Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1996, Side 7
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1996
27
íþróttir
flötum
á Venna (Fáknr)
6. Rakel Róbertsdóttir 8,42
á Neríu (Gustur)
7. Bylgja Gauksdóttir 8,39
á Goða (Andvari)
8. Þórunn Kristjánsdóttir 8,37
á Rökkva (Fákur)
150 metra
skeið
1. Snarfari 14,35 sek.
Eig./kn.: Sigurbjörn Bárðarson
2. Lúta 14,42 sek.
Eig.: Hugi Kristinsson
Knapi: Þórður Þorgeirsson
3. Hólmi 14,98 sek.
Eig.: Svanur Guðmundsson og
Vilberg Skúlason
Knapi: Svanur Guðmundsson
4. Prinsessa 15,08 sek.
Eig./kn.: Logi Laxdal
5. Askur 15,19 sek.
Eig.: Björn Ólafsson
Knapi: Orri Snorrason
250 metra
skeið
1. Sprengihvellur 22,20 sek.
Eig./kn.: Logi Laxdal
2. Ósk 22,21 sek.
Eig.: Sigurbjöm Bárðarson
3. Funi 22,54 sek.
Eig.: Margeir Þorgeii-sson
Knapi: Erling Sigurðsson
4. Svala 22,81 sek.
Eig./kn.: Hörður Hákonarson
5. Diljá 23,20 sek.
Eig.: Páll Eggertsson
Knapi: Sigurður Marinusson
300 Brokk
1. Nari 35,76 sek.
Eig.: Margrét Hafliðadóttir
Knapi: Þorkell Bjarnason
Aðrir lágu ekki
Tölt
1. Hafliði Halldórsson
á Nælú (Fákur)
2. Sigurbjörn Bárðarson
á Oddi (Fákur)
3. Vignir Siggeirsson
á Þyrli (Geysir)
4. Höskuldur Jónsson
á Þyt (Létti)
5. Adolf Snæbjörnsson
á Mekki (Sörli)
6. Guðmimdur Guðmundsson
á Blesa (Geysir)
Glíma frá Laugarvatni fékk hæstu kynbótagildisspá fyrir afkvæmi í heiðursverölaunaflokki hryssna.
Glæsilegu fjórðungsmóti lauk á
Gaddstaðaflötum við Hellu í gær.
Mótið var landsmótsígildi hvað
varðar hestakost og knapa.
Vissulega var mótið fjórðungs-
mót sunnlenskra hestamanna en
sem fyrr voru mörg afrekshross-
anna fædd í öðrum landshlutum
og hafa gert garðinn frægan á
fjórðungsmótum þar.
Má þar nefna Þyril frá Vatns-
leysu sem sigraði í B-flokki en það
gerði hann einnig á fjórðungsmót-
inu á Vindheimamelum 1993.
Kórína frá Tjamarlandi stóð
efst hryssna í sex vetra flokknum
á Hellu og var þá að endurtaka af-
rek frá í fyrra á Fomustekkum á
Austurlandi.
Hjörvar frá Ketilsstöðum stóð
efstur í flokki sex vetra stóðhesta
á Fornustekkum í fyrra en nú
sigraði hann í A-flokki á Hellu.
Þannig mætti lengi telja upp
gæðingana og kynbótahrossin.
Framkvæmd mótsins var með
ágætum og veðurblíðan varð til
þess aö mótsgestir undu sér hið
besta.
Tvö ár eru liðin frá því að síð-
asta landsmót var haldið er hægt
að fullyrða að framfarir hafa orðið
á þeim stutta tíma sem er liðinn,
ef marka má allan þann fjölda
toppkynbótahrossa sem voru leidd
fram í sýningu.
Þetta er síðasta fjórðungsmótiö
sem í augsýn á Hellu. Á næsta ári
verður fjóröungsmót á Vestur-
landi en svo landsmót annað hvert
ár upp frá því.
E.J.
Dramatísk úrslitakeppni
á fjórðungsmótinu
- tveimur hestum vísaö úr keppni
á Gaddstaða-
Endalok fjórðungsmótsins á Hellu
minntu um margt á landsmótslok á
sama stað 1994.
Nú sem fyrr lenti Hinrik Braga-
son í ógæfu, missti hest sinn Gými
á landsmótinu en nú var stóðhestur-
inn Óður frá Brún, sem hann var
með í úrslitum A-flokks, dæmdur úr
leik vegna kergju en hafði staðið
efstur í tveimur sýningum sem voru
að baki.
„Það þýðir ekki að vera með
þessa kalla í merum og sýningum á
sama tíma,“ segir Hinrik. „Við tók-
um Óð úr merum skömmu fyrir mót
og settum hann inn en vorum fljót
að setja hann aftur í merarnar og
náðum í hann í haga þegar A-flokks
keppnin stóð yfir.
Óður er hjá 36 merum á Stóra-
Hofi og verður hjá þeim í ailt sum-
ar, bæði gangmálin. Við gerðum
þetta ekki nema af því að hann er
svo spakur að hægt er að ganga að
honum í haganum og ná honum því
hann er á 130 hektara hólfí.
Hann veut einbeitingarlaus í úr-
slitunum og vildi ekki gera það sem
ég ætlaðist til af honum. Ég er ekki
ósattur við dóminn en hef þá tilfinn-
ingu að hann hefði haft þetta,“ seg-
ir Hinrik Bragason.
Það hafa heyrst sögur um að ver-
ið sé að gera hlutafélag um Óð og
verði seldir tuttugu hlutir sem hver
verður fyrir þrjár merar. Áætlað
verð hestsins verður þá rúmlega tíu
milljónir króna.
Annar stóðhestur, Hjörvar frá
Ketilsstöðum, skaust upp í efsta
sætið í úrslitum í A-flokki.
Fjórir af átta gæðingum í úrslita-
keppninni í A-flokki voru stóðhest-
ar.
I B-flokki sigraði Þyrill frá Vatns-
leysu en hann stóð efstur á fjórð-
ungsmóti hestamanna á Norður-
landi sumarið 1993.
I úrslitakeppni B-flokksins var
öðrum hesti vísað frá keppni. Far-
sæll frá Amarhóli var talinn vera
haltur og fékk ekki einkunn.
Nýjungin bauö upp
á spennu
Hið nýja fyrirkomulag gæðinga-
keppninnar bauð upp á mikla
spennu.
Fyrst voru allir gæðingarnir
dæmdir og voru fjórir keppendur
inni á hringvellinum í elnu. Tutt-
ugu hæst dæmdu keppendurnir
héldu áfram í milliriðil og eftir
keppni hvers hests fyrir sig komust
átta keppendur í úrslit.
Einungis tveir hestar náðu að
Vignir Siggeirsson knapi á Þyrli frá Vatnsleysu, sem sigraöi í B-flokki gæöinga, Hafliöi Halldórsson á Nælu sem varð
í ööru sæti en jafnframt sigraði Hafliöi i töltkeppninni á Nælu og lengst til hægri er Erling Sigurösson á Feldi.
DV-mynd E.J.
halda efsta sætinu í öllum þremur
sýningunum. Þyrill frá Vatnsleysu,
sem var stýrt af Vigni Siggeirssyni,
og Hrafn frá Hrafnagili, sem stóð
efstur í ungmennaflokki, en knapi
hans var Ragnar É. Ágústsson í
Sörla.
Óður frá Brún stóð efstur í A-
flokki í tveimur fyrstu sýningunum,
í unglingaflokki var skipt þrisvar
sinnum um keppanda á toppnum og
í barnaflokki sigraði Silvia Sigur-
bjömsdóttir eftir að hafa náð topp-
sætinu í milliriðli.
Það er athyglisvert að einungis
helmingur þeirra sextán hesta-
mannafélaga sem stóðu að fjórð-
ungsmótinu komu knöpum í úrslit í
gæðingakeppninni.
Fáksmenn voru sem fyrr dugleg-
astir og komu sextán keppendum í
úrslitasæti, af þeim fjörutíu sætum
sem vora í boði.
Heimamenn í Geysi voru með sjö
úrslitasæti og fimm knapar í Sörla
komust í úrslit en kepptu allir í
unglinga- og ungmennaflokki. Þar
er greinilega vel staðið að ung-
knapastarfi.
Unglingar í hestamannafélögun-
um á höfuðborgarsvæðinu hafa
safnað saman aur til að kaupa
ásetuverðlaun sem vora veitt á
fjórðungsmótinu.
í bamaflokki hlaut Silvía Sigur-
björnsdóttir (Fáki) verðlaunin, í
unglingaflokki Hinrik Þ. Sigurðsson
(Sörla) og í ungmennaflokki Ragnar
E. Ágústsson (Sörla).
Daníel Jónsson hlaut verðlaun
Félags tamningamanna.
Fór í veiði milli atriða
I töltkeppninni sigraði hryssan
Næla frá Bakkakoti en hún hefur
verið nánast ósigrandi í tölti undan-
farin ár.
Knapinn Hafliði Halldórsson var
mjög slakur á meðan á fjórðungs-
mótinu stóð og sama dag og hann
sigraði i töltkeppninni sleit hann
upp sjö laxa úr Rangá sem rennur
við Gaddstaðaflatir.
Gaf verðlaun á afmælisdag-
inn
Guðni Kristinsson, bóndi á
Skarði í Holta- og Landsveit, gaf öll
verðlaunin í töltkeppnina. Guðni
varð sjötugur á laugardeginum er
úrslit töltkeppninnar voru háð.
Guðni á einnig tvö sneggstu
hlauparana í 350 metra stökkinu en
þeirri grein hefur hann haldið uppi
að mestu leyti undanfarin ár.
Urslitasæti
Félag
Fákur
Geysir
Sörli
Hörður
Andvari
Gustur
Ljúfur
Máni
A—fl.
5
1
5
1
1
0
0
0
B-fl.
4
2
0
1
0
0
1
0
Böm
4
2
0
0
1
1
0
0
Ungl.
1
1
2
1
1
1
0
1
Ungm.
2
1
3
1
0
0
1
0
Landsmótsígildi
DV-mynd E.J.