Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1996, Síða 4
20
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996
TÓNLISIAR
Tears for Fears
- Raoul and the Kings of
Spain
★i
Dapurleg
■ ■ ■ ■■
orlog
Sú var tíðin að þeir félagar Rol-
and Orzabal og Curt Smith gerðu
víðreist um heimsbyggðina með hljómsveit sína Tears for Fears og
seldu milljónir á milljónir ofan af plötum. Nú er öldin heldur betur
önnur, Smith flúinn og Orzabal einn eftir á skútunni sem farin er að
láta illilega á sjá.
Orzabal heldur þó greinilega dauðahaldi í það sem eftir er og reyn-
ir að láta eins og ekkert sé og jafnvel eins og tíminn hafi staðið kyrr.
í það minnsta hafa tónsmíðar hans ekki breyst neitt frá því sem var
og þess vegna gæti þessi plata hafa komið út fyrir sjö, átta árum.
Stíllinn er alveg sá sami, útsetningamar þær sömu, hljóðið það
sama, allt eins og það var nema hvað lögin eru útþynntar eftirlíking-
ar þeirra laga sem skópu vinsældir Tears for Fears á sínum tíma.
Ula er nú komið fyrir góðum dreng þar sem Roland Orzabal er og
augljóst að hann þarf á verulegri hjálp að halda til að komast upp úr
þessu gamla fari sem hann er því miður pikkfastur í.
Sigurður Þór Salvarsson
Meat Loaf
- Welcome to the Neigh-
bourhood
Metsölu-
plötu
fylgt eftir
Dæmin sanna að Meat Loaf tekst aldrei eins vel á tónlistarsviðinu
og þegar hann er í samstarfi við lagahöfundinn Jim Steinman. Þeir
eru eiginlega í huga manns álíka óaðskiljanlegir og Laurel og Hardy
voru í kvikmyndunum eða Silli og Valdi i kaupmennskunni.
Steinman er ekki með öllu fjarri góðu gamni á Welcome to the
Neighbourhood. Hann leggur til lögin Left in the Dark og Original
Sin (The Natives Are Restless Tonight). Bæði eru í góðu lagi. Og það
eru einnig nokkrir ópusar sem lagahöfundurinn Diane Warren hef-
ur lagt til. Einn þeirra, I’d Lie for You (And That’s the Truth), hefur
slegið í gegn. Ef maður vissi ekki betur mætti alveg halda að Stein-
man hefði samið lagiö. Þungar áherslumar og kaflaskiptin minna
óneitanlega á tónsmíðar hans. Meat Loaf var svo sannarlega heppinn
að fá Diane til að leggja til músík fyrst Steinman var upptekinn við
önnur störf. Þá er ekki leiðinlegt að heyra Meat Loaf belja gamla Ea-
sybeats-slagarann Good Times sem núna heitir reyndar Runnin’ for
the Red Loght (I Gotta Life).
Tvö lög á plötunni Welcome to the Neighbourhood setur maöur
spurningamerki við: Seconds of Ecstacy og ósungna lagsstúfmn
Fiesta De Las Almas Perdidas. Bæði eru þau út úr kú miðað við ann-
að efni plötunnar þótt áheyrileg séu út af fyrir sig. Þrátt fyrir þetta
ættu Meat Loaf aðdáendur að geta vel unað við plötuna Welcome to
the Neighbourhood. Meat Loaf hefur tekist bærilega að fylgja met-
sölugripnum Bat Out of Hell II eftir.
Ásgeir Tómasson
Tracy Chapman
- New Beginning
irick
Sígandi
lukka
er best
IV iC'HAPMAN
JN E W íIeuINN | N
Ferill Tracy Chapman hefur verið ákaflega skrykkjóttur, svo að
ekki sé meira sagt. Hún sló í gegn með braki og brestum 1988 og var
árið eftir valin bjartasta vonin, besti nýliðinn, besta söngkonan og
guð má vita hvað. Síðan hnmdi allt meira og minna og lítið hefur
heyrst til hennar undanfarin misseri. Nú er komin ný plata og gefur
nafn hennar til kynna að Chapman ætli sér nú að byrja upp á nýtt.
Hvemig til tekst verður tíminn að leiða í ljós en eitt er víst að hún
byrjar ekki með sömu látunum nú og þegar hún byrjaði fyrst.
íVrir það fyrsta er tónlist hennar mun hægari en ’88; allt að því
þunglamaleg og krafturinn sem einkenndi hana á sínum tíma er
horfinn. Lögin era tilþrifalítil en ákaflega vönduð og inni á milli hér
era.nokkrar gullfallegar melódíur. Heildaráhrifin eru nokkuð trega-
blandin og kannski koma þar til áhrif frá textunum en þeir era á
svartsýnum nótum og þunglyndislegir. Chapman var þekkt á sínum
tíma fyrir beitta og gagnrýna texta og hér era vissulega nokkrir slík-
ir sem fjalla allir um illa meðferð mannskepnunnar á Móður Jörð.
Tracy Chapman hefur enn sem fyrr allt sem til þarf að bera til að
ná langt og án efa er það rétt stefna hjá henni að reyna ekki að end-
urtaka það sem fleytti henni á toppinn á sínum tíma.
Sigurður Þór Salvarsson
________________PV
Tina Turner í Evr-
ópuferð í sumar
Óðum er að skýrast
hvaða stórsveitir fara í
hljómleikaferðir um Evr-
ópu í sumar. Og þá er nátt-
úrlega einnig að skýrast
hverjir verða ekki á ferð í
sumar! Skoska rokksveitin
AC/DC ætlar til dæmis að
fylgja eftir plötunni kraft-
miklu, Ballbreaker. AC/DC
verður á Bretlandseyjum i
júní - spilar til dæmis í
Lundúnum 21. og 22. júní og
í Dyflinni 26.
Sjálfsagt eiga enn fleiri
eftir að flykkjast á tónleika
Tinu Turner enda hefur
hún ekki farið í almenni-
lega hljómleikaferð um Evr-
ópu í mörg ár. Tina sendir i
vor frá sér nýja plötu sem
reyndar átti upphaflega að
koma út síðastliðið haust
en var frestað. Hljómleika-
ferð söngkonunnar hefst í
París fjórða maí og lýkur
væntanlega á Ítalíu síðast í
september. Þá verður hún
búin að koma við í
Hollandi, Þýskalandi, Sviss,
á Spáni, í Svíþjóð, Dan-
mörku og Noregi að
ógleymdu Bretlandi og ír-
landi. Svo að dæmi sé tekið
verður Tina með tónleika á
Wembley leikvanginum í
Lundúnum 21. júlí. í Stokk-
hólmi verður hún sjötta og
sjöunda júní, níunda í
Gautaborg, tólfta og þrett-
ánda í Osló og 21. júní í
Kaupmannahöfn.
- Stones og Eagles afboða
Richards um það í viðtölum að þeir
væra farnir að hlakka til þess að
komast til Suður-Ameríku. Það lítur
því út fyrir að síðasti hluti Voodoo
Lounge hljómleikaferðarinnar, sem
var að breytast í Stripped-ferð, sé
nánast úr sögunni. Tekjur Stones af
hljómleikaferðinni árið 1994 námu
jafnvirði tæplega 7,9 milljarða
króna. Þess ber að geta að hljóm-
leikaferðin þá hófst fyrsta ágúst.
Eagles um kyrrt
Önnur fornfræg hljómsveit hefur
breytt fyrri áætlunum sínum.
Hljómsveitin Eagles ætlaði að halda
nokkra tónleika í Evrópu i sumar.
Ætlunin var að hefja Bretlandsferð
um miðjan júní og spila í flestum
stórborgmn Bretlands áður en hald-
ið yrði til meginlandsins og leikið á
nokkram popphátíðum þar. Nú hafa
liðsmenn Eagles ákveðið að spila
Tina Turner er væntanleg til tónleikahalds í Evrópu í vor til að fylgja eftir nýrri plötu
sinni.
Stones aflýsa
Rolling Stones héldu Evr-
ópubúum sem kunnugt er
við efnið í fyrrasumar þeg-
ar fjórmenningarnir fóra
vítt og breitt um álfuna og
léku á fjölmörgum úti- og
innitónleikum, fjölmennum
og fámennum. Meðal annars voru
hljóðrituð nokkur lög fýrir plötuna
Stripped sem kom út síðastliðið
haust. Ætlunin var að fylgja henni
eftir með annarri tónleikaferð í vet-
ur og vor. Ferð hljómsveitarinnar
til Suður-Ameríku og Asíu í vetur
hefur verið aflýst og áætlunum um
Evrópuferð frestað um óákveðinn
tíma. Ástæðan fyrir þessum breyt-
ingum er meðal annars sú að suður-
ameríski tónleikahaldarinn sem
ætlaði aö annast ferð hljómsveitar-
innar þar treysti sér ekki til að upp-
fylla kröfur hennar um ferðatilhög-
unina en ætlunin var að nota hinn
gifurlega umfangsmikla sviðsbúnað
sem notaður var í Voodoo Lounge
ferðinni í Evrópu í fyrra og Banda-
ríkjunum 1994.
Þessi ákvörðun Rolling Stones
virðist hafa verið tekin í skyndingu
því aðeins viku áður en hún var til-
kynnt ræddu Mick Jagger og Keith
ekkert utan Bandaríkjanna á sumri
komanda án þess að hafa skýrt frá
ástæðu þess að hætt var við Evrópu-
ferðina. Hljómsveitin hélt fjölmarga
tónleika í fyrra og var einnig á ferð
1994. Aðsókn að þeim var fádæma
góð. Greindi bandaríska blaðið
Variety frá því nýlega að tekjur
hljómsveitarinnar síðustu tvö ár af
hljómleikahaldinu einu saman
hefðu numið um 9,8 milljörðum.
Engin hljómsveit hagnaðist meira á
tónleikum vestanhafs í fyrra en
Eagles.
Irving Azoff, sem fer með við-
skiptamál liðsmanna Eagles, segir
raunar að allt sé óljóst um áform
hljómsveitarinnar á þessu ári. „Við
erum aö skoða það sem okkur
stendur til boða,“ segir hann.
„Kannski tekur hljómsveitin sér frí
þetta árið. Kannski ákveður hún að
tími sé kominn til að fara í hljóðver
og taka upp nýja plötu.“
The GhostofTom Joad
- Bruce Springsteen:
★★★
Lögin eru á lágu nótunum, ein-
föld í allri uppbyggingu og útsetn-
ingum og þeir sem hafa þolinmæði
uppgvötva hér margt af því besta
sem Springsteen hefur gert. -SÞS
Life - The Cardigans:
★★★
Fróðlegt verður að fylgjast með
framvindu mála hjá The Cardig-
ans því hljómsveitin er allrar at-
hygli verð og kemur að mörgu
leyti með nýjan ferskan tón inn í
poppflóruna. -SÞS
Meat Loaf
- Welcome to the Neighbourhood
★★★
Dæmin sanna að Meat Loaf
tekst aldrei eins vel á tónlistar-
sviðinu og þegar hann er í sam-
starfi við lagahöfundinn Jim
Steinman. -ÁT
Út og suður - Bogomil Font
★★★■<
Það er ekki spurning að herra
Font syngur betur á þessari plötu
en nokkru sinni fyrr. Röddin er
ekki eins daufleg og hlutlaus og
áður var, breidd hennar og tónsvið
meira. -ÁT
Alice in Chains - Alice in Chains:
★★★
Hljómsveitinni Alice in Chains
bregst ekki bogalistin á þessari
plötu en þeim fyrri, þó viðurkennt
sé að önnur „Dirt“ verði ekki búin
til. -GB
Made in Heaven - Queen:
★★★
Made in Heaven er að sjálfsögðu
skyldueign í safn allra aðdáenda
hljómsveitarinnar Queen og að-
gengilegri en margar fyrri plötur
sveitarinnar. Kannski er hún up-
plögð sem fyrsta plata fyrir þá sem
vilja kynna sér feril hennar. -ÁT