Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1996, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 1996
23
DV
Þjóðverjar verðaí
allra fremstu röð
- Þýskaland vann Tékkland. Jafnt hjá Spáni og Búlgaríu og Danmörk vann Portúgal
Þjóöverjar sýndu mjög góðan leik
er þeir sigruðu Tékklendinga í úr-
slitakeppni Evrópukeppninnar, 2-0.
Það er greinilegt að Þjóðverjar
verða í allra fremstu röð á mótinu
þegar upp verður staðið í lok júní.
Bakvörðurinn Christian Ziege
skoraði fyrra markið og Andy Möll-
er það síðara og var það ekki síður
glæsilegt.
Þjóðverjar urðu hins vegar fyrir
miklu áfalli í fyrri hálfleik er
Júrgen Kohler var borinn meiddur
af leikvelli og leikur hann líklega
ekki meira með þýska liðinu í
keppninni.
„Ég vona svo sannarlega að þetta
hafi ekki verið síðasti leikur hans.
Ég vonast eftir að hann geti leikið
meira með okkur en það er óvíst.
Jákvæðu fréttirnar eru þær að
hann þarf ekki að gangast undir
uppskurð,“ sagði Berti Vogts, þjálf-
ari þjóðverja. „Þetta er auðvitað
mikið áfall því Kohler er líklega
besti vamarmaðurinn í allri keppn-
inni,“ sagði Vogts enn fremur.
Óheppnir Búlgarar
Lið Búlgaríu var mjög óheppið að
sigra ekki slakt lið Spánverja en
leik liðanna lauk með jafntefli, 1-1.
Þrátt fyrir mjög fjörugan fyrri
hálfleik var ekkert mark skorað en
í þeim síöari fóru hlutirnir að ger-
ast. Hristo Stoichkov skoraði fyrir
Búlgaríu á 65. mínútu úr vítaspymu
og síðan var dæmt af mark sem
hann skoraði. Línuvörður áleit
hann rangstæðan. Svo var alls ekki
og um mikil mistök að ræða hjá
línuverðinum.
Smátt og smátt fóm Spánverjar
að láta til sín taka og þeir jöfhuðu
metin með miklu heppnismarki.
Sergi Barjuan skaut þá föstu skoti í
félaga sinn á markteignum og knött-
urinn þaut af honum í netið. Þá
hafði einum leikmanni Búlgaríu
verið vikið af leikvelli og síðar fór
einn Spánverjinn sömu leið.
Lið Búlgaríu kom nokkuð á óvart
í þessum leik og getur náð mjög
langt í keppninni. Stoichkov var
stórhættulegur allan leikinn, en
endaiaust rövl í dómara leiksins
setti slæman blett á annars góðan
leik hans. Lið Spánar olli vonbrigð-
um og liðið verður að leika mun
betur en í þessum leik ef Spánn á að
ná langt 1 þessu móti.
Evrópumeistarar Dana náðu
öðru stiginu
Evrópumeistarar Dana eiga erfitt
mót fyrir höndum og koma líklega
ekki til með að verja titilinn. Allt
getur þó gerst.
Brian Laudrup kom Dönum yfir á
21. mínútu gegn Portúgal með
glæsilegu marki eftir flottan einleik.
Laudrup var sá leikmaður á EM í
gær sem sýndi skemmtilegust
tilþrif.
Skemmtilegt lið Portúgals fór að
sýna klæmar eftir mark Dana og
lengi áttu meistaramir í vök að
verjaát. Peter Schmeichel varði
hvað eftir annað meistaralega og
bjargaði því sem bjargað varð.
Sýndi hann og sannaði enn einu
sinni að hann er besti markvörður
heims í dag. Schmeichel kom þó
ekki í veg fyrir jöfnunarmark
Portúgala á 53. mínútu er Sa Pinto
skallaði knöttinn í mark Dana á
glæsifegan hátt.
-SK
Bíira 96ó% Erz&IauruI
Einkunnagjöfm
Þýskaland
Andreas Köpke 7
Stefan Reuter 6 '
Thomas Helmer 6
Matthias Sammer 7
Jiirgen Kohler 6
Andreas Möller 8
Thomas Hessler 7
Christian Ziege 8
Dieter Eilts 7
Fredi Bobic 7
Stefan Kuntz 6
Samtals 75
Tékkland
Petr Kouba 6
Jan Suchoparek 8
Miroslav Kadlec 6
Michal Hornak 6
Radek Latal 5
Pavel Nedved 6
Jiri Nemec 6
Karel Poborsky 6
Martin Frvdek 5
Radek Bejbl 7
Pavel Kuka 6
Samtals 67
Einkunnagjöfín
Danmörk
Peter Schmeichel 10
Thomas Helveg 7
Marc Rieper 7
Jes Hogh 7
Jens Risager 6
Brian Steen-Nielsen . ... 6
Henrik Larsen 7
Claus Thomsen 7
Michael Laudrup 8
Brian Laudrup 9
Mikkel Beck 7
Samtals 81
Portúgal
Vitor Baia 7
Paulinlio Santos 7
Femando Couto 8
Helder 7
Dimas 7
Oceano 6
Figo 7
Paulo Sousa 7
Rui Costa 9
Joao Pinto 8
Sa Pinto 9
Samtals 82
Peter Schmeichel er fyrsti leik-
maðurinn til aö fá 10 á EM.
