Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1996, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1996, Qupperneq 8
28 MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 1996 Iþróttir_________________________________________ dv Englendingar vilja HM 2006 Englendingar eru fullir áhuga á að halda heimsmeistarakeppn- ina í knattspyrnu árið 2006 og ólympíuleikana tveimur árum slðar, eða 2008. Breska ríkis- stjórnin er þessu máli fylgjandi. Árið 2006 veröa 40 ár síðan Eng- lendingar héldu keppnina síðast en þá urðu þeir heimsmeistarar. Ef Englendingar komast með sóma frá Evrópukeppninni, sem nú stendur sem hæst, er talið að þeir eigi góða möguleika. Metþátttaka á ÓL í Atlanta Þátttökuþjóðir á ólympíuleik- unum í Atlanta í sumar verða aldrei fleiri. Aðildarþjóðir Al- þjóða ólympíunefndarinnar eru 197 og verða þær í fyrsta sinn allar með í Atlanta í sumar. Það þótti tíðindum sæta að um helg- ina var tilkynnt að þrír íþrótta- menn frá Palestínu kepptu á ólympíuleikunum í sumar. Samningi viö Amunike rift Spænska liðiö Barcelona rifti um helgina samningi við níger- íska knattspyrnumanninn Emmanuel Amunike. í síðustu viku var gengið frá samningi við ,hann og félag hans Sporting Lissabon. Amunike kom um helgina til Barcelona í læknis- skoðun og féll á henni. Hnén eru farin að gefa sig og fór því flög- urra ára samningur út í loftið. Marseille vil fá David Ginola Franska liðið Marseille, sem vann sér sæti í 1. deild í vor, hef- ur að undanförnu verið að bera víurnar í David Ginola hjá Newcastle ef marka má fréttir franskra blaða um helgina. Vegna mútumála var Marseille dæmt niður í 2. deild fyrir nokkrum árum en ætlar sér stóra hluti á næsta tímabili. Hertha bjargaöi sér frá falli Hertha Berlin, sem Eyjólfur Sverrisson leikur meö, bjargaði sér um helgina frá falli þegar lið- ið gerði markalaust jafntefli við Wattenscheid í lokaumferð 2. deildar. Mannheim tapaði á heimavelli fyrir Duisburg, 3-1, og Bochum, sem komið er í úr- valsdeildina, tapaði fyrir Mainz. Kouba á leiö til Leeds? Forráðamenn Leeds leita nú að markverði til að leysa John Lukic af hólmi. Leeds ætlar skoða markmenn í Evrópu- keppninni. Félagið hefur mikinn áhuga á Petr Kouba hjá Sparta Prag og kæmi ekki á óvart þótt Leeds byði honum samning. Arnór og Hlynur stóöu sig vel Arnór Guðjohnsen og Hlynur Birgisson komust vel frá sínu þegar Örebro vann Oddevold, 2-0. Amór fékk gult spjalt í leiknum og veröur í leikbanni í næsta leik. Siguröur Jónsson lék ekki með Örebro í gær, var í leikbanni vegna tveggja gulra spjalda. -JKS/EH Dennis Rodman, frákastakóngurinn í NBA, átti frábæran leik með Chicago í öðrum leiknum gegn Seattle. Hann lagði þar grunninn að sigrinum. Rodmann tók 20 fráköst og skoraði 10 stig og tvö þeirra með þessari troðslu. Reuter NBA-úrslitin: Öruggt hjá Chicago Lið Chicago Bulls náði tveggja vinninga forskoti í úrslitum NBA-deildarinnar i körfuknatt- leik með sigri gegn Seattle Supersonics aðfaranótt laugar- dags, 92-88. Fyrstu tveir leikirn- ir voru í Chicago en 3. leikurinn og sá 4. verða í Seattle. Þriðja viðureignin var í nótt sem leið en úrslit voru ekki kunn áður en DV fór í prentun. Eftir leikinn í Chicago er ljóst að Michael Jordan og félagar eiga erfitt verkefni fyrir höndum í Seattle. Chicago þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum í öðrum leiknum og þáð var ekki fyrr en undir lok hans sem Chicago tryggði sér sigurinn. Michael Jordan var ánægður með sigurinn en ekki með hvernig liðið lék í leiknum. Hann sagði það ljóst að liðið gæti ekki leyft sér svona leik í Seattle. Dennis Rodman var hrósað í hástert íyrir frammistöðu sína, tók 20 fráköst og var sá sem kom sigrinum í örugga höfn. George Karl, þjálfari Seattle, var vonsvikinn eftir leikinn. „Chicago var ekki sannfær- andi en við nýttum okkur það ekki. Dennis Rodman lagði grunninn að sigri Chicago. Við verðum að bretta upp á ermarn- ar og svara fyrir okkur á heima- velli,“ sagði Karl. Michael Jordan var sem oftast stigahæstur hjá Chicago með 29 stig. Scottie Pippen skoraði 21 stig og Rón Harper 12 stig. Shawn Kemp skoraði 29 stig fyrir Seattle, Hersey Hwkins gerði 16 stig og Detlef Schrempf 15 stig. -JKS Körfuknattleiksdeild KR ætlar sér langt - Jónatan Bow er orðinn íslenskur ríkisborgari Körfuknattleiksdeild KR stefnir að því að verða eitt eif fjórum efstu liðunum á komandi leiktíð og vænta þeir mikils