Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1996, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1996, Qupperneq 2
22 MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 1996 Iþróttir utra BWU96lI± Einkunnagjöfm Reuter fréttastofan gefur öUum leikmönnum í Evrópukeppninni einkunn fyrir frammistööuna og einkunnir leikmanna í opnunar- leiknum voru þanníg hjá Reuter (mest hægt að fá 10 og minnst 1): England David Seaman ................7 Gary NewiUe .................5 Tony Adams...................6 Gareth Southgate ............6 Stuart Pearce ...............5 Paul Ince ...................6 Darren Anderton .............4 Paul Gascoigne...............7 Steve McManaman..............7 Alan Shearer ................7 Teddy Sheringham.............6 Samtals.....................66 Sviss Marco Pascolo ...............7 Sebastian Jeanneret..........6 Alain Geiger.................6 Ramon Vega...................5 Stephane Henchoz.............7 Yvan Quentin.................7 Christophe Bonvin............7 Ciriaco Sforza...............7 Johann Vogel.................8 Kubilay Turkilmaz............8 Marco Grassi ................7 Samtals.....................75 Baulað á enska liðið Áhorfendur á Wembley voru 76.567 á opnunarleik Englend- inga og þeir fóru ekki kátir af leikveUi. Lengst af bauluðu stuðnings- menn enska liðsins á sína menn og voru allt annað en ánægðir meö gang mála. -SK Bullurnar voru rólegar Lögreglan í London var í sjö- unda himni á laugardagskvöldið. Ástæðan var sú, að enskar fót- boltabullur höfðu afar hægt um sig og gríöarlegt öryggiskerfi lög- regiunnar virkaði eins og tU var ætlast. Aðeins 23 voru handtekn- ir, 15 Englendingar og afgangur- inn Þjóðverjar og Svisslendingar. Ástæður fyrir handtökunum voru drykkjulæti og verslun með falsaða og ólöglega miða. -SK Skotar fá ekki að mæta með sekkjapípur Þótt ótrúlegt megi viröast verður áhangendum skoska landsliðsins ekki leyft aö mæta með sekkjapípur sinar á leikina á EM. Það er enn ótrúlegra að sekkja- pípurnar hafa verið settar á lista með hættulegum vopnum. Alþjóöa knattspymusamband- iö hefur ákveðið að sekkjapípur séu á meðal þeirra hluta sem ekkert hafi með knattspyrnu að gera og því eru þær ekki leyfðar á knattspyrnuvöllum. Eftir þess- um stórbrotnu reglum FIFA verða enskir mótshaldarar að fara. Þeir áhorfendur sem gerast svo djarfir að mæta meö sekkja- pípurnar á leikina verða aö setja þær í geymslu við innganginn. Að öðrum kosti verða Skotamir að greiða háa sekt og þá væntan- lega fyrir ólöglegan vopnaburð. -SK Englendingar riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn Svisslendingum í opnunarleik Evrópukeppninnar á laugardag. Hér sést Svisslendingurinn Kubilay Turkilmaz skora jöfnunarmark Svisslendinga úr vítaspyrnu á 83. mínútu. David Seaman, markvörður Englands, fer í öfugt horn. Símamynd Reuter „Var ekki óstyrkur“ - sagöi Kubilay Turkilmaz „Ég var alls ekki taugaóstyrkur þegar ég tók vítaspyrnuna. Markið virtist stærra en ég hélt. Það var afrek að ná jafntefli gegn Englandi á þeirra heimavelli en sanit ekki nægilega gott af okkar hálfu,“ sagði Kubilay Turkilmaz, sem jafnaði metin fyrir Sviss gegn Englandi. „Ég er það heiðarlegur að ég viðurkenni að boltinn fór í hönd- ina á mér en ég sló hann ekki með hendinni. Boltinn fór í höndina á mér,“ sagði Stuart Pearce eftir leikinn en vítaspyrnan var dæmd á hann. -SK „Þurfti óþreytta mennM - sagöi Terry Venables Innáskiptingar Terrys Venables, landsliðsþjálfara Englendinga, gegn Sviss komu mörgum mjög á óvart og virtust vanhugsaðar í meira lagi. Var greinilegt að Venables var ekki í meira jafnvægi en leikmenn hans. .Venables tók Paul Gascoigne, Darren Anderton og Steve McManaman af leikvelli og það var sérstaklega sú