Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Qupperneq 2
22
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1996
íþróttir
Þór mætir KA
Á föstudaginn var dregið í 8
liða úrslit bikarkeppni karla í
knattspymu. Skaginn fær Fylki í
heimsókn, KR spilar gegn Val á
Hlíðarenda og Keflavík spilar á
móti Eyjamönnum í Keflavík.
Það skemmtilega við þessi 8 liöa
úrslit er að 2. deildar liðin tvö,
Þór og KA, mætast á Akureyri í
algjörum „derby-leik“ og verður
gaman að fylgjast með því.
Leikirnir í Keflavík og á
Akranesi fara fram 14. júlí,
Valur og KR leika 16. júlí og Þór
og KA 18. júlí.
Guðni heiðursfélagi
Sá siður hefur tíðkast hjá
stuðningsmannaklúbbum ensku
félagsliðanna að einn leikmaður
er kosinn heiðursfélagi hjá
klúbbnum. Fyrir nokkru fór
stuðningsmannaklúbbur Bolton
Wanderes á Norðurlöndum fram
á það við Guðna Bergsson að
hann yrði heiðursfélagi í
klúbbnum og varð hann við
þeirri áskorun.
Seaman til Inter?
Umboðsmaður David Seam-
ans, landsliðsmarkvarðar Eng-
lands og Arsenal, greindi frá þvi
um helgina að forráöamenn Int-
er Milan á Ítalíu hefðu haft sam-
band viö sig til að spyrjast fyrir
um það hvort hann vildi ganga
til liðs við Inter. Ekki var um
formlegt tilboð að ræða heldur
fyrirspum en hvort Inter býður í
kappann er ósvarað. Þá hafa
bresk blöð verið með getgátur
um það að undanförnu að Bruce
Rioch, framkvæmdastjóri Arse-
nal, ætli á næstunni að bjóða i
Paul Ince hjá Inter Milan. Inter
hefur styrkt sig mikið upp á
síðkastið og munu frönsku
landsliösmennirnir Youri Djork-
aeff og Joseph Angloma spila þar
í vetur sem og Aaron Winter,
hollenski landsliðsmaðurinn.
Venables meö Tyrki?
Bresk blöð greina frá því í dag
að Terry Venables, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Englands, sé að
íhuga tilboð sem honum hefur
borist um að taka við tyrkneska
landsliðinu. Fatin Tarin, fyrr-
verandi landsliðsþjálfari Tyrk-
lands, hefur tekið við Galatasary
og þess vegna leita Tyrkir nú að
nýjum þjálfara.
íslendingurinn knái
Þjálfari Waldorf Mannheim,
Klaus Schlapper, sagði þýsku
sjónvarpsstöðinni Pro 7 að hann
væri mjög bjartsýnn á að lið
hans færi beint upp i Bundeslig-
una eftir næsta tímabil. „Okkur
gekk ekki vel fyrir áramót og
lentum í meiðslum en þegar ís-
lendingurinn knái, Bjarki Gunn-
laugsson, kom til okkar þá gekk
liðinu allt í haginn og hann
sýndi að hann er leikmaður sem
við vildum ekki missa af enda
geröum við þriggja ára samning.
Hann á eftir að láta mikið að sér
kveða næsta vetur og auk þess
höfum við styrkt liðiö með
nokkrum nýjum leikmönnum og
ég held að við eigum góða mögu-
leika á að fara upp,“ sagöi
þjálfarinn.
SPILADU MED ÞINU LIDI
DV
Meistaramót golfklúbbanna um helgina:
Karen sigraði átt-
unda árið í röð
-Tryggvi og Ragnheiður urðu hlutskörpust hjá GR
Meistaramót klúbbanna í golfi
fóru fram um allt land í síðustu
viku og lauk um helgina.
Karen Sævarsdóttir varð meistari
í kvennaflokki hjá Golfklúbbi Suð-
umesja áttunda árið i röð en hún
lék á 317 höggum. Magdalena Sirrý
Þórisdóttir varð önnur á 342 og Rut
Þorsteinsdóttir þriðja á 362 höggum.
Örn Ævar Hjartarson unglinga-
landsliðsmaður sigraði hins vegar í
fyrsta skipti í meistaraflokki karla á
293 höggum. Helgi Birkir Þórisson
kom næstur á 297 og Guðmundur
Rúnar Hallgrímsson varð þriðji á
300 höggum.
Hjá Golfklúbbi Reykjavíkur sigr-
aði Tryggvi Pétursson 1 meistara-
flokki karla á 305 höggum, Hjalti
Pálmason lék á 312 og Hjalti Atlason
á 315. Ragnhildur Sigurðardóttir
sigraði í meistaraflokki kvenna á
318 höggum, Herborg Arnardóttir
lék á 328 og Sigríður Th. Mathiesen
á 361 höggi.
Hjá Golfklúbbi Borgarness sigr-
aði Haraldur Már Stefánsson í mfl.
karla en í 1. flokki kvenna sigraði
Þuríður Jóhannsdóttir.
Hjá Golfklúbbi Djúpavogs sigraði
Ágúst Bogason í mfl. karla með og
án forgjafar, Kristín Björnsdóttir
sigraði í mfl. kvenna.
Hjá Golfklúbbnum á Flúðum sigr-
aði Reynir Guðmundsson í mfl.
karla en Halldóra Halldórsdóttir hjá
konunum.
Hjá Golfklúbbi Grindavíkur sigr-
aði Gunnlaugur Sævarsson í mfl.
karla en Bylgja Guðmundsdóttir í
mfl. kvenna.
Hjá Golfklúbbi Húsavíkur sigraði
Guðni Rúnar Helgason í mfl. karla
en Sólveig Skúladóttir sigraði hjá
konunum.
Á ísafirði sigraði Sigurður Daní-
elsson í mfl. karla.
Hjá Golfklúbbnum Kili í Mosfells-
bæ sigraði Kári Jóhannsson en í
mfl. kvenna sigraði Jónína Pálsdótt-
ir.
Hjá Golfklúbbi Kópavogs og
Garðabæ sigraði ívar Hauksson í
mfl. karla en Sigrún Ragnarsdóttir í
mfl. kvenna.
Hjá Golfklúbbnum Leyni á Akra-
nesi sigraði Birgir Leifur Hafþórs-
son í mfl. karla.
Hjá Nesklúbbnum sigraði Rúnar
G. Gunnarsson hjá körlunum en
Sigrún Edda Jónsdóttir hjá konun-
um.
Á Akureyri sigraði Sigurpáll Geir
Sveinsson í mfl. karla en Erla Ad-
olfsdóttir hjá konunum.
Hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnar-
firði sigraði Friðbjöm Oddsson í
mfl. karla en hjá konunum sigraði
Þórdis Geirsdóttir.
Gunnlaugur Sævarsson sigraði í
karlaflokki hjá Golfklúbbi Grinda-
víkur en Bylgja Guðmundsdóttir f
mfl. kvenna.
Hjá Golfklúbbi Bakkakots sigraði
Jóhann Friðbjömsson í karlaflokki
og Anna Medde Kokholm í kvenna-
flokki.
Hjá GHR á Rangárvöllum sigraði
Óskar Pálsson í karlaflokki og Sig-
ríður Hannesdóttir í kvennaflokki.
Hjá Golfklúbbi Sandgerðis sigraði
Hlynur Jóhannsson í karlaflokki og
Alma Jónsdóttir i kvennaflokki.
-ÆMK/VS/JGG
Orn Ævar Hjartarson meö sigurlaun sín á laugardagskvöldiö eftir aö hafa sigraö í meistaraflokki karla á meistaramóti
Golfklúbbs Suöurnesja. DV-mynd ÆMK
Draumaliðið
í vandræðum
Draumalið III, eins og ólymp-
iulið Bandaríkjamanna í
körfuknattleik er kallað, lenti í
óvæntum vandræðum með úr-
valslið úr bandarísku háskólun-
um í upphitunarleik sem fram
fór í Michigan í fyrrinótt. Há-
skólastrákarnir náðu 17 stiga
forystu í fyrri hálfleiknum en
stjörnurnar björguðu andlitinu á
lokakaflanum og sigruðu, 96-90.
Scottie Pippen skoraði 17 stig
fyrir draumaliðið og Hakeem
Olajuwon 16 en Shea Seals gerði
20 stig fyrir háskólaliðið. Uppselt
var á leikinn og áhorfendur vom
um 22 þúsund.
Draumaliðið lék við Brasilíu í
nótt en mætir siðan Kfnverjum,
Áströlum og Grikkjum í upphit-
unarleikjum næstu vikuna.
Fredericks
stöðvaði
Johnson
Frankie Fredericks, Namibíu-
maðurinn sprettharði, varð
fyrstur til að sigra Bandaríkja-
manninn Michael Johnson í tvö
ár þegar hann kom á undan hon-
um í mark í 200 metra hlaupi á
Bislett leikunum í Osló á föstu-
dagskvöldið.
Fredericks hljóp vegalengdina
á 19,82 sekúndum en Johnson,
sem setti heimsmet, 19,66 sek-
úndur, hálfum mánuði áður,
hljóp á 19,85. Johnson hafði unn-
ið 21 hlaup í röð og flestir hafa
spáð honum sigri bæði í 200 og
400 m hlaupi á Ólympíuleikun-
um í Atlanta.
FC Köbenhavn
vann Maribor
FC Köbenhavn vann Maribor
Branik, 0-1, í Slóveníu í 3. riðli
Intertoto-keppninnar á laugar-
daginn en þetta er riðill Keflvfk-
inga. Staðan þar er þá þannig:
Örebro 2 110 5-3 4
Maribor 3 111 3-14
Köbenhavn 2 110 3-2 4
Austria 2 10 1,6-3 3
Keflavík 3 0 12 1-9 1
Berzin heldur
forystunni
Evgeni Berzin frá Rússlandi
er áfram fyrstur I Tour de
France hjólreiðakeppninni eftir
sigur í áttunda áfanga hennar í
gær. Bjarne Riis frá Danmörku
varð annar í gær og Abraham
Olano frá Spáni þriðji. Þeir þrír
eru einnig í sömu sætum í heild-
arkeppninni. Hinn frægi Miguel
Indurain frá Spáni er í ellefta
sæti en hann varð í 4.-5. sæti í
gær ásamt Tony Rominger frá
Sviss.
^ Meistaramót íslands í sundi:
Tvö Islandsmet í boðsundum
Tvö íslandsmet, bæði í boðsund-
um, féllu á sundmeistaramóti Is-
lands sem lauk í Laugardalslaug-
inni í gærkvöldi. A-sveit SH synti
4x100 metra fjórsund karla á 4:09,99
mínútum og A-sveit Ægis synti
4x200 metra skriðsund karla á
8:21,99 mínútum.
Magnús Konráðsson, Keflavík,
fékk Pálsbikarinn fyrir besta afrek
mótsins en hann synti 100 m bringu-
sund á 1:05,88 mín. og fékk fyrir það
805 stig.
Elín Sigurðardóttir, SH, fékk Kol-
brúnarbikarinn fyrir besta afrek
kvenna. Hún synti 50 m skriðsund á
27,01 sekúndum og fékk fyrir það
773 stig.
Kristín Guðmundsdóttir, Ægi,
fékk stigabikar SSÍ fyrir að bæta sig
mest á milli móta.
Eydís Konráðsdóttir, Keflavík,
sigraði f 400 m skriðsundi á 4:35,59
min., í 100 m baksundi á 1:06,56
mín., 100 m flugsundi á 1:05,43 mín.
og 200 m skriðsundi á 2:11,30 mín.
Magnús Konráðsson, Keflavík,
sigraði auk 100 m bringusundsins í
200 m bringusundi á 2:24,37 mín. og
200 m skriðsundi á 2:01,39 min. og
200 m fjórsundi á 2:10,56 min.
Elín Sigurðardóttir, SH, sigraði í
100 m skriðsundi á 1:00,21 mín., og í
50 m skriðsundinu.
Örn Arnarson, SH, sigraði í 400 m
skriðsundi á 4:15,79 mín., 100 m
baksundi á 1:04,53 min., 400 m fjór-
sundi á 4:49,64 mín. og 200 m
baksundi á 2:17,79 mín.
Halldóra Þorgeirsdóttir, Ægi,
sigraði í 200 m bringusundi á 2:52,32
mín. og 100 m bringusundi á 1:19,49
mfn.
Lára Hrund Bjargardóttir, Þór Þ.,
sigraði í 200 m flugsundi á 2:36,30
mín., 400 m fjórsundi á 5:21,97 mín.
og 200 m fjórsundi á 2:31,66 min.
Davíð Freyr Þórunnarson, SH,
sigraði í 200 m flugsundi á 2:15,26
mín„ 100 m flugsundi á 59,34 sek. og
50 m skriðsundi á 25,84 sek.
Richard Kristinsson, Ægi, sigraði
í 100 m skriðsundi á 56,63 sek.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA,
sigraði í 200 m baksundi á 2:32,93
mín.
Ingibjörg Ólöf ísaksen, Ægi, sigr-
aði í 800 m skriðsundi á 9:55,85 mín.
Ómar Snævar Friðriksson, SH,
sigraði í 1.500 m skriðsundi á
17:17,10 min.
A-kvennasveit Ægis sigraði í
4x200 m skriðsundi á 9:26,58 mtn. og
A-kvennasveit Keflavíkur í 4x100 m
fjórsundi á 4:50,55 mín. A-kvenna-
sveit Ægis sigraði í 4x100 m skrið-
sundi 4:18,00 og A-karlasveit SH
sigraði í 4x100 m skriðsundi á
3:49,77 mín,
Hópur til Þýskalands
Eftir mótið var valinn 10 manna
hópur til keppni á alþjóðlegu móti í
Darmstadt í Þýskalandi um næstu
helgi. Fyrir valinu urðu Hörður
Guðmundsson, Richard Kristinsson,
Kári Sturlaugsson, Hildur Einars-
dóttir, Kristín Guðmundsdóttir og
Ingibjörg Ólöf ísaksen úr Ægi,
Hjalti Guðmundsson og Davíð Freyr
Þórunnarson úr SH, Magnús Kon-
ráðsson úr Keflavík og Sigurlín
Garðarsdóttir frá Selfossi.
-VS