Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 25. MARS 1996 IÞROTTIR Getraunir: Enski boltinn 2tx 111 222 1211 Italski boltinn 2x1 121 121 1x11 Lottó 5/38: 1 1320 23 30 (17) i/i/iíiiitiifiiiiiíiiiiiiiiiiiii/iii kemur á vegum knattspyrnuskóla Bobbys Charltons og heldur tvö námskeiö með þjálfurum Einn besti knattspymumaður heims í dag, Frakkinn Eric Cant- ona sem leikur með Manchester United, kemur í óvænta heimsókn til íslands í dag. Hann kemur til landsins á vegum knattspymuskóla Bobbys Charltons sem orðinn er heims- frægur en Bobby Charlton er einn besti leikmaður sem Man. Utd hef- ur eignast. „Ég heyrði fyrst af þessu á fimmtudag og fór þá að kanna mál- ið. Ég fékk það síðan staðfest hjá Cantona að hann væri á leiðinni til landsins í dag og mundi dvelja hér tvo daga. Cantona mun halda nám- skeið með þjálfumm og kynna nýtt námskeið hjá skóla Charltons með ungum knattspymumönnum hér á landi. Knattspymusamband íslands mun aðstoða við þetta mál eftir því sem þörf krefur," sagði Eggert Magnússon, formaður Knatt- spymusambands íslands, í samtali við DV í gærkvöldi. Og Eggert bætti við: „Þetta er hvalreki fyrir íslenska knatt- spymuáhugamenn enda á ferð einn besti og vinsælasti knattspyrnu- maður heims í dag. Manchester United á fjölmarga stuðningsmenn hér á landi og Cantona er einn vin- sælasti leikmaður liðsins. Milli kl. 15 og 16 mun Cantona árita sérstaka fótbolta fyrir aðdá- endur sina í Kringlunni, efri hæð, við verslun Hagkaups, sem knatt- spyrnuskóli Bobbys Charltons gef- ur og einnig era áritaðir af Bobby Charlton. í kvöld verður opinn fundur með Cantona í samkomusal ÍSÍ í Laug- ardal. Þangað er von á mörgum þjálfurum og Cantona mun þar svara spumingum frá íslenskum þjálfuram og öðram sem áhuga hafa á unglingamálum varðandi ís- lenska knattspymu. Knattspymuskóli Bobbys Charltons er mjög þekktur í Bret- landi og ungir íslenskir knatt- spyrnumenn hafa verið í skólanum. Cantona er snemma á ferðinni en vegna annríkis með Manchester United á næstu dögum í ensku úr- valsdeildinni og bikarúrslitaleiks- ins þann 11. maí var ákveðið að Cantona drifi sig til landsins í dag. „Við hefðum viljað hafa meiri að- draganda að þessari heimsókn en því varð ekki við komið,“sagði Egg- ert Magnússon, formaður KSÍ. -SK Eric Cantona kemur til íslands í dag á vegum knattspyrnuskóla Bobbys Charltons. Hann dvelur hér á landi fram á miðvikudag. Reuter NM í fimleikum: Rúnar varð meistari á bogahesti - sjá bls. 26 til íslands í dag Eric Cantona kemur Manchester United og Liverpool leika til úrslita í ensku bikarkeppninni - sjá bls. 22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.