Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Síða 1
MANUDAGUR 8. júlí 1996 IÞROTTIR Getraunir: Sænski boltinn 21 x 111 211 222x Lottó 5/38: 5 20 21 23 26 (7) //////////////////////////////////// Margar Blika- stúlkur á förum? Svo kann að fara að stór skörö verði höggvin í kvennalið Breiðabliks í knattspymu eftir þetta tímabil þvi nokkrir lykil- manna liðsins hugsa sér til hreyfings 1 haust. Landsliðskonumar Ásthildur Helgadóttir, Margrét Ólafsdóttir og Helga Ósk Hannesdóttir luku aUar stúdentsprófum í vor og hyggja á nám erlendis. Helga Ósk fer nær örugglega til Banda- ríkjanna og Ásthildur hefur ver- ið að leita fyrir sér á sömu slóð- um og hefur þegar tekið þátt í úrtökumóti fyrir háskóla vestan- hafs. Þá em líkur á að Margrét haldi til Danmerkur og gangi til liðs við þarlendu meistarana, Fortuna Hjörring. -ih/VS Enn meiðsli hjá Keflvíkingum Knattspyrnulið Keflvíkinga varð enn fyrir barðinu á meiðsl- um á laugardaginn en þá fóra tveir lykilmanna þess meiddir af velli i leik gegn Austria Wien í Intertoto-keppninni, þeir Ragnar Margeirsson og Ragnar Steinars- son. Ragnar Steinarsson tognaði á ökkla og Ragnar Margeirsson á læri og óliklegt er að þeir geti leikið með liðinu gegn Grinda- vík í 1. deildinni á miðvikudag. „Ég geri mér litlar vonir um að spila og vona bara að þetta sé tognun, ekki rifíð út úr vöðva. Ég stefni frekar á aö geta verið með í bikarleiknum við ÍBV um næstu helgi,“ sagði Ragnar Mar- geirsson við DV í gær. -ÆMK/VS Stúlkurnar koma stigalausar heim Stúlknalandsliðið í knatt- spyrnu tapaði þremur síðustu leikjum sínum á Norðurlanda- mótinu sem lauk í Finnlandi í gær, fyrst fyrir Finnum, 1-0, þá fyrir Norömönnum, 5-0, og loks fyrir HoUendingum í lokaleikn- um í gær, 1-0. ísland fékk því ekki stig á mótinu. -vs ACMilanvill ná í Shearer ítalska blaðið Gazzetta della Sport skýrði frá því að AC Milan ætlaði sér að vera með í barátt- unni um enska knattspyrnu- manninn Alan Shearer hjá Blackbum. Forráðamenn Black- burn hafa neitað að selja Shear- er þrátt fyrir pressu frá Manchester United, Newcastle, Juventus og Arsenal en sam- kvæmt ítalska blaöinu ætlar AC Milan að bjóða 2,3 miUjarða króna í Shearer. Kluivert kyrr hjá Ajax Patrik Kluivert, sóknarmaður- inn efnUegi hjá Ajax, framlengdi samning sinn við hoUensku meistarana um helgina til tveggja ára. Manchester United og ACMUan vora að undirbúa tilboð í hann og Middlesbrough vUdi borga 610 miUjónir fyrir þennan 19 ára gamla markaskor- ara. Wimbledon-mótið í tennis vann ai örvggi Richard Krajicek frá HoUandi sigraði í gær MaliVai Washington frá Bandaríkj- unum með nokkrum yflrburðum í úrslitaleik karla á Wimbledon-mótinu í tennis. Leikurinn endaði 6-3, 6-4 og 6-3 en tók óvenjulangan tíma þar sem þrivegis þurfti aö gera hlé á honum vegna rigningar i London. Þetta var fyrsti sigur HoUendingsins hávaxna á einu af stóra mótunum í tenn- is og hann náði 14 ásum í leiknum. Úrslitaleikurinn var á margan hátt sögulegur. Þetta er í fyrsta skipti sem tveir „óraðaðir" keppendur komast í úrslit og Was- hington varð fyrsti blökkumaðurinn tU að komast í úrslit á Wimbledon í 21 ár, eða síðan Arthur Ashe bar þar sigur úr býtum árið 1975. Úrslitin í kvennaflokki komu hins vegar ekki sérlega á óvart. Steffi Graf frá Þýskalandi varð Wimbledonmeistari í sjöunda skipti með því að sigra Aröntxu Sanchez Vicario frá Spáni, 6-3, 7-5, í úrslitaleiknum á laugardaginn. -VS Richard Krajicek fagnar glæsilegum sigri sínum á Wimbledon-mótinu í gær. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.