Andy Mölier lék mjög vel með Þjóðverjum gegn Tékklendingum í gær og skoraði annað mark þýska liðsins. Hér
fagnar hann markinu sem var mjög glæsilegt. Símamynd Reuter
„Ég sá engan ffisk"
Menn gera ýmislegt til að drepa tímann í tauga-
spennu fyrir leikina á EM. Fyrirliði franska landsliðs-
ins, Didier Deschamps, lét til leiðast í gær og fór tii
laxveiða í ánni North Tyne River, sem er skammt frá
hóteli því sem Frakkar búa á.
Fyrirliðanum var boðiö i veiðitúrinn og þar sem
hann er mikill áhugamaður um fluguveiði þáði hann
boðið. „Þetta var erfiður dagur til að veiða fisk. Ég
held að það hafi veriö meiningin að veiða lax en við
sáum engan fisk,“ sagði fyrirliðinn eftir að hafa kom-
ið á hótelið með öngulinn í rassinum.
Vonandi gengur fyrirliðanum betur í knattspyi-n-
unni en veiðinni en margir eru þeirrar skoðunar að
franska landsliðið sé það sterkasta um þessar mundir
i Evrópu. Frakkar hafa þó örugglega efast um það eft-
ir að hafa séð Þjóðverja í gær. -SK
Frakkar ósigraðir
í 23 viðureignum
. Frakkar mæta Rúmeníu í B-
riðli Evrópumótsins í dag í
Newcastle. Lið Frakka er undir
álagi því heima fyrir krefjast
allir að liðið standi sig í
Englandi. Undir stjórn Aime
Jacquet hefur liðið leikið 23
leiki í röð án þess að tapa.
Jacquet er bjartsýnn fyrir
leikinn og segir sina stráka
staðráðna í að halda áfram á
sigurbraut.
„Við munum leika sóknar-
leik og ég er bjartsýnn á gott
gengi hér,“ sagði Aime. -JKS
Hagi bjartsýnn
á gott gengi
Rúmeninn Gheorghe Hagi
nær merkum áfanga þann 18.
júní en þá leikur hann 100.
landsleik sinn þegar Rúmenar
mæta Spánverjum. Hagi verður
annar Rúmeninn sem brýtur
þennan leikjamúr.
„Við eigum að mínu mati yfir
að ráða sterkari mannskap en á
HM í Bandaríkjunum fyrir
tveimur árum. Margir segja að
liðið okkar sé komið til ára
sinna. Við erum sterk liðsheild
og á það eftir að skila sér, sagði
Hagi. -JKS
Hollendingar
í vandræðum
Hollendingar, sem margir
spá góðu gengi á Englandi,
hafa svolitlar áhyggjur af
meiðslum sterkra leikmanna
fyrir leikinn gegn Skotum í dag
á Villa Park í Birmingham
Vafi er með Frank de Boer,
Peter Hoestra og Patrick
Kluivert. De Boer er alveg úti
en Kluivert og Hoestra eru
meiddir á hné.
Nokkrir leikmenn skoska
liðsins sögðu í gær að á
brattann væri að sækja.
-JKS
íþróttir
Bíiro 96
En^&EiMÍ
Einkunnagjöfm
Spánn
Andoni Zubizarreta............6
Alberto Belsue ...............6
Rafael Alkorta ...............6
Abeiardo Femandez.............5
Sergi Barjuan.................6
Jose Luis Caminero ............5
Guillermo Amor................6
Fernando Hierro...............8
Luis Enrique Martinez..........6
Julen Guerrero................4
Juan Pizzi.....................5
Samtals......................63
Búlgaría
Borislav Mihailov.............7
Petar Hubchev .................5
Emil Kremenliev ...............5
Trifon Ivanov..................6
Ilian Kiriakov................6
Yordan Lechkov................7
Zlatko Yankov ................6
Krasimir Balakov..............6
Hristo Stoichkov..............8
Emil Kostadinov...............6
Lyuboslav Penev...............5
Samtals......................67
Stoichkov
æfur út í
dómarann
Búlgarinn Hristo Stoichkov
var ekki par ánægður meö
frammistöðu italska dómarans í
leik Búlgariu og Spánar.
„Sá maður sem gerði flest mis-
tökin á vellinum var dómari
leiksins. Þannig á það auðvitað
ekki að vera. Það er ekki hægt að
senda tvo leikmenn út af með
rautt spjald si svona, tvo mjög
mikilvæga leikmenn," sagði
Stoichkov.
Hann var einnig mjög óánægð-
ur með að löglegt mark hans í
upphafi siðari hálfleiks var dæmt
af vegna rangstöðu sem
Stoichkov, fyrirliði búlgarska
liðsins, sagði að hefði ekki verið
til staðar.
-SK
Spjaldagleði
Dómararnir á EM hafa gert
mikiö af'því að veifa spjöldunum
á EM. í leik Búlgaríu og Spánar
voru 7 gul á lofti og 2 rauð. í leik
Þýskalands og Tékklands voru
gulu spjöldin 10.
t leik Dana og Portúgala í gær
sýndi dómarinn 6 leikmönnum
gult spjald og í opnunarleik
keppninnar voru þau jafnmörg.
Samtals 29 gul spjöld og 2 rauð í
fyrstu fjórum leikjunum. -SK
Afiizwa
íslandsmótið
Mizuno-deildin
Mánudagur 10. júní
kl. 20.00
KR-völlur
KR - ÍBV
Mosfellsbær
Afturelding - Valur
Akureyrarvöllur
ÍBA - Stjarnan
Kópavogsvöllur
Breiðablik - ÍA