Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Side 5
24
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996
íþróttir
Deildabikarinn:
ívar með
þrjú fyrir
Blikana
Úrslit á föstudag
Valur-FH..................0-2
Lúövík Amarson og Davíð Ólafsson.
Haukar-ÍBV................0-5
Ingi Sigurðsson 2, Steingrtmur Jó-
hannesson, Bjamólfur Lámsson og
Leifur Geir Hafsteinsson.
Selfoss-Akranes...........0-4
Alexander Högnason, Stefán Þórðar-
son 2, sjálfsmark.
Víkingur-Víðtr............1-0
Sjálfsmark Bjöms Vilhelmssonar.
KS-Keflavlk...............1-0
- Jón Stefánsson 1, Hlynur Jóhanns-
son 2, Róbert Sigurösson 2, Guð-
mundur Steinarsson 1.
Leiftur-Þróttur, Nes......5-2
Úrslit á laugardag
KA-HK.....................0-1
Þorvaldur Sigurbjömsson.
ÍBV-Tindastóll............4-0
Friðrik Sæbjömsson, Rútur Snorra-
son, Leifur Geir Hafsteinsson, Stein-
grímur Jóhannesson.
Skallagnmur-Bl............5-0
Sveinbjörn Ásgeirsson, Valdimar K.
Sigurðsson, Sindri Grétarsson, Hiln.-
ar Hákonarson, Þórhallur Jónsson.
Breiðablik-KS ............6-0
ívar Sigurjónsson 3, Amar Grétars-
son, Sævar Pétursson, Þórhallur Hin-
riksson.
Leiknir R.-Reynir S.......3-2
Steindór Elísson, Róbert Amþórsson,
Heiðar Ómarsson - Grétar Hjartar-
son, Jónas Jónasson.
Úrslit á sunnudag
Víkingur R.-Grindavik.....1-2
Ingvi Borgþórsson - Zoran Ljubicic,
Milan Jankovic.
Haukar-KA .................1-0
Robert Stefánsson.
Selfoss-Stjarnan..........8-0
IR-TindastóU............. 2-2
Pálmi Guðmundsson, Viktor Eð-
varðsson - Daviö Harðarsson, Ingvar
Magnússon.
Leiftur-Léttir............8-0
Matthías Sigvaldason 3, Daði Dervic
2, Sverrir Sverrisson, Baldur
Bragason, Lasorik.
Akranes-BÍ...............14-0
Mihajlo Bibercic 3, Bjami Guðjóns-
son 2, Stefán Þóröarson 2, Ólafur
Þórðarson 2, Sigursteinn Gislason,
Gunnlaugur Jónsson, Jóhannes Harð-
arsson, Kári Steinn Reynisson, Alex-
ander Högnason.
0-7, 8-18, 16-20, 16-25, 18-30, 25-34
(27-38), 35-41, 37-72, 38-79, 54-86.
Keflavík-Grindavík
(27-38) 54-86
Stig Keflavíkur: Albert Óskarsson
13, Davíð Grissom 12, Elentínus Mar-
geirsson 7, Dwight Stewart 6, Guðjón
Skúlason 5, Jón Kr. Gíslason 3, Gunn-
ar Einarsson 3, Falur Harðarson 3,
Guðjón Gylfason.
Stig Grindavíkur: Helgi Guðfmns-
son 25, Hjörtur Harðarson 17, Rodney
Dobard 12, Unndór Sigurðsson 11,
Guömundur Bragason 10, Páll Vil-
bergsson 4, Ámi Bjömsson 3, Brynjar
Harðarson 2, Marel Guölaugsson 2,
3ja stiga körfur: Keflavík 6/21,
Grindavík 8/23.
Fráköst: Keftavík 35, Grindavík 40.
Flest fráköst Keflavíkur: Grissom
7, Stewart 7.
Flest fráköst Grindavíkur: Hjörtur
8, Dobard 7.
Flestar stoðsendingar Keflavíkur:
Jón Kr. 7, Guðjón 2.
Flestar stoðsendingar Grindavík-
ur: Hjörtur 5, Helgi 3.
Varin skot: Grissom 2, Stewart 1,
Sigurður 1 - Dobard 4, Marel 1.
