Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Qupperneq 8
24
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996
Bergþór Pálsson og Signý Sæmundsdóttir fara með tvö aðalhlutverkanna í Hans og Grétu. Hann sem Pétur kústa-
gerðarmaður og hún sem Geirþrúður. DV-mynd GS
Frumsýning í íslensku óperunni
Hans og Gréta
íslenska óperan frumsýnir á morgun ævintýraleik í
þremur þáttum um Hans og Grétu eftir Adelheid Wette
viö tónlist Engelberts Humperdincks. Leikgerð og út-
setningu annast Björn Monberg en íslensk þýðing er eft-
ir Þorstein Gylfason. Leikstjórn er í höndum Halldórs E.
Laxness, Hulda Kristín Magnúsdóttir hannar leikmynd
og búninga, Þorgeir Ólason aðstoðar við útfærslu á leik-
mynd, dansstjóri er David Grenall og hljómsveitarstjóri
er Garðar Cortes.
Óperan Hans og Gréta er samin eftir sögunni úr
Grimmsævintýrum sem allir þekkja. Óperan var fyrst
frumsýnd i Þýskalandi árið 1894 og hefur verið sýnd um
allar jarðir síðan og gjarnan um jólaleytið. Hún er mjög
glæsileg og fjölbreytileg tónsmíð og tónlistin er ekki síð-
ur við hæfi fullorðinna en barna.
Með helstu hlutverk fara Bergþór Pálsson, sem syng-
ur Pétur kústagerðarmann, föður barnanna, Signý Sæ-
mundsdóttir er í hlutverki Geirþrúðar, móður barn-
anna, Rannveig Fríða Bragadóttir syngur Hans, Hrafn-
hildur Björnsdóttir fer með hlutverk Grétu, Þorgeir J.
Andrésson er í hlutverki nornarinnar og Emilíana Torr-
ini syngur hlutverk Óla lokbrár.
Félag eldri borgara:
Listakona á tíræðisaldri
María M. Ásmundsdóttir, sem er 96
ára, hefur fengist við margvíslega
listavinnu lengst af ævinni.
Félag eldri borgara:
Spilað og
dansað
í kvöld frá kl. 20.30 verður
spiluð félagsvist og dansað í Fé-
lagsheimili Kópavogs.
Þöll og félagar leika fyrir
dansi. Húsið er öllum opið.
Opið hús
Bahá’íar eru með opið hús aö
Álfabakka 12 í Mjódd 'kl. 20.30
annað kvöld. Allir eru velkomn-
ir. Betty Reed frá N-írlandi mun
tala.
Sýning á verkum Maríu M. Ás-
mundsdóttur, myndlistarkonu frá
Krossum í Staðarsveit, verður opn-
uð á morgun kl. 15. Sýningin verður
í húsakynnum Félags eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni að Hverfis-
götu 105, 4. hæð.
María, sem nú er á 97. aldursári,
hefur fengist við margvíslega lista-
vinnu lengst af ævinni. Hún hefur
málað myndir allt frá unga aldri.
Eignaðist fljótt myndavél og notaði
síðan myndirnar til að mála eftir.
Annars hefur María sótt myndefni
Á morgun kl. 16.00 opnar Steinn
Sigðurðsson málverkasýningu í
Galierí Geysi, Hinu húsinu við Ing-
ólfstorg.
Steinn er af yngstu kynslóð mynd-
listarmanna og heldur .nú sína aðra
einkasýningu, en þá fyrri hélt hann
Kvikmyndasýningar i bíósal MIR,
Vatnsstig 10, hefjast að nýju eftir hlé
um jól og áramót nk. sunnudag, 14.
janúar, kl. 16.
Sýnd verður kvikmyndin Tón-
skáldið Glinka sem gerð var árið
1952. Hún fjallar um Mikhaíl I.
Glinka sem var uppi 1804-1857 og
hefur oft verið nefndur faðir rúss-
nesku óperunnar en kunnustu verk
víða að, þ. á m. til Danmerkur og
Noregs. Þá hefur hún málað á gler
og útsaum hefur hún lagt mikið i,
enda erfitt og vandasamt verk.
María sýndi verk sín fyrst í útst-
illingargluggum hjá Marteini Ein-
arssyni árið 1930 og árið 1990 í fé-
lags- og þjónustumiðstöðinni í Ból-
staðarhlíð en hefur nú safnað sam-
an stærra safni af ýmsum listmun-
um, sem einnig verða til sýnis.
Sýning Maríu stendur til 21. jan-
úar.
í Café 17. Verkin sem hann sýnir
eru unnin með akrýl á striga og eru
flestöll unnin á síðastliðnu ári.
Gallerí Geysir er opið alla virka
daga frá kl. 9-23 og um helgar frá
12-18. Sýningunni lýkur 28. janúar.
hans eru óperurnar Ivan Súsanin og
Rúslan og Lúdmila.
Leikstjóri er Grígoríj Alexandrov
og kvikmyndatökumaður Edvard
Tisse, tveir af nánustu samstarfs-
mönnum S. Eisensteins. Með titil-
hlutverkið fer leikarinn Boris
Smirnov.