ákvörðun Venables að taka McManaman út af sem var gagnrýnd enda haföi hann verið með bestu mönnum enska liðsins í leiknum. „Mínir menn voru þreyttir og við þurft- um að fá óþreytta leikmenn inn í leikinn," var það eina sem Venables vildi segja um innáskiptingarnar. -SK Hroðaleg byrjun Englendinga í úrslitakeppni Evrópukeppninnar: Enska liðið hefur ekki unnið leik síðan 1980 - enska liðið á hælunum og marði jafnteíli gegn Sviss, 1-1 Eini ljósi punkturinn í leik Englendinga og Sviss- lendinga í opnunarleik Evr- ópukeppninnar var að Alan Shearer skoraði loksins mark fyrir enska landsliðið. Þetta var fyrsta landsliðs- mark hans í 12 leikjum en hann skoraði síðast í leik gegn Bandaríkjunum í sept- ember árið 1994. Tur- kyilmaz skoraði jöfnunar- mark Sviss úr vítaspyrnu. Leikurinn var afar slakur og 1-1 jafnteíli sanngjörn úrslit. Alla vega átti enska liðið alls ekki skilið að sigra. Leikmenn liðsins náðu sér engan veginn á strik og vinna ekki leik í keppninni leiki þeir ekki betur en gegn Sviss.. Og guð hjálpi Terry Venables. Hann valdi Tony Adams í vörnina og í ljós kom að gagnrýnendur þeirrar ákvörðunar höfðu rétt fyrir sér. Adams gat varla hreyft sig og lék illa. „Við áttum að vinna“ „Við áttum að vinna þennan leik. Við áttum að skora tvívegis í síðari hálf- leik,“ sagði Artur Jorge, þjálfari Sviss, eftir leikinn. „Jafntefli er ekki mjög góð úrslit en þó nægUega góð fyrir okkur.“ Um vítaspyrnuna sem dæmd var og Svisslending- ar jöfnuðu úr sagði Jorge: „Mér sýndist ensku leik- mennirnir ekki mótmæla henni kröftuglega." „Mjög þreyttir“ Terry Venables, þjálfari enska liðsins, var ekki kát- ur 1 leikslok enda lítið til að gleðjast yfir: „Mínir menn virtust vera mjög þreyttir. Við gáfum þeim alltof mikið svæði eft- ir á miðjunni og því fór sem fór,“ sagði Venables. Enska landsliðið hefur ekki enn unnið leik í úr- slitakeppni Evrópukeppn- innar síðan 1980 en þá sigr- aði England lið Spánar, 2-1, í Napólí. Og Svisslendingar hafa aldrei unnið enska liðið á heimaveUi Englendinga. Ótrúleg Þrátt fyrir slæma frammistöðu enska liðsins gegn því svissneska í opnunarleik Evrópukeppninnar voru ensku blöðin furðulega róleg í umsögnum sínum um leikinn. . Bæði Sunday Times og Sunday Telegraph sögðu að laugardagur- inn hefði byrjað vel en endað Ula. í Sunday Telegraph birtist opnu- mynd af Alan Shearer að fagna marki sínu enda hafa blöðin ekki fengið tækifæri til að birta slíkar myndir síðan í september 1994. News of the World tekur enska varkárni liðið í-bakariið og blaðið taldi leik enska liðsins algjört hneyksli. ÖU ensku blöðin eru sammála um að opnunarhátíðin hafi verið stórglæsUeg en það sama verði ekki sagt um frammistöðu enska liðsins. ÖU segja blöðin að möguleikinn á að enska liðið vinni keppnina sé þó enn fyrir hendi. í HM 1966 þegar England varð heimsmeistari hafi jafntefli orðið í fyrsta leik. -SK Sauðir á Wembley ítölsku blöðin vanda Englend- ingum ekki kveðjurnar eftir leik Englands og Sviss. ítalskir blaðamenn kaUa ekki allt ömmu sína og í sumum ítölsku blöðunum var sagt að leik- menn enska liðsins hefðu verið eins og sauðir inni á vellinum gegn Sviss. Eitt blaðið sagði: „Enska liðið er gamalt og leikur sömu gömlu knattspyrnuna. Það er ekkert var- ið í þetta lið þrátt fyrir skrautleg- ar yfirlýsingar í Englandi. í La Stampa stóð eftirfarandi: „Þegar Englendingar gátu eitt- hvað í knattspyrnu tók það heila klukkustund fyrir syngjandi og ánægða áhorfendur á Wembley að tæma vöUinn. Eftir leik Englend- inga gegn Sviss á laugardag var völlurinn tómur eftir aðeins fimm mínútur." La Repubblica sagði: „Þetta var ljótur leikur. Enska liðið er mjög slæmt og getur tapað fyrir hvaða liði sem er í keppninni.“ -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.