gestanemandi í
Myndlista- og handíðaskóla íslands.
Tómas R. Einarsson kontrabassa-
leikari og Óskar Guðjónsson saxó-
fónleikari verða með tónlistarflutn-
ing við opnunina.
Sýningamar verða opnar daglega
frá kl. 14-18 en þeim lýkur sunnu-
daginn 28.janúar.
Nína í Stöölakoti
Sýning á verkum Nínu Gautadóttur
stendur nú yfir í Stöðlakoti við Bók-
hlöðustíg. Nína, sem býr og starfar í
París, hefur haldið margar einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýningum. í
Stöðlakoti sýnir Nína málverk.
Myndin er úr fhyndasafni DV.
Sýningar
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn
Laugard. 13. jan. kl. 15.00 verður opnuð
sýning í Gerðarsafni sem ber heitið UM-
HVERFIS JÖRÐINA Á ÁTTATIU DÖGUM.
Þetta er myndaröð sem Nína Gautadóttir
hefur unnið eftir hinni alþekktu skáldsögu
franska rithöfundarins Jules Verne.
Myndaröðin er á einum samfelldum
stranga sem er 80 metra langur og um 50
cm á breidd. Eins og komið hefur fram í
fréttum týndust málverk sem Nína ætlaði
að sýna í Gerðarsafni og átti að opna þá
sýningu síðastliðinn laugardag. Myndaröð
Umhverfis jörðina á 80 dögum kemur í
stað þeirrar sýningar en málverk Nínu sem
töpuðust eru enn ófundin.
Ingibergur Magnússon myndlistarmaður
opnaði sýningu laugardaginn 6. janúar. Á
sýningunni eru 28 verk, tréristur og verk
unnin með blandaðri tækni. Sýningin er
opin alla daga, nema mánudaga, kl.
12-18. Henni lýkur 21. janúar.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Laugarnestanga
Sýning á völdum andlitsmyndum eftir Sig-
urjón Ólafsson, Þessir kollóttu steinar,
mun standa í allan vetur. Safnið er opið á
laugardögum og sunnudögum kl. 14-17.
Kaffistofa safnsins er opin á sama tíma.
Listhúsið í Laugardal
Engjateigi 17
Þar stendur yfir myndlistarsýning á verk-
um eftir Sjöfn Har. Sýningin ber yfirskriftina
„íslensk náttúra, íslenskt landslag". Opið
virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl.
11-16.
Listhús 39
Strandgötu, Hafnarfirði
Þar stendur yfir sýning Fríðu S. Kristins-
dóttur sem er fyrsta sýning hennar. Á sýn-
ingunni eru myndverk og þrívíð verk ofin
með tvöföldum vefnaði, úr hör, vír, tágum
og myndvefnaður úr ull. Sýningin er opin
frá 6. til 22. janúar. Opið virka daga kl.
10-18, laugardaga kl. 12-18 og sunnu-
dagakl. 14-18.
Listhús Ófeigs
Skólavörðustíg 5
Þar stendur yfir sýningin Skíma. Eftirtaldir
listamenn sýna: Hringur Jóhannesson,
Magnús Tómasson, Ofeigur Bjömsson,
Ragnheiður Jónsdóttir, Sigurður Þórir, Þor-
björg Höskuldsdóttir og Öm Þorsteinsson.
Sýningin stendur til 14. janúar.
Mokka kaffi
Skólavörðustíg
Komar og Melanid sýna í Mokka frá 8. jan-
úar til 11. febrúar. Sýning á eftirsóttasta
málverki bandarísku þjóðarinnar.
Myndás
Laugarásvegi1
Sýning á 18 bestu myndum úr ísland-
skeppni Agfa og Myndáss. Sýningin er úl
janúar og er opin virka daga kl. 10-18 og
laugardaga kl. 10-16.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Safnið opið á sunnudögum, þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 13-17.
Norræna húsið
Rebekka Rut sýnir 30 olíumálverk. Sýn-
ingin er opin daglega kl. 14-19.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3b, 101 Reykjavík.
Ásta Ólafsdóttir, Guðmundur Thoroddsen
og Jón Sigurpálsson opna sýningar í Ný-
listasafninu laugard. 13. janúar kl. 16.00.
Sýningarnar eru opnar daglega frá kl.
14.00-18.00 og þeim lýkur sunnud. 28.
jan.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, Hafnarfirði
Opið sunnud. og þriðjud. kl. 15-18.
Sparisjóðurinn í Garðabæ
Garðatorgi
[ tilefni 20 ára kaupslaðarréttinda Garða-
bæjar 1. janúar 1996 stendur yfir yfirlits-
sýning á myndlistarverkum I eigu bæjar-
ins. Um er að ræða myndir sem Garðabær
hefur eignast í gegnum tíðina. Sýningin er
opin á afgreiðslutíma Sparisjóðsins frá kl.
8.30 til 16 alla virka daga til 19. janúar.
Þjóðminjasafnið
Opið sunnud, þriðjud. fimmlud. og laug-
ard. kl. 12-17.
Ráðhús Reykjavíkur
Sýning á höggmyndum Arnar Þorsteins-
sonar var opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur 6.
janúar kl. 15 og stendur til 21. janúar. Sýn-
ingin, sem nefnist „Orka + Steinn = Mynd“,
er opin kl. 8-19 virka daga og kl. 12-18
'um helgar.
Ingólfsstræti 8
Ingólfur Amatsson heldur sýningu í Ing-
ólfsstræti 8 til 4. febrúar. Opið frá 14-18,
alla daga nema mánudaga.
Sýning í Borgarnesi
í Safnhúsi Borgarfjarðar, Borgarnesi,
stendur yfir sýning á 24 olíumyndum eftir
Einar Ingimundarson. Um er að ræða
myndir sem listamaðurinn hefur málað af
landslagi og byggingum vítt og breitt um
héraðið.