Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1996, Blaðsíða 24
32
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1996
Sviðsljós
Díana prinsessa leggur Hggy Legge-Bourke í einelti:
Foreldrar Hggyar íhuga
málsókn á hendur Díönu
- prinsessan sögð dreifa lygasögum um barnfóstru prinsanna
Michelle Pfeif-
fer endurvekur
áhuga Kana á
Dylan Thomas
Michelle Pfeiffer, sú dásam-
lega sæta Hollywoodleikkona,
kenndi vandræðagemlingunum
í kvikmyndinni Dangerous
Minds að meta ljóð eftir velska
ljóðskáldið og fyllibyttuna Dyl-
an Thomas. Það hefur svo orðið
til þess að Bandaríkjamenn sýna
skáldinu nú mikinn áhuga.
Hið sama var upp á teningn-
um með W.H. Auden í kjölfar
sýninga á Fjórum brúðkaupum
og jarðarfor en lítt þekkt verk
þess skálds var flutt í myndinni.
Eitt hundrað þúsund eintök af
bókum skáldsins seldust vegna
þessarar óvæntu kynningar.
Þegar Tiggy Legge-Bourke kom
heim til sín kvöld nokkurt ekki alls
fyrir löngu eftir að hafa passað litlu
prinsana tvo, syni þeirra Karls
Bretaprins og Díönu prinsessu, biðu
hennar skiiaboð á símsvaranum,
stutt og laggóð: „Haltu þig fjarri
sonum mínum.“ Skilaboðin voru frá
Díönu.
Þetta var ekki í fyrsta sinn sem
Tiggy barnfóstru og Díönu lenti
saman. í veislu skömmu fyrir jól
kom Díana svífandi yfir salinn til
barnfóstrunnar, kleip hana í hand-
legginn og hvíslaði móðgunum í
eyra hennar.
Símtalið var þó það sem gerði út-
slagið. Vinir Tiggyar og foreldrar
hvöttu hana til að leita til lögfræð-
ings og það var loks með samþykki
vinnuveitanda síns, sjálfs Karls
prins, að hún gerði það.
Lögfræðingurinn var ekki seinn á
sér að senda frá sér yfirlýsingu um
ósannar fullyrðingar um skjólstæð-
ing sinn sem gengju manna á meðal
og varaði fjölmiðla við að birta þær
opinberlega.
Tiggy hefur sjálf útilokað að fara
í mál við Díönu vegna lyganna sem
hún á að hafa borið út. Foreldrar
barnfóstrunnar eru á öðru máli og
íhuga nú hvað þeir geta gert til að
stöðva söguburðinn. Foreldrarnir
hafa meira að segja skrifað til
Díönu sjálfrar og beðið hana um að
draga orð sín til baka en prinsessan
mun hafa hafnað því á þeirri for-
sendu að hún hefði sannanir fyrir
orðum sínum.
„Díana er tilbúin til að lúta mjög
lágt í þeirri von að hún geti lagt líf
Tiggyar í rúst,“ segir heimildarmað-
ur sem þekkir fjölskylduna. „Hún
heldur að hún sé svo vinsæl að hún
sé yfir lögin hafin. Hún gerir ekki
annað en brugga launráð á skrif-
stofu sinni en í þetta sinn hefur hún
gengið einum of langt.“
Átökin milli þeirra Díönu og
Tiggyar hafa kraumað undir niðri
svo mánuðum skiptir og þeir sem til
þekkja segja að þau hafi verið óhjá-
kvæmileg. Allt frá því Tiggy kom í
þjónustu konungsfjölskyldunnar og
gerðist barnfóstra þeirra Harrys og
Vilhjálms hefur hún mátt þola
andúð Díönu.
Fjandskapur hefur þó ekki alltaf
verið með þessum tveimur konum
því það var Díana sjálf sem sam-
þykkti árið 1993 að Tiggy yrði barn-
fóstra litlu prinsanna. En mikið
vatn hefur runnið til sjávar síðan
þá og sér ekki fyrir endann á deil-
unum.
Tiggy Legge-Bourke og litlu prinsarnir tveir, þeir Viihjálmur og Harry, í búð-
arferð.
___________________________________LAUGARDEGI
OG SAMA DAG ER HANN FRUMFLUTTUR A BYGLJUNNI FRÁ
KL. 16-18. BYLGJAN ENDURFLYTUR LISTANN Á MÁNUDAGS-
KVÖLDUM MILLI KL. 20 OG 22.
Kynnir: jón AxeI Olafsson
I BOÐI COCA-COLA
EOTT ÚTVARPI
ÍSLENSKILISTINN ER SAMVINNUVERKEFNI BYLGJUNNAR, DV OG COCA-COLA Á ÍSLANDI. USTINN ER NIÐURSTADA SKOÐANAKÖNNUNAR SEM ER FRAM-
KVÆMD AF MARKAÐSDEILD DV íHVERRIVIKU. FJÖLDI SVARENDA ER Á BILINU 300-400, Á ALDRINUM14-35 ÁRAAF ÖLLU LANDINU. JAFNFRAMT ER TEK-
------- —-------------- --------------------- ------------------egi Idv
MIÐ AF SPILUN Á ÍSLENSKUM ÚTVARPSSTÖÐVUM. ÍSLENSKI USTINN BIRTIST Á I
DGARDÓGUM KL. 16-18. USTINN ER BIRTUR AO HLUTAI TEXTAVARPIMTV SJÓNVARI
Á HVERJUM LAUGARDEGII DV OG ER FRUMFLUTTUR Á BYGJUNNI Á
' " ..........KURÞÁTT
0 EXPRESSILOS
INU MUSIC & MEDIA SEM ER REKK) AF BANDARÍSKA TÓNUSTARBLAÐINU BILLBOARD.
CART" SEM FRAMLEIDDUR ER AF RADIO E
08 ANGELES. EINNIQ HEFUR HANN ÁHRIF
____I. ÍSLENSKILISTINN TEKUR...
EVRÓPUUSTANN SEM BIRTUR ERI
ÍTTÍVAU „WORLD
TÓNUSTAF
Þessi skringilegi kjóll er hugarfóstur spænska tískuhönnuðarins Pacos
Rabannes og var til sýnis í París í vikunni. Kjóllinn er úr vinýl, bráðfallegur
en varla þægilegur að sama skapi. Símamynd Reuter
Dæturnar reiðar Frank
Dæturnar hans Franks Sinatra
eru öskuillar út í pabba sinn vegna
þess að þær óttast mjög um föður-
arfinn sinn, sem verður sennilega
talinn í milljónum dollara. Stelp-
urnar eiga höfundarrétt að mörgum
upprunalegum upptökum gamla
mannsins en hann tók upp á því um
daginn að gefa út plötu með konsert-
upptökum af mörgum þessum
gömlu lögum. Stelpurnar telja að
það muni skerða arfinn verulega.
Þær hafa hótað að fara í mál við
gamla manninn vegna þessa, hann
sem er nýorðinn áttræður. Þær hafa
skrifað pabba bréf um málið, svo og
plötufyrirtæki hans.