Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996
Viðskipti
V öruflutningabílar:
Nafnbreyting sem
sparar vörugjald
- heita nú gámabílar vegna sérkennilegra EES-reglna
Flutningakassar á sendi- og vöru-
flutningabíla eru ekki lengur fram-
leiddir á íslandi en í kringum þetta
var áður allblómlegur iðnaður.
Þetta er breytt á þann veg að nú
heita kassarnir öðru nafni, nefni-
lega gámar, og gámar á flutninga-
bíla eru bæði fluttir inn og einnig
smíðaðir hér á landi og er reyndar
enn nokkuð blómlegur iðnaður, þótt
Gjaldeyrisþj ónusta:
Skipti-
bankar
fyrir
feröa-
menn
Tveir gjaldeyrisskiptibankar
fyrir ferðamenn eru nú í Reykja-
vík, annar í Upplýsingamiðstöð
ferðamála .1 Bankastræti 2 en
hinn í gamla Hressingarskálan-
um þar sem nú er McDonaldls í
Austurstræti 20.
Skiptibankarnir eru útibú frá
breska fyrirtækinu The Change
Group International. Skipti-
bankinn í Bankastrætinu er op-
inn alla daga vikunnar kl.
8.30-20 en bankinn í Austur-
strætinu kl. 9-23.
1 skiptibönkunum er hægt að
greiða reikninga í islenskum
krónum beint til fyrirtækja í
Bandaríkjunum og Kanada í
gegnum greiðslukerfi Western
Union. -SÁ
Gestur Magnússon hjá Vögnum og þjónustu sýnir gámafestinguna á nýjum
vörubíl sem veriö er aö útbúa í samræmi viö reglur EES. DV-mynd GVA
undir öðru nafni sé. En af þvi að
flutningakassarnir heita nú gámar
verður að festa þá á bílana á sama
hátt og gáma.
Ástæðu þessa er að rekja til gildi-
stöku laga hins Evrópska efnahags-
svæðis og hún er í stuttu máli sú að
flutningakassi á sendibíl eða vöru-
bíl telst vera hluti bilsins og búnað-
ar hans en gámur telst vera farmur.
Þess vegna er það svo að á flutn-
ingakassa sem smíðaður er hér á
landi leggjast sömu vörugjöld og á
bilinn sjálfan en hins vegar ekkert á
gáminn vegna þess að hann telst
ekki vera hluti bílsins heldur farm-
ur hans.
Samkvæmt lögum EES má ekki
mismuna innlendri og erlendri
framleiðslu og áður fyrr lagðist toll-
ur og síðar vörugjald ofan á inn-
flutta vörukassa á flutningabíla og
eftir að EES- lögin tóku gildi varð
einnig 15% vörugjald að leggjast
ofan á sambærilega innlenda vöru. í
fyrra var reglum um skráningu bíla
breytt þannig að þeir fást ekki
skráðir nema þeir séu tilbúnir til
aksturs. Það þýddi að vörukassinn
varð að koma á bílinn áður en hann
var skráður og lenti þá þar með I
sama vörugjaldsflokki og billinn; á
hann lagðist 30% vörugjald þannig
að þessar nýju skráningarreglur
rákust í raun á við vörugjaldsregl-
umar fyrrnefndu.
En um gáma gegnir öðm máli og
til þess að spara vörugjöldin smíða
menn nú gámafestibúnað á vörubíla
og skrá þá síðan þannig tilbúna til
aksturs. Síðan er „gáminum" eða
vörukassanum, hvort heldur hann
er innfluttur frá Danmörku eða
smíðaður hér heima, komið fyrir og
hann festur á „gámaflutningabíl-
inn“ með gámafestingum og vöru-
gjaldið sparast. -SÁ
Þingvísitalan rauf 2000 stiga múrinn
Heildarviðskipti á Verðbréfaþingi
og Opna tilboðsmarkaðinum námu
176.789.018 krónum, eða rúmlega 59
milljón króna hærri upphæð en í
vikunni á undan. Þá rauf þingvísi-
tala hlutabréfa 2000 stiga múrinn og
fór upp í 2004,22 stig að loknum við-
skiptum á mánudag en í síðustu
viku var hún 1946,38 þannig að um
allstórt stökk er að ræða.
Hlutabréf í Marel njóta greinilega
mikillar og vaxandi tiltrúar þvi að
frá áramótum hefur gengi þeirra
hækkað úr 5,50 í 14,30 og í vikunni
steig gengi þeirra enn og er nú sem
fyrr segir 14,30. Raunar hefur gengi
skráðra hlutabréfa á Verðbréfaþingi
íslands hækkað almennt en mjög
mismikið þótt engin komist í hálf-
kvisti við Marel. Þau sem hvað mest
uppsveifla er í eru bréf í Eimskip
sem hafa hækkað úr 6,0 í 7,65, Olís
úr 2,80 í 4,80, Skeljungi úr 3,70 í 5,20,
Haraldi Böðvarssyni úr 2,50 í 4,50,
Síldarvinnslunni úr 4,00 í 7,78,
Skinnaiðnaði hf. úr 3,0 í 5,0.
