Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996
Sandkorn
Fjölskylduferð
Ólympíuleik-
arnir í Atlanta
í Bandaríkjun-
um hefjast um
næstu helgi.
Islenski þátt-
takendahópur-
inn er kominn
vestur og eins
og svo oft áöur
hafa ólympíu-
nefnd og for-
menn tveggja
íþróttasam-
bandanna, sem
eiga þátttakendur á leikunum, oröiö
að athlægi. Enn einu sinni eru far-
arstjórar og þjálfarar mun fleiri en
íþróttafólkiö eða 13 en íþróttamenn-
imir aöeins 9. En rúsínan í pylsu-
endanum er samt grínið í sambandi
við eiginkonur formanna Sundsam-
bandsins og Frjálsíþróttasambands-
ins. Þær fara báðar með mönnum
sínum á leikana skráðar sem farar-
stjórar. Annar formaðurinn hefur
játað þetta sem mistök sín en segir
of seint að breyta þessu. Hinn sér
ekkert athugavert við að taka kon-
una með. Á sama tima og þessi fjöl-
skylduferð er farin á ólympíuleik-
ana sitja tveir frjálsíþróttamenn eft-
ir heima vegna þess að þá vantar
einhverja örfáa sentímetra upp á
ólympíulágmörk sem fararstjórarnir
krefjast að þeb- nái.
Kraftaverk
Fuborðin
kona, sem átti
þrjá syni milli
tvítugs og þrít-
ugs, sem allir
voru enn í for-
eldrahúsum,
spurði vin-
konu sína að
því hvort hún
vissi hvað
væri sameigin-
legt með ung-
um mönnum í
dag og Jesú Kristi. Vinkonan vissi
það ekki. Þá sagði móðirin að ungu
mennirnir byggju heima hjá foreldr-
um sínum fram til þrítugs og ef
þeir geröu handarviðvik þá væri
það kraftaverk.
Hörð
refsing
Tveir þekkt-
ustu menn
Bretlands á
stiðsárunum
síðari voru
þeir Winston
Churchill og
Montgomery
marskálkur.
Churchill var
mikill lífsnaut-
namaöur bæði i mat og drykk en
Montgomery var grænmetisæta.
Einu sinn var það upplýst í breska
þinginu að Montgomery hefði boðið
tveimur þýskum herforingjum, sem
hann hafði tekið til fanga, í mat.
Þetta þótti þingmönnum óhæfa og
kröföust skýringa af Churchill for-
sætisráðherra. Hann stóð upp og
spurði þingmenn hvort þeir gætu
hugsað sér verri refsingu en að
vera boðinn í mat hjá Montgomery
hershöfðingja. Þingheimur sprakk
úr hlátri og málið var ekki meira á
dagskrá.
Svonaer
hietinn maður
Sigurður Páls-
son skólastjóri
er höfundur
flámælgivís-
unnar um
veiði manninn
sem sá siel-
unginn upp
við á og viö
birtum í Sand-
komi á dögun-
um. Sigurður
hafði samband
og benti okkur á tvær villur í vis-
unni og því verður hún birt hér aft-
ur. Hann sagði líka að skrifa ætti
„sielung" en ekki „selung" því
þannig væri framburðurinn á Aust-
fjörðum. Vegna þessa birtum við
visuna aftur.
Lá í felum upp við á
eygði sielung stóran.
í stígvélum óðar þá
út í hielinn fór’ann.
Og svona til gamans, vegna þess
að nú er heitasti timi áírsins, er við
hæfi að birta aðra flámælgivísu eft-
ir Sig urö Pálsson.
Hörmung að vieta, hart er flet,
hér eg siet óglaður.
Fyrir svieta ei sofiö get,
svona er hietinn maður!
Umsjón Sigrurdór Sigurdórsson
Fréttir
Engar sumarlokanir hjá Útgerðarfélagi Akureyringa hf.:
Ákváðum að hella
okkur í slaginn
- segir Björgólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri
Akureyri:
„Við eigum nánast engan kvóta
eftir og það kom vissulega til tals að
loka hér fiskvinnslunni í einhvern
tíma. Við ákváðum hins vegar að
Veiðieftirlitsmenn sem vinna:
Undarlegur of-
stopi Fiskistofu
- segir Pálmi Stefánsson útgerðarstjóri
„Eg skil nú ekki hvað þessir
stjórnendur hjá Fiskistofu eru að
standa í látum yfir þessu. Ég veit
ekki annað en þeir sitji sjálfir í alls
kyns nefndum og ráðum samhliða
sínum störfum og eru svo að væla
yfir einhverjum karlræflum sem
eru að reyna að drýgja tekjurnar
sinar, segir Pálmi Stefánsson, út-
gerðarstjóri Básafells á ísafirði.
Fiskistofa kærir líklega í dag
veiðieftirlitsmann sem vann sem
háseti á togaranum Kolbeinsey þeg-
ar hann var á rækju í Flæmska
hattinum og orðrómur er um að
fleiri hafi leikið sama leikinn. Pálmi
kannast ekki við það en segir: „Ég
veit þara ekki hvemig þeir eiga að
eyða tímanum, þessir blessaðir
menn, þegar þeir eru ráðnir upp á
það að gera ekki neitt.“
-SÁ
Vegir á Barðaströnd:
Friðlýstir og á
fornminjaskrá
„Menn eru að verða afskaplega
þreyttir á aðgerðaleysi Vegagerð-
arinnar. Hin eiginlega Barða-
strönd hefur veriö hrikalega slæm
undanfarið og menn brugðu á það
ráð að mála stærstu steinana til
þess að vita hvort ekki yrði brugð-
ist við. Hefill fór af stað en svo illa
var unnið að stóreflis björg voru
skilin eftir á veginum. Tveir bílar
hafa þegar skemmst," sagði Jónas
Þór, lögreglumaður á Patreksfirði,
við DV í morgun. Hann sagði gár-
ungana segja veginn friðlýstan og
að búið væri að setja hann á forn-
minjaskrá. Þess vegna mætti ekki
hreyfa við honum.