af komandi vetrum og árum. Það eru einmitt þrjú ár þangað til KR verður 100 ára og ætla liðið að halda upp á það með góðum ár- angri og í nýju húsi sem verður vonandi tekið i notkun á árunum 1998-1999. Benedikt Guðmundsson verður áfram þjálfari liðs- ins og hefur hann gert tvegggja ára samning við KR og eru menn mjög sátt- ir við starf hans þar. Jónatan James Bow er orðinn íslenskur ríkisborg- ari og verður hann í her- búðum KR næstu fjögur árin og ætla KR-ingar að nota krafta hans eins og þeir geta og verður Bow að- stoðarþjálfari Guðmundar. Leita að leikmanni KR-ingar eru því aö leita sér að erlendum leikmanni og eru þeir í viðræðum við bandarískan bakvörð en það skýrist allt á komandi vikum. KR hefur einnig borist liðsstyrkur frá Tinaastóli en Hinrik Gunnarsson kemur til með aö spila með KR á næstu leiktíð. Vestiu’bæjarliðið ætlar sér stóra hluti og fer það í keppnisferðalag til Evrópu í lok júlí og mætir þar sterkum þýskum, frönsk- um og belgískum liðum, auk þess sem KR tekur þátt í móti í Lúxemborg. Nýkjörinn formaður Körfuknattleiksdeildar KR, Gísli Georgsson, skýrði frá þessu á blaðamannafundi. -JGG Yfirlýsing frá Vernharði Þorleifssyni júdómanni: „Minnsta hótun um að fara ekki yrði minn banabiti" DV hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Vernharði Þorleifsson, júdómanni í KA á Akur- eyri: „Vegna ummæla Jóns Óðins Óðinssonar, þjálf- ara míns, í DV og í kjölfar yfirlýsingar frá Júd- ósambandi íslands getur undirritaður ekki leng- ur orða bundist. Sem miðdepill í þessu fjaðrafoki finnst mér bæði óþægilegt og ósanngjamt að geta ekki sagt skoðun mína opinberlega, þó svo að það geti orðið mér að falli. Rétt er að haldinn var fundur 3. júní sl. þar sem rætt var æfingafyrirkomulag mitt fram að Ólympíuleikunum nú i sumar. Þar sagði ég eins og er að ég hef ekkért að athuga við störf Michals Vachuns í vetur. Á þessum fundi var mér gert fyllilega ljóst að JSÍ réði hvaða þjálfari yrði send- ur og einnig hvaða keppandi. Með góðum árangri mínum í vetur getur nefnilega verið að ég hafi tryggt varaformanni JSÍ þátttökurétt á sínum fimmtu Ólympíuleikum, haldi ég mig ekki á mott- unni. Jón Óðinn hefur þjálfað mig frá byrjun og því finnst mér eðlilegt og það er einlæg ósk mín að hann verði mér við hlið þegar ég enda minn júdó- feril, ef ég yerð sendur til ÓL ‘96. Ég hef stefnt á þátttöku á Ólympíuleikiun frá barnsaldri og sein- ustu þrjú ár hef ég séð glitta í markmiðið bak við skýin. Jón Óðinn hefur staðið á bak við mig all- an þann tíma. Aftur á móti hefur Michal Vachun óspart hvatt andstæðinga mína á móti mér, jafnt á mótum innanlands sem alþjóðlegum mótum, þó svo að ég hafi verið titlaður landsliðsmaður og Michal Vachun titlaður landsliðsþjálfari. Sjálf- sagt sjá stjórnarmenn JSÍ ekkert athugavert við þetta, enda hafa þeir sumir verið andstæðingar mínir í umræddum tilfellum. Svona atvik tekur maður mjög nærri sér og fyrirgefúr seint. Stjórn JSÍ hefur verið fullljóst frá því seinasta sumar að ég hygðist fá Jón Óðin með mér á sem flest mót og umfram allt á Ólympíuleikana í Atlanta ef það takmark næðist. Það mál var hins vegar saltað í allan vetur og þegar upp var staðið hafði hann að- eins fylgt mér einu sinni til keppni. Mér þykir leiðinlegt að þetta mál skuli ekki hafa verið leyst innan sambandsins. Ég hef fullan hug á að fara á ÓL ‘96 og veit að minnsta hótim um að fara ekki yrði minn bana- biti í þessu máli. En aðalmálið er það að Jón Óð- inn er þjálfari minn og honum, og aðeins honum, þakka ég árangur minn, og ekki hvað síst, með honum líður mér vel. Ég óska eftir að Jón Óðinn fái að fylgja mér á ÓL. Þetta finnst mér ekki órétt- lát ósk heldur sjálfsögð. Þessa fáu mánuði í vet- ur, sem ég hef verið í Reykjavík, hef ég verið í stöðugu sambandi við Jón Óðin og rétt er að taka fram að ástæðan fyrir því að ég hef dvalið í Reykjavík er sú að mínir helstu æfingafélagar úr KA hafa stundað nám í Háskólanum í Reykjavík í vetur. Spurningin er sem sagt núna sú hvor er mikil- vægari fyrir JSÍ? Á að fara að óskum íslensks keppnismanns, sem þykist vita hvað henti hon- um og hverjir hafi reynst honum best, eða er- lends þjálfara sem heldur til síns heimalands eft- ir ÓL ‘96. í raun skil ég ekki að nokkur annar en Jón Óð- inn hafi áhuga á að fara með mér á ÓL '96, nema þá til að uppskera það sem Jón Óðinn sáði.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.