Viðskipti á Verðbréfaþingi í
fyrradag voru mest með Eimskips-
bréf, eða fyrir 14.290 þús. kr. Næst
komu íslandsbankabréf með 6.787
þús. kr. og í þriðja sæti var Olíufé-
lagið með tæpar 6 milljónir kr.
Álverð hrapaði hratt í vikunni en
byrjunarverð á tonninu var þriðju-
dagsmorguninn 9. júlí sl. 1471 dollar
á tonnið en byrjunarverð í gær-
morgun var komið niður í 1419 doll-
ara þannig að útlitið er heldur dap-
urt þar. Lokaverð á Lundúnamark-
aði sl. miðvikudagskvöld var 1461
dollar en lokaverðið í fyrrakvöld
var komið niður í 1420 dollara og
var enn á niðurleið.
Engar skipasölur fóru fram í er-
lendum höfnum í vikunni fremur
en undanfarnar vikur en gámafisk-
ur var seldur í Bretlandi að vanda.
Magnið var alls 476,167 tonn og af
einstökum tegundum var mest af
ýsu eða 327,917 tonn og fengust 99,26
kr. fyrir kílóið eða alls 32.542.668
krónur fyrir ýsuna. Hæsta kílóverð-
ið fékkst fyrir kola en af honum
seldust 46,3 tonn fyrir 9.181.674
krónur eða 198,45 kr. hvert kíló.
Næsthæsta verðið fékkst fyrir
þorskinn en af honum seldust 23,9
tonn fyrir 3.385.375 krónur. Kíló-
verðið var 141,55.
Gengisbreytingar helstu gjald-
miðla eru þær að gengi dollars og
punds seig lítillega en þýska markið
steig og sömu sögu er að segja um
japanska yenið. -SÁ
Skipasölur
Mark
Dollar
Eimskip
Þingvístt. hlutabr.
Flugleiðir
Oliufélagið
Þingvísit. húsbr.
Skeljungur
PVll
BMBwamniiwwTO
0.SH3
0,65
Lýöur Friöjónsson, nýr aöal-
stjórnandi Coca Cola á Noröur-
löndum.
Coca Cola á Norðurlöndum:
Lýður Friðjóns-
son aðal-
stjórnandi
Lýður Friðjónsson, sem verið
hefur framkvæmdastjóri Coca
Cola í Búdapest í Ungverjalandi,
er þessa dagana að færa sig um
set til Ósló þar sem hann er að
taka við yfirstjórn Coca Cola á
Norðurlöndum, að íslandi þó
undanskildu.
Starfsemi Coca Cola á Norður-
löndunum hefur til þessa verið í
höndum sænska bjór- og gos-
drykkjaframleiðslufyrirtækisins
Pripps en einkaleyfissamningur
þess og Coca Cola fyrirtækisins
í Atlanta í Bandaríkjunum er
runninn út. Coca Cola ætlar að
yfirtaka starfsemina sjálft og
hefur Lýður verið ráðinn æðsti
stjórnandi starfseminnar með
aðsetur í Ósló. Þetta mun vera
með mestu metorðum sem ís-
lendingur hefur náð innan vé-
banda fjölþjóðafyrirtækis og
helst sambærilegt við árangur
Ólafs Jóhanns Ólafssonar hjá
Sony um árið.
Lýður Friðjónsson er þegar
tekinn til starfa í Ósló og í sam-
tali sem DV átti við hann sagði
hann að breytingar á rekstri
Coca Cola á Norðurlöndunum
væru að gerast þessa dagana og
ekki búið að gera þær opinberar
enn og því vildi hann ekki tjá
sig um málið á þessu stigi. -SÁ
Samkeppnisráð um Olís:
Tveir víki úr
stjórn
Samkeppnisráð hefur mælst
til þess að Olíufélagið hf. og
Hydro Texaco A/S hliti ákvörð-
un ráðsins frá 1995 og sjái til
þess að Ólafur Ólafsson og Krist-
inn Hallgrímsson gangi úr stjórn
Olís.
Forsenda tilmælanna er sú að
Samkeppnisráð lítur svo á að
kaup Olíufélagsins og Hydro
Texaco á Olís og stofnun Olíu-
dreifmgar hf sé samruni í skiln-
ingi samkeppnislaga. Því skulu
þeir menn sem eru stjórnarmenn
í Qlíufélaginu, starfsmenn dótt-
urfélaga þess eða verulega háðir
því i störfum sínum ekki sitja í
stjórn Olís. -SÁ
Bilunin hjá Eurocard:
Tryggari búnað-
ur í haust
Eurocard á íslandi harmar
vandræði sem korthafar, einkum
íslendingar erlendis og erlendir
ferðamenn hérlendis, kunna að
hafa orðið fyrir vegna bilunar-
innar sem varð í samskiptatölvu
fyrirtækisins um síðustu helgi.
í frétt frá Eurocard á íslandi
segir að verið sé að prófa nýjan
tölvubúnað í höfuðstöðvum
Eurocard sem koma eigi í veg
fyrir að bilanir eins og hér urðu
um helgina geti komið upp. Bú-
ist er við að slíkur búnaður verði
settur upp hér á landi í haust.
-SÁ