-sv
Flugvirkjum fjolg-
að í viðhalds-
deild Flugleiða
DV, Suðurnesjum:
„Við erum búnir að ráða 16 laus-
ráðna flugvirkja fram ágúst eða til
loka þessa söluverkefnis, - stórskoð-
anir á SAS-vélum hjá okkur. Við
höfum tekið flugvirkjana inn í
áfongum og þeir fyrstu voru ráðnir
í júní. Það á síðan eftir að leggja
mat á það hvort þeir verði ráðnir
áfram. Það fer eftir eigin verkefnum
og söluverkefnum,“ sagði Baldur
Bragason, yfirflugvirki hjá við-
haldsdeild Flugleiða á Keflavikur-
flugvelli, hress í bragði enda mikið
að gera hjá deildinni nú, m.a. á flug-
vélum SÁS en þeim lýkur í byrjun
ágúst.
Viðhaldsdeildin hefur getið sér
gott orð fyrir vinnu sína. Því getur
svo farið svo að lausráðnu flug-
virkjarnir fái vinnu áfram en það
skýrist á næstu vikum. Um 50 flug-
virkjar vinna hjá viðhaldsdeildinni
en alls hjá tæknideildinni um 170
manns.
Flugleiðir hafa fastráðið hátt í 15
flugvirkja síðustu 18 mánuðina.
Baldur segir að það hafi hingað til
verið auðvelt að fá flugvirkja. Það
getur breyst þvl flestir eru nú í fóst-
um störfum hjá Flugleiðum og öðr-
um íslenskum flugfélögum.
ÆMK
DV, Akureyri:
I fangelsivegna líkamsárásar
kvennamála og veitti sá dæmdi öðr-
um manni mikla áverka, m.a. kinn-
beinsbrot og fleiri alvarlega áverka
á andliti og var sá sem fyrir
árásinni varð fluttur á sjúkrahús.
Mennimir voru báðir talsvert ölv-
aðir.
-gk
Karlmaður á Akureyri hefur ver-
ið dæmdur í 5 mánaða fangelsi fyr-
ir líkamsárás er átti sér stað við
fjölbýlishús í bænum um síðustu
jól.
Mennirnir munu hafa deilt vegna
taka slaginn og treystum því að það
dæmi gangi upp,“ segir Björgóífur
Jóhannsson, framkvæmdastjóri Út-
gerðarfélags Akureyringa hf.
Sumarlokun fiskvinnslunnar hjá
ÚA hefur ekki átt sér stað síðan árið
1991 en þá var lokað um tíma vegna
hráefnisskorts. Svo hefði án efa farið
nú ef ekki hefði verið gripið til þess
ráðs að flytja inn ísfisk frá Noregi til
vinnslu. „Við höfum flutt þaðan hátt
í 1000 tonn til vinnslu hér og er meg-
inuppistaða þess afla þorskur. Þetta
liggur niðri nú um stundarsakir en
við vonumst til að þetta geti farið í
gang aftur fljótlega."
Björgólfur segir að áformað sé að
senda skip í Smuguna þegar veiði
fari að glæðast þar. Þangað á þá að
senda a.m.k. tvo frystitogara og jafn-
vel einn ísfisktogara. Siglingin í
Smuguna tekur 4-5 sólarhringa og ef
veiði er góð og hægt er að ná afla á 4
dögum eða skemmri tíma er ekkert
að því hráefni sem kemur til
vinnslu. -gk
Ágústtilboð
Heimsferða til
Benidorm
frá kr. 39.932
Viðbótargisting 30. júlí,
6. og 13. ágúst
Nú seljum við síðustu sætin til Benidorm í ágúst-
mánuði. Við höfum tryggt okkur viðbótargist-
ingu á frábæru verði, gott hótel í hjarta Benidorm
með allri þjónustu. Öll herbergi með sjónvarpi
og síma. Góður garður, móttaka, veitingastað-
ur og örstutt í miðbæinn.
Morgunmatur innifalinn í verði. Einnig viðbótar-
íbúðir á Central Park íbúðahótelinu sem er
staðsett í hjarta Benidorm.
39.932
Verð kr.
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára,
Central Park í viku, 6. ágúst.
49.932
Verð kr.
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára,
Central Park, 2 vikur, 6 ágúst.
Verð kr. 59.960
M.v. 2 í íbúð Central Parkyherbergi
Princess Park.
Stökktu til
Benidorm
30. júlí frá 39.932
Fyrir þá sem vilja taka sénsinn
þá geta þeir tryggt sér ferðina á
ótrúlegu verði; þú bókar í 2
vikur og 4 dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú
gistir í fri'inu.
Verð kr. 39.932
m.v. hjón með 2 börn.
Verð kr. 49.960
m.v. 2 íibíið, 2 vikur.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600