Vítanýting: Keilavík 0/0, Grindvík
34/22.
Dómarar: Kristinn Albertsson og
Helgi Bragason. Sæmilegir.
Áhorfendur: Um 300.
Maður leiksins: Helgi Jónas Guð-
finnsson, Grindavík.
Grindvíkingar jöfnuðu metin við Keflvíkinga í úrslitakeppni úrvalsdeildar:
Grindvíkingar gerðu
grín að Keflvíkingum
- Grindavík burstaði Keflavík í Keflavík og allt getur nú gerst í einvígi liðanna
DV, Suðurnesjum:
Grindvíkingar sýndu styrk sinn
þegar þeir gjörsigruðu slakt lið
Keflavíkur, 54-86, í öðrum leik
liðanna í úrslitum mótsins. Aldrei
hefur lið Keflvíkinga fengið annan
eins skell á heimavelli. Sigur
Grindvíkinga var sanngjam og miklu
meira en það. Þeir voru betri á öllum
sviðum körfuboltans. Niðurlæging
Keflvíkinga er mikil eftir þennan
skell á sínum eigin heimavelli og
pressan er á þeim fyrir næsta leik.
Þeir verða að vinna aftur hug
stuðningsmanna sinna og annarra
landsmanna sem hafa haft mikla trú
á liðinu.
Það sem helst bar til tíðinda í
leiknum var að Keflvíkingar fengu
ekki eitt einasta vítaskot í leiknum
og þarf að leita langt aftur til að finna
lið sem spilað hefur í úrslitum án
þess að fá eitt einasta vítaskot í
leiknum. Á meðan fengu
Grindvíkingar 34 vítaskot og skoruðu
22 stig úr þeim.
Það sást greinilega hvert stefndi í
upphafi leiksins. Grindvíkingar voru
grimmari í öllum sínum aðgerðum og
voru Keflvíkingar sem áhorfendur
langtímum saman. Grindvíkingar
spiluðu stórkostlega í vörn og sókn og
voru minnstu leikmenn liðsins að
hirða fráköstin hvað eftir annað á
meðan leikmenn Keflvikinga voru á
hælunum. Var eins og skórnir þeirra
væru límdir við gólfið.
Grindvíkingar náðu að stöðva
skyttur Keflvíkinga með vel
útfærðum varnarleik eins og hann
gerist bestur. Sóknarnýting
Keflvíkinga var aðeins 32%.
Grindvíkingar náðu eimfaldlega að
loka öllum leiðum að körfunni með
öflugum vamarleik. Grindvíkingar
voru óhræddir við að keyra inn í
varnarvegg Keflvíkinga og upp að
körfunni og langtímum saman var
eina úrræði Keflvíkinga að brjóta á
þeim.
í upphafi seinni hálfleiks átti
Keflavík smávon en það stóð ekki
lengi þvi Grindvíkingar fór á kostum
og skoruðu 31 stig á móti 2. Á
lokamínútunni voru stuðningsmenn
Keflvíkinga famir að naga á sér
neglurnar því liðið náði rétt að skríða
yfir 50 stiga múrinn.
Einu leikmennirnir í liði
Keflvíkinga sem eiga hrós skilið em
ungu strákarnir, þeir Elentínus
Margeirsson, Guðjón Gylfason og
Gimnar Einarsson.
Hjá Grindavík var liðsheildin
stórkostleg. Helgi Guðfinnsson var
stórkostlegur og Hjörtur Harðarson,
Guðmundur Bragason og Dobard
voru frábærir. Unndór Sigurðsson og
Marel Guðlaugsson komust vel frá
sínu.
Það setti svip sinn á þennan leik
hve fáir áhorfendur mættu á leikinn.
Aðeins 300 manns komu en
forráðamenn liðanna telja að
tímasetning hafi ekki hentað vegna
fermingaveislna. Þeir hefðu viljað
hafa leikinn klukkan 20.
Talið er að tekjumissirinn hafi
numið 300 þúsund krónum. -ÆMK
Vorum ekki tilbúnir
- sagði Sigurður Ingimundarson
„Við vorum tæpast tilbúnir í leikinn, hvemig sem á því stendur.
