Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1996, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1996
DV
Ólafur Árni Bjarnason og Ólöf
Kolbrún Harðardóttir syngja
stærstu hlutverkin.
Madama
Butterfly
Nú fer að fækka sýningum í
íslensku óperunni á Madame
Butterfly, en uppfærsla þessi
hefur fengið lofsamlega dóma
hjá gagnrýnendum og verið vel
sótt. Óperan fjallar um ástir og
harm japönsku geishunnar Cio-
Cio-San eða Madama Butterfly,
eins og hún er kölluð af sjóðliðs-
foringjanum Pinkerton, sem
giftist henni og býr með henni í
Leikhús
nokkra mánuði sér til gagns og
gamans. Hann snýr síðan aftur
til Bandaríkjanna án þess að
vita að hún gengur með barn
hans. Butterfly, trú eiginmanni
sinum, biður þess að hann komi
aftur og hann kemur aftur, en
með ameríska eiginkonu sér við
hlið og i þeim eina tilgangi að
ná í bam sitt. Öllum stoðum er
kippt undan tilveru Butterfly.
Hún getur ekki lengur lifað með
sæmd og ákveður því að deyja
með sæmd.
Það er Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir sem syngur hlutverk
Butterfly og ÓLafur Árni
Bjamason er í hlutverki Pin-
kertons. Meðal annarra söngv-
ara eru Bergþór Pálsson, Rann-
veig Fríða Bragadóttir og Sig-
urður Björnsson.
Hornsíli
í Mývatni
Ásgrímur Guðmundsson flyt-
ur fyrirleshir meö yfirskriftinni
Homsíli i Mývatni í stofu G-6 í
Líffræðistofnun Háskólans,
Grensásvegi 12, kl. 16.15 í dag.
Allir velkomnir.
Berglind Björk
í Café Óperu
Söngkonan Berglind Björg
ásamt hljómsveit skemmtir í
Café Ópem í kvöld.
Félag eldri borgara
Þorrablót verður í Risinu í
kvöld. Húsið opnar kl. 18.30.
Þorramatur, skemmtiatriði og
dans.
Samkomur
Alþjóðleg bænavika
í kvöld verður samkoma í Að-
ventkirkjunni við Ingólfsstræti
kl. 20.30. Ræðumaður: sr. Örn
Bárður Jónsson.
Tónlistarskóli á tíma-
mótum
er yfirskrift ráðstefnu sem
Samtök tónlistarskólastjóra
efna til í dag í Borgartúni 6,
Rúgbrauðsgerðinni.
-leikur að lœra!
Vinningstölur 25. janúar 1996
4»5*9*11*12*13*22
Eldri úrslit á símsvara 568 1511
t-CS- ETfR* F^E-<S-IKIN( ,^
SKObl ETK-K’J
STRRX, HRNKI MUKIOI
UPP>Í FEXUM pOfR-
Krank leitar alfra ráða til að
stöðva hrörnun sína.
Borg týndu
barnanna
Regnboginn hefur sýnt um
nokkurt skeiö hina frumlegu
frönsku kvikmynd Borg týndu
barnanna (La Cité des Enfants
Perdus), sem gerð er af Jeunet og
Caro, en þeir gerðu hina álíka
frumlegu Delicatessen. Mynd
þessi hefur farið misjafnlega í
fólk, sumir hrífast mjög en öðr-
um dauðleiðist.
Myndin gerist að hluta á hafi
úti þar sem Krank býr í sér-
byggðri flotborg ásamt móður
sinni, Miss Bismuth, Irvin, sem
er heili sem flýtur um í grænleit-
um vökva, talar í gegnum
grammófónhorn og sér í gegnum
gamla ljósmyndalinsu, og hópi
einstaklinga sem komnir eru af
einu foreldri við kynlausa æxlun
og hafa allir sömu arfgerð. Krank
Skemmtanir
1929 á Akureyri:
SSSól og Rocky Horror hópurinn
og leikur á skemmtistaðnum 1929 um
kvöldið. Með í þessari fyrstu fór Sól-
farsins er söng- og dansflokkur úr
sýningunni Rocky Horror, þar á með-
al Bjöm Jörundur, Dóra Wonder,
Hilmir Snær, Selma Björnsdóttir,
Valgerður Guðnadóttir og að sjálf-
sögðu Helgi Björnsson, sem eins og
fyrri daginn er í fararbroddi Sólar-
innar.
Hljómsveitin SSSól er nú að fara í
gang á nýjan leik eftir rólegt haust.
Sveitin hefur verið að æfa síðustu
vikur og hefur nú verið settur saman
pakki sem hlotið hefúr nafnið Sólfar-
ið. Það eru margir aðilar sem koma
að sólfarinu og er það misjafnt hverju
sinni hveijir koma fram með sveit-
inni.
Sólfariö inniheldur fjöllistamenn
úr ýmsum áttum og nú hefur Sólfarið
sig á loft og lendir á Akureyri í kvöld
SSSól verður ásamt fleirum að skemmta Akureyringum í kvöld.
Víða talsverð
hálka
Vegir á landinu eru flestir færir,
en mjög víða er talsverð hálka. Á
Vestfjörðum er ófært um Klettsháls
og Dynjandisheiði. Á leiðinni
Reykjavík-Akureyri má segja að sé
Færð á vegum
samfelld hálka alla leið og auk þess
er snjór á veginum Varma-
hlíð-Norðurá. Á Norðaustur- og
Austurlandi er bæði mikil hálka og
snjór víða á vegum. Það er því
brýnt að þeir sem ætla sér út á
landsbyggðina um helgina gæti vel
að búnaði bíla sinna. Einstaka leið-
ir eru ófærar vegna snjóa, en það
eru yfirleitt vegir sem liggja hátt og
eru ekki fjölfarnir.
B Hálka og snjór 0 Vegavinna-aðgát (•] Öxulþungatakmarkanir
LokabrSt0ÖU ® Þungfært 0 Fært fjallabílum
Atli Freyr eignast
tvíburasystkin
Tvíburarnir á myndinni eru
drengur og stúlka sem fæddust á
fæðingardeild Landspítalans 23.
janúar. Annar tvíburanna fæddist
kl. 9.07 og var hann 3515 grömm að
Barn dagsins
þyngd og 52 sentímetra langur,
hinn fæddist mínútu síðar, eða
9.08, og var 3160 grömm að þyngd
og 51 sentimetri að lengd. Foreldr-
ar þeirra eru Helga Barðadóttir og
Sveinn Logi Björnsson. Tvíburarn-
ir eiga einn bróður, Atla Frey, sem
er fimm ára.
Kvikmyndir
eldist hraðar en aðrir og kennir
hann því um að hann njóti ekki
drauma i svefni. Hann tekur því
til sinna ráða og rænir litlum
börnum í næstu hafnarborg og
hyggst dreyma í gegnum þau.
Sá sem hannar búninga í mynd-
inni er hinn frægi tískuhönnuður
Jean Paul Gaultier og tónlistin er
eftir Angelo Badalamenti.
Nýjar myndir
Háskólabió: Virtuosity
Laugarásbíó: Seven
Saga-bíó: Ace Ventura
Bíóhöllin: Kroppaskipti
Bíóborgin: Góðkunningi lög-
reglunnar
Regnboginn: Svaðilför á
Djöflatind
Stjörnubíó: Sannir vinir
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 19
26. ianúar 1996 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 66,940 67,280 65,260
Pund 100,660 101,180 101,500
Kan. dollar 48,510 48,810 48,060
Dönsk kr. 11,6050 11,6660 11,7700
Norsk kr. 10,2480 10,3050 10,3250
Sænsk kr. 9,5880 9,6410 9,8030
Fi. mark 14,5630 14,6490 14,0963
Fra. franki 13,0520 13,1260 13,3270
Belg. franki 2,1829 2,1960 2,2179
Sviss. franki 55,6600 55,9600 56,6000
Holl. gyllini 40,0800 40,3200 40,7000
Þýskt mark 44,8900 45,1200 45,5500
ít. lira 0,04158 0,04184 0,04122
Aust. sch. 6,3820 6,4210 6,4770
Port. escudo 0,4315 0,4341 0,4362
Spá. peseti 0,5295 0,5327 0,5385
Jap. yen 0,62640 0,63010 0,63580
írskt pund 104,380 105,030 104,790
SDR 97,13000 97,71000 97,14000
ECU 82,0900 82,5900 83,6100
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Krossgátan
1 'i : sr (f
7- li
10 fr n
1Z 1 j*/-
\U vr
To □
Lárétt: 1 festa, 7 meðal, 8 fátæki, 10
tungumál, 11 umdæmisstafir, 12 ná-
læg, 14 eldstæði, 16 mælir, 17 tré, 18
blekking, 19 hreinsa, 20 mynni, 21 ýfir.
Lóðrétt: 1 lasleiki, 2 ætt, 3 ákafi, 4
losni, 5 fyrirhöfn, 6 tjara, 9 truflar, 13
atlaga, 15 hugarburður, 17 krap,-19
róta.
Lausn á siðustu krossgátu.
Lárétt: 1 vert, 5 sog, 8 öreind, 9 kikna,
10 dó, 11 ull, 13 drit, 14 leir, 16 ama, 18
vinar, 19 ás, 21 ár, 22 deig.
Lóðrétt: 1 vökul, 2 eril, 3 rek, 4 tindra,
5 snarari,-6 oddi, 7 gjóta, 12 lind, 15
Eir, 17 mág, 18 vá, 20 sé.