Enskur texti er við myndina.
Gallerí Geysir:
Einkasýning Steins
Bíósalur MÍR:
Faðir rússnesku óperunnar
Listasafn íslands:
Ný aðföng III
Á efri hæð Listasafns íslands hef-
ur verið opnuð sýningin „Ný aðföng
IH“ þar sem sýnt er úrval listaverka
sem keypt hafa verið til safnsins á
árunum 1994-95. Þetta er þriðja sýn-
ingin í röð sýninga þar sem ný verk
safnsins, sem hafa verið keypt, eru
sýnd.
Á sýningunni eru 44 verk eftir
starfandi listamenn: Önnu Líndal,
Birgi Snæbjörn Birgisson, Björgu
Þorsteindóttur, Daða Guðbjörnsson,
Eggert Pétursson, Einar Hákonar-
son, Eirík Smith, Eyjólf Einarsson,
Erlu Þórarinsdóttur, Grétar Reynis-
son, Guðrúnu Þorkelsdóttur (Rúnu),
Gunnar Örn, Hafstein Austmann,
Hallgrím Helgason, Hallstein Sig-
urðsson, Húbert Nóa, Ingu Þóreyju
Jóhannsdóttur, Jóhönnu Kristínu
Yngvadóttur, Kristinn G. Harðar-
son, Kristinn E. Hrafnsson, Kristínu
Gunnlaugsdóttur, Kristínu Jónsdótt-
ur frá Munkaþverá, Kristján Dav-
íðsson, Leif Breiðfjörð, Ólöfu Nor-
dal, Ráðhildi Ingadóttur, Rúri, Sig-
urð Árna Sigurðsson, Sólveigu Aðal-
steinsdóttur, Svövu Björnsdóttur,
Tuma Magnússon, Valgarð Gunn-
arsson og Þorvald Þorsteinsson.
Eins og sjá má af þessum nafna-
lista spanna innkaup safnsins sl. tvö
ár yfir nánast allt litróf íslenskrar
myndlistar. Efniviðurinn er álíka
fjölbreyttur.
Sýningin stendur til 25. febrúar.
Listasafn Kópavogs:
Myndaröð
Nínu Gautadóttur
Umhverfis jörðina á áttatíu dög-
um er heiti sýningar sem opnuð
verður í Listasafni Kópavogs, Gerð-
arsafni, á morgun. Þetta er mynda-
röð sem Nína Gautadóttir hefur
unnið eftir hinni alþekktu skáld-
sögu franska rithöfundarins Jules
Verne.
Myndaröðin er á einum samfelld-
um stranga sem er 80 metra langur
og um 50 cm á breidd. í myndaröð-
inni eru 80 1 metra langar myndir
og sýnir hver þeirra atburð úr ferð
þeirra félaga, breska herramannsins
Fíleasar Foggs og franska þjóns
hans, Passe Partout, umhverfis jörð-
ina,
Eins og komið hefur fram í frétt-
um týndust málverk sem Nína ætl-
aði að sýna í Gerðarsafni og átti að
opna sl. laugardag. Fyrrnefnd
myndaröð kemur í stað þeirrar sýn-
ingar en málverkin, sem töpuðust,
eru enn ófundin.
Sýning á verkum Nínu stendur
einnig yfir i Stöðlakoti og er greint
frá henni annars staðar í blaðinu.
Ráðhús Reykjavíkur:
Léttir harmoníku-
tónleikar
Harmoníkufélag Reykjavíkur
heldur létta harmoníkutónleika í
Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 15 á sunnu-
daginn.
Leikin verður létt og háliklassísk
tónlist úr ýmsum áttum en meðal
flytjenda eru Stórsveit Harmoniku-
félags Reykjavíkur og Léttsveit
Harmoníkufélags Reykjavíkur.
Aðalstjórnandi er Karl Jónatans-
son, sem jafnframt hefur annast út-
setningar.
Unnendur harmoníkutónlistar fá ástæðu til að kætast um helgina því þá
heldur Harmoníkufélag Reykjavíkur tónleika. Myndin er úr myndasafni DV.
Kaffileikhúsið:
Drukkin svín í paradís
Sigurjón Kjartansson og Jón Fjörið hefst kl. 21 en húsið verður
Gnarr verða með stand up sýningu opnað klukkutíma fyrr.
sína í Kaffileikhúsinu annað kvöld
Þeir félagar spjalla við gestina,
dansa, slást hvor við annan, rlfast
og skammast og fallast í faðma.
Þeir segja líka frá öllu fræga fólk-
inu sem þeir hafa hitt í partíum
og á Kaffibarnum og tala um sjúk-
dóma og fara með guðlast. Það má
segja að þeir velti sér upp úr sora
hversdagslífsins eins og drukkin
svín í paradís.
Á sýningunni mun einnig fjöl-
listamaðurinn Óskar Jónasson
koma fram með töfrabrögð og
galdra og taka áhorfendur með
sér í ferðalag inn í blekkingar- Félagarnir segja frá öllu fræga fólkinu
heima skynvillunnar. sem þeir hafa hitt.