Þetta var hvorki vanmat eðné að við höfum verið sigurvissir. það
gekk hvoiki né rak. Sóknin og vörnin var afleit og þeir voru að finna
alltof mörg sóknarfráköst. Því er ekki að neita að þetta er áfall,
sérstaklega vegna þess að við vorum að leika á heimavelli. það má
segja að við höfum verið heppnir að fara yfir 50 stiga múrinn. Það sjá
allir að það er svakalega lélegt. Við verðum snöggir að jafna okkur og
mætum tilbúnir í næsta leik, sagði Sigurður Ingimundarson, fyrirliði
Keflvíkinga, eftir leikinn.
Jón Kr. Gíslason sagði eftir leikinn að þetta hefði verið það
lélegasta sem hann hefði lent í á ferlinum.
A byrjunarreit
„Við voram staðráönir í að vera ekki 2-0 undir. Við
mættum tilbúnir i þennan leik og vorum staðráðnir í
að gera okkar besta. Vömin var frábær.við fengum góð
skot í sóknunum og voram þolinmóöir. Mig grunaði
alltaf að þeir væra hálf sigurvissir. Nú er bara að gera
okkur klára fyrir næsta leik. Við eram komnir á byrj-
unarreit aftur og kemur ekki annað til mála en að
vinna næsta leik á heimavelli," sagði Guðmimdur
Bragason. Hann sagði við félaga sína fyrir leikinn að
hann myndi vinnast. Þeir spurðu af hverju hann væri
svona sigurviss. „Minn maður er mættur á leikinn,"
sagði hann og átti þar við Ólaf Ragnar Grimsson.
Einbeittari til leiks
„Það hefur sýnt sig í gegnum árin í úrslitakeppninni að
liðin eru að vinna ýmsa stórsigra á víxl. Málið er að maður
fær bara einn vinning hvað sem sigurinn er stór. Við
ætlum að halda okkur á jörðinni eftir þennan sigur. Við
komum einbeittari til leiks. Við lékum góða vöm og það
gerðum við einnig í fyrsta leiknum en þá fylgdi sóknin
ekki með. Það gerði hún í þessum leik og árangurinn lét
ekki á sér standa. Menn eiga hrós skilið. fyrir góða
frammistöðu. Við lögðum það upp fyrir leikinn að vera
meira í skotmönnunum. Þannig að þeir fengu ekki frí skot.
Þá lagði ég upp úr því að vera með sjálfum okkur í
sókninni en það atriði klikkaði heima í fyrsta leiknum."
Davíð Grissom komst lítið áleiðis gegn Grindvíik í gær. Helgi Jónas Guðfinnsson, til hægri á myndinni, skoraði 25 stig fyrir Grindavík og átti stórleik.
+
25
Iþróttir -
Þrefaldir meistarar í vetur
Uumínwbitír- V j
SgftnrÍíUMf&A
' v'" 1 í;:
Wm ,i i f| fjlf W áW*1 fl| m
m
Lf ,
Lið Keflavíkur sem tryggði sér íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna í Hagaskóla í gærkvöldi. Liðið var vel að sigrinum komið og sýndi það og
sannaði gegn KR í gærkvöldi að þar fer besta kvennalið landsins í dag. - DV-mynd JAK
Keflavík þrefaldur meistari í körfuknattleik kvenna:
Keflavíkurstúlkur
ennþá langbestar
- Keflavík íslandsmeistari í kvennakörfuknattleik eftir stórsigur gegn KR
Keflavíkurstúlkur sýndu það og
sönnuðu í Hagaskóla í gærkvöldi að
þær eru með langbesta kvennalið
landsins í körfuknattleik. Þá sóttu
þær KR-inga heim í Hagaskóla í
íjórða leik liðanna í úrslitakeppni 1.
deildar kvenna og sigruðu með 33
stiga mun, 37-70.
Keflavíkurstúlkur, höfðu augljós-
lega ekki fengið sér sama morgun-
matinn og félagar þeirra í karlalið-
inu því þær gerðu út um leikinn
strax á fyrstu 10 mínútunum. Þá
skoraðu þær 19 stig án þess að KR-
stúlkum tækist að svara fyrir sig.
Keflvíkingar léku mjög grimman
varnarleik, skiptu ört úr svæðis-
vöm í pressuvöm, unnu boltann
mikið í vörninni og skorðuðu úr
hraðaupphlaupum.
KR-ingar töpuðu boltanum alls 21
sinni í fyrri hátfleik og hittu aðeins
úr fimm skotum. En þegar þær
loksins skoruðu á 11! mínútu hálf-
leiksins náðu þær að halda í við
Keflvíkingana án þess þó að ná yfir-
höndinni nokkurn tíma.
Síðari hálfleikur var, líkt og sá
fyrri, alfarið i eigu Keflvikinga.
Varnarleikur þeirra var frábær,
sóknarlotumar hnitmiðaðar og
snarpar og yfirburðir þeirra á vell-
inum algjörir.
Allir 10 leikmenn liðsins voru
rétt stemmdir, gáfu ekki fet eftir og
uppskáru eins og til var sáð. Þre-
faldir meistarar í vetur, bikarmeist-
arar, deildarbikarmeistarar og nú
íslandsmeistarar.
Að öðrum leikmönnum Keflavík-
urliðsins ólöstuðum er Anna María
Sveinsdóttir fyrirliði besti leikmað-
ur þeirra. Hún er agaður leikmað-
ur með mikla reynslu og hvetur
liðsmenn sína áfram öllum stund-
um. Varnarleikur hennar er frábær
og fáir leikmenn era eins hittnir og
hún. Þá hefur Veronica Cook, sem
kom til Keflavíkur um mitt mót,
fallið mjög vel inn í frábæra liðs-
heild Keflavíkurliðsins.
Veronica og Erla Reynisdóttir
voru stigahæstar Keflvíkinga i gær,
skoruðu sín 18 stigin hvor og Anna
María skoraði 11 stig.
KR-ingar vilja sjálfsagt gleyma
þessum leik sem allra fyrst og dap-
urlegt er fyrir þær að ljúka íslands-
mótinu með þessum leik. Lykilleik-
menn eins og Guðbjörg Norðfjörð,
María Guðmundsdóttir og Helga
Þorvaldsdóttir fundu sig engan veg-
inn og skoruðu þessar þrjár samtals
9 stig. Majenica Rupe varð lang-
stigahæst með 14 stig og Georgia
Kristiansen skoraði 8 stig.
-ih
„Átti von á sigri“
„Við erum lang-
bestar. Þetta var
brösugt í upphafi
móts en eftir að Ver-
onica kom til okkar
fór þetta að smella.
Við mættum tilbún-
ar í þennan leik,
sýndum það að við
værum bestar og
þetta var aldrei
spurning,” sagði
Anna María Sveins-
dóttir, fyrirliði Kefla-
víkur
„Ég átti von á því
að við myndum
vinna þetta allt í vet-
ur. Við lékum mjög
illa í síðasta leik-
hluta í Keflavík og
vorum staðráðin í að
laga það. Þessi leik-
ur var einn okkar
besti leikur í vetur
og það má segja að
hann hafi verið mjög
keflvískur,” sagði
Sigurður Ingimund-
arson, þjálfari Kefla-
víkur, kampakátur í
leikslok.
„Mjög fúlt að tapa“
„Það vai- mjög fúlt að tapa þessu svona en við fundum okkur ekki í
byrjun leiksins og það er eins og okkur hafi fundist við hafa gert nóg
með því að vinna þær í Keflavík á fostudaginn,“ sagði Guðbjörg Norð-
fjörð, leikmaður KR, í leikslok.
„Maður hefði haldið að við kæmum brjálaðar í þennan leik en okkur
skorti sigurviljann sem þær virtust hafa. Þær hafa reynsluna í því að
vinna i svona úrslitaleikjum og það kom þeim til góða í þessum leik.
Þær léku mjög góða vörn, sérstaklega í svæðisvöminni sem við höfum
átt í erfiðleikum með. En það er engin afsökun fyrir okkur. Þetta er
spuming um það hvort liðið vill sigra og þær höfðu greinilega meiri sig-
urvilja heldur en við í dag,” sagði Guðbjörg Noröfjörð.