Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ1996 Fréttir______________. __________________________ Nær einn af hverjum finun skjólstæðingum SÁÁ hefur sprautað sig í æð, segir yfirlæknir: Bærinn virðist hafa flotið í amfetamíni í vetur - sprautuflklum snarQölgar og meirihluti þeirra fær lifrarbólgu Nákvæm rannsókn hjá SÁÁ hef- ur leitt í ljós að fjöldi sprautufikla sem leita til stofnunarinnar hefur stóraukist og meirihluti þeirra fær lifrarbólgu C sem er „stórkostlegt heilbrigðisvandamál" hér á landi, að sögn yfirlæknis. Nú er svo kom- ið að þegar sjúklingur innritast á Vog eru líkumar nær 1:5 að við- komandi hafi sprautað sig í æð. „Allur bærinn virðist hafa flotið í amfetamíni í vetur," sagði Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir sem hefur haldið tölur yfir ástandið allt til dagsins í dag - framboð amfetamíns og neysla hafi „aukist rosalega". í ársskýrslu SÁÁ fyrir árið 1995, sem nú er að koma út, kemur fram að sprautufiklar sækja í vaxandi mæli í ópíumefni sem ávísað er af læknum hér á landi. „Nú er þetta orðið slíkt vandamál að sérstakra viðbragða er þörf af hálfu lækna og lyfsala," segir í skýrslunni. Mest hefur verið sóst eftir lyfinu fortral en efnum eins og morfín og kódín hefúr einnig verið ávísað. Þórarinn segir að áður fyrr hafi sprautufíklar aðallega verið „öðra hvoru megin“ við þrítugt en nú séu 20-24 ára ungmenni orðin mestu sprautufíklamir - neytendur verða stöðugt yngri. Sprautufiklar eru jafiian líkam- lega veikari en aðrir vímuefnaneyt- endur og fá miklu oftar sýkingar. Liðlega 60 prósent þeirra sem sprauta sig reglulega i æð hafa feng- ið C-lifrarbólgu. Rannsóknir sýna síðan að 70 prósent þessara sjúk- linga losa sig ekki við veiruna og fá langvinna lifrarbólgu. Þeir verða því áfram smitandi og þurfa að vera undir læknishendi. „Hér er því um að ræöa stórkostlegt heilbrigðis- vandamál sem mun á komandi árum fjölga tilfellum af skorpulifúr verulega frá því sem nú er,“ segir í skýrslunni. „Eftir 10-15 ár munu tíu einstakl- ingar deyja á ári úr lifrarbilun vegna C-lifrarbólgu ef svo heldur fram sem horfir," sagði Þórarinn. Mótefni gegn alnæmi hefur ekki fundist hjá umræddum einstakling- um sem könnun SÁÁ náöi til - það er talið „slembilukka“. Hins vegar eru alnæmi og lifrarbólga fastir fylgifiskar amfetamínneyslu erlend- is og ekki ástæða talin til að ætla annað en að svo verði einnig hér á landi. -Ótt Sameiningarmál Alþýðuílokks og Þjóðvaka: Þingflokkur Þjóðvaka að bjarga eigin skinni Eggert Þorfinnsson, skipstjóri á Oddeyrinni EA, í stólnum sínum i brúnni. DV-mynd gk 60 tíma bið eftir að loðnulöndun lauk: Ástandið svipað og fyrir þremur árum - segir skipstjórinn á loðnuskipinu Oddeyrinni „Það sem er að gerast í þessum málum er aðeins eitt Þingflokkur Þjóðvaka er að bjarga eigin skinni í pólitíkinni og sækir því eftir sam- einingu við Alþýðuflokkinn. Þar á bæ er gríðarlegur áhugi fyrir sam- einingu. En síðan spyrja kratar hvað er Þjóðvaki annað en þing- flokkurinn ef marka má skoðana- kannanir? Jóhanna Sigurðardóttir er eini þingmaður Þjóðvaka sem hefur lít- inn áhuga á að sameinast þingfiokki krata. Það hefur því verið Ágúst Einarsson sem hefur haft forystu fyrir Þjóðvakafólkinu og Svanfríður Jónasdóttir var með honum í óform- legum viðræðum við Jón Baldvin Hannibalsson í vor. Jón Baldvin hefur boðið þessa þingmenn vel- komna og búið, punktur basta,“ sagði einn af þingmönnum Alþýöu- flokksins í samtali við DV um sam- einingarmálin. Svanfríður Jónasdóttir viöur- kennir í samtali við DV að hafa, ásamt Ágústi Einarssyni, átt óform- lega fundi með Jóni Baldvin í síð- astamánuði. „Út úr þeim fundum kom ekkert ákveðið og því era engar fréttir af þessu máli,“ hún. Samkvæmt heimildum DV mimu þeir Ágúst og Jón Baldvin hafa komið sér saman um eitthvert fram- hald þessara viðræðna þegar þeir koma úr sumarfríi en Jón Baldvin er á Spáni en Ágúst Einarsson í Bandaríkjunum. Ástæðan fyrir því að Jóhanna Sigurðardóttir fékk ekki að vita um þessa óformlegu fundi fyrr en eftir á er auðvitað sú að hún er andvíg sameiningu við Alþýðuflokkinn nema Alþýðubandalagið verði með. Því er einnig haldið fram að þess- ir óformlegu fundir hafi orðið til þess að Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins, skrifaði formönnum Þjóðvaka, Al- þýðuflokks og þingflokksformanni Kvennalista bréfið fræga um sam- starf flokkanna. Þetta bréf olli nokkra uppnámi í Alþýðubandalag- inu. Það hefur fengist staðfest að það bréf kom mjög snöggt upp, svo snöggt að það gafst ekki tími til að kynna það fyrir öllum þingmönnum flokksins nema símleiðis. Nú er full- yrt að ekkert sé að gerast innan Al- þýðubandalagsins í þessu máli. DV, Akureyri: „Það sem er mest svekkjandi við þetta er að það sitja ekki allir við sama borð. Sumar bræðslumar eiga skip og þau hafa forgang hjá þeim og svo era aðrar bræðslur með samninga við sérstök skip sem hafa forgang,“ segir Eggert Þorfmnsson, skipstjóri á loðnuskipinu Oddeyr- inni frá Akureyri. Oddeyrin kom til Siglufjarðar á mánudag og landaði fullfermi, eða um 700 tonnum. Skipinu var síðan siglt til Akureyrar og við tók svo 62 tíma löndunarstopp þar sem bræðsl- urnar hafa ekki undan. Eggert segir meginhluta mannskap- arins á Oddeyrinni vera frá Akur- eyri en þeir sem eiga heima lengra í burtu hafi haldið heim á leið. Hann segir að siglingin á miðin hafi tekið um 17 tíma að undanfomu en Samkvæmt bráðabirgðaaflatölum stefnir í metafla á fiskveiöiárinu, en heildarafli er þegar orðinn 1.570 þúsund tonn. Fyrstu sex mánuði almanaksársins varð heildarafli landsmanna 1.200 þúsund tonn sem er 18% meira en var á síðasta ári og verðmæti aflans er 28,1 milljarður og hefur aukist um tæp 5% miðað við sama tíma í fyrra. þau era um 170 mílur norður af Sléttu. Þá hefur tekið allt að 10 tím- um að fylla skipið og síðan tekur við sigling í land að nýju, löndun og löndunarbið. „Ástandið hefur aldrei verið svona slæmt áður en því veldur ýmislegt s.s. fullkomnari skip með meiri af- kastagetu en áður og fleiri um veið- amar sem hafa gengið mjög vel.“ Eggert hefur verið til sjós í yfír 30 ár og lengi fengist við þann dyntótta fisk loðnuna. „Ástandið núna minn- ir nokkuð á það sem var fyrir þrem- ur árum en við höfum verið að veiða loðnu sem hrygndi í fyrra og lifði af. Svo er alveg eftir að veiða úr 1,5 milljóna tonna kvótanum sem gefinn hefur verið út. Ég er bjart- sýnn á framhaldið núna, biðin í landi er þó svekkjandi en það þýðir ekkert annað en taka þessu," segir Eggert. -gk Aukningin er fyrst og fremst í loðnu en loðnuveiðar á árinu eru 46% meiri en á síðasta fiskveiðiári. Þá hefur þorskur aukist um rúm 8%, steinbítur um 23%, úthafskarfi tvöfaldast og annar botnfiskur um 23%. Botnfiskur í heild hefur aukist um tæp 4% og er um 408 þúsund lestir. -SÁ Eldur í raðhúsi „Það var mjög mikill reykur þarna enda kom í ljós að rasla- tunnugeymsla logaði og fimm eða sex tunnur voru alveg brunnar niður þegar við kom- um,“ segu- Marteinn Geirsson, varðstjóri slökkviliðsins í Reykjavík, eftir að fljótt og vel gekk að slökkva eld i Rangárseli 16 í nótt. Húsið er raöhús með íbúðum á tveimur hæðum og sluppu íbúðirnar að mestu við reyk. Verkstæði á jarðhæðinni varð fyrir einhverjum reyk- skemmdum þar sem eldurinn hafði náð í bílskúrshurð sem skilur verkstæðið og rusla- geymsluna aö. -sv Stuttar fréttir Tívolíið þreytandi íbúar Gijótaþorps hafa kvart- að við borgarráð undan ferðatí- volíi á Miðbakka. Þeir segjast orðnir þreyttir á að taka þátt í skralli annars fólks. Tíminn seg- ir frá. R-iistinn skelfur Yfirlýsingar Sigrúnar Magn- úsdótfur, oddvita R-listans, um að í lagi sé að flytja Landmæling- ar úr Reykjavík hafa valdiö skjálfta innan borgarstjórnar- meirihlutans. Alþýðublaðið greinir frá. Jarðskjálftaæfingar Meira en 2.000 hermenn frá NATO-ríkjum munu koma til ís- lands í júli að ári til að æfa við- brögð við Suðurlandsskjálfta. Mikill áhugi á þátttöku er í A- Evrópuríkjum. Morgunblaðið segir frá. Herdís á peningana Norræn verðlaun, sem Herdís Storgaard, fulltrúi hjá SVFÍ, fékk fyrir að vinna gegn bamaslysum eru hennar eign en ekki SVFÍ, samkvæmt sameigin- legri yfirlýsingu beggja. 268 hreindýr Umhverfisráðherra hefúr leyft að veiða 268 hreindýr á þessu ári. Þetta eru 23 dýrum færra en mátti veiða í fyrra. Morgunblað- ið segir frá. Magnesíumverksmiöja Ákvörðun verður tekin um arðsemisrannsókn vegna mag- nesíumverksmiðju á Suðurnesj- um í lok þessa mánaðar. Hita- veita Suöurnesja vill að ríkið taki þátt í málinu. Tíminn grein- ir frá þessu. -SÁ -S.dór Erlend hjón voru flutt á slysadeild eftir aö bifreiö þeirra valt á Kjósarskarðs- vegi um kvöldmatarieytiö í gærkvöldi. Konan var flutt meö sjúkrabíl en bíl- stjórinn virtist minna meiddur og fór meö lögreglunni. Þau voru á bílaleigu- bíl og skemmdist bíllinn nokkuö. DV-mynd S Þú getur svarað þessari spurningu meö því að hringja í síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Já 1 Noí 2 j rödd FOLKSINS 9041600 Eiga vinstri flokkarnir að sameinast? Yfirstandandi fiskveiðiár: Líklega metaflaár

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.