Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1996, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1996
11
Fréttir
Sigríður Pálsdóttir, starfsmaður í Vesturbyggð, neitar að taka launalækkun bæjaryfirvalda upp á 22-23 prósent þegj-
andi og hljóðalaust og ætlar að leita réttar síns. Sigríður segir að sér hafi ekki verið sagt upp bréflega og því sé ekki
hægt að lækka við sig launin. DV-mynd Sigurbjörn
Launalækkun bæjarstarfsmanna í Vesturbyggð tekur gildi 1. febrúar:
Launin alltaf
lækkuð við okk-
ur aumingjana
- ætla að leita réttar míns, segir Sigríður Pálsdóttir
Bæjaryfirvöld í Vesturbyggð hafa
sagt upp sérkjarasamningum við
bæjarstarfsmenn frá 1. febrúar og
boðið stórum hluta þeirra endur-
ráðningu á lægri launum. I þessum
hópi eru níu starfsmenn í heimilis-
hjálp en þrir þeirra hafa ekki fengið
uppsögnina skriflega. Sigríður Páls-
dóttir, ein þessara þriggja, mótmæl-
ir uppsögninni og segir að launa-
lækkunin nemi 22-23 prósentum í
sínu tilviki. Hún segist ekki ætla að
láta hlunnfara sig og ætlar að leita
réttar síns með aðstoð Alþýðusam-
bands Vestfjarða.
„Við vorum tvær sem byrjuðum í
september og ein sem byrjaði í nóv-
ember. Bæjarstjórinn sagðist ekki
þurfa að senda okkur uppsagnar-
bréf. Við áttum bara að taka því
þegjandi að lækka í launum. Ég
ætla að leita réttar míns. Ef manni
er ekki sagt upp er ekki hægt að
lækka laun hjá manni og maður
lætur ekki bjóða sér svoleiðis," seg-
ir Sigríður og bendir á að bærinn
hafi hvorki greitt í lífeyrissjóð né
verkalýðsfélag. Hún viti tvö dæmi
þess.
Starfsmenn í heimilishjálp ósk-
uðu eftir fundi með bæjarstjóra í
gærmorgun en fengu synjun, að
sögn Sigríðar. Hún segir að bæjar-
stjóri hafi gefið þá skýringu að mál-
ið væri afgreitt og þyrfti ekki að að
ræðast frekar. Þrír starfsmanna í
heimilishjálp hætta um mánaðamót
auk fjögurra starfsmanna i 2,5
stöðugildi. Þeir verða ekki ráðnir
aftur.
„Ég veit ekki hvaða hagnað þess-
ir menn fá út úr þessu. Þeir eiga
bara að hætta þessum endalausu
Hótel Sögu-ferðum í stað þess að
lækka alltaf launin við okkur aum-
ingjana," segir Sigríður.
Gísli Ólafsson, bæjarstjóri í Vest-
urbyggð, segir að 80 milljónir fari á
ári i laun starfsmanna í sveitarfé-
laginu, þar af 30 milljónir í yfir-
vinnu. Með uppsögnum sérkjara sé
verið að lækka laun starfsfólksins
til samræmis við það sem greitt sé
fyrir sömu vinnu í sambærilegum
sveitarfélögum. Það gildi jafnt um
yfirmenn og undirmenn þar sem
það eigi við. Sín laun hafi verið
lægri en bæjarstjóra í sambærileg-
um bæjarfélögum og hann taki á sig
verulega skerðingu á þessu ári.
„Hún er um það bil 50-70 þúsund
á mánuði en ég segi ekki hvað það
er stór prósenta því að þá er ég að
gefa upp launin mín,“ segir Gísli.
Hann segir rangt að hann hafi hafn-
að fundi með starfsmönnum í heim-
ilishjálp. Hann hafi einfaldlega ekki
getað hitt þær á umbeðnum tíma.
-GHS
Sækir um leyfi til að flytja
farþega til og frá íslandi
DV, Suðurnesjum:
„Ég hef fengið vilyrði sam-
gönguráðuneytisins um að
leyfi til kanadíska flugfélags-
ins verði afhent á mánudag og
að það fái að taka farþega hér
á landi á leið sinni til Kanada
frá Evrópu,‘N sagði Steinþór
Jónsson, hótejstjóri á Hótel
Keflavík, í samtali við DV.
Hann er orðinn umboðsmað-
ur leiguflugfélagsins Canada
3000 hér á landi.
Þeir á Hótel Keflavík áttu
frumkvæðið að málinu og
hafa verið í samningaviðræð-
'um við forráðamenn
kanadíska félagsins í tæpt ár
við að undirbúa leyfisveitingu
og að fá að selja farseðla frá
tslandi til Kanada með
Canada 3000. Samvinnuferð-
ir/Landsýn munu annast sölu
farseðlanna hér.
Canada 3000 hefur viðkomu
á Keflavíkurflugvelli 16 sinn-
um í viku á leið sinni til og
frá Kanada til sjö áfangastaða
í Evrópu. Að sögn Steinþórs
er næsta skrefið að fá leyfi
samgönguráðuneytisins og
flugmálayfirvalda til að selja
ferðir til þeirra áfangastaða i
Evrópu sem flugvélar félags-
ins fljúga til. Áhafnir flugfé-
lagsins - níu manns í hverri
ferð - gista á Hótel Keflavík.
„Aðalmálið í mínum huga
með þessum leyfisveitingum
er að efla íslenska ferðaþjón-
ustu og á því hef ég mikinn
áhuga,“ sagði Steinþór.
Steinþór Jónsson hótelstjóri. DV-mynd ÆMK -ÆMK
# eldhúsið
örbylgjuofnar
Panasonic örbylgjuofnamir eru
allir tölvustýrðir og fáanlegir í
miklu úrvali með fjölmörgum
möguleikum s.s. grilli og blæstri
sem gerir eldamennskuna
léttari og auðveldari.
isladiskar
